Morgunblaðið - 05.06.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
25
Lyfið vekur nokkra von
- segir Margrét Guðnadóttir prófessor í veirufræðum
Reuter
Lindgren heiðruð
ALÞJÓÐABÓKARÁÐIÐ veitti í gær sænska rithöfundinum Astrid Lindgren, höfundi Línu langsokks, Al-
þjóðlegu bókaverðlaunin. Á myndinni ræðir Lindgren við sænsk börn þegar verðlaunin voru afhent í Vín.
MARGRÉT Guðnadóttir, pró-
fessor á rannsóknastofu Há-
skólans í veirufræðum, telur
líklegt, að binda megi nokkrar
vonir við nýtt lyf við inflúensu,
sem Morgunblaðið skýrði frá í
gær. Það eru vísindamenn í
Astralíu og Bretlandi, sem hafa
gert tilraunir með það, en að
sögn Margrétar eru rannsóknir
á inflúensu einna lengst komn-
ar í Ástralíu.
Til er bóluefni við flensu eins og
kunnugt er en Margrét sagði, að
það virkaði aðeins í takmarkaðan
tíma. Auk þess breytti veiran sér
fljótt og þvi þyrfti jafnan að breyta
bóluefninu einnig. Sagði Margrét,
að raunar væri til annað lyf, sem
virkaði vel gegn flensu, eitt af Park-
insonslyfjunum svokölluðu, en gall-
inn við það væri, að það hefði veru-
leg auka- eða eituráhrif. Því væri
það ekki notað nema í ítrustu neyð.
Þar að auki hrifi það aðeins á flensu
af A-stofni.
Nýja lyfið, sem kemur í veg fyr-
ir, að veiran nái að fjölga sér, á
að verka á báða stofna jafnt, A-
og B-stofn, og sagði Margrét, að
líklega væri ástæða til að binda
nokkrar vonir við það. Til þess benti
líka, að auk áströlsku vísindamann-
anna stóðu að rannsóknunum vís-
indamenn við Glaxo-lyfjafyrirtækið
breska.
AFANGASIGUR I BARATTUNNI VIÐ FLENSUNA
Lífefnafræðingar hafa e.t.v. fundið ráð
við flensu með því að búa tii lyf sem
hindrar fjölgun veirunnar.
Ensímið síalídase gerir nýjum veirum
kleift að yfirgefa hýsilfrumu og sýkja aðrar.
Tölvulíkön af síalídase voru
notuð til að hanna sameindir,
sem áttu að koma í veg fyrir
verkun þess og gera veiruna
skaðlausa. Sameindirnar voru
síðan smíðaðar og hafa reynst
vel á rannsóknarstofum og við
tilraunir á dýrum.
Verkun síalídase
Tölvulíkan auðveldar
hönnun tálma,
sem binst
REUTER
Rússneska þingið sneiðir enn að Jeltsín
Krefst dómsúrskurð-
ar til vamar Rútskoj
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKA þingið ítrekaði andstöðu sína við Borís Jeltsín for-
seta í gær, þegar það samþykkti að fara fram á að stjórnlagadóm-
stóll landsins kvæði uppúr með hvort þær aðgerðir forsetans að
svipta Rútskoj varaforseta bifreið og lífverði séu í samræmi við
ákvæði stjórnarskrárinnar. Farið er fram á að þingnefnd leggi
drög að lögum um hlutverk varaforsetans.
Rútskoj hlaut kosningu ásamt
Jeltsín í júnf 1991, en er nú einn
helsti andstæðingur forsetans. Ólík-
legt þykir að samþykktir þingsins
hafi áhrif á Jeltsín. Hann hefur boð-
að stjórnlagasamkundu landsins til
fundar í dag til þess að ræða tillögur
hans um stjórnarskrárbreytingar, en
í þeim er gert ráð fyrir að boðað
verði til nýrra þingkosninga og að
embætti varaforseta verði lagt niður.
Harðlínusinnaðir andstæðingar Jelts-
íns segja enga þörf vera fyrir nýja
stjórnarskrá og að þeir muni beijast
gegn tillögum forsetans „fram í rauð-
an dauðann." Jeltsín fékk þó meðbyr
í gær þegar Arkadí Volskí, leiðtogi
Borgarasambandsins, sagði að það
myndi veita breytingatillögum for-
setans stuðning á stjórnlagasam-
kundunni. Þessi tíðindi þykja koma
illa við Rútskoj, sem hingað til hefur
gegnt lykilhlutverki innan Borgara-
sambandsins.
Aflýsir valdatöku
sakir heilsubrests
Phnom Penh. Reuter.
NORODOM Sihanouk prins sem hugðist taka við völdum í
Kambódíu hefur nú aflýst þeim áformum vegna lasleika. Sagði
prinsinn samsteypusijórn Einingarflokks Kambódíu og Þjóðar-
flokks, með hann við stjórnvölinn, óhugsandi. í yfirlýsingu frá
Shianouk sagði: „Ég á við mikla erfiðleika að etja sem koma í
veg fyrir að ég geti myndað þessa s<jórn.“
Boð Shianouks að taka sæti þjóð- hefðu lagt allt í sölurnar fyrir.
höfðingja, forsætisráðherra og æðsta
yfirmánns herafla, kom forvígis-
mönnum Þjóðarflokksins gersamlega
í opna skjöldu. Leiðtogi flokksins,
sonur Sihanouks Norodom Rana-
riddh, sendi föður sínum símbréf og
lýsti undrun sinni yfir ákvörðuninni.
Áð auki þótti tilboð prinsins setja
strik í reikninginn hvað áhrærði lýð-
ræðisþróun þá sem íbúar Kambódíu
Ákvörðun Shianouks um valda-
töku kom eftirlitsmönnum á vegum
Sameinuðu þjóðanna einnig talsvert
úr jafnvægi. Þótti þeim hinu brot-
hætta friðarsamkomulagi milli hinna
stríðandi fylkinga stefnt í voða enda
gerði það ráð fyrir að í kjölfar kosn-
inganna yrði löggjafarsamkunda sig-
urvegaranna sett á fót og ný stjórn-
arskrá samin.
Tankskip brennur eftir árekstur á Ermarsundi
Mannleg mistök
líklegasta orsökin
Brussel. London. Daily Telegraph. Reuter.
SJÓPRÓF voru fyrirskipuð í gær vegna áreksturs breska tank-
skipsins British Trent og flutningaskipsins Western Winner fyrir
utan Oostende í Belgíu í fyrradag. Líklegast þykir að orsakir
slyssins verði rakin til mannlegra mistaka.
Areksturinn varð í svartaþoku á
afar fjölfarinni siglingaleið um 15
sjómílur undan Oostende. Staðurinn
er á mörkum hollenskra og belgískra
ratsjársvæða, í nokkurs konar einsk-
ismannslandi á mótum heimsins fjölf-
ömustu siglingaleiðar; á stað þar sem
skip taka upp eða hleypa lóðs frá
borði.
Um 150 skip sigla um Ermarsund
á dag og var breska tankskipið ný-
búið að hleypa lóðs frá borði og að
fikra sig út í siglingaleiðina. Flutn-
ingaskipið var hins vegar á landleið
og að leita að lóðsbát er skipin skullu
saman með þeim afleiðingum að
tankskipið varð alelda.
Níu menn fórust með breska skip-
inu, biðu bana er þeir stukku fyrir
borð en bensins lak úr skipinu og
varð hafsvæðið umhverfis alelda á
svipstundu.
Flestir skipveijanna voru í koju
en af framburði þeirra mátti ráða
að nokkrir þeirra vöknuðu rétt fyrir
áreksturinn; er mótorhljóð skipsins
breyttist eftir að yfirmenn í brúnni
áttuðu sig á hvað verða vildi og
reyndu að afstýra árekstri.
■
jj * > >
................ mm.Miimi
smyr!L-une
í bíl til Evrópu fyrir
kr. d mannl*
Bókaðu tímanlega,
sumar ferðir eru að fyllast.
Haföu samband og viö setjum saman hagstætt verö á
bíltúr fyrir þig og fjölskyiduna um Evrópu í sumar.
Sumarbæklinginn færöu hjá flestum ferðaskrifstofum.
* 4 farþegar í eigin bíl með Norrænu, þar af tveir 14 ára eða yngri i fjögurra manna
klefa. Brottför 8. júlí eða fyrr, upphaf heimferðar 14. ágúst eða síðar. Bíllinn innifalinn.
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Smyril Line, Laugavegi 3, Reykjavík, sími 91-626362
AUSTFAR HF.
Seyöisfiröi, sími 97-21111