Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
Rjúpu fækk-
ar mjög í
Hrísey
RJÚPUM hefur mjög fækkað
í Hrísey á undanförnum árum
og skv. talningu Þorsteins
Þorsteinssonar fuglaáhuga-
manns, sem sér um talningu
fyrir Náttúrufræðistofnun,
hefur gífurleg fækkun orðið
í stofninum frá því í fyrra.
Segist hann telja nauðsynlegt
að fé verði varið til rannsókn-
ar á því hvað hafi gerst.
Rjúpnastofninn í Hrísey var tal-
inn í hámarki árið 1988 að sögn
Þorsteins, en þá voru 295 karrar
með svæði í eynni. Arið eftir voru
þeir 214, 1990 hafði þeim fækkað
í 140, fjöldinn var 129 árið 1991,
í fyrra 125 og við síðustu talningu
nú í vor fundust aðeins 76 ijúpna-
pör í eynni.
Þorsteinn segir skýringu á þess-
ari miklu fækkun milli ára nú
geta verið ,júníhretið“ í fyrra. „Þá
snjóaði gífurlega mikið, ijúpan var
komin í fullt varp og víðast voru
komnir ungar,“ sagði Þorsteinn
við Morgunblaðið. „Rjúpan verpir
víða annars staðar, en aðallega
var fylgst með þessu í Hrísey. Þar
fór allt á kaf í snjó — hvergi sást
í dökkan díl og manni fannst alveg
nóg, en þó snjóaði víða meira en
í Hrísey. Það eru margir sem álíta
það að varpið hafi farið mjög illa
á mörgum stöðum á Norðurlandi
í fyrra.“
En ætli hretið í júní í fyrra sé
aðalskýringin á þessari miklu
fækkun á ijúpunni milli ára? „Ég
veit það ekki,“ sagði Þorsteinn,
„en mér fyndist eðlilegt að Nátt-
úrufræðistofnun fengi peninga til
að rannska hvað hafi gerst. Per-
sónulega finnst mér stökkið of
mikið milli ára til að þetta geti
talist eðlilegt.“
-----» ---------
■ ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór
verður 78 ára á morgun, sunnudag,
og í tilefni dagsins verður kaffihlað-
borð í félagsheimilinu Hamri á af-
mælisdaginn milli kl. 14 og 17.
íslandsbanki gefur eina milljón til uppgræðslu í Dimmuborgum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Uppgræðsla
TRYGGVl Pálsson framkvæmdastjóri Islandsbanka afhenti Sveini Runólfssyni landgræðslusljóra eina milljón króna til uppgræðslu
í Dimmuborgum í gær.
Átak til verndar Borgunum
Mývatnssveit.
TRYGGVI Pálsson, framkvæmda-
stjóri íslandsbanka, afhenti Sveini
Runólfssyni landgræðslustjóra eina
milljón króna sem verja á til upp-
græðslu í Dimmuborgum. Þessi athöfn
fór fram í skemmtilegu umhverfi og
skjólgóðu ijóðri í borgunum. Þar voru
ennfremur viðstaddir örn Björnsson,
útibússtjóri Islandsbanka á Húsavík,
Þröstur Eysteinsson, héraðsfulltrúi
Landgræðslu ríkisins á Húsavík, og
Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps.
Landgræðslustjóri þakkaði þessa veglegu
gjöf. „Þetta er mjög rausnarlegt og kemur
sér vel — og er hvatning til annarra að
gera slíkt hið sama,“ sagði Sveinn Runólfs-
son við Morgunblaðið um gjöf íslandsbanka.
Vélsáning
PYLGST með vélsáningu í Hlíðardal.
Þá sagði hann að Ferðamálaráð og Umhverf-
isráðuneyti myndu leggja fjárframlög til
aðgerða í Dimmuborgum á árinu, en Land-
græðslan, Skútustaðahreppur og Náttúru-
verndarráð standa að sameiginlegu átaki til
verndar borgunum.
Eftir að hafa tekið við peningagjöfinni
afhenti Sveinn starfsmönnum íslandsbanka
sem viðstaddir voru nýlega gert gróðurkort
af íslandi og verður það að teljast merk
gjöf. Frá Dimmuborgum var haldið austur
á Hlíðardal og fylgst með vélsáningu. Þar
var að verki ein af raðsáningarvélum Land-
græðslunnar sem jafnframt dreifir áburði,
en þess má geta að það var íslandsbanki
sem gaf vélina fyrir rúmu ári. Fróðlegt var
að sjá hvernig slíkar vélar vinna og talið er
að þær hafi valdið byltingu við að græða
upp örfoka land.
Kristján.
Akureyrarbær auglýsir
almennan kynningarfund um „reglur um útimarkaði og
sölutjöld á Akureyri". Fundurinn verður haldinn mánudag-
inn 7. júní nk. kl. 10.00 fyrir hádegi í húsi aldraðra við
Lundargötu 7. Fundurinn er öllum opinn sem vilja kynna
sér reglur þessar, en er einkum ætlaður verslunarmönn-
um, húseigendum og íbúum í miðbænum svo og öðrum
hagsmunaaðilum. Reglurnar, ásamt uppdrætti er sýnir
staðsetningu sölutjalda í miðbænum, munu liggja frammi
á fundinum.
Bæjarritari.
Sumarskóli í listum
á Akureyri og í Hrísey
fyrir 11 -15 ára unglinga, hvaðan sem er af landinu,
26. júní-10. júlí (sama verð og ífyrra)
Myndlist
Blönduð tækni - Málun -Teiknun - Leirmótun
og útskurðurítré.
Leiklist
Alm. leikþjálfun - Spuni - Dans - Uppsetning leikverks.
(Hugsanlega verður farið með afraksturinn á
alheimsmót barnaleikhúsa í Þýskalandi ’94).
Með sumarkveðju.
Örn Ingi,
Akureyri, sími 96-22644.
Höfuðstöðvar RARIK
fluttar til Akureyrar
HUGMYNDIR eru uppi um að
stofnað verði hlutafélag sem yf-
irtaki eignir og skuldir Raf-
magnsveitna ríkisins (RARIK),
Rafveitu Akureyrar og eignar-
hlut Akureyrarbæjar í Lands-
virkjun. Fari svo að hlutafélagið
verði stofnað verða höfuðstöðvar
þess á Akureyri.
Uppkast að samkomulagi milli
iðnaðarráðuneytisins og bæjar-
stjórnar Akureyrar var lagt fram í
bæjarráði í fyrrakvöld. „Þetta hefur
verið kynnt öllum flokkum í bæjar-
stjórn og var samþykkt einhuga í
bæjarráði," sagði Sigurður J. Sig-
urðsson, formaður veitustjórnar á
Akureyri, í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
var á Akureyri á dögunum og ræddi
þá m.a. þess( mál við fulltrúa í
bæjarstjórn. Úr varð áður nefnt
samkomulag. Sigurður J. staðfesti
í gær að í drögum að samkomulagi
sem ráðherra hefði gert væri geng-
ið út frá því að höfuðstöðvar hugs-
anlegs fyrirtækis yrðu á Akureyri.
Niðurstaða í haust
Nefnd, sem á að kanna hvort
grundvöllur sé fyrir stofnun um-
rædds fýrirtækis, á að skila niður-
stöðu fyrir 15. október. Verði nið-
urstaðan jákvæð verður málið lagt
fyrir bæjarstjórn Akureyrar og Al-
þingi strax í haust.
Félagasamtök - fyrirtæki - einstaklingar
SUMARLEIGA akureyri
Höfum til leigu nokkur herbergi og örfáar paríbúðir í
stúdentagarðinum Útsteini, Skarðshlíð 46, Akureyri.
• Leigutímabil er til 20. ágúst.
• íbúöirnar er hægt að leigja með innanstokksmunum
og eldhúsáhöldum.
□ Herbergin eru mjög rúmgóð eða 22 m2 og eru með
rúmi, stól og borði.
□ Hver tvö herbergi eru með sameiginlegri snyrtingu
(íbúðarígildi).
□ Sameiginlegt eldhús og setustofa er fyrir hver
7 herbergi.
• Hægt er að leigja aukarúm, aukadýnu og sængurföt.
• Nánari upplýsingar gefur Jóhanna í síma 96-11780
fyrir hádegi.
FESTA Félagsstofnun stúdenta á Akureyri