Morgunblaðið - 05.06.1993, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 5. JÚNÍi 1993
fólk í
fréttum
FERÐAMAL
Straumurinn haf-
inní
Ferðamannastraumurinn er
hafínn. Og hann fer vel af
stað hér við Stykkishólm," sagði
Arni Helgason, okkar maður þar
vestra, í samtali við Morgunblað-
ið og hann bætti við: „Til dæmis
komu í dag fj'órar Fokker-flug-
vélar með farþega sem voru
bæði innlendir og erlendir og
skoðuðu þeir Stykkishólm og
umhverfi, fóru um Helgafells-
sveit og litu útí hinn fræga og
gamla stað Bjarnarhöfn ásamt
ýmsu fleiru. Einnig var fyrirhug-
að að fara um fjörðinn eftir því
sem efni og tími ynnist. Þessir
farþegar voru í umsjá hótelsins
hér, þar sem Sigurður Skúli
Bárðarson er hótelstjóri," sagði
Arni.
Arni sagði að flugvallarstjór-
inn, Þór Sigurðsson, hefði tjáð
sér að þetta væru flestar fiugvél-
ar sem sest hefðu samtímist á
Stykkishólmsvöll. „Líklegast
hafa farþegar nálgast eitt hundr-
að eða yfir og fluttu svo rútur
gestina um umhverfið og þá
Stykkishólm
Fjórar farþegaflugvélar á flugvellinum í Stykkishólmi. Árni
Helgason, fréttaritari Morgunblaðsins, man ekki eftir svona mörg-
um flugvélum í einu á flugvellinum þar.
Eyjaferðir um eyjarnar. Gunnar
Svanlaugsson, yfirkennari, var
svo leiðsögumaður hópsins. Veð-
ur hefði að sjálfsögðu mátt vera
betra en það var, en þeir sem
voru þarna á ferð létu það ekk-
ert aftra sér,“ sagði Árni að lok-
um.
Ræstikonurnar Anastasia og Daria kynna sér innihald hins nýja
rússneska Penthouse.
VESTRÆNN SORI
Penthouse ge fið
út í Rússlandi
A
Atímum kommúnismans í Sovét-
ríkjunum voru tímarit eins og
Playboy flokkuð með ritum andófs-
mannsins Alexanders Solzhenítsyns
sem ólöglegar og stórhættulegar
bókmenntirnar. En nú eru breyttir
tímar og klámiðnaðurinn blómstrar
í austurvegi. Rússar hafa aðlagast
breyttum aðstæðum furðu fljótt og
ungar metnaðargjarnar konur
standa í biðröðum í von um að verða
gæludýr mánaðarins á miðopnu
„Pentkhaus" sem er rússkneska
útgáfan af Penthouse. Aðstandend-
ur tímaritsins segja að hvert upplag
seljist í 500.000 eintökum á verði
sem hæfir efnahagsástandi lands-
ins, það er 80 krónur fyrir eintakið.
Hjá mörgum Rússanum stendur
Penthouse við hlið MacDonalds og
Levi’s sem tákn vestrænnar velferð-
ar. Vikulega berast um hundrað
bréf á skrifstofur Pentkhaus og
innihaldið er oftast það sama: „Það
er mikið af fallegum stúlkum í borg-
inni okkar,“ skrifar læknaneminn
Anya frá Sevastopol, „og ég er ein
þeirra.“ Til þess að færa sönnur á
mál sitt sendir hún með tvær sum-
arlegar ljósmyndir þar sem lítið er
skilið eftir handa ímyndunaraflinu.
Georgi Aspisoff, framkvæmdastjóri
Pentkhaus, segist ánægður með
viðtökurnar en þeir neyðist því mið-
ur til að hafna flestum umsóknun-
um.
KVIKMYNDIR
Clay snýr aftur
ffarinn ógurlegi Andrew Dice
Clay er þessa dagana að skipu-
leggja endurkomu sína á sviðið. Clay
sem vakti mikla lukku með óhefl-
aðri framkomu og ljótu orðbragði í
kvikmyndinni „Ford Fairlane" ætlar
að halda uppteknum hætti. Uppá-
koman verður í New York í júlí og
verður henni sjónvarpað beint um
Bandaríkin í gegnum kapalkerfí og
þurfa áhorfendur að greiða sérstak-
lega til þess að hlýða á gamansögur
kappans og svivirðingar. Atburður-
inn hefur verið auglýstur sem
„kommbakk“ og þykir mönnum það
nokkuð spaugilegt því orðalagið
bendir til þess að hann hafí einhvem
tíma náð hátt eða jafnvel fallið af
toppnum. Vilja fæstir kannast við
það. En Andrew Dice Clay er þekkt-
ur fyrir allt annað en hógværð og
mun eflaust taka á þessu máli í
beinni útsendingu í júlí.
Dice Clay snýr ekki aðeins aftur
með áhrifaríkan orðaforða sinn í
Andrew Dice Clay tilbúinn í slag-
inn.
júlí heldur einnig íþróttaföt sem
hann hefur kosið að kalla Dicewear.
HÁRTÍSKA
STUTT hár skal það vera í sum-
ar segja þeir sem gerst þekkja
til hártískunnar. Á íslandi hefur
stutt hár komist mjög í tísku og
vilja sumir tengja það uppsveiflu
körfuboltans. Ekki vitum við hvort
súpermódelið Naomi Campbell fylg-
ist náið með bandarískum körfu-
bolta en hún minnir óneitanlega á
kempurnar þar þessa dagana. Na-
Naomi eða Michael Jordan?
Linda Evangelista ásamt hinni
snögghærðu Naomi Campbell.
omi hefur látið hárið fjúka og herma
fréttir að vinsældir hennar sem fyr-
irsætu hafi minnkað stórlega í kjöl-
farið. Hafa menn á orði að biðraðir
áhugasamra vinnuveitanda hafi
styst álíka mikið og hárið.
Naomi með
drengja-
koll
Morgunblaðið/Þorkell
Saman komnir eftir hálfa öld. Frá vinstri Jón Jóhannsson, Andrés Páls-
son, Magnús Guðbjartsson, Þórhallur Hálfdánarson og Jón Halldórsson.
TIMAMOT
Ahöfnm
áGarðari
kemur
saman
Þessir herramenn komu
saman á A. Hansen,
Hafnarfirði, í tilefni þess
að hálf öld er liðin frá því
að þeir komu heim frá Skot-
landi eftir að skip þeirra,
togarinn Garðar GK 25, var
keyrður niður í Norðursjó.
Þá fórust þrír menn en
tíu björguðust, þar af eru
nú fimm iátnir.
COSPER
Af hverju í ósköpunum kvænist hann þeim ekki
báðum?