Morgunblaðið - 16.06.1993, Side 1

Morgunblaðið - 16.06.1993, Side 1
80 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 133. tbl. 81.árg. MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pólitískt neyðarástand í Azerbajdzhan Uppreisnarlið sækir til Baku Moskvu, Róm. Reuter. GEIDAR Alyev, fyrrum leiðtogi kommúnistaflokksins í Azerbajdz- han, var í gær kjörinn þingforseti landsins. Hann sat lengi í miðstjórn sovéska kommúnistaflokksins og var aðalritari hans í Azerbajdzhan þar til hann var leystur frá störfum af Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta árið 1987. Mjög harðir bardagar hafa verið háðir í Azerbajdzhan undanfarna daga milli stjórnarhersins og uppreisnarmanna, sem sagðir eru sækja að höfuðborginni. Pavarotti þreyttur? New York. The Daily Telegraph. LÍKLEGT er, að Luciano Pa- varotti, söngvarinn heims- kunni, setjist brátt í helgan stein að mestu. Er þetta haft eftir vini hans en söngvarinn sjálfur er á öðru máli. „Mér fínnst trúlegt, að Pavarotti hætti reglulegum óperusöng eftir eitt ár eða tvö og haldi aðeins konserta," sagði Herbert Breslin en Pa- varotti, sem er 57 ára að aldri, hefur lengi ver- ið allt of feitur og þjáist af ýms- um krankleika. „Eitt veit ég þó fyrir víst og það er, að hann vill ekki taka sig á og læra af reynslunni. Pavarotti er að eld- ast en kann ekki að taka á því.“ Pavarotti segir, að þetta eigi ekki lengur við. Hann hafi lést um 15 kíló og sé ekki lengur jafn slæmur í hnjánum og áður. „Ég er allt annar maður og stefni að því eftir eitt eða tvö ár að byija aftur á tennisleik." Pavarotti Uppreisnin gegn stjórninni hófst fyrir tæpum tveimur vikum í borginni Gyandzha í vesturhluta landsins og eftir mannskæða bar- daga, sem kostuðu 70 manns lífíð, náðu uppreisnarmenn henni á sitt vald. Uppreisnarmennirnir hafa síðan haldið í átt að Baku, án þess að mæta andstöðu en í gær bárust fregnir af hörðum átökum í um 120 km fjarlægð frá höfuð- borginni. Pólitískt upplausnarástand er í landinu í kjölfar uppreisnarinnar og er forseti landsins, Abulfaz Elchibej, mjög óvinsæll, ekki síst vegna slæms gengis azerskra sveita í bardögum við Armena í Nagorno-Karabakh. Alijev sagði í þingræðu í gær að binda bæri enda á átökin við Armena eins fljótt og unnt væri. Reuter „Allt sem mannréttindi eru ekki“ HARIS Silajdzic, utanríkisráðherra Bosníu, fór með mikinn reiðilestur á mannréttindaráðstefnunni í Vín í gær og spurði hve lengi þjóðir heims ætluðu að sætta sig við þjóðarmorð í landi hans. Sagði hann, að Bosn- ía væri „allt sem mannréttindi eru ekki“ og „blóðugur blettur“ á samvisku þjóðanna. Var síðar samþykkt einróma að skora á öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að stöðva hryllinginn í Bosníu. Nýjustu fféttir af stríð- inu í landinu eru þær, að Serbar og Króatar hafa tekið höndum saman í sumum héruðum landsins gegn múslimum. Hér eru Serbar í Konjig-héraði að flytja fangna múslima aftur í hendur Króata. Banda tapaði Blantyre. Reuter. The Daily Telegraph. ÞRJÁTÍU ára einræði Hastings Banda, mannsins sem sagður er hafa stjórnað Malaví líkt og hann ætti það sjálfur, er á enda. Lýð- ræðissinnar báru sigurorð af flokki „svarta hanans", flokki stjómarinnar. Samkvæmt bráða- birgðaúrslitum þjóðaratkvæða- greiðslunnar, sem kynnt voru í gær, þótti sýnt að flokkar lýðræð- issinna hefðu hlotið um 70% fylgi. Biðraðir mynduðust snemma morguns og sváfu sumir kjósenda undir berum himni við kjörstaði nóttina fyrir kjördag. Glatt var yfir þátttakendum og að sögn umsjónar- manna kjörstaða var mikil spenna í loftinu enda var þetta fyrsta tæki- færi margra til þess að segja hug sinn um stjómskipan landsins án þess að óttast frelsissviptingu. Sjá bls. 23: „01íuluktin“ ber sigurorð af „svarta hananum“ Jan Henry T. Olsen, sjávarutvegsráðherra Noregs, um hvalveiðarnar „Miinum aldrei beygja okkur fyrir hótunum“ Reuter Dalal Lama í Vín KÍNVERJUM mistókst í gær að koma í veg fyrir, að Dalai Lama, trúar- leiðtogi Tíbeta, fengi að sækja Mannréttindaráðstefnuna í Vín en þeir höfðu haft í óbeinum hótunum við þau ríki, sem dirfðust að hafa við hann einhver samskipti. Kínverjar lögðu Tíbet undir sig með hervaldi 1950 og níu árum síðar flýði Dalai Lama til Indlands í kjölfar misheppn- aðrar uppreisnar gegn yfirráðum Kínveija. Hann fékk friðarverðlaun Nóbels 1989 vegna baráttu sinnar fyrir frelsi landsins. Dalai Lama er hér að koma í ráðstefnumiðstöðina þar sem mannréttindaráðstefnan er haldin og ætlaði hann að ávarpa fund ýmissa óopinberra samtaka. Sjá „Dalai Lama ...“ á bls. 22. Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSKU hvalbátarnir, 28 að tölu, lögðu úr höfn nú í vikunni en slæmt veður hefur hingað til komið í veg fyrir veiðar. Evrópsk- um fyrirtækjum, sem látið hafa undan þrýstingi grænfriðunga og neita að kaupa norska vöru, hefur eitthvað fjölgað en norsk yfirvöld gera lítið úr því og benda á, að sala á norskum laxi hafi verið að aukast að undanförnu. Norski sjávarútvegsráðherr- ann, Jan Henry T. Olsen, sagði í Tókýó í gær, að Norðmenn myndu aldrei beygja sig fyrir hótunum eða þrýstingi. Veiðisvæði hvalbátanna er gífur- lega stórt, úti fyrir ströndum Norð- ur-Noregs og í átt til Jan Mayens, Svalbarða og Bjamareyjar, og segj- ast hvalveiðimenn ekki óttast að hugsanlegir hvalavinir muni finna þá á miðunum. Af refsiaðgerðum er það að frétta, að breska verslana- keðjan „Iceland" hefur ákveðið að fara að tiimælum grænfriðunga og hætta að kaupa norska rækju og áður hafa þijár verslanakeðjur í Þýskalandi hætt að selja norskan lax, ost og ákavíti. Eitthvað hefur verið um svipaðar aðgerðir í Banda- ríkjunum en það mun vera lítið. Útflutningiu' Norðmanna hefur verið að aukast Grænfriðungar halda því fram, að norskir útflytjendur hafi tapað um 1,3 milljörðum kr. í Þýskalandi og Bandaríkjunum vegna hvalveið- anna en þó er það svo, að útflutn- ingur til þessara landa hefur auk- ist það sem af er árinu. Sala á frosnum laxi í Þýskalandi hef- ur tvöfaldast og aukist töluvert í ferskum. Jan Henry T. Olsen, sjávarút- vegsráðherra Noregs, sagði í Tókýó í Japan í gær að Norð- menn óttuðust ekki refsiaðgerðir og myndu heldur aldrei beygja sig fyrir hótunum og þrýstingi um- hverfíssamtaka á borð við grænfrið- unga. Kvaðst hann vona, að Japan- ir sýndu samstöðu með þvi að kaupa meira af norskum fiski en þeir hafa þegar boðist til að kaupa allt hval- kjöt sem þeir geta fengið. Jan H.T. Olsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.