Morgunblaðið - 05.06.1993, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
OPINBER HEIMSOKN FORSETA PORTUGALS HOFST I GÆR
Yeður gott á fyrsta
degi heimsóknar
FORSETI Portúgals, dr.
Mário Soares, kom í gær í
opinbera heimsókn til ís-
lands ásamt konu sinni, frú
Maríu Barroso Soares. Þetta
er í fyrsta sinn, sem þau
koma til landsins. Forseta-
hjónin snæddu hádegisverð
á Bessastöðum og síðar um
daginn átti dr. Mário Soares
fund með þremur ráðherr-
um og borgarstjóri tók á
móti hjónunum í Ráðhúsinu.
Veður var gott á höfuðborg-
arsvæðinu í allan gærdag,
lítill vindur og mestan hluta
dagsins var sól.
Flugvél. forsetans lenti á
Reykjavíkurflugvelli rétt fyrir
hádegi. Forseti íslands, frú Vig-
dís Finnbogadóttir, tók á móti
forsetahjónunum. Eftir að þau
höfðu komið sér fyrir í herbergi
sínu á Hótel Sögu var þeim ekið
til Bessastaða, þar sem þau hittu
Vigdísi aftur og borðuðu hádeg-
isverð.
Fundaði með þremur
ráðherrum
Síðar um daginn heimsóttu
svo forsetahjónin Stofnun Áma
Magnússonar ásamt föruneyti
sínu og Davíð Oddssyni. Dr.
Jónas Kristjánsson, forstöðu-
maður Árnastofnunar, gekk með
þeim um safnið og fræddi þau
um sögu þeirra handrita og
muna, sem stofnunin geymir.
Að þessu loknu var haldið í
, ,, , Morgunblaðið/Kristinn
Pjoðsongvar leikmr
FORSETI Portúgals og kona hans lentu á hádegi í gær á Reykjavíkurflugvelli. Við komu þeirra var fyrst
leikinn þjóðsöngur Portúgala og svo okkar íslendinga. Hér sjást þau ásamt Vigdísi Finnbogadóttur hlýða
á þjóðsöngvana.
Stjómarráðið, þar sem dr. Mário
átti tæplega klukkustundar
langan fund með meðal annars
Davíð Oddssyni, forsætisráð-
herra, Þorsteini Pálssyni, sjávar-
útvegsráðherra, og Jóni Baldvini
Hannibalssyni, utanríkisráð-
herra.
í Ráðhúsinu höfðu Markús
Öm Antonsson, borgarstjóri, og
kona hans, frú Steinunn Ár-
mannsdóttir, móttöku fyrir So-
ares-hjónin. Þar heilsuðu þau
borgarfulltrúum og höfðu síðar
á orði að það kæmi þeim á óvart
að af fimmtán borgarfulltrúum
skyldu sjö vera konur. í stuttu
ávarpi, sem borgarstjóri flutti,
bauð hann forsetahjónin vel-
komin til Reykjavíkur og nefndi
nokkur atriði úr sögu borgarinn-
ar. Markús Öm sagði marga
Reykvíkinga eiga góðar minn-
ingar frá Portúgal enda eyddu
margir íslendingar fríi sínu þar.
Ekki bara ferðamannaland
Dr. Mário Soares tók einnig
til máls í Ráðhúsinu og sagði
það vera ánægju fyrir sig og
konu sína að koma til Reykjavík-
ur í fyrsta sinn. Hann sagði að
Portúgalar og íslendingar ættu
tvennt sameiginlegt umfram
annað; þetta væm báðar miklar
fiskveiðiþjóðir og lifðu mikið til
á þorski. Hann bað íslendinga
um að hugsa ekki bara um
Portúgal sem ferðamannaland
heldur hafa í huga að portúg-
alska þjóðin væri þjóð, sem hefði
svipað lýðræði, frelsi og skoðan-
ir eins og íslenska þjóðin.
í dag, laugardag, fer Portúg-
alsforseti í kynnisferð til Þing-
valla með viðkomu í Vinaskógi
og á Nesjavöllum. Forsætisráð-
herrahjónin bjóða til hádegis-
verðar í Perlunni og síðdegis
fara Portúgalsforseti og föra-
neyti hans í skoðunarferð til
Vestmannaeyja. Um kvöldið
heldur Portúgalsforseti kvöld-
verðarboð í Þingholti, Hótel
Holts.
dóttir, félagsmálaráðherra.
Handhafar forsetavalds:
Þór Vilhjálmsson, forseti Hæsta-
réttar og frú Ragnhildur Helgadóttir.
Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis
og hr. Jóel Jóelsson.
Formenn stjórnmálaflokka:
Halldór Ásgrímsson, varaformaður
Framsóknarflokksins og frú Sigur-
jóna Sigurðardóttir. Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokks og frú Edda Guðmundsdóttir.
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins og frú Guðrún
Þorbergsdóttir. Anna Ólafsdóttir
Bjömsson, þingmaður og hr. Ari Sig-
urðsson.
Embættismenn o.fl.
Frú Halldóra Eldjám, fv. forset-
afrú. Herra Ólafur Skúlason, biskup
íslands og frú Ebba Sigurðardóttir.
Per Aasen .sendiherra Noregs, oddviti
sendiherra á Íslandi. Frú Liv Aasen.
Formaður utanríkismálanefndar
Bjöm Bjamason og frú Rut Ingólfs-
dóttir. Dr. Alfred Jolsson, S J. biskup
kaþólskra. Ólafur Davíðssson ráðu-
neytisstjóri og frú Helga Einarsdóttir.
Þorsteinn Ingólfsson, ráðuneytisstjóri
og frú Hólmfríður Kofoed-Hansen.
Markús Öm Antonsson, borgarstjóri
og frú Steinunn Ármannsdóttir. Dr.
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri og
frú Dóra Nordal. Þórarinn V. Þórar-
insson framkvæmdastjóri VSÍ. Frú
Ásdis Guðmundsdóttir. Dr. Sveinbjörn
Bjömsson rektor Háskóla íslands og
frú Guðlaug Einarsdóttir. Benedikt
Davíðsson foraeti ASÍ og frú Finn-
björg Guðmundsdóttir.
Viðskiptaaðilar og Portúgals-
tengsl:
Formaður Útflutningsráðs Páll Sig-
uijónsson og frú Sigríður Gísladóttir.'
Gunnar Snorri Gunnarsson sendi-
herra, yfirmaður viðskiptaskrifstofu.
Ingjaldur Hannibalsson fram-
kvæmdastjóri Útflutingsráðs. Friðrik
Gestir í kvöldverðarboði forseta íslands
Gestalisti í kvöldverði á Hótel
Sögu til heiðurs forseta Portúg-
als dr. Mário Soares og frú Mar-
iu Barroso Soares í gærkvöldi:
Forseti Islands frú Vigdís Finn-
bogadóttir.
Opinberir gestir: Forseti Portúgals
dr. Mário Soares og frú Maria Bar-
roso Soares. Sjávarútvegsráðherra
Eduard Azevedo Soares. Sendiherra
Roberto Pereira de Sousa og frú Pe-
reira de Sousa. Frú Leonor Beleza
varaforseti portúgalska þingsins. Frú
Edite Estrela þingmaður. Joao Diogo
Nunes Barata, skrifstofustjóri for-
seta. António Syder Santiago, proto-
kollstjóri og frú Syder Santiago.
Skrifstofustjóri sjávarútvegsráðherra
frú Marina Lopes Ferreira. Frú Es-
trela Serrano, blaðafulltrúi forseta.
Hr. Carlos Ventura Martins, blaða-
fulltrúi forseta. Hr. Manuel Monge,
hermálaráðunautur. Hr. Alfredo Du-
arte Costa, ráðgjafl. António Neves
da Silva, lögreglufulltrúi. Jaime Ouró,
hermálafulltrúi. Hr. Eduardo Jorge
Souto Moura, viðskiptafulltrúi. Frú
Natércia Viana Teixeira, sendiráðsrit-
ari. Hr. Joao Riberiro de Almeida,
sendiráðsritari. Hr. Cristovao Leitao,
túlkur. Frú Ana Varela, sendiráðsfull-
trúi. Hr. Jorge Brilhante, ljósmyndari.
Ríkisstjórn:
Davíð Oddsson forsætisráðherra og
frú Ástríður Thorarensen. Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra og
frú Bryndís Schram. Eiður Guðnason,
umhverfisráðherra og frú Eygló Har-
atdsdóttir. Ilalldór Blöndal land-
búnaðar- og samgönguráðherra og
frú Kristrún Eymundsdóttir. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Morgunblaðið/Þorkell
ísland skoðað
Á FYRSTA degi opinberrar heimsóknar skoðuðu dr. Mário Soares og kona hans, frú Maria Barroso
Soares, meðal annars Ráðhúsið. Hér sést Markús Örn Antonsson, borgarstjóri, sýna þeim hið stóra ís-
landskort, sem geymt er í ráðhúsinu.
í dag láta svo forsetahjónin sér ekki nægja að skoða kort heldur fara þau til Þingvalla, Nesjavella og
Vestmannaeyja.
og frú Ingibjörg Rafnar. Ólafur G. usson, fjármálaráðherra og frú Sigríð- Laufey Þorbjarnardóttir. Sighvatur
Einarsson, menntamálaráðherra og ur Dúna Kristmundsdóttir. Jón Sig- Björgvinsson, heilbrigðisráðherra og
frú Ragna Bjamadóttir. Friðrik Soph- urðsson, viðskiptaráðherra og frú frú Björk Melax. Jóhanna Sigurðar-