Morgunblaðið - 16.06.1993, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 16.06.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 15 in út fyrir útbreiðslusvæði hans. Ódýr þjónusta Samanburður á mínútugjaldi t.d. fyrir íslenskt skip að tala hingað til lands annars vegar um Reykja- vík radíó og hins vegar um gervi- hnött. Um Reykjávík radíó kostar mínútan 37 kr. ef skipið er statt utan 150 sjóm. frá landi. Um gervi- hnött kostar mínútan 562,20 kr. eða rúmlega 15 sinnum dýrari. Gjöld fyrir radíó-símtöl til útlanda um Reykjavík radíó hvert sem er í heiminum eru frá 55,95 kr. til hæst 208.70 kr. mínútan, eftir því hvort skipið er statt innan eða utan 150 sjóm. frá íslandi og hvort um er að ræða dagtaxta eða næturtaxta, en næturtaxtinn, sem gildir frá kl. 23 að kvöldi til kl. 8 að morgni, er um 17% lægri en dagtaxtinn. Kvaðning um Reykjavík radíó kost- ar 27 kr. pr. símtal innanlands en 433.70 kr. um jarðstöðina Eik í Noregi. Þess skal getið að stutt- bylgjugjöld í Reykjavík radíó eru þau lægstu í heimi. Öll ofangreind gjöld eru fyrir utan virðisauka- skatt. Af þessu má sjá að gervi- hnattaþjónustan er langt frá því að vera samkeppnisfær með samtöl hvað verð snertir. Það er líka um- hugsunarefni fyrir þjóðholla íslend- inga að gjöldin fyrir gervihnatta- þjónustuna fara að mestu leyti til útlendinga. Nýr afgreiðslusalur og fjarskiptabúnaður Á árinu 1987 var farið að huga að endurnýjun á afgreiðslubúnaði stöðvarinnar en hann var kominn nokkuð til ára sinna. Sú endurnýjun var með það í huga að setja hann niður á sama stað og sá eldri var á. Stuttu síðar kom ósk frá Reykja- víkurborg um kaup á landi stöðvar- innar í Gufunesi. Var síðan samið við borgina um kaup á landinu að undanskildum u.þ.b. 12 hekturum í kringum stöðvarhúsið. Þetta hafði í för með sér að flytja þurfti meiri- hlutann af viðtökuloftnetum stöðv- arinnar burt af stöðvarlóðinni. Að lokum var ákveðið að endurnýja bæði viðtækin og loftnetin, og byggja nýja viðtökustöð að Þver-. holti á Mýrum og fjarstýra bæði viðtækjum og loftnetum þar frá stöðinni í Gufunesi. Er þeirri fram- kvæmd nú lokið. Jafnframt var ákveðið að byggja nýjan afgreiðslu- sal fyrir starfsemina í Gufunesi bæði fyrir fjarskiptin við skipin og fjarskiptin við Atlantsflugið. Hefur sá salur nú nýlega verið tekinn i notkun með nýjum afgreiðslu- og fjarskiptabúnaði sem smíðaður var í Noregi og hannaður með aðstoð starfsmanna hér. Með nýjum full- komnum fjarskiptabúnaði skapast möguleikar á fjölbreyttari þjónustu stöðvarinnar og frekari fjarstýr- ingu.. Aukíð vægi öryggis- og neyðarfjarskipta í því nýja Alþjóða neyðar- og öiyggiskerfi (GMDSS), sem hóf göngu sína á sl. ári og verður end- anlega lögleitt um aldamótin, gegna strandstöðvar ákveðnu hlutverki og mun Reykjavík radíó skipa sinn sess á meðal þeirra. Á timum örra tæknilegra breytinga og sjálfvirkni hafa almenn viðskipti stöðvarinnar dregist nokkuð saman, en önnur fjarskipti og öryggisfjarskipti auk- ist að miklum mun. Frá því að stöð- in flutti með starfsemi sína í Gufu- nes hefur afgreiðslumagn hennar u.þ.b. sexfaldast en starfsmönnum fjölgað úr 15 í 25, þar af 20 sem stunda vaktavinnu. Stöðvarstjórar stöðvarinnar frá upphafi hafa verið fjórir: Friðbjörn Aðalsteinsson, Hallgrímur Matthí- asson, Bjarni Gíslason og núverandi stöðvarstjóri Stefán Arndal. Það er vel við hæfi að stöðin skuli á þessu þriðja aldarfjórðungs afmæli sínu, hafa flutt í nýtt hús- næði og öðlast nýjan tækjabúnað sem verða formlega tekin í notkun innan tíðar. Megi gæfan fylgja henni og þeim sem þar starfa um nútíð og framtíð. Höfundur er deildarsijóri Loftskeytastöðvarínnar í Reykjavík. Öðruvísi siðferði eftir Orra Hauksson Hávær umræða hefur átt sér stað í háskólanum. Stór hluti stúdenta vill ekki láta skylda sig til aðildar að Stúdentaráði Háskóla íslands. Þeir sem fara með stjóm Stúdenta- ráðs sjá þó ekki ástæðu til að verða við kröfu þessa hóps. Af einhveijum ástæðum hugnast þeim ekki að neinn eigi færi á að mennta sig, sem ekki tilheyrir samtökum þeirra. Helstu málsbætumar fýrir þessari afstöðu sinni segja þeir þær að „hafna beri hugmyndum frjáls- hyggjumanna". Vissulega eiga þessir menn hrós skilið fyrir óbeisl- að hugmyndaflug og djarfar til- raunir til að drepa umræðunni á dreif. Ekki ætla ég þó að ergja mig á þessum undarlega útúrsnúningi og krefja þá betri svara, enda vart sanngjarnt að heimta góð rök fyrir vondum málstað. Hins vegar þykir mér ekki óréttlátt að fara fram á að þeir séu sjálfum sér samkvæmir. Tvöfaldir í roðinu? Ekki er langt síðan þessir ágætu menn sendu Háskólaráði tóninn. Þá mótmæltu þeir því að þar skyldu menn ætla sér að taka gjald af stúd- entum sem renna ætti til háskól- ans. Háskólanám ætti að vera án endurgjalds því annars væri ekki lengur jafnrétti til náms, slíkt væri mannréttindabrot. Þessir sömu for- kólfar Stúdentaráðs sendu Háskóla- ráði um leið aðra orðsendingu. Í henni var beiðni um að taka af hveijum stúdent ákveðið gjald sem renna ætti til Stúdentaráðs. Gjaldið er óendurkræft. Skilaboðin voru sem sagt annars vegar þau að eng- inn eigi að borga neitt til háskól- ans, því þá sé jafnrétti til náms skert. Hins vegar megi enginn mennta sig án þess að greiða til Stúdentaráðs, en því miður fylgdi rökstuðningur ekki með. Hvað kosta mannréttindi? „Skattgreiðendur, sera kosta menntunina, gera það í þeirri trú að hún sé öllum opin. Vilja þeir láta útiloka þá frá námi sem ekki ganga æðstu- prestum Stúdentaráðs á hönd?“ þeir sem minna mega sín eigi að njóta góðs af. Að fátækari náms- menn fái meiri þjónustu en sem nemur gjaldinu til félagsins. Ég leyfi mér mótmæla þessu. í fyrsta lagi er mér sjálfum kunnugt um námsfólk sem lítið hefur og nýtir sér ekki þjónustu Stúdentaráðs. Stór hópur fær flestar bækur að láni, býr ekki í leiguhúsnæði og tekur ekki lán hjá lánasjóðnum. Þetta fólk er allavega stætt, bæði fátækt og ríkt. Því er út í bláinn að halda öðru fram en að sumir fátækir námsmenn tapi á aðild að Stúdentaráði. í öðru lagi er ég ekki frá því að hver og einn hafi meira vit á því hvar fjármunum hans er best borgið en höfðingjarnir í Stúd- entaráði, með fullri virðingu. Efna- litlir námsmenn eru ekki síst með- vitaðir um það hvað þeim er sjálfum fyrir bestu fjárhagslega og geta því ekki annað en hagnast á að fá að ákveða sjálfir hvort þeir vilji vera aðilar að Stúdentaráði. Og ef aðild- in er jafn arðvænleg og gefið er í skyn, hljóta þessir námsmenn þá ekki að taka ákvörðun sem er for- ystunni þóknanleg? í þriðja lagi er ekki um neinn félagslegan jöfnuð að ræða; það greiða allir jafnt. Stúd- entaráð merkir nefnilega ekki „styrkir frá þeim ríku til hinna fá- tæku“. Þess vegna á ég bágt með að botna í sanngirninni í því að hinum efnaminni skuli meinaður aðgangur að námi, nema þeir greiði niður þjónustu sem er jafnt fyrir þá sem eru betur stæðir. Hagsmunir stúdenta skipta líka máli Forystumenn Stúdentaráðs hafa vindinn í fangið þessa dagana. Þeir hafa nýlega afhjúpað pólitískt sið- ferði sitt í málefnum Félagsstofnun- ar stúdenta. Tvöfalt siðgæði þeirra í gjaldtökumálum er lýðum ljóst. Og allur fagurgalinn um fátækra- hjálp virðist innantóm orð. Þeir eru því ekki í sérlega heppilegri stöðu þegar ræða á um bresti annarra eða brot á stúdentum. Ef þeir hafa raunverulegan hug á að ná árangri út á við fýrir hönd umbjóðenda Orri Hauksson sinna, og ég neita að trúa öðru, hljóta þeir að vilja skapa sér sem skásta samningsstöðu. Ráðlegging mín til þessara ágætu manna er því að hætta skerðingu á réttindum stúdenta og sneiða hjá hinum aug- ljósu þversögnum í eigin málflutn- ingi. Með umbótum í siðferðisefnum heima fyrir er fremur von ávinninga á öðrum vígstöðvum. Það hélt ég líka að væri markmiðið. Höfundur er oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, í Stúdentaráði. Weetabix $ HJARTANS Það verður að gæta fýllstu sann- girni og geta þess hér að gjaldið til Stúdentaráðs er nokkuð minna en það sem rennur til háskólans. En athugum að vinir okkar i Stúd- entaráði mótmæltu því að nokkuð gjald skyldi renna til háskólans. Nema það sé upphæðin sjálf sem öllu skiptir? Þá er vart hugsanlegt að skyldugjaldið sem þeir leggja á sjálfir skerði réttindi neins, enda um mikla prinsipp-menn að ræða. Ég er aðeins áhugamaður um mannréttindi og treysti mér því ekki til að verðleggja þau nákvæm- lega. Mér þætti þess vegna gaman ef atvinnumenn í bransanum vildu upplýsa hvenær byijað er að troða mannréttindi fótum. Við 8.000 króna gjaldtöku? 7.000 kr.? Eða eru það kannski 5.750 krónur? Opinber þjónusta, með skilyrðum Hvers eðlis er þessi krafa, um að enginn megi mennta sig nema greiða til Stúdentaráðs? Hún snýst um það að þjónusta sem skattgreið- endur standa straum af skuli skil- yrt með inngöngu í einhvern félags- skap. Að einungis þeir sem styrki viss samtök hafi rétt á þjón- ustunni. Þetta er eins og ef enginn mætti fara á slysavarðstofuna nema ganga i Klúbb sjúkra og aðeins þeir gætu tekið strætisvagninn sem greiddu í Bandalag bíllausra. Skatt- greiðendur, sem kosta menntunina, gera það í þeirri trú að hún sé öllum opin. Vilja þeir láta útiloka þá frá námi sem ekki ganga æðstuprest- um Stúdentaráðs á hönd? Til „styrktar" fátækum Yfirmenn Stúdentaráðs hafa svör á reiðum höndum. Ástæðan fyrir því að enginn má mennta sig nema þeir sjálfir þiggi greiðslu, er jú sú að hafna „frjálshyggju" og tryggja „félagslegan jöfnuð“. Samkvæmt því væri ekki óvarlegt að ætla að 1Heetabix TREFJARIKT ORKURÍKT FITUSNAUTT HOLLT... MAL og gott með mjólk, súrmjól AB mjólk og jógúrt. Einnig með sykri, sultu og hunangi, eða blandað ferskum og þurrkuðum ávöxtum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.