Morgunblaðið - 05.06.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
Fimm þúsund manns hafa séð sveiflu Geirmundar
„Við erum mjög
hamingjusöm“
LOKASÝNING skagfirsku söngskemmtunarinnar, í
syngjandi sveiflu, með Geirmund Valtýsson í farar-
broddi verður sett upp í kvöld á Hótel íslandi. í stuttu
samtali við Morgunblaðið sagði Geirmundur að frá því
að sýningin var fyrst sett upp í janúarlok hafi um fimm
þúsund manns séð hana og bætti því við að ekki væri
útilokað að hún yrði sett upp aftur í haust eða vetur.
„Við erum öll sem að þessari
sýningu standa geysilega ham-
ingjusöm með viðtökurnar,“ sagði
Geirmundur. „í fyrstu var búist
við að sýnt yrði fram í lok mars-
mánuðar en nú eru sýningamar
orðnar 14.“ Aðspurður kvaðst
hann telja sýningargesti hafa
komið alls staðar að af landinu
og ennfremur taldi hann víst að
Skagfirðingar hefðu verið gestir
á hverri sýningu. „Það hefur einn-
ig verið ánægjulegt hversu dans-
leikirnir eftir sýningarnar hafa
verið góðir. Sannkallaðir hörku-
dansleikir."
Framhald í haust?
Geirmundur sagði að ekki væri
búið að ákveða hvort sýningin
yrði tekin upp í haust eða vetur
en það kæmi þó vel til greina.
„Þetta er að minnsta kosti loka-
sýningin í bili,“ sagði Geirmundur
en bætti því við að hugsanlega
yrði sýningin sett upp í einhverri
mynd á landsbyggðinni sumarið
1994.
Við hljómborðið
GEIRMUNDUR Valtýsson seg-
ir að vel komi til greina að setja
sýninguna í syngjandi sveiflu
aftur upp i haust.
Tölvusamskipti hasla sér völl vestanhafs
Opnar söluskrif-
stofu í New York
TÖLVUSAMSKIPTI hf. hafa opnað söluskrifstofu í New York
í samstarfi við Flugleiðir, en fyrirtækið stefnir að því að
hasla sér völl á bandarískum markaði. Fyrirtækið tók þátt í
Windows World sýningunni í Atlanta í síðustu viku í boði
bandaríska tölvurisans Microsoft, og að sögn Frosta Sigurjóns-
sonar, framkvæmdastjóra markaðssviðs Tölvusamskipta,
vakti Skjáfaxið, sem fyrirtækið framleiðir, mikla athygli
meðal blaðamanna bandarískra tölvutímarita.
Frosti sagði að það hefði átt stór-
an þátt í að vekja athygli á Tölvu-
samkiptum á sýningunni að fyrir-
tækið var í bás með Microsoft. Með
þátttöku í sýningunni hafi fyrsta
skrefið í markaðssetningu Skjáfax-
ins á Bandaríkjamarkaði verið stig-
ið, en fram til þessa hafi hún aðal-
lega beinst að Norðurlöndum, Evr-
ópu, Suður-Ameríku og og Asíu.
Hann sagði að verið væri að vinna
úr þeim viðskiptasamböndum og
upplýsingum sem fyrirtækinu hefði
áskotnast á sýningunni.
Frosti sagði að fram til þessa
hefði fyrirtækið aðeins starfrækt
símsvörun í New York en frá 8. júní
nk. tekur fyrsti sölumaðurinn til
starfa þar í borg. Markmið með
skrifstofunni í New York er að fylgja
eftir þeim fyrirspurnum sem bárust
á sýningunni, koma í gang endur-
söluaðilum á New York-svæðinu og
annast vörudreifingu. Fyrirtækið
rekur einnig söluskrifstofu í Bret-
landi. Nýlega festi Pepsi Cola Inter-
national kaup á nýjustu útgáfu Skjá-
faxins til notkunar í þremur skrif-
stofubyggingum í New York fylki.
Borgarráð
Arsreikningur Reykjavíkurborgar fyrir 1992 lagður fram í borgarstjórn
Staða borgarinnar versn-
aði um 1,6 milljarða króna
ÁRSREIKNINGUR Reykjavíkurborgar fyrir árið 1992 var
lagður fram til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar í fyrra-
kvöld. I ræðu Markúsar Arnar Antonssonar, borgarstjóra,
kom fram að peningalegar eignir Reykjavíkurborgar umfram
heildarskuldir nemi 653 milljónum króna en hafi í árslok
1991 verið 2.262 milljónir. Staða Reykjavíkurborgar, þ.e.
heildarskuldir umfram peningalegar eignir, hafi þannig
versnað um 1.609 milljónir króna á árinu en staða borgar-
sjóðs hafi versnað um 2.193 milljónir króna. Fram kom að
bókfærð hrein eign Reykjavíkurborgar nam í árslok rúmlega
106 milljörðum króna og hafði hækkað um 2.5 milljarða á
árinu.
2 milljónir
til verkefna
í Litháen
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að veita Verkfræðistof-
unni Hnit hf. tveggja milljóna
króna styrk. Styrkurinn er
veittur til að afla verkefna í
Litháen.
Að sögn Guðmundar Bjömssonar
framkvæmdastjóra, er málið enn á
frumstigi. Um er að ræða gerð staf-
rænna kortagrunna fyrir borgirnar
Vilnius og Kaunas og uppbyggingu
landupprýsingakerfis sem sýnir
lagnaskráningu fyrir sömu borgir.
„Stafræn kort eru kort á tölvutæku
formi eða tölvukort eins og Reykja-
víkurborg hefur yfir að ráða sem
sýna neðanjarðar lagnir og annað,“
sagði Guðmundur.
í ræðu borgarstjóra kom fram
að skatttekjur hafi verið áætlaðar
11.197 milljónir króna en bókfærð-
ar skatttekjur hafi aðeins orðið
10.476 milljónir, sem eru 721 millj-
ónir króna undir áætlun, eða 6.4%.
Lóðasjóður
lagður mð-
ur í árslok
BORGARSTJÓRN samþykkti
í fyrrakvöld tillögu borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokks um
að Lóðasjóður Reykjavíkur-
borgar verði lagður niður í
árslok þessa árs. Eignir sjóðs-
ins, sem voru tæpar 63 miílj-
ónir króna um síðustu ára-
mót, munu renna í borgarsjóð.
Fulltrúar minnihlutans lögðu
til að tillögunni yrði vísað til
borgarráðs en það var fellt.
Sjóðurinn var stofnaður 1973 í
þeim tilgangi að „veita lóðarhöfum
fjárhagsaðstoð í lánsformi til þess
að ganga frá lóðum sínum.“ Lán
úr sjóðnum eru veitt í formi efnisút-
tektar frá borgarfyrirtækjum.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir að nú séu starfandi í borginni og
í nágrenni hennar fyrirtæki í einka-
eign, sem séu í samkeppni við þessi
borgarfyrirtæki. Með því að lán úr
sjóðnum séu bundin við viðskipti
við fyrirtæki borgarinnar sé verið
að mismuna fyrirtækjum og hafa
óeðlileg áhrif á samkeppni á þessu
sviði. Tillagan um að leggja sjóðinn
niður var samþykkt með 10 atkvæð-
um sjálfstæðismanna gegn 5 full-
trúa minnihlutaflokkanna.
Af þessum 721 milljónum hafi tæp-
lega 300 milljónir króna verið vegna
ofáætlaðra tekna ársins, eða 2.6%,
en 421 milljónir króna vegna breyt-
inga og afskrifta útsvars og að-
stöðugjalda fyrri ára, sem færð séu
á rekstur. Á árinu 1991 hafi þessi
upphæð verið 520 milljónir króna.
Breytingar og afskriftir á eigna-
færðum skatttekjum borgarsjóðs á
síðastliðnum tveimur árum hafi
þannig numið 941 milljón króna og
séu það verulega hærri fjárhæðir
en áður gerðist í þessum efnum.
Fram kom hjá borgarstjóra að
rekstur málaflokka hafi verið
áætlaður 7.120 milljónir króna en
orðið samkvæmt reikningi 7.549
milljónir króna, sem eru 429 millj-
ónir umfram áætlun eða 6%. Yfir-
dráttur á hlaupareikningi nam
1.373 milljónum króna í árslok og
lækkaði um 26 milljónir króna frá
fýrra ári.
Ekki gripið til uppsagna
Borgarstjóri sagði að alvarlegir
örðugleikar í rekstri fyrirtækja í
borginni, gjaldþrot og minni tekjur
hjá launþegum vegna vaxandi at-
vinnuleysis, hefðu á skömmum tíma
breytt umtalsvert forsendum fyrir
tekjuáætlunum. „Þessi snöggu um-
skipti til hins verra setja mark sitt
á niðurstöður reikningsins varðandi
minni tekjur en áætlaðar höfðu
verið á síðasta ári. Engu að síður
hefur meirihlutinn í borgarstjórn
haft það að skýru leiðarijósi, að
Reykjavíkurborg myndi ekki að svo
stöddu grípa til uppsagna starfs-
í tillögu Alfreðs Þorsteinssonar,
segir einnig að í samræmi við ný-
gerða samþykkt borgarráðs þess efn-
is að veitingahús í Reykjavík skuli
sitja við sama borð í viðskiptum við
Reykjavíkurborg, samþykki borgar-
fólks í því skyni að lækka reksturs-
kostnað, heldur myndi þvert á móti
leitast við að halda uppi fullum
framkvæmdaþrótti til að efla at-
vinnulífið í borginni almennt og
skapa skólafólki sumarstörf," sagði
borgarstjóri.
Hann sagði að þessu markmiði
hefði verið náð með lántöku til
framkvæmda og sérstakra aðgerða
í atvinnumálum.
Skuldir tvöfaldast
Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn-
arflokki, óskaði bókað á fundinum
að ársreikningurinn sýndi glögg-
lega þá kollsteypu sem orðið hefði
á fjárhag borgarsjóðs á síðustu
árum og keyrt hefði um þverbak á
árinu 1992. „Á þremur árum hafa
skuldir á hvern borgarbúa tvöfald-
ast, voru í árslok 1989, 36 þúsund
á íbúa en 72 þúsund 1992. Þá er
hallinn á borgarsjóði tæpir tveir
milljarðar, sem samsvarar 20 millj-
arða halla á ríkissjóði. Langtímalán
jukust um rúma tvo milljarða á
árinu sem segir að fimmta hver
króna sem við ráðstöfuðum 1992
var tekin að láni,“ segir í bókuninni.
Kristín Á. Ólafsdóttir, Nýjum
vettvangi, lagði fram bókun þar
sem segir að við framlagningu árs-
reiknings Reykjavíkurborgar fyrir
árið 1992 hafi sannast það sem
borgarfulltrúar Nýs vettvangs hafi
fullyrt við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar þess árs að áætlun sjálfstæðis-
manna væri veruleikafyrrt.
Síðari umræða um ársreikning-
inn verður i borgarstjórn 1. júlí nk.
stjórn að fela Innkaupastofnun að
undirbúa útboð vegna þessara við-
skipta. Samþykkt var samhljóða að
vísa tillögunni til stjórnar Innkaupa-
stofnunar.
Leðursófasett frá
Chateau d’Ax á Ítalíu
Teg. 656 - 3 +1 +1, þar af annar með rafknúnu fjarstýrðu baki og skemli, kr. 257.500 stgr
Teg. 800 - 3ja sæta sófi og tveir stólar í leðri, viðargrind ur hnotu, kr. 269.421 stgr.
Opið á laugardögum
frá kl. 10-14
Siðumúla 20 ■ stmi 688799
Umfang þjónustu veitinga-
húsa við borgina kannað
TILLÖGU borgarfulltrúa Framsóknarflokks um að borgarstjórn
feli Innkaupastofnun að gera úttekt á umfangi þjónustu, sem stofn-
anir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar kaupa af veitingaaðilum
vegna mötuneyta, var vísað til stjórnar Innkaupastofnunar á fundi
borgarstjórnar í fyrrakvöld.