Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 14
14__________MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 1993_
Loftskeytastöðin í
Reykjavík 7 5 ára
eftir Kormák
Kjartansson
Einangrun sjómanna rofin
Hafið þið leitt hugann að því,
hvaða áhrif það hefði á mannlífið
í landinu, ef misstum rafmagnið til
frambúðar? Næstum allir lifnaðar-
hættir nútímamannsins byggjast á
þessu sérstaka fyrirbæri „Raf-
magni“. Þetta er undirstaðan að
öllum þeim tækniframförum, sem
átt hafa sér stað frá því að það var
beislað (fundið upp). Án þess hefð-
um við ekki þá lýsingu, síma, út-
varp, sjónvarp, tölvur, heimilistæki,
farartæki o.s.frv., sem við teljum
sjálfsagðan hlut í dag, það felst
mikill sannleikur í orðatiltækinu.
„Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur“. Bókstaflega allt
fer úr skorðum og nútímamaðurinn
veit varla sitt rjúkandi ráð ef raf-
magnið fer af, þó ekki sé nema
stuttan tíma. Þá helst koma upp
hugrenningar hjá fólki um daglega
lifnaðarhætti þess fólks, sem uppi
var fyrir tíma rafmagnsins. Þótt
bylting hafi orðið í lifnaðarháttum
og samskiptum fólks á landi, með
tilkomu rafmagns og síðar síma,
var einangrun manna hvergi rofin
á eins afgerandi hátt og með til-
komu radíófjarskipta við skip, engir
voru jafn einangraðir frá umheimin-
um og einmitt sjómenn.
Loftskeytastöðin í Reykjavík
stofnuð
Það er ekki tilgangurinn með
þessum skrifum að rifja upp sögu
loftskeytanna (radíófjarskiptanna).
Það hefur þegar verið gert rækilega
í blöðum og bókum samanb. bók
Ólafs K. Bjömssonar „Loftskeyta-
menn og fjarskiptin", útgefin 1987.
Heldur til að minna á 75 ára af-
mæli þeirrar fjarskiptastöðvar, sem
hvað mestan þátt hefur átt í að ijúfa
áðurnefnda einangrun sjómanna
hér við land þ.e. Loftskeytastöðvar-
innar í Reykjavík, öðru nafni
Reykjavík Radio/TFA, en hún var
opinberlega opnuð almenningi til
fjarskipta við skip á þjóðhátíðar-
daginn þann 17. júní árið 1918, og
verður því 75 ára í sumar. Það yrði
langt mál að rifja upp sögu stöðvar-
innar yfir allan þennan tíma í einni
blaðagrein, og verður því stiklað á
stóru hvað varðar helstu ártöl og
áfanga í sögu hennar.
Árið 1918. Stöðin sem er í eigu
Pósts og síma, var tekin í notkun
í nýju húsnæði vestur á Melum.
Auk afgreiðslubúnaðar voru sendar
svokallaðir „neistasendar", viðtæki
og loftnet staðsett þar, m.a. tvær
77 metra háar loftnetsstangir.
Ifyrsta árið var loftskeytamaður
aðeins einn. Afgreitt var á morse
og eingöngu að degi til.
Á árunum 1919-1921 fjölgaði
loftskeytamönnum um þijá og 1921
er fyrsta árið sem bytjað er að ráði
á skeytaafgreiðslu við skip, en af-
greiðslan hafði áður að mestu farið
fram í formi fréttaskeyta, af-
greiðslu fyrir erlend sendiráð og
aðstoðar vegna kapalslita. Það ár
voru afgreidd 1392 skeyti. Til sam-
anburðar voru afgreidd 227.407
skeyti og samtöl árið 1992.
Á árunum 1926-1930 voru tekn-
ir í notkun þrír nýir lampasendar,
sem gátu unnið bæði á langbylgju,
millibylgju og stuttbylgju og komu
þeir í staðinn fyrir neistasendana
sem fyrir voru.
Árið 1938 þann 10. maí var opn-
að talsamband við skip á millibylgju
um talbrú á stöðinni, var þá hægt
að afgreiða samtöl til og frá skipum
um símakerfi í landi.
Fyrsta árið voru afgreidd 3.497
samtöl. Til samanburðar voru af-
greidd 59.379 samtöl árið 1986.
Síðan hefur talsvert dregið úr þeim
fjölda, einkum á metrabylgju
(VHF), með tilkomu farsímans.
Stríðsárin og árin eftir stríð
Árið 1940 við hemám Breta þann
10. maí, var stöðin sett undir eftir-
lit hemámsliðsins og allt talsam-
band við skip lagt niður frá og með
3. júlí. Á stríðsárunum tók stöðin
virkan þátt í hernaðar- og björgun-
araðgerðum bandamanna á Norður-
Atlantshafi og viðskiptin að mestu
leyti við herskip þeirra.
Árið 1945, að stríði loknu, var
millibylgju-talsamband við skip
opnað að nýju þann 15. október.
Arið 1950 hófust stuttbylgju-talvið-
skipti við skip með fjarskiptabúnaði
„Talsambandsins við útlönd" og við-
töku um viðtæki Fjarskiptastöðvar-
innar í Gufunesi.
Stöðin flyst í Gufunes
Árið 1963 flutti stöðin með starf-
semi sína í húsnæði Fjarskipta-
stöðvarinnar í Gufunesi. Var það
að hluta til tilkomið vegna öryggis
flugumferðar við Reykjavíkurflug-
völl, kröfu Háskólans til meira land-
rýmis og hagkvæmnissjónarmiða
vð að sameina þá þjónustu á einum
stað, sem heyrir undir strandar-
stöðvaþjónustu, en hluti þeirrar
þjónustu hafði áður farið fram í
Gufunesi. Við bættist nú fjarskipta-
þjónusta á millibylgju við bíla og
ýmsa fjallaskála svokölluð „Land-
farstöðvaþjónusta", undir heitinu
Gufunesradíó. Mikil aukning var á
næstu árum í þeirri þjónustu fram
til ársins 1965. Á því tímabili fjölg-
aði afgreiðslunni úr 4.500 í 9.790
yfir árið og 1.159 bifreiðar voru
skráðar með talstöðvar í árslok árið
1965. Síðan hefur jafnt og þétt
dregið úr almennri afgreiðslu í
þeirri þjónustu og hún nú að mestu
leyti í formi öryggishlustvörslu og
afgreiðslu, einkum fyrir farartæki
sem stödd eru á hálendi landsins
þ.e. Gufunesstöðin eins og hún er
kölluð er, ennþá eina stöðin sem
hefur útbreiðslusvæði yfir allt land-
ið og á Farsíminn ennþá talsvert
langt í land með því að ná því, sem
stendur eru 1.000 bílar skráðir með
svokallaðar „Gufunesstöðvar" og
23 fastastöðvar eru skráðar vítt og
breitt um landið. Við flutning stöðv-
arinnar í Gufunes var nú sendum
á Rjúpnahæð og Suðurnesi v/Sel-
tjarnarnes fjarstýrt frá stöðinni og
hafði hún nú aðgang að viðtökuloft-
netum á staðnum. Sendastöðin í
Rjúpnahæð er aðal-sendastöð
stöðvarinnar og öllum stuttbylgju-
sendum stöðvarinnar fjarstýrt þar
frá Gufunesi auk fleiri millibylgju-
og langbylgjusenda. Stöðin fjar-
stýrir einnig sendum og viðtækjum
fyrir millibylgju- og langbylgjuaf-
greiðslu víða um landið, bæði í sjó-
farstöðva- og landfarstöðvaþjón-
ustunni.
Ýmis þjónusta stöðvarinnar
Eins og flestir vita er höfuðhlut-
verk stöðvarinnar eins og annarra
strandarstöðva, sem annast almenn
viðskipti við farstöðvar að vera
tengiliiður milli sjófarenda og fólks
í landi auk þess að annast öryggis-
og neyðarafgreiðslu í sjófarstöðva-
og landfarstöðvaþjónustunni. Þessi
afgreiðsla fer fram í nánu sam-
starfi við björgunaraðila, svo sem
SVFÍ, Landhelgisgæslu og Flug-
björgunarmiðstöðina á Reykjavík-
urflugvelli. Hefur sú samvinna yfir-
leitt verið farsæl og átt þátt í björg-
un ótal mannslífa í gegnum árin.
Auk þessarar þjónustu sér stöðin
um reglulegar útsendingar á veður-
fregnum, ís- og stormviðvörunum,
og öðrum aðvörunum til sjófarenda,
bæði á tali, morse og með radíófjar-
ritun (Navtex). Fréttaútvarpi Ríkis-
útvarpsins er ennfremur útvarpað
um stuttbylgjusenda stöðvarinnar,
fimm sinnum á sólarhring til skipa
og íslendinga erlendis bæði í Evr-
ópu og Norður-Ameríku.
Umtalsverður hluti af afgreiðslu
stöðvarinnar er viðtaka skyldutil-
kynninga íslenskra skipa til „Til-
kynningaskyldunnar", sem er í
umsjá SVFI og staðsett er í húsi
Slysavarnafélagsins við Granda-
garð. Ótal fleira mætti telja upp
varðandi þá þjónustu, sem stöðin
veitir, en þetta látið nægja að sinni.
Tæknibreytingar og
fjarstýringar
Árið 1967 voru tekin upp talvið-
skipti við skip á metrabylgju (VHF).
I dag fjarstýrir stöðin sendiviðtækj-
um á metrabylgju á sjö stöðum við
vestanvert landið auk stöðvarinnar
í Gufunesi, þ.e. Hænuvík á Barða-
strönd, Hellissandi, Stykkishólmi,
Borgarlandi í Helgafelissveit, Fróð-
árheiði, Rjúpnahæð og Þorbjarnar-
felli við Grindavík. Á fimm þessara
staða starfrækir stöðin sérstaka
rás, Rás-09, vegna afgreiðslu á
Tilkynningaskyldu íslenskra skipa.
Almenn viðskipti á metrabylgjum
hafa dregist mjög saman eftir til-
komu farsímans, en á móti hefur
komið gífurleg fjölgun á skyldutil-
kynningum, sem órsakast að mestu
af stækkun smábátaflotans. Af
sömu ástæðu eru öryggis- og neyð-
artilfelli orðin mun algengari á
þessu tíðnisviði, sem stöðin þarf að
hafa afskipti af. Á árinu 1978 tók
gildi lögboðin breyting á stutt-
bylgjuafgreiðslu stöðvarinnar við
skip frá styrkmótun (AM) yfír í ein-
hliðabandsmótun (USB). Hið sama
átti sér stað hvað varðar milli-
bylgjuafgreiðsluna þann 1. janúar
1982, sem hafði í för með sér ýms-
ar breytingar á tækjum stöðvarinn-
ar. Við þessa breytingu jókst mjög
langdrag og gæði fjarskiptanna.
Þann 28. júní 1983, hófust svokall-
aðar „Navtex-útsendingar" frá
stöðinni á 518 kHz. Þetta eru radíó-
íjarritasendingar á veðurspám og
ýmsum aðvörunum og tilkynning-
um til sæfarenda. Sérstakt viðtæki
er til viðtöku á þessum sendingum
um borð í skipum, með blaðskrif-
ara. Keðja strandarstöðva um allan
heim sendir út á Navtex og verða
viðtæki fyrir 'það lögboðin fyrir öll
skip 300 brt. og stærri frá og með
1. ágúst 1993. Sent erút á ensku,
en búið er að samþykkja sérstaka
rás til útsendinga á þjóðtungum
þeirra landa, sem strandarstöðvarn-
ar tilheyra, sé þess óskað. 1. desem-
ber 1989 tók Reykjavík radíó yfir
strandarstöðina í Neskaupstað og
er henni nú alfarið fjarstýrt frá
Gufunesi. Þetta kom bæði til vegna
manneklu þar og aukinnar tækni
og öryggis með lagningu ljósleiðara
um landið. Þetta er þróun, sem mun
halda áfram og á sér stað um allan
heim til hagræðingar, vegna minnk-
andi almennra viðskipta hjá strand-
arstöðvunum. T.d. verða eingöngu
tvær strandarstöðvar starfræktar í
Svíþjóð í lok þessa árs og tvær í
Danmörku.
Samkeppni við
gervihnattaþjónustu
Mikill áróður hefur verið rekinn
fyrir gervihnattabúnaði í skip (In-
marsat), en hann kemur helst að
gagni umfram venjulegan fjar-
skiptabúnað fyrir skip, sem sigla
að öllu jöfnu á fjarlægum höfum í
mikilli fjarlægð frá næstu strandar-
stöð, eða skip með mjög mikið við-
skiptamagn, en venjuleg flutninga-
skip með stuttbylgjustöð um borð
sem sigla um heimshöfin hafa í
raun enga þörf fyrir gervihnatta-
stöð, enda ekki skylda að starf-
rækja þær um borð í skipum, sam-
kvæmt reglum Alþjóða-siglinga-
málastofnunarinnar um öryggi á
höfunum (GMDSS), sem ganga í
gildi í áföngum fram til aldamóta.
Skip sem sigla milli íslands og
Vestur- eða Norður-Evrópu eða
með ströndum Evrópu eru í stöðugu
sambandi á millibylgju og síðan
metrabylgju þegar nær dregur
landi, og verða það um ófyrirsjáan-
lega framtíð, það sem mælir á
móti kaupum og notkun gervi-
hnattastöðvar um borð í skipum er
eftirfarandi: 1) Mikill stofnkostnað-
ur, 2) há fjarskiptagjöld, 3) algjört
sambandsleysi ef eitthvað kemur
fyrir loftnet stöðvarinnar, 4) skip
sem sigla norður fyrir u.þ.b. 70°
norður eða suður fyrir 70° suður
breiddar missa samband við gervi-
hnöttinn, því þau eru þar með kom-
1
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
\
\
I
I