Morgunblaðið - 05.06.1993, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
Böm í Hveragerði
með reiðhjólahjálma
Hveragerði.
GRUNNSKÓLINN í Hveragerði og foreldrafélag skólans
gekkst fyrir umferðarfræðslu síðustu skóladagana 17.-19.
maí. Lögregluþjónn frá Selfossi og Guðmundur Þorsteinsson
frá Umferðarráði komu og fræddu nemendur um nauðsyn
þess að nota öryggishjálma þegar hjólað er í umferðinni.
Farið var yfír rétt val á hjálm-
um, sýnt var myndband um kosti
reiðhjólahjálma og farið var í
nokkrar hjólaþrautir á skólalóð-
inni.
Umferðarnefnd foreldrafélags-
ins seldi hjólreiðahjálma á niður-
settu verði. Bæjarstjórn og 11 fyr-
irtæki og félög í Hveragerði
styrktu hjálmakaupin. Undirtektir
voru með eindæmum góðar og
seldust 175 reiðhjólahjálmar. Með
öðrum orðum hafa um 68% nem-
enda í 1.-7. bekk keypt hjálma.
Lauslega áætlað er talið að um
15% nemenda hafi átt hjálma fyr-
ir, þannig að eftir þetta umferð-
arátak má gera ráð fyrir því að
u.þ.b. 85% nemenda á fyrrgreind-
um aldri í Hveragerði eigi reið-
hjólahjálm.
- Sigrún.
Börnin í Hveragerði komin með reiðhjólahjálma. Morgunbiaðið/Sígrún Sigfúsdóttir
ATVINMIIÁ/ ir^l Y^IKir^Af?
„Au pair“
óskast í haust á heimili háskólaprófessors
í Kaliforníu. Bílpróf skilyrði.
Upplýsingar gefur Anna í síma 91-44689
milli.kl. 17.00 og 20.00 næstu daga.
PRESSAN
Sala auglýsinga
Við leitum að kraftmiklum og vönum sölu-
manni á auglýsingadeild Pressunnar.
Gott tækifæri á vaxandi miðli.
Einungis tekið á móti umsækjendum
á Nýbýlavegi 14, milli kl. 10 og 14,
sunnudaginn 6. júní nk.
Kennarar - kennarar
Við Grunnskólann í Grundarfirði eru nokkrar
stöður lausar á næsta skólaári.
Viðfangsefnin eru:
Almenn bekkjarkennsla í 5. og 7. bekk.
Sérgreinakennsla, s.s. íslenska, stærð-
fræði og líffræði, í 8.-10. bekk.
Hannyrðir, smíðar og heimilisfræði
í 4.-10. bekk.
Sérkennsla.
Húsnæðishlunnindi í boði.
Upplýsingar gefa skólastjóri, Gunnar, í síma
93-86802 og aðstoðarskólastjóri, Ragn-
heiður, í síma 93-86772.
Skólanefnd.
1.
2.
3.
Kennarar
Kennarar vantar að Heppuskóla, Höfn.
Aðalkennslugrein enska í 8.-10. bekk. Einnig
almenn kennsla í 7. bekk eða stuðnings-
kennsla í 8. og 9. bekk.
Húsnæði og flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefur skólastjóri
í síma 97-81321.
Skólastjóri.
AUGLYSINGAR
KENNSLA
Sjómenn - sjómenn
Sjómannadagurinn
56. hóf sjómannadagsráðs
á Hótel íslandi
sunnudaginn 6. júní kl. 19.30.
Miða- og borðapantanir á Hótel íslandi dag-
lega milli kl. 09.00-17.00 í síma 687111. “
Sjómannadagurinn.
Sumarbústaður
í fallegri sveit á Norðurlandi, 3ja tíma akstur
frá Reykjavík, er til leigu íbúðarhús, sem er
tilvalið sem sumarbústaður fyrir félagasam-
tök eða einstaklinga í lengri eða skemmri
tíma.
Upplýsingar í síma 95-24499.
ATVINNUHUSNÆÐI
Miðbær Kópavogi
Til leigu atvinnuhúsnæði á jarðhæð.
Malbikað plan. Upplýsingar í síma 41036.
auglýsingar
Miðilsfundir
Miðillinn Julia Griffiths starfar frá
7. júní.
Upplýsingar um einkafundi og
námskeið i síma 688704.
Opiðhús
f dag kl. 14.00-17.00 er opið
hús í Þríbúðum, félagsmiðstöð
Samhjálpar, Hverfisgötu 42.
Lftið inn og rabblð um sumar
og sól. Heitt kaffi á könnunni.
Við tökum lagið kl. 15.30.
Takið með ykkur gestl.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Samhjálp.
UTIVIST
BBasmsm
Dagsferð laugard. 5. júní
Kl. 10.30 Sandakravegur.
Reynt verður að finna hinn forna
Sandakraveg þar sem hann
kemur inn á Skógfellaleiðina.
Brottför frá BSl bensínsölu,
stansað í Fitjanesti kl. 11.15 og
Grunnskólanum í Grindavík kl.
11.45. Verð kr. 1200/1300.
Dagsferðir sunnud. 6. júní
Kl. 10.30 Glymur - Hvalvatn
Gengiö m.a. að Glym, hæsta
fossi landsins og með hlíðum
Hvalfells að Hvalvatni. Reikna
má með 5-6 klst. göngu.
Kl. 10.30 Leggjabrjótur
Gömul altaraleið milli Hvalfjarðar
og Þingvalla. Gangan hefst við
Svartagil og tekur um 5-6 klst.
Verð kr. 1500/1700. Miöar við
rútu.
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladeifía
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Brauðsbrotning kl.
11.00. Ræðumaður Hafliði Krist-
insson. Almenn samkoma kl.
20.00. Ræðumaður Mike Fitz-
gerald.
Miðvikudagur: Skrefið kl. 18.00.
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur: Unglingasamkoma
kl. 20.30.
Laugardagur: Bænasamkoma
kl. 20.30.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Ferðafélag íslands
Laugardaginn 5. júní kl. 20
Esja - Kerhólakambur.
Fl ferð á íþróttadeginum.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Verð kr. 800.
Sunnudaginn 6. júní
Kl. 10.30 Gvendarhellir - Selja-
bót - Herdísarvík. Gengið verð-
ur frá Seljabót í Krýsuvíkurhrauni
og meðfram ströndinni í Herdís-
arvík. Skyggnst um í Gvendar-
helli. Verð kr. 1.100.
Kl. 13.00 Ögmundahraun -
Húshólmi. Skoðaðar mjög
merkilegar rústir gömlu-Krýsu-
vikur. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni og Mörkinni 6.
Fjallahjólaferð
Á sunnudaginn er Ifka hægt að
komast í hjólaferð sem félagar
Islenska fjallahjólaklúbbsins
sjá um. Brottför frá Jarlinum við
gömlu hesthús Fáks kl. 11.
Hjólað í 3-4 klst.
Opið hús á þriðjudags-
kvöldið 8. júní kl. 20.30
í Mörkinni 6 (Ferðafélags-
husinu, risi)
Kynntar ferðirnar 17.-20. júní
m.a. Árbókarferöirnar: Skafta-
fell, Öræfajökull, Núpsstaðar-
skógar og ferðin Breiðafjarðar-
eyjar Látrabjarg. Fararstjórar
mæta. Heitt á könnunni.
Munið Heiðmörk miðvikudags-
kvöldið kl. 20 og landgræðslu-
ferðina í Þórsmörk 11.-13. júní.
Nánar auglýst í sunnudags-
blaðlnu.
Gerist félagar og eignist nýju
Árbók Ferðafélagsins: Við ræt-
ur Vatnajökuls. Byggðir, fjöll
og jöklar. Höfundur er Hjörleif-
ur Guttormsson.
Ferðafélag Islands.
Amerískur vísindamaður
Ég er hraustur, sérmenntaður
vísindamaður, mikið fyrir útivist
og hef gaman af ævintýralegum
ferðalögum. Hef gaman af
göngutúrum í óbyggðum, leik-
húsi, list og skapandi fólki. Mig
langar að skrifast á við atorku-
sama, hugmyndaríka og næma
íslenska konu. Ég er 40 ára og
hef aldrei verið giftur. Ég verð
að skrifa á ensku en hefði gam-
an af að að læra eitthvað í ís-
lensku i gegnun skemmtilegar
bréfaskriftir.
Vinsamlegast skrifið til Thomas
H. Bellus, P.O.B. 1362, Rich-
land, Washington 99352, USA.