Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
Forystuvandi breska íhaldsflokksins
Hættuleg kynni
RISAEÐLUR koma mikið við sögu í Eðlugarðinum, nýjustu mynd Stevens Spielbergs, og eru þær
ekki allar gæfar, líkt og sjá má í þessu atriði myndarinnar.
Eðlugarðurimi slær aðsóknarmet
Los Angeles. Reuter.
EÐLUGARÐURINN, nýjasta kvikmynd bandaríska leikstjórans
Stevens Spielbergs, hefur slegið öll met hvað aðsókn varðar í
Bandaríkjunum. Námu tekjur af miðasölu fyrstu sýningarhelgina
50,2 milfjónum dollara, jafnvirði 3,2 milljarða króna, en myndin
er sýnd í 2.404 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum.
Tekjurnar af Eðlugarðinum
fyrstu sýningarhelgina eru 2,5
milljónum dollara hærri en mynd-
inni Leðurblökumaðurinn snýr
aftur sem átti fyrra metið. Hún
var frumsýnd í fyrra og tekjur
af fyrstu sýningarhelgi námu 47,7
milljónum dollara.
Mikil eftirvænting hefur ríkt
vegna Eðlugarðsins sem verður
eina stórmyndin sem Universal
kvikmyndafyrirtækið sendir frá
sér á þessu ári. Aðrar myndir
munu bera þess merki að litlu var
til þeirra kostað miðað við Eðlu-
garðinn sem kostaði 56 milljónir
í framleiðslu, jafnvirði 3,6 millj-
arða króna.
Ný barnastjarna
Þrettán ára ljóshærð stúlka,
Ariana Richards, leikur stórt hlut-
verk í Eðlugarðinum og er á góðri
leið með að verða nýjasta bama-
stjarna Bandaríkjanna. Þegar hef-
ur verið hafin framleiðsla á brúð-
um sem líkjast henni og í farvatn-
inu eru ýmsir leikir og leikföng
sem tengjast munu henni með
einum hætti eða öðrum.
Thatcher segir
andstöðu við
Major fráleita
London. Reuter.
MARGARET Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, hefur
lýst því yfir að andstaða við John Major sem leiðtoga íhaldsflokks-
ins sé fráleit — í bili. „Hann er rétti forsætisráðherrann, og hlýt-
ur að leiða okkur til næstu kosninga. Við þurfum síst af öllu á
annarri leiðtogakeppni að halda,“ var haft eftir Thatcher nýverið.
Dalai
Lama
fagnað
Vín. Reuter.
DALAI Lama, andlegum leiðtoga
Tíbeta, var fagnað af stuðnings-
mönnum sínum þegar hann mætti
til Mannréttindaráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í Vín í gær. Yfir-
völd í Austurríki hafa hafnað við-
leitni kínverskra yfirvalda til að
lýsa Dalai Lama óvelkominn á
ráðstefnuna, og sagt Dalai Lama
velkominn í Austurríki.
Vegna þrýstings frá kínverskum
yfirvöldum var Tíbetanum upphaf-
lega meinaður aðgangur að ráðstefn-
unni. Í yfirlýsingu Kínverja sagði að
nærvera Dalai Lama væri ekki ein-
vörðungu andstæð tilgangi ráðstefn-
unnar, heldur stangaðist einnig á við
viðurkenningu austurrískra yfírvalda
á að Tíbet væri óneitanlega kín-
verskt landsvæði.
Þrátt fyrir andstöðu Kínverja mun
Dalai Lama, sem hlaut friðarverð-
laun Nóbels árið 1989, ávarpa sam-
komu á vegum ýmissa mannréttinda-
samtaka. sem fram fer jafnhliða
samkomu þjóðríkja.
Bandaríkjamenn heita því að halda áfram hernaðaraðgerðum í Sómalíu
Hlutverk pakístanskra fríð-
argæsluliða endurskoðað
Róm, Washingon. Reuter.
Thatcher hefur enn mikil áhrif,
og þótt hún hafi sjálf verið því
fylgjandi að Major tæki við leið-
togaembættinu af henni, þá hefur
hún síðan verið lítt hrifin af störf-
um leiðtogans og gagnrýnt stefnu
hans harðlega, sérstaklega stuðn-
ing hans við Maastricht-samkomu-
lagið.
Hinn nýi fjármálaráðherra Maj-
ors, Kenneth Clarke, tók í gær í
sama streng og Thatcher, og sagði
að íhaldsmenn yrðu að hætta
innanbúðarátökum og fylkja sér á
bak við forsætisráðherrann.
Stjómmálaskýrendur telja að
Major sé „á skilorði“ eftir hörmu-
legt gengi þá fjórtán mánuði sem
liðnir eru síðan hann leiddi íhalds-
flokkinn til fjórða kosningasigurs-
ins í röð. Niðurstöður skoðana-
könnunar sem gerð var á sunnu-
dag sýna að einungis 16 af hundr-
aði Breta eru ánægðir með
frammistöðu forsætisráðherrans.
Reuter
Fluggarpar
FRÖNSKU fluggarparnir sem reyna við hnattflugsmet við far-
kost sinn. Myndin var tekin er þeir millilentu i Ahmedabad í
ÍTALSKI varnarmálaráðherrann, Fabio Fabbri, fór þess á
leit við yfírmenn friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
í Sómalíu í gær að pakistanskir hermenn yrðu leystir frá störf-
um í Mogadishu. Stendur til að endurskoða hlutverk þeirra.
Bandaríkjamenn hafa aukið við vopnastyrk sinn í landinu,
með því að senda þangað fleiri árásar- og eftirlitsþyrlur, og
hafa heitið því að halda áfram loftárásum gegn Mohammed
Aideed, stríðsherra, eins lengi og nauðsyn krefur.
Metflug'stilraun
Koma við í
Reykjavík
ÞRÍR franskir flugmenn freista
þess nú að fíjúga lítilli eins-
hreyfils flugvél 37.000 kíló-
metra leið umhverfis jörðina á
innan við 80 klukkustundum.
Reykjavík verður síðasti við-
komustaður þeirra í hnattflug-
inu og áætla þeir að millilenda
hér aðfaranótt morgundagsins.
„Metflugið gengur að óskum.
Þeir voru hálfnaðir í gærmorgun
er þeir komu til Nome í Alaska,"
sagði Guillaume de Guerre í upp-
lýsingamiðstöð flugsins í París í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Að sögn de Guerre lögðu
frönsku flugmennirnir upp frá Le
Bourget flugvellinum í París á
sunnudag, á fyrsta degi mikillar
flugsýningar sem kennd er við
borgina. Þangað áætla þeir að
koma aftur á morgun, fimmtudag,
Indlandi í fyrradag.
og verður flugvélin til almenningi
sýnis síðustu daga sýningarinnar.
Viðkomustaðimir í hnattfluginu
verða alls 16 og er Reykjavík sá
síðasti. Dveljast þeir aðeins í hálfa
klukkustund á hveijum stað, rétt
til að taka eldsneyti og vistir. Til
íslands kemur vélin frá Syðri
Straumfirði á Grænlandi.
Farkosturinn er ný frönsk eins-
hreyfíls skrúfuþota, TBM-700,
sem smíðuð er af frönsku flug-
vélaverksmiðjunum SOCATA í
Tarbes í Frakklandi. „Tilgangur
flugsins er tvíþættur. Annars veg-
ar er þetta í fyrsta sinn sem reynt
er að ljúka hnattflugi á tilsettum
tíma í svo lítilli flugvél. í öðru
lagi yrði afrekið góð auglýsing
fyrir þessa nýju flugvélartegund
og vitnisburður um tæknilega
kosti hennar," sagði De Guerre.
Ætlun flugkappanna er að
heildartími á lofti verði ekki meiri
en 80 stundir og er viðmiðunin
ákveðin með hliðsjón af ævintýr-
um hins kunna franska rithöfund-
ar Jules Veme.
„Hann alls engin hetja, hann er
í raun og veru þorpari,“ sagði tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, Joseph Snyder, um Aide-
ed í gær. Snyder tjáði fréttamönn-
um að Aideed væri greinilega
ábyrgur fyrir morðunum á 23 pak-
istönskum friðargæsluliðum í Mog-
adishu 5. júní síðastliðinn
Les Aspin, vamarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
Aideed væri að reyna sveitir SÞ,
sem hafa tekið við friðargæslu í
Sómalíu, í von um að þær myndu
pakka saman og halda heimleiðis.
Aspin sagði viðbrögð vera nauð-
synleg. „Bandaríkin hljótar skilyrð-
islaust að veita SÞ stuðning og
bregðast á tilhlýðilegan hátt við
árásum Aideeds, vopnum hans,
aðföngum og stuðningsmönnum,“
sagði Aspin.
Alls eru nú tíu bandarískar árás-
ar- og eftirlitsþyrlur í Mogadishu,
höfuðborg Sómalíu, og auk þess
fjórar þungvopnaðar fjögurra
hreyfla árásarflugvéiar, sem hafa
verið notaðar ásamt þyrlunum, til
árása á sveitir Aideeds síðan á
föstudagskvöld. Snyder sagði að
Bandaríkjastjóm harmaði dauða
20 óbreyttra borgara sem pakist-
anskir friðargæsluliðar skutu á
sunnudaginn. Snyder vildi ekki tjá
sig frekar um skotárásina, fyrr en
SÞ og Pakistanar hefðu rannsakað
atvikið. Fabbri, vamarmálaráð-
herra Ítalíu, fundaði með yfír-
mönnum SÞ í Sómalíu í gær, og
var fullvissaður um að hlutverk
pakistanskra friðargæsluliða yrði
endurskoðað og því breytt til sam-
ræmis við aðstæður.
Aideed hefur sakað SÞ um þjóð-
armorð í Sómalíu, og sagst ekki
vera til viðræðu um frið fyrr en
aðgerðum SÞ, sem væru siðlausar,
linnti.
DEMANTAHÚSIÐ
Sími 679944 • Borgarkringlunni og Faxafeni • sími 811300
Tvær skartgripaverslanir sem hafa eitt besta úrval handsmíðaðra skartgripa
úr gulugulli, hvítugulli og silfri með demöntum, perlum, eðalsteinum og
íslenskum steinum, trúlofunar- og giftingarhingar, perlufestar og perluarmbönd.
Verið velkomin. Gull- og silfursmiðirnir Stefán B. Stefánsson - Lára Magnúsdóttir.