Morgunblaðið - 05.06.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JUNI 1993
23
Máno Soares á fundi með blaðamönnum
EB-aðild ekki nauð-
synleg' fyrir Island
MÁRIO Soares, forseti Portúgals, sagði á fréttamannafundi í gær, að
ekki væri nauðsynlegt fyrir Islendinga að gerast aðilar að Evrópu-
bandalaginu og ekki væri heldur útséð um aðild annarra EFTA-ríkja
að bandalaginu. Þá kvað hann nauðsynlegt að breyta hlutverki Atlants-
hafsbandalagsins frá því að miðast að mestu leyti við hernaðarlega
íhlutun, en Portúgalar og íslendingar hefðu svipaðra hagsmuna að
gæta í ýmsum alþjóðamálum. Aðspurður um hvalveiðar kvaðst forset-
inn hins vegar ekki skilja hvernig hægt væri að ræða um að hefja
veiðar á dýrum í útrýmingarhættu.
Forsetinn kvað mikilvægt að ís-
lendingar og Portúgalir héldu góðum
samskiptum sín á milli, og Soares
sagði forseta Islands mikils virtan í
Evrópu, og mjög góðan fulltrúa þjóð-
arinnar útávið. Soares sagðist einnig
hafa átt við þess kost að ræða við
sjávarútvegsráðherra og utanríkis-
ráðherra auk forsætisráðherra, og
þar hafi borið á góma málefni varð-
andi fiskveiðar sem og alþjóðleg
málefni, svo sem ástandið í Júgó-
slavíu. Forsetinn lagði og ríka
áherslu á mikilvægi samskipta á sviði
menningarmála.
EB-aðild ekki nauðsynleg
íslendingum
Soares kvað forsætisráðherra hafa
lýst ástæðum þess að ísland óskaði
ekki eftir að gerast aðili að Evrópu-
bandalaginu. Forsetinn sagði það
ekki vera nauðsynlegt fyrir íslend-
inga að gerast aðilar að EB, með
tilheyrandi erfiðum samningaviðræð-
um. Ekki væri heldur útséð um að
hin EFTA-ríkin gerðust öll aðilar.
Hann minnti þó á, að ísland og Port-
úgal ættu mikil viðskipti sín á milli,
aðallega með fisk og ál af hálfu ís-
lendinga, en tæknivörur og léttvín
af hálfu Portúgala.
Er Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, var spurður um mögulegar
afleiðingar þess að standa einir eftir
utan EB, sagðist hann trúaður á að
unnt yrði að koma á fót tvíhliða sam-
komulagi aðilanna, enda hefðu ís-
lendingar þegar samþykkt um 60%
af reglum Evrópubandalagsins. Að-
spurður sagði hann að jafnvel þótt
komið væri til móts við íslendinga í
fiskveiðimálum stæði enn eftir spum-
ingin um sjálfsstjórn, því það gæti
litið svo út sem að áhrif smáþjóða á
heildarstefnu EB færu minnkandi.
Hlutverk NATO breytist
Mário Soares sagði íslendingar
ættu margt. skylt við Portúgali á
pólitískum vettvangi — bæði ríkin
væru aðilar að Atlantshafsbandalag-
inu, og afstaða ríkjanna á vettvangi
alþjóðastofnana væri oft á sama veg.
Aðspurður um hvort NATO hefði
brugðist hlutverki sínu í Bosníu, líkti
forsetinn slíku við að segja að Sam-
einuðu Þjóðirnar, Evrópubandalagið
eða Bandaríkin hefðu brugðist. „Atl-
antshafsbandalagið er enn nauðsyn-
legt, og það má að miklu leyti þakka
það bandalaginu að friður skuli hafa
haldist eftir lok síðari heimsstyijald-
arinnar," sagði hann. „Hins vegar
verður NATO að taka breytingum. í
stað þess að leggja alla áherslu á
hernaðarlega íhlutun mætti í aukn-
um mæli taka efnahagslegan, póli-
tískan og jafnvel menningarlegan pól
í hæðina hvað það varðaði.“
Stuðningur við Maastricht
í Portúgal
Varðandi þróun Evrópumála
heimafyrir sagði forsetinn að þótt
ekki hefði verið gengið til þjóðarat-
kvæðis um Maastricht-sáttmálann í
Portúgal, væm sennilega um 60%
kjósenda honum fylgjandi samningn-
um, samkvæmt skoðanakönnunum.
Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan
hefðu hins vegar verið sammála um
að þjóðaratkvæðagreisla skyldi ekki
haldin.
Pálsson forstjóri SH og frú Ólöf Pét-
ursdótrír. Magnús Gunnarsson for-
stjóri SÍF og frú Gunnhildur Gunnar-
dóttir. Dagbjartur Einarsson stjórnar-
formaður SIF og frú Birna Óladóttir.
Tryggvi Finnsson varaformaður SÍF
og frú Áslaug Þorgeirsdóttir, c/o
Fiskiðjan Húsavík Kristján Guð-
mundsson forstjóri og frú Ragnheiður
Hjálmtýsdóttir, Rifi. Finnbogi Jónsson
forstjóri Síldaivinnslunnar, Neskaup-
stað og frú Sveinborg Sveinsdóttir,
Karl Njálsson forstjóri og frú Guðrún
Ágústa Sigurðardóttir, Hörður Sigur-
gestsson forstjóri Eimskips og frú
Áslaug Ottesen. Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða og frú Peggy
Helgason. Helgi Jóhannsson forstjóri
Samvinnuferða/Landsýnar og frú
Hjördís Bjarnason. Hörður Gunnars-
son forstjóri Urvals/Útsýnar og frú
Hrönn Björnsdóttir. Kjartan Lárusson
formaður Félags íslenskra ferðaskrif-
stofa og frú Anna Karlsdóttir. Bragi
Hannesson stjórnarformaður Hamp-
iðjunnar og frú Ragnheiður Gunnars-
dóttir. Gunnar Svavarsson forstjóri
Hampiðjunnar og frú Ólöf Þorleifs-
dóttir. Stefán Unnsteinsson fram-
kvæmdastjóri Portugal, og frú. Þór
Þorsteins ræðismaður Portúgals og
frú Dóra Egilson. Lisbet Sveinsdóttir
listmálari og Árni Þór Árnason. Dav-
íð Ólafsson formaður Iðnþróunarsjóðs
EFTA v. Portúgals og frú Ágústa
Gísladóttir.
Forstöðumenn stofnana sem for-
setinn heimsækir:
Dr. Jónas Kristjánsson forstöðu-
maður Stofnunar Árna Magnússonar
og frú Sigríður Kristjánsdóttir. Bera
Nordal forstöðumaður Listasafns ís-
lands og hr. Sigurður Snævarr. Svein-
björn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri
(Vinarkógur) og frú Pálína Her-
mannsdóttir.
Fylgdarmenn forsetelijónanna:
Torfi Tuliníus lektor og frú Guð-
björg Vilhjálmsdóttir. Kristín Jóhann-
esdóttir kvikmyndaframleiðandi og
Sigurður Pálsson rithöfundur.
Undirbúningsaðilar. Skrifstofa
forseta íslands:
Sveinn Björnsson forsetaritari og
frú Sigrún Dungal. Vigdís Bjarnadótt-
ir deildarstjóri og hr. Guðlaugur T.
Karlsson. Vilborg Kristjánsdóttir
deildarstjóri og hr. Hrafn Pálsson.
Sigríður H. Jónsdóttir deildarsérfræð-
ingur, Sveinn H. Úlfarsson. Kornelíus
Sigmundsson aðalræðismaður íslands
í New York.
Forsætisráðuneytið:
Guðmundur Benediktsson fyrrver-
andi ráðuneytisstjóri og frú Kristín
Claessen. Aðalsteinn Maack eftirlits-
maður og frú Jarþrúður Maack. Krist-
ján Andri Stefánsson fulltrúi.
Utanríkisráðuneytið:
Sveinn Á. Björnsson sendifulltrúi
íslands í París og frú Magnea Sigurð-
ardóttir. Sigríður Gunnarsdóttir deild-
arstjóri. Hörður H. Bjarnason próto-
kollstjóri og frú Áróra Sigurgeirsdótt-
ir. Bjarni Vestmann sendiráðsritari
og frú Rakel Árnadóttir. Finnbogi
Rútur Amarson sendiráðsritari og frú
Þórunn Hreggviðsdóttir. Guðmundur
Helgason sendiráðsritari og frú Helga
Jóna Benediktsdóttir.
Lögreglan:
Böðvar Bragason lögreglustjóri og
frú Gígja Björk Haraldsdóttir.
Reykjavíkurborg:
Ólafuj' Jónsson fulltrúi borgarstjóra
og frú Ólöf Björnsdóttir.
Vestmannaeyjar:
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri og
frú Rósa Guðjónsdóttir. Bragi Ólafs-
son forseti bæjarstjórnar og frú Lauf-
ey Bjarnadóttir. Georg Lárusson
sýslumaður og frú Guðrún Hrund Sig-
urðardóttir. Sighvatur Bjarnason
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar og frú Ragnhildur Gottskálks-
dóttir.
Morgunblaðið/Þorkell
Alþjóðamálin rædd
MÁRIO Soares, forseti Portúgals, segir að ekki sé hægt að tala um
að hefja hvalveiðar að nýju, þar sem hvalir væru í útrýmingar-
hættu. Málefni varðandi Evrópubandalagið og Atlantshafsbandalagið
voru ofarlega á baugi er dr. Soares og Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, sátu fyrir svörum á fréttamannafundi i gær.
Ekki hægt að veiða dýr í
útrýmingarhættu
Aðspurður um afleiðingar þess að
ísiendingar hæfu hvalveiðar að nýju,
sagði Soares að hvali vera dýr í út-
rýmingarhættu, og vísaði til Ríó-ráð-
stefnunnar um umhverfísmál, sem
hann veitti forsæti. „Eftir allt sem
var sagt á þeirri ráðstefnu, veit ég
ekki hvernig hægt er að tala um að
hefja hvalveiðar að nýju,“ sagði
hann, og nefndi sem dæmi að hval-
veiðar Portúgala á Azóreyjum hefðu
verið aflagðar.
Lambarifjur
í aðalrétt
KJÖTSEYÐI með fjallagrös-
um og humar á súrusósu í for-
rétti, lambarifjur með túnfífl-
asósu í aðalrétt og skyrterta
með berjum í eftirrétt. Svona
leit matseðillinn út í hátíðar-
kvöldverði forseta Isiands í
gærkvöldi til heiðurs forseta
Portúgals og konu hans, frú
Maria Barroso Soares. Það
má því segja að sitthvað áber-
andi úr náttúru Islands hafi
verið týnt til og lagt á borð
fyrir veislugesti.
Boðið var upp á þrjár vínteg-
undir; hvítvínið Gewurztraminer
„Cuve des Folastries“ 1990,
rauðvínið B V Rutherford Caber-
net Sauvignon 1989 og kampa-
vínið Veuve Clicquot Brut.
Undir borðum var leikin ís-
lensk, portúgölsk og létt klassísk
tónlist frá öðrum Evrópulöndum
af veislutríói, sem skipað var
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
á píanó, Páli Einarsyni á kontra-
bassa og Sigurði I. Snorrasyni á
klarinettu. Strengjakvartet, sem
einnig lék undir borðum, var
skipaður af Þórhalli Birgissyni,
Kathleen Bearden, Ingvari Jón-
assyni og Nora Kornbluek.
ItJfmkÉl
...gerið góð kaup!