Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
Minning
Bima Guðnadóttir
Fædd 16. september 1896
Dáin 30. maí 1993
Mig langar í nokkrum línum að
minnast ömmu minnar, Birnu
Guðnadóttur, sem lést á dvalar-
heimilinu Hlíð á Akureyri aðfara-
nótt sunnudags.
Amma var fædd 16. september
1896, dóttir hjónanna Guðna
Bjamasonar og Indíönu Kristjáns-
dóttur. Þau bjuggu á Svalbarðseyri
við Eyjafjörð.
Bima var á 97. aldursári er hún
lést. Hár aldur — langt lífshlaup —
sjaldnast dans á rósum. Aðeins 39
ára gömul missti hún eiginmann
sinn, Eið Ámason, sem fórst á leið-
inni milli Akureyrar og Svalbarðs-
eyrar 14. desember 1935. Veður
var slæmt þann dag og hann var
varaður við að leggja í þá ferð fót-
gangandi, en afi lagði kapp á að
komast heim því að þar beið amma
nærri komin að því að fæða þeirra
6. bam.
Eftir stóð amma — ung ekkja
með stóran bamahóp. Hún ól böm
sfn upp af einstökum dugnaði og
hennar eina markmið var að koma
þeim til manns. í þá daga fengu
ungar ekkjur nálitla upphæð
greidda frá yfirvöldum er þær
misstu eiginmann. Hún sagði mér
eitt sinn að hún hefði velt því lengi
fyrir sér hvað gera skyldi við þá
aura, til að eiga möguleik á að fram-
fleyta sér og sínum. Hún keypti sér
saumavél og saumaði meðan aldur
og heilsa leyfðu, síðast á sauma-
stofu Amaró á Akureyri.
Amma var einstaklega vel gefin
og víðlesin kona. Svo langt aftur
sem ég man þá ná snemst samtöl
okkar á jólum um bækur þær sem
ömmu höfðu áskótnast í jólagjöf.
Þær voru ekki fáar og af ýmsum
toga. Allur vel skrifaður texti var
henni hugleikinn, svo og efni um
ættir manna og lífshlaup.
Amma var hæversk og yfir henni
hvíldi ótrúleg ró. Hún undi sér best
í fámenni enda þótt fjölskyldan
væri henni sérstaklega kær. Hún
bjó lengst af á Skipagötu 6 á Akur-
eyri þar sem bömin gerðu henni
kleift að búa svo lengi sem mögu-
legt var. Fyrir tveimur árum flutt-
ist hún á dvalarheimilið Hlíð þar
sem hún fékk að sofna hinum langa
svefni síðastliðinn sunnudag. Eg
veit að við hlið hennar á náttborð-
inu hefur legið ljóðabók — með ljóð-
um Hannesar Hafstein — marglesin
og handleikin, fyrsta gjöf afa til
hennar.
Á löngum ævidegi fékk hún að
kynnast sorginni, hún sá á eftir
mörgum ástvinum yfír móðuna
miklu. Ég ræddi eitt sinn við hana
um líf eftir þetta líf. Hún var ekki
í nokkrum vafa.
Ég veit að ömmu bíða opnir arm-
ar hinum megin.
Birna Einarsdóttir.
Að morgni hvítasunnudags var
stríði langömmu minnar, Birnu
Guðnadóttur, loks lokið. Hún var
fædd á Syðra-Hóli í Fnjóskadal,
dóttir hjónanna Indíönu Kristjáns-
dóttur og Guðna Bjamasonar.
Langamma var elst systkina sem
nú eru öll látin nema Sigríður sem
býr Norðurgötu á Akureyri. Hin
voru Októ, Garðar, Þóra og Einar
sem lést barn að aldri.
Hinn 3. nóvember 1918 giftist
hún Eiði Ámasyni frá Pálsgerði.
Þau áttu aðeins tæpa tvo áratugi
saman því að hann varð úti í
vonskuveðri í desember 1935. Þeim
varð þó sex bama auðið: Rannveig,
fædd 21. maí 1919, gift Gunnlaugi
Karlssyni sem nú er látinn; Þóra,
fædd 6. mars 1924, dáin 3. desem-
ber 1980, gift Stefáni Bjarman sem
einnig er látinn; Einar, fæddur 26.
mars 1927, dáinn 14. nóvember
1986, eftirlifandi kona hans er
Laufey Kristinsdóttir, Hildur, fædd
19. febrúar 1930, var gift Eyþóri
H. Tómassyni sem er látinn; Hreinn,
fæddur 17. október 1932, dáinn 11.
febrúar 1938; Eiður, fæddur 17.
desember 1935, giftur Grétu Bald-
vinsdóttur sem er látin.
Sín fyrstu hjúskaparár bjuggu
ungu hjónin í Pálsgerði í Grýtu-
bakkahreppi, en fluttust síðar að
Sæbóli í sömu sveit. Á Svalbarðs-
eyri bjuggu þau svo þegar langafi
féll svo skyndilega frá. Var lang-
amma búsett þar í u.þ.b. 20 ár
áður en hún fluttist til Akureyrar
þar sem hún bjó lengst af í Skipa-
götu 6.
Þegar langamma var orðin ein
sá hún fyrir sér og bömunum með
saumaskap, saumaði fyrst fyrir
Geflun og einnig fyrir Bemharð
Laxdal. Eftir að hún fluttist til
Akureyrar starfaði hún á sauma-
stofu Amaró, en síðustu starfsárin
vann hún á saumastofunni írisi. Þar
vann hún allt til 77 ára aldurs.
Langamma hafði alla tíð mikinn
áhuga á landsmálum og verkalýðs-
baráttu, en gaf öðmm þó alltaf
svigrúm til eigin skoðanamyndunar.
Oft hlýtur lífið að hafa verið erf-
itt er hún barðist ein með bömin,
en af stolti, dugnaði og seiglu átti
langamma nóg og hefur það efiaust
Fædd 9. desember 1911
Dáin 30. maí 1993
í dag verður borin til grafar frá
Fáskrúðsíjarðarkirkju tengdamóðir
mín, hún Petra. Kynni okkar hófust
fyrir tæpum 22 áram, þegar ég fór
að skjóta mig í dóttur hennar. í
fyrstu virtist mér hún vera hörð
kona, en strax og ég fór að kynn-
ast henni og komast inn fyrir skel-
ina birtist mér, hlý, góðhjörtuð og
gamansöm kona. Petra var vel hag-
mælt, en vildi lítið láta á því bera,
hún kunni ógrynni af málsháttum
og notaði þá oft. Það var ekki ónýtt
að eiga þessa góðu konu sem ömmu,
sem sýndi sig best í því hve bama-
bömin vora dugieg að heimsækja
hana. Það var ekki bara að sælgæt-
isskálin væri alltaf á sínum stað,
full að góðgæti, heldur sý hlýja og
notalegheit sem hún sýndi ömmu-
bömunum eins og öllum bömum
sem komu í Melgerði. Þær era ófá-
LEGSTEINAR
i#snmiiEEi
720 Borgarfiröi eystra,
simi 97-29977, fax 97-29877
HARÐVIÐARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SlMI 671010
oft hjálpað. Henni fannst alla tíð
erfitt að sitja verklaus og sást það
best þegar bömin og bamabörnin
komu í heimsókn. Þá var alltaf
veisluborð, heimabakað fransk-
brauð og pönnukökur. Hélt hún
þessum hætti fram yfir nírætt. Og
á meðan unga fólkið gæddi sér á
kræsingunum greip hún til handa-
vinnunar, pijónaði, taldi út, stagaði
eða hvað sem hendi var næst. Enda
var hvergi betra að laumast inn
þegar bjarga þurfti uppáhaldsföt-
unum, hún bætti þau vandræða-
laust. Ofá era líka listaverkin í út-
saumi sem liggja eftir hana, þó
sjálfri þætti henni lítið ■ til þeirra
koma, sagðist fegin ef einhver gerði
sér þann greiða að þiggja þetta.
Langamma var alla tíð ákaflega
elsk að bókum. Las mikið, var vel
að sér víða og kunni mikið af ljóð-
um. Henni þótti ákaflega gott að
geta gripið til ljóðabókar hvenær
sólarhringsins sem var og gleymt
sér um stund. En hún las ekki bara
fyrir sjálfa sig, heldur einnig bömin
og kenndi þeim að meta hið ritaða
orð. Oft heyrði maður farið með
hendingu úr ljóði eða eina stöku.
Langamma var bömum sínum
mjög hlý og mynduðust á milli
ar hendumar eða fætumir sem
pijónlesið frá henni Petra hefur
veitt yl og þess nutu ekki bara henn-
ar nánustu. Það var með ólíkindum
hvað hún afkastaði þegar hún sat
með pijónana sína.
Dýravinur var Petra mikill og
virtust flest dýr hænast að henni,
enda fóra þau ekki svöng frá húsi
hvort sem það væra kettir eða fugl-
ar.
Petra var mjög hreinskiptin,
sagði álit sitt á mönnum og málefn-
um umbúðalaust. Æðraleysi hennar
var einstakt og kom það vel í ljós
í þeim veikindum sem að lokum
færðu hana yfir í betri heim. Mér
hefur dottið í hug hvort æðruleysi
eins og hennar og það að vita hlut-
ina áður en þeir gerast sé sam-
tengt. Það var aðdáunarvert og í
raun mikil lífsreynsla að sjá hvem-
ig Petra tók veikindum sínum, enda
var hún ekki rúmliggjandi nema
tiltölulega stuttan tíma miðað við
veikindin.
Petra er fædd að Kleifarstekk í
Breiðdal en fluttist þaðan að Víkur-
gerði í Fáskrúðsfirði með foreldram
sínum þegar hún var á öðru ári.
Ólst hún þar upp faðmi foreldra
sinna og systkina, en fluttist inn
að Búðum 1936. Foreldrar hennar
voru Guðrún Jónasdóttir og Þórður
Gunnarsson. Hinn 22. nóvember
1936 giftist Petra Níelsi Lúðvíks-
syni útgerðarmanni frá Hafnamesi,
en Níels lést 22. apríl 1984. Petra
bjó þeim Níeisi og bömunum fallegt
og hlýlegt heimili í Melgerði á Búð-
um og .áttu þau þar heima alla tíð.
Petra og Níelsi varð sex bama auð-
ið og lifa þau öll foreldra sína. En
Petra átti dóttur fyrir hjónaband
sem hét Soffía Alfreðsdóttir, en lést
7. júlí 1991. Átti hún þijú böm.
Eftirlifandi maður hennar er Skúli
þeirra sérstök, sterk tengsl. Þau
tengsl lýstu sér ekki síst í um-
hyggju barna hennar, en þau heim-
sóttu hana eða höfðu samband á
annan hátt á hveijum degi í marga
tugi ára. Þessa umhyggju sýndi
Iangamma okkur einnig. Þegar set-
ið var á tali við hana gat 70 ára
aldursmunur gufað upp sem ekkert
væri. Hún fylgdist af miklum áhuga
með afkomendum sínum hvort sem
var í námi, leik eða starfi. Skemmti-
legast þótti henni samt að hitta eða
heyra af yngstu kynslóðinni. Þegar
bömin bárast í tal rak hún oft upp
skæran hlátur yfir uppátækjum
þeirra og sló létt sér á lær.
Síðustu tvö árin vora erfið í lífi
langömmu. Hún sem alltaf hafði
verið sjálfstæð stóð nú skyndilega
í þeim sporam að vera öðram háð.
Því kunni hún ekki vel. Stoltið sagði
að hún skyldi standa keik en líkam-
inn var orðinn lúinn. Þegar sjóninni
fór að hraka gat hún lítið sinnt
þeim áhugamálum sem hún undi
sér best við. Nefndi hún þá oft að
nú væri nóg komið. Sinn tími hlyti
að fa,ra að koma því að hún væri
svo sannarlega tilbúin. Hún var trú-
uð á sinn sérstaka hátt og hún trúði
því að nú liði að því að hún hitti
Eið langafa aftur eftir þennan langa
aðskilnað. Trúi ég að hún gleðjist
ekki síður yfír að hitta aðra ætt-
ingja sem á undan henni vora
gengnir og hún saknaði sárt. Þrátt
fyrir að söknuður sé okkur einnig
í huga þegar við kveðjum
langömmu þá er einnig að finna
þar gleði yfír því að ósk hennar er
nú loks uppfyUt og þakklæti fyrir
aUt sem hún gaf okkur.
Þú sem himni hniginn M,
hjartans mein komst öll að bæta,
þeim, sem tvöfalt tregar þjá,
tvöfalt veitir svölun mæta,
þreyttur hugur hvíldar biður,
hvað má gagna stritið þitt?
Ljúfi friður
líð þú inn í bijóstið mitt.
(Goethe, Hannes Hafstein þýddi)
Fyrir hönd afkomenda Bimu
færi ég læknum og starfefólki Dval-
arheimilisins Hlíðar þakkir fyrir
góða umönnun.
Rannveig Karlsdóttir.
Þórðarson skrifetofumaður á Akra-
nesi. Böm Petra og Níelsar era:
Reynir sjómaður sem bjó með móð-
ur sinni; Sigurveig fiskiðnaðarmað-
ur, býr á Fáskrúðsfirði og á hún
fjögur böm, hennar maður er Vign-
ir Jóhannesson verslunarmaður;
Svavar iðnverkamaður, býr í
Reykjavík; Aðlbjörg saumakona,
býr á Akranesi og á hún fjögur
böm, hennar maður er Georg Ein-
arsson netagerðarmeistari; Sævar
sjómaður, býr á Fáskrúðsfirði; Guð-
rún skrifstofumaður, á hún þijú
böm, býr á Fáskrúðsfirði og er gift
undirrituðum. Einnig ólu þau Níels
og Petra upp dótturson sinn, Níels
Pétur.
Fyrir hönd aðstandenda vill ég
þakka starfsfólki Fjórðungssjúkra-
húsins í Neskaupstað fyrir frábæra
umönnun síðustu vikumar.
Petra mín, við kveðjum þig með
trega og söknuði, en ég veit að þín
bíður nýtt líf í betri heimi. Það létt-
ir okkur kveðjustundina að eiga
góðar minningar um þig sem ekki
verða frá okkur teknar. Að lokum
vil ég þakka allar þær góðu stundir
sem þú gafst bömunum okkar.
Blessuð sé minning þín.
Eiríkur Olafsson.
Auglýsing um starfsleyfís-
tillögur skv. gr. 8.4. í mengunar-
varnaeglugerð nr. 396/1992
í samræmi við gr. 8.3. ofangreindrar reglugerð-
ar liggja frammi til kynningar í ráðhúsi Reykja-
víkurborgar, 1. hæð (upplýsingaþjónustunni),
frá 7. júní nk. starfsleyfistillögur fyrir eftirtalin
fyrirtæki:
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir
aðilar:
1. Sá, sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og
forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða
nálægrar starfsemi.
íbúar þess svæðis, sem ælta má að geti
orðið fyrir óþæginum vegna mengunar.
2.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem
málið varðar.
1. Fjöðrin Skeifunni 2 108 Rvík.
2. VÆS Smiðshöfða 13 112 Rvík.
3. E.T. hf. Klettagarðum 11 104 Rvík.
4. Pústþjónustan sf. Skeifunni 5 108 Rvík.
5. Bílaverkstæði Kristófers Eldshöfða 3 112 Rvík.
6. Pústþjónustan hf. Nóatúni 2 105 Rvík.
7. Kvikk þjónusta - bílaverkstæði Sigtúni 3 105 Rvík.
8. Bílgrip Ármúla 36 108 Rvík.
9. Finnbogi Guðmundsson Súðarvogi 46 104 Rvík.
10. Bílaréttingar Jóns Þ. Ólafssonar Efstasundi 73 104 Rvík.
11. Réttingoverkstæði Jóa Súðarvogi 44 104 Rvík.
12. Álímingar sf. Síðumúla 23 108 Rvík.
13. Réttinga-og mólningarverkstæðið hf. Fosshólsi 13 110 Rvík.
14. G.K. bílaréttingar hf. Hamorshöfðo 9 112 Rvík.
15. Ventill hf. bílasprautun og réttingar Ármúla 23 108 Rvik.
16. Bílastjarnan sf. Funahöfða 8 112 Rvík.
17. Bílamólun Halldórs Þ. Nikulóssonar Funahöfða 3 112 Rvík.
18. Bílomólun Amars hf. Skeifunni 5 108 Rvík.
19. Bifreiðaverkstæði H.P. Hamarshöfða 6 112 Rvík.
20. Bílamólunin Geisli Stórhöfða 18 112 Rvík.
21. Bílaverkst. Jóhanns M. Kristjónss. Borgartúni 29 105 Rvík.
22. Bifreiðaverkst. Árna Gíslasonar hf. Tangarhöfða 8-12 112 Rvík.
23. Bílamólunin Gljói Vognhöfða 20 112 Rvík.
24. Bílaréttingar Sævors Skeifunni 17 108 Rvík.
25. Bílasprautun - réttingar sf. Vognhöfða 16 112 Rvík.
26. Réttingamiðstöðin hf. Hamarshöfða 8 112 Rvík.
27. Bílamólun Sigursveins Sigurðssonor Síðumúla 25 108 Rvík.
28. Bílasprautun Sveins Sævars Ármúlo 26 108 Rvík.
29. Bíliðn Suðurlandsbraut 6 108 Rvík.
30. Bílamólun sf. Homarshöfða 10 112 Rvík.
Petra Jóhanna Þórð-
ardóttir — Minning