Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
Bill Clinton dró til baka útnefningu blökkukonunnar Lani Guiniers
Pólitískur hnekkir og-
blökkumenn ævareiðir
Guinier hélt því fram að minnihlutahópar ættu að hafa aukinn atkvæðisrétt
Washington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, varð fyrir enn einu áfall-
inu þegar hann sá sig tilneyddan til þess í fyrradag að draga
til baka útnefningu umdeilds lögfræðings í eitt af æðstu embætt-
um dómsmálaráðuneytisins. Er lögfræðingurinn blökkukona og
hefur haldið því fram í skrifum sínum, að rétt sé, að þegnarnir
hafi mismikinn atkvæðarétt, þ.e.a.s., að atkvæði minnihlutahópa
skuli vega þyngra en annarra. Á fréttamannafundi í fyrrakvöld
sagði Clinton, að ljóst væri, að útnefningin myndi kosta „blóðug
átök“ á þingi og lagði áherslu á, að hann væri sjálfur algerlega
andvígur skoðunum lögfræðingsins. Blökkumenn á þingi hafa
nú í hótunum við Clinton vegna þessa máls.
Ólýðræðislegar skoðanir
CLINTON hlustar hér á Lani Guinier halda ræðu, sem hún flutti
þegar hún samþykkti að taka boði forsetans um eitt af æðstu emb-
ættunum í dómsmálaráðuneytinu. Það var fyrir mánuði og áður en
Clinton vissi um þær skoðanir hennar, að rétt gæti verið að mis-
muna þegnunum hvað varðaði vægi atkvæðisréttarins.
Eitt lunga
gert að
tveim
FRÖNSKUM skurðlækni tókst
nýverið að skipta lunga úr látn-
um hávöxnum karlmanni í
tvennt og græða hlutana tvo
sem sitthvort lunga í lágvaxna
fertuga konu. Hálfum mánuði
eftir aðgerðina var konan á góð-
um batavegi og laus af sjúkra-
húsi. Læknirinn segir að unnt
sé að gera fjögur barnalungu
úr lungum eins fullorðins.
Sögur Fergie
í sjónvarpiö
Teiknimyndir byggðar á
bamasögum hertogaynjunnar
af York, Söru Ferguson, um
„Litlu þyrluna,“ verða væntan-
lega sýndar í sjónvarpi í Bret-
landi á næsta ári. Það var þegar
Sara var að læra til flugmanns
að hún skrifaði nokkrar sögur
um litla, óhamingjusama þyrlu.
Samræmdur
Evróputengill
ÁTJÁN Evrópulönd hafa ákveð-
ið að reyna að taka upp sam-
ræmdar rafmagnsinnstungur og
klær í stað þeirra rúmlega tutt-
ugu gerða sem nú eru í notkun.
Talið er að framkvæmdin gæti
tekið 30 ár og myndi kosta sem
svarar sex og hálfum milljarði
íslenskra króna. Ef úr verður
mun nýi Evróputengillinn verða
viðurkenndur í löndunum átján,
en Bretland, þar sem núverandi
kerfí er mjög frábrugðið öllum
hinum, yrði þar undantekning.
John Major
óvinsæll
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, er nú óvinsælasti
stjórnmálaleiðtogi þar í landi
síðan byrjað var að gera skoð-
anakannanir á fjórða áratugn-
um. Einungis 21 prósent að-
spurðra voru ánægðir með störf
forsætisráðherrans. Major fór
þar með fram úr forvera sínum,
Margaret Thateher, hvað óvin-
sældir varðar, en árið 1990
mældust vinsældir hennar 23
prósent. í skoðanakönnuninni
mældist fylgi íhaldsflokksins
einungis 25% en Verkamanna-
flokksins 49%.
Röskun á flugi
British
Airways
VERULEG röskun varð í gær á
flugi breska flugfélagsins Brit-
ish Airways þrátt fyrir að sam-
komulag næðist í deilu félagsins
við flugliða og hlaðmenn í íyrri-
nótt er verkfall var að skella á.
Frá Heathrow flugu aðeins 18
af 30 flugvélum á úthafsleiðum
og 11 af 150 á styttri leiðum
en engin vél fór á loft í Gatwick.
Samið um
kosningadag í
Suður-Afríku
Samkomulag er í sjónmáli um
að fyrstu kosningar með þátt-
töku allra kynþátta fari fram í
Suður Afríku 27. apríl á næsta
ári. Alls hafa 26 flokkar átt
aðild að viðræðum um frarntíð
landsins og hefur meirihluti
þeirra, þar á meðal ríkisstjórnin
og Afríska þjóðarráðið, náð
samkomulagi um hugsanlega
dagsetningu kosninganna. Búist
er við að samningaaðilar hittist
aftur þann 15. þessa mánuðar
til að ganga endanlega frá dag-
setningunni.
Lögfræðingurinn, sem um ræðir,
Lani Guinier, hefur verið vinur Clin-
ton-hjónanna frá því á námsárunum
í Yale og hafði Clinton útnefnt hana
í embætti yfirmanns borgararétt-
indadeildar dómsmálaráðuneytisins.
Mætti útnefningin strax mikilli and-
stöðu þingmanna úr báðum flokkum
og héldu þeir því fram, að skoðanir
hennar væru andstæðar lýðræðisleg-
um hefðum. Guinier hefur sagt í
skrifum sínum um borgararéttindi,
að þar sem reglan einn maður, eitt
atkvæði ráði, sé ekki alltaf tekið
nægjlegt tillit til hagsmuna minni-
hlutahópa. Því sé rétt, að atkvæða-
vægi minnihlutahópanna sé aukið á
kostnað meirihlutans.
Á fréttamannafundinum kvaðst
Clinton ekki hafa vitað um þessi
skrif Guiniers en hefði hann gert
það, hefði hann ekki útnefnt hana.
Hann sagðist þó telja, að Guinier
væri einn besti borgararéttindalög-
fræðingur, sem hann hefði kynnst,
en tók skýrt fram, að fyrmefndar
skoðanir hennar væru í andstöðu við
allt, sem hann hefði í heiðri.
Fjögurra mánaða
hrakfallasaga
Bill Clinton hefur verið í forseta-
embætti í rúma fjóra mánuði og á
þeim tíma hefur flest gengið á aftur-
fótunum fyrir honum. Af þessum
Klaus Kinkel utanríkisráðherra
var viðstaddur útför fórnarlamb-
anna í Tasova, 400 km norðaustur
af Ankara, í Tyrklandi. Ávarpað
ráðherrann viðstadda og kallaði
ódæðismennina brenglaða morð-
ingja. Hann sagði að líta bæri á
morðið sem viðvörun til almenn-
ings og stjórnvalda í Þýskalandi.
í þýska útvarpinu var haft eftir
Kinkel, sem í fyrstu sagðist mót-
fallinn tvöföldu ríkisfangi Tyrkja
í Þýskalandi, að hann hefði ávallt
verið hlynntur hugmyndinni.
Kohl hlynntur aðlögun
tyrkneskra innflytjenda
Helmut Kohl sem ekki sótti minn-
ingarathafnir um Tyrkina fimm,
hefur sætt gagnrýni innanlands fyr-
ir fjarveruna. Voru 62% þeirrar
skoðunar í viðhorfskönnun sem gerð
var fyrir RTL sjónvarpsstöðina að
Kohl hefði borið að vera viðstaddur.
vandræðamálum má meðal annars
nefna þá ákvörðun hans að opna
herinn fyrir samkynhneigðum; hann
neyddist til að draga til baka útnefn-
ingu sína í embætti dómsmálaráð-
herra; hann hefur verið gagnrýndur
fyrir einhveija mestu skattahækkun
í sögu landsins og hann varð að
fresta tillögum sínum um umbætur
í heilbrigðiskerfinu og lágmarkslaun
til að tryggja framgang fjárlaga-
frumvarpsins.
Nærri 13.000 króna hárskurður
um borð í forsetaþotunni á flugvellin-
um í Los Angeles, sem varð auk
þess til að tefja flugumferð, jók ekki
vinsældir forsetans og gerði hann
næstum að athlægi og ekki bætti
hann um fyrir sér þegar hann allt
starfslið ferðaskrifstofu Hvíta húss-
ins og setti síðan frænda sinn yfir
hana. Á laugardag fyrir viku lét
hann svo George Stephanopoulos
hætta sem talsmann Hvíta hússins
og skipaði repúblikanann David
Gergen í staðinn.
Blökkumenn hafa í hótunum
Clinton hefur verið sakaður um
að bregðast við þessum málum öllum
af mikilli óákveðni og þótt það síð-
asta, útnefning Guiniers, sé áfall
fyrir hann þótti hann þó bregðast
við því af meiri hörku en fyrr. Hann
ákvað að draga útnefninguna til baka
Kohl fullvissaði tyrknesk stjómvöld
um að hann myndi beita sér fyrir
því að innflytjendur samlöguðust
þjóðfélaginu betur. Innanríkisráð-
herrann Rudolf Seiters, sem er
flokksbróðir Kohls, hefur sagt að
taka beri á hugmyndum um samlög-
un og tvöfalt ríkisfang af varkárni.
Fleiri snoðkollar handteknir
Þrír drengir á aldrinum 16-23
ára, grunaðir um aðild að ódæðinu,
hafa verið handteknir til viðbótar.
Hermt er að þeir hafí verið undir
áhrifum áfengis og slík íkveikjuárás
hafí staðið lengi til. Rudolf Seiters
innanríkisráðherra staðfesti hand-
tökuna en bar á móti því að hinir
gmnuðu tengdust hægriöfgamönn-
um utan Solingen. Fram kom í frétt-
um ARD sjónvarpsstöðvarinnar að
drengirnir hefðu kveikt í húsinu til
að fá útrás fyrir reiði sína eftir að
hafa verið vísað á dyr öldurhúss.
strax og lét hótanir áhrifamikilla
þingmanna úr hópi blökkumanna
engin áhrif hafa á sig. Clinton er þó
ekki búinn að bíta úr nálinni með
þetta mál hjá blökkumönnum og
segjast sumir þeirra, til dæmis Craig
Washington, ætla að greiða atkvæði
gegn tillögu Clintons um orkuskatt
næst þegar hún kemur á dagskrá
þingsins.
Áttræð fram
á ritvöllinn
Bristol. The Daily Telegraph
KOMIN fast að áttræðu hefur
Nora Naish, sem er enskur
læknir á eftirlaunum, tekið
sér fyrir hendur að skrifa
skáldsögur. Fyrsta sagan
hennar, sem er væntanleg í
bókabúðir síðar í mánuðinum,
heitir Sunnudagsmatur og
greinir í smáatriðum frá
framhjáhaldi og afleiðingum
þess. Eftir að handritinu hafði
margsinnis verið hafnað náði
Naish loks samningi upp á 600
þúsund króna fyrirfram-
greiðslu fyrir tvær skáldsög-
ur og mögulega útgáfu á
þeirri þriðju.
í Sunnudagsmat, sem hefur nú
þegar valdið nokkrum titringi í
bókmenntaheiminum, er að finna
ýmsar „heitar" lýsingar. Til dæmis
þessa: „Hún fylgdist undrandi með
honum klæða sig úr fötunum, hratt
en alveg án formsatriða, og fleygja
þeim frá sér, sumum á gólfið. Þeg-
ar hann stóð nakinn fyrir framan
hana og byijaði með titrandi fingr-
um að losa um kjólinn hennar, þá
streittist hún ekki á móti.“
Naish, sem er fráskilin og á fjög-
ur böm og 10 bamaböm, neitar
því að bækur hennar séu með sjálf-
sævisögulegu ívafi - þótt höfundar
hljóti alltaf að byggja sögur sínar
á eigin reynslu. „Eg trúi á hrein-
skilni hvað kynlíf varðar," segir
hún. „Eg held að kynlíf sé afskap-
lega mikilvægur þáttur í lífinu,
enda er það ástæða svo margs sem
við gerum."
Ritlistin er í ættinni. Bróðir
hennar, Pat Reid, var meðal þeirra
Hreinskilni
NORA Naish með eintak af bók
sinni, Sunnudagsmaturinn, sem
kemur út um helgina. I henni
er fjallað um kynlíf með öðrum
hætti en búist hafði verið við af
konu á hennar aldri.
sem náðu að flýja úr Colditz fanga-
búðum Þjóðveija í heimsstyijöld-
innl síðari, og hann skrifaði síðar
metsölubók um flóttann. Þegar
Naish var fimmtán ára gömul innti
faðir hennar hana eftir því hvað
hún ætlaði að gera þegar hún yrði
stór. Hún svaraði: „Skrifa,“ og
hann brást við að bragði: „Blaða-
mennska er ekki fyrir konur." Því
varð úr að hún lærði læknisfræði.
Nú byijar hún daginn með hálfum
líter af svörtu kaffi áður en hún
sest niður i tvo tíma til að koma
hugsun sinni á blað.
Deilt um ríkisfang tyrkneskra innflytjenda
Klaus Kinkel
styður Tyrki
Bonn. Mlinchen. Tasova. Reuter.
DEILUR um lýðréttindi tyrkneskra innflytjenda hafa magnast í
kjölfar morðsins í Solingen sl. laugardag. Richard von Weizsac-
ker lét svo um mælt við minningarathöfn um fórnarlömbin í
Köln að Tyrkjum bæri að hafa kosningarétt. Nú hefur utanríkis-
ráðherra Þýskalands, Klaus Kinkel, lagst á sveif með tyrkneska
minnihlutanum og sagt opinberlega að Tyrkir sem dvalið hafa
langdvölum í Þýskalandi eigi rétt á þýsku vegabréfi. Þýska lög-
reglan hefur handtekið þrjá snoðkolla til viðbótar sem grunaðir
eru um aðild að íkveikjuárásinni.