Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 36

Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 Siðferði og ráðherrar að ekki sé ástæða til að ætla að frelsi til að opna apótek leiði til lægra lyfjaverðs. Hvergi er að finna rökstuðning fyrir öðru, eingöngu órökstuddar fullyrðingar. Hagsmunaárekstur eftir Snjólf Ólafsson Með „siðferði" er átt við óskráðar reglur um hegðun einstaklinga og dyggðir þeirra og lesti. Pólitískt siðferði snýst þar af leiðandi um hegðun stjómmálamanna. Hugtak- ið „löglegt en siðlaust" vísar til þess að hegðun stjórnmálamanns, oftast ákvörðun, standist lög en ekki óskráðar reglur. Þar sem þess- ar reglur em óskráðar er ekki unnt að komast að óyggjandi niðurstöðu um það hvort þær hafi verið brotn- ar. Siðareglur starfsstétta era til þess gerðar að festa nokkuð af þessum óskráðu reglum á blað. Mörg^um þykir löngu tímabært að siðareglur fyrir stjórnmálamenn verði skráðar. Siðareglur fyrir ráð- herra hljóta þá að miklu leyti að snúast um misbeitingu valds. Hugsanlega kynnti forsætisráð- herra stefnu ríkisstjórnarinnar í sið- ferðismálum nýlega í útvarpi þegar hann spurði: Hvar á að leita að sið- ferðinu? Mátti skilja orð hans svo að siðferði sé nokkuð sem komi ákvörðunum ráherra ekkert við. Þegar ég heyrði þessa spumingu í viðtali fréttamanns við forsætisráð- herra beið ég eftir því að fréttamað- urinn svaraði spurningunni með því að benda á eitthvert þeirra atriða sem hvað augljósust voru. Því mið- ur lauk viðtalinu með þessari spurn- ingu. Vonandi finnur forsætisráð- herra einhver svör við spurningu sinni hér á eftir þar sem nefnd verða örfá atriði sem gætu verið eðlileg í siðareglum fýrir ráðherra, en era það ekki af reynslunni að dæma. Hrafnsmálið svokallaða verður m.a. notað til útskýringar þar sem sið- ferðisbrestir stjórnvalda hafa sjald- an opinberast jafn skýrt og í því máli. Vinum og flokksfélögum hyglað Þegar ráðherra skipar eða setur mann í stöðu skal hann forðast að velja mann sem almenningur hefur ástæðu til að ætla að sé valinn vegna vináttu eða tengsla við ráð- herra, ef kostur er á öðrum hæfari eða álíka hæfum manni í stöðuna. Ráðning Hrafns Gunnlaugssonar í stöðu framkvæmdastjóra virðist vera augljóst brot á þessari reglu. í þessu tilviki er um brottrekstur manns úr embætti og svo aftur inn- setning hins sama í hærra embætti við sömu stofnun að ræða. Útvarps- stjóri hafði metið það svo að Hrafn væri óæskilegur í stjórnunarstöðu hjá Sjónvarpinu og starfsmenn Sjónvarpsins virtust flestir sam- mála um það. Því er erfitt að sjá nokkra aðra ástæðu fyrir ráðningu Hrafns en vinatengsl hans við for- sætisráðherra og fleiri. Stjórnunar- aðferðir Hrafns virðast afar ólíkleg- ar til að skila árangri í opinberri stofnun þótt þær aðferðir henti e.t.v. við listsköpun. Annað dæmi um það hvemig flokksfélögum hefur verið hyglað era stöðuveitingar hjá Veðurstofu íslands undanfarna áratugi. Sú saga hefur verið rakin í dagblöðum af þeim sem betur þekkja til en ég. Að lokum mætti nefna mörg dæmi um þessa tegund spillingar sem tengjast fiskeldi en um þau hefur verið ijallað víða. Að gæta orða sinna Ráðherra skal gæta þess viðyfir- lýsingar sínar að vekja ekki óraun- hæfar væntingar. Auðvelt væri að nefna eins og tug dæma um yfírlýsingar núver- andi ráðherra sem hafa vakið óraunhæfar væntingar og verið þess eðlis að ráðherra hefði átt að vita betur. Yfírlýsingar forsætisráðherra í ágúst 1992 um að skip fengju fljót- lega bætta skerðingu kvóta umfram 5%, var sett fram á þann hátt að menn gerðu ráð fyrir því að það myndi gerast á næstu vikum þar á eftir. Það varð ekki raunin og er o<'sS'°e' GRISAKÓTILETTUR Ostakryddaöar Marineraöar Léttreyktar,kryddaðar GRILLPYLSUR Sœlkerapylsa meö osti Smelípylsa ,(Knackwurst) jj HÖFN SELFOSSI Snjólfur Ólafsson „ Ef ég hef rangt fyrir mér vænti égþess að hin raunverulega stefna ríkisstj órnarinn- ar í siðferðismálum verði kynnt almenn- • * LL mgi. erfitt að túlka málið á annan hátt en að ráðherra hafí vísvitandi verið að lægja öldur með blekkingum. Hins vegar hljóta stjórnendur fyrir- tækjanna að hafa gert ráð fyrir þessum tekjum þegar ákvarðanir voru teknar. Þetta er staðfest í bréfí sem LÍÚ ritaði forsætisráðherra 6. janúar síðastliðinn. I eldhúsdagsumræðum 3. maí síðastliðinn hélt forsætisráðherra áfram á sömu braut þegar hann sagði að þorskkvótinn yrði ekki skertur meira en orðið er. Ef fyrir- tæki og þeir aðilar sem vinna að uppstokkun sjávarútvegsfyrirtækja ganga út frá þessu er líklegt að þeir verði fljótlega fyrir vonbrigð- um. Þetta er nokkuð augljóst fyrir þá sem hafa metið kalt upplýsingar um ástand þorskstofnsins. Yfírlýsingar heilbrigðisráðherra, fyrst á árinu 1991, um aukið frelsi til að opna og reka apótek hafa vakið óraunhæfar væntingar á tvo vegu. Annars vegar væntir almenn- ingur þess að með því lækki lyfja- verð og hins vegar gera ýmsir at- hafnamenn sér óraunhæfar vænt- ingar um hagnað með því að reka apótek í þéttbýli. Niðurstöður tveggja óháðra aðila, birtar á árun- um 1991 og 1992, voru á þá lund Ráðherra skal meta líkur á hags- munaárekstri þegar skipað er í stöðu og hafna einstaklingi ef um (verulegan) hagsmunaárekstur er að ræða. Oft hefur þessi regla verið þver- brotin og er ráðning Hrafns Gunn- laugssonar í stöðu framkvæmda- stjóra Sjónvarps nýlegt og augljóst dæmi. Margar ákvarðanir Hrafns sem framkvæmdastjóra hljóta að hafa veraleg áhrif á tekjur Hrafns sem kvikmyndagerðarmanns. Reyndar hafa ákvarðanir hans áhrif á eigin hagsmuni hans á margan annan hátt. (Sem dagskrárstjóri ætlaði hann að semja handrit fyrir RÚV.) Þetta mun væntanlega skýr- ast með skýrslu Ríkisendurskoðun- ar. Rétt er að benda á að þótt Hrafn tæki þá ákvörðun að víkja af fund- um meðan fjallað er um mál sem tengjast honum þá breytir það engu, því það að hann er fram- kvæmdastjóri mun hafa áhrif á ákvarðanir samstarfsmanna hans. Lokaorð Ofantalin þrjú atriði era aðeins fá af mörgum sem eiga heima í siðareglum fyrir ráðherra og aðra í opinberam valdastöðum. Það er mikið verk og vandasamt að semja slíkar reglur og nauðsynlegt að gefa því góðan tíma. Að sjálfsögðu gilda almennar siðareglur einnig um valdamenn, t.d. er siðlaust að Ijúga. Eg tel að í flestum nágrannalönd- um okkar hefði ráðning Hrafns Gunnlaugssonar í starf fram- kvæmdastjóra Sjónvarpsins og ýmis önnur verk unnin af menntamála- ráðherra eða á hans ábyrgð, leitt til afsagnar ráðherra. Þetta verður þó hvorki sannað né afsannað. Hins vegar er það verulegt áhyggjuefni margra að það er sama hvað ráð- herrar gera, ekkert fær þá til að segja af sér. Er ástæðan sú að fjölmiðlarnir bregðast skyldu sinni við þjóðina? Er ástæðan sú að al- þingismenn eru tilbúnir að láta hvað sem er yfir sig ganga? Gera kjörnir fulltrúar almennings sér nægjan- lega grein fyrir skyldum sínum? Eru þeir reiðubúnir að horfast í augu við þær skyldur? Eg þykist greina þá stefnu stjórnvalda að ef ákvörðun er lögleg þá er ekkert athugavert við hana. Ráðherrar sjá enga ástæðú til að taka tillit til þess hvort ákvörðun sé siðlaus eða ekki. Ef ég hef rangt fyrir mér vænti ég þess að hin raun- verulega stefna ríkisstjórnannnar í siðferðismálum verði kynnt almenn- ingi. Höfundur er dósent við Háskóla íslands Víðtækt eftirlit með urriðastofni Laxár Rannsóknarverkefni verður í gangi á silungsveiðisvæðinu í Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu ofan virkjana í sumar og eru það auk Veiðifé- lags Laxár og Krákár, Líffræðistofnun Háskólans og Veiðimála- stofnun sem standa að verkefninu. Síðustu daga hafa stangaveiði- menn alls veitt yfir 300 urriða og merkt þá áður en þeim var sleppt í ána á ný. Veiðar þessar stóðu yfir síðustu dagana áður en veiði- tíminn hófst á þriðjudaginn síðastliðinn og gekk veiðin vel. Hólmfríður Jonsdóttir veiðivörð- ur á Arnarvatni sagði í samtali við Morgunblaðið að tilgangurinn með þessum athugunum væri sá að fylgjast með því hversu staðbund- inn urriðinn í ánni væri. Athugan- ir sem áður hafa verið gerðar bendi til þess að fiskurinn á þessum slóð- um sé mjög staðbundinn og flytji sig lítt til. Athuganirnar nú era víðtækari og eiga að taka af allan vafa um mál þetta. Segir Hólmfríð- ur að menn vilji fá svör við þessum spurningum þar eð þá muni farn- ast betur að fylgjast með veiðiá- lagi og almennu ástandi urriða- stofnsins. Ef veiðiálag reynist of mikið á vissum svæðum þá sé unnt að draga úr álagi og öfugt. Sem fyrr segir gengu veiðarnar prýðilega og heppnaðist veiði- mönnum ætlunarverk sitt að ná til merkingar 300 urriðum áður en vertíðin hófst. Fyrir veiðimönnum fór Kolbeinn Grímsson, þrau- treyndur veiðimaður í Laxá í ára- tugi, en verkefninu stjórnar Gísli Már Gíslason líffræðingur. Sagði Hólmfríður að það hafi komið öll- um hlutaðeigandi skemmtilega á óvart hversu vænn og fallegur fisk- urinn hafi verið í vertíðarbyijun. Veiddu merkingarmenn allt að 7 til 8 punda fiska og all mikið af 4 til 5 punda urriðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.