Morgunblaðið - 05.06.1993, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 05.06.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 31 h Gróður skammt á veg kominn á Austurafrétt Fé flutt á afréttina í áföngum Mývatnssveit. Gróðurverndarnefnd S-Þing. ásamt sveitarstjórn Skútustaða- hrepps og landbúnaðarnefnd og fulltrúa Landgræðslu ríkisins fóru í gróðurskoðunarferð á Austurafrétt þann 1. júní. Mó- lendi var skoðað svo og mel- lendi. Gróðurvemdamefnd gerði eftir- farandi bókun: „Gróður er skammt á veg kominn í mólendinu en þó er stutt í að gulvíðir springi út. Fjalldrapi er mjög stutt kominn. Var rétt að byija að þrútna. Mel- lendin eru dálítið sprottin, þó minna en í fyrra á sama tíma. Melijöðrin var um 15 sentimetrar og nokkuð þétt. Mikil sina er í melnum, sandhaginn er aðeins að byija að lifna, virðist hafa þést frá í fyira. Gróðurverndamefnd leggur til við hreppsnefnd Skútustaða- hrepps að upprekstri verði hagað á eftirfarandi hátt: Frá 7. til 12. júní verði leyft að fara með 15% fjárins í afrétt. Frá 13. til 18. júní verði leyft að fara með 25% með fyrirvara um að þá ákvörðun megi endurskoða með tilliti til veðurfars. Frá 19. til 24. júní megi fara með önnur 25%. Nefndin leggur sér- staka áherslu á að fyrir miðjan júní verði engu fé sleppt í mólendi.“ Sveitarstjórn og landbúnaðar- nefnd fjölluðu um tillögur gróður- | vemdamefndar og samþykktu þær samhljóða. Að því viðbættu að eft- ir 24. júní er heimilt að fara með síðasta hluta fjárins. Sauðburði er víðast alveg að ljúka eða lokið og ekki annað vitað en að hann hafi gengið vel. Kristján. ♦ ♦ ♦---- Sjómanna- dagsmessur í TILEFNI sjómannadagsins verða messur helgaðar sjómönn- um bæði í Akureyrarkirlqu og Glerárkirlgu á morgun. Messan í Glerárkirkju hefst kl. 10.30. Halldór Óttarsson flytur hugleiðingu og sjómenn aðstoða við guðsþjónustuna. Sjómannadagsmessan í Akur- eyrarkirkju hefst kl. 11. Bjami Bjamason skipstjóri prédikar og sjómenn annast lestra dagsins. Kór aldraðra leiðir sönginn. Organisti er Sigríður Schiöth. Sjómenn og ástvinir þeirra sérstaklega vel- komnir. (Úr fréttatilkynningu.) — -.—♦------ Pelican í Sjallanum HLJÓMSVEITIN Pelican heldur áfram yfirreið sinni um landið og staldrar við á Akureyri nánar tiltekið í Sjallanum föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin flytur gamlar og nýjar rokkperlur en eins og kunn- ugt er gaf Pelican út nýja sam- nefnda hljómplötu fyrir stuttu eftir langt hlé. Regnboginn sýnir „Gamanleikarann“ REGNBOGINN hefur hafið sýningar á bandarísku myndinni „Mr. Sat- urday Night“, eða Gamanleikaranum eins og hún heitir á íslensku, með þeim BilIy Crystal, („City Slickers“, „When Harry Met Sally“) og David Paymer (Útnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni) í aðalhlutverki. Mr. Saturday Night er gaman- mynd sem fjallar um lff og feril gam- anleikarans („stand up comic") Buddy Young Jr. sem Billy Crystaí leikur af snilld. Sagan segir frá tveim- ur bræðrum, þeim Buddy Young Jr. og Stan Yankelman, skemmtikraftin- um og umboðsmanninum. Fyrst leið Buddy á toppinn sem fyndnasti mað- ur Bandaríkjanna og svo grýttri nið- urleiðinni. (Fréttatilkynning) Háskólabíó sýnir myndina Stál í stál HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn- ingar á myndinni Stál í stál eða „Fortress“. Með aðalhlutverk fer Christopher Lambert. Þau Brennick og Karen eru á leið úr landi en eiga eftir að fara í gegn- um landamæraeftirlitið. Þar gæti uppgötvast að Karen er bamshafandi og þá er voðinn vís. Allt virðist ganga að óskum en fyrir tilviljum veitir einn landamæravarðanna því athygli að Karen er óvenju mikið klædd og lætur rannsaka málið. Er þá ekki að sökum að spyija að Brennick er úrskurðaður í 31 árs vist í Virkinu og er fylgst með flutningi hans og samfanga hans þangað. Það verður fljótlega ljóst að hér er ekki um neitt venjulegt fangelsi að ræða. Fanga- verðimir eru vélmenni og hlýða skip- unum yfírboðara síns skilyrðislaust. Aginn er geyistrangur og flótti úr þessum óhugnanlega stað virðist Christopher Lambert. gersamlega útilokaður. Brátt upp- götvar Brennick að Karen er líka í virkinu og ætlunin er að eyða fóstri hennar. AUGLÝSING VÖRUKYNNING N ■ ^ýjar uppgötvanir á sviði heilbrigði og fegurðar eru virkjaðar í nýrri línu af hársnyrtivörum, sem eru að koma á mark- að hér á landi. Þessar vörur bjóða upp á nýjan valkost til að auka heilbrigði hárs- ins. Kannanir hafa leitt í ljós að hreint, glans- andi hár með heilbrigt útlit er efst í huga jafnt karla og kvenna, þegar þau velja sér hársnyrtivörur. Því miður eru á markaðn- um í dag fjölmargar tegundir af sjampói og hámæringu, sem valda kaupendum vonbrigðum á þessu sviði með því að skilja eftir sig óæskileg efni í hárinu, sem hlaðast upp og draga úr náttúrulegu fjað- urmagni og glans hársins. Vandamálið er að flestar hársnyrtivörur Heilbrigdara H A R Ný tækni sem auðveldar fólki að viðhalda heilbrigði hórsins húða aðeins yfírborð hársins. Vömr sem næra hárið innan frá geta haft veruleg áhrif á ástand hársins. Margra ára starf sérfræðinga, sem unnið hafa að þróun nýrra sjampóa og hámæringa hefur skilað sér í Panténe. Panténe Pro-V hár- snyrtivörumar innihalda sérstakan efnis- þátt Pro-Vítamíns B5, einkaleyfisvemdað sérheiti formúlunnar er Pantyl-B. Þetta einstæða efni smýgur inn í hárið sjálft og nærir það á náttúrulegan hátt. Það hefur í för með sér að í hvert skipti, sem Panténe Pro-V hársnyrtivörur eru notaðar þá fær hárið náttúrulegan skammt af vítamínum, sem skilar sér í auknu lífí, heilbrigði og glans. Árangurinn er einfaldlega heil- brigðara útlit hársins. Góðu fréttirnar era að eftir að hafa gengið undir umfangsmiklar rannsóknir hjá Swiss Vitamin Institute, hefur Pant- éne Pro-V, sem inniheldur Pantyl-B, verið markaðssett sem lína af hársnyrti- vörum á mjög viðráðanlegu verði, sem em einfaldar í notkun. Panténe Pro-V sjampó, hámæring, sjampó sem inni- heldur hámæringu, djúpnæring og styrkjandi þykkni, fyrir mjög þurrt hár. Nú hreinsar dagleg hámmhirða ekki ein- ungis hárið, heldur nærir það og styrkir um leið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.