Morgunblaðið - 16.06.1993, Qupperneq 44
-44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
UMSJÓN: ELÍN HILMARSDÓTTIR OG
KRISTLAUG RÓS SIGURÐARDÓTTIR
SAMVISKUSPURNINGIN
Borðar þú
morgnnmat?
SNÆDIS
13 ÁRA
„Já, á hverjum
morgm
TINNA
13ÁRA
,Ekki alltaf.“
MAGNEA
15ÁRA
„Já, alltaf.“
GUÐMUNDUR - i
13ÁRA i
„Já, á hverjum
morgni.“
llllllillillHI i'l ■
HEIÐAR
15ÁRA
„Já, á hverjum
morgm
: u
GÍSLI
14ÁRA
„Já, á hverjum
morgni.
KRISTOFER
14ÁRA
„Já, alltaf.“
FRAMUNDAN
17. JÚNÍ
Tórxleikar í Lækjargötu:
kl. 16,30 Bubbi Morthens
kl. 17.00 KK band
kl. 17.40 Youkatan
kl. 18.10 Synir Raspútíns
kl. 18.30 Hlé
kl. 20.00 Pelican
kl. 21.00 GCD
kl. 22.00 Pláhnetan
kl. 23.00 SS Sól
Félagsmiðstöðvar
Ársel:
Opið hús á mánudags-
og miðvikudagskvöldum
kl. 20.00-23.00.
Fellahellir:
Opið hús á þriðjudags-
og fimmtudagskvöldum
kl. 20.00-23.00.
Tónabær:
Opið hús á mánudags-
og fimmtudagskvöldum
kl. 20.00-23.00.
Þróttheimar:
Opið hús á þriðjudags-
og fimmtudagskvöldum
kl. 20.00-23.00.
HVAR ERU ÞAU OG HVAÐ ERU ÞAU AÐ GERA?
VINNUSKÓLI
REYKJAVÍKUR
►Um 2.200 unglingar á aldrinum
13-15 ára eru í unglingavinnunni í
sumar.
►Unglingar í yngri hóp (fædd 1979)
vinna 4 tíma á dag og fá í Íaun 168 kr.
á tímann.
►Unglingar í eldri hóp (fædd 1978)
vinna 8 tíma á dag og fá í laun 190 kr.
á tímann.
►Allir unglingar sem sækja um vinnu
fá eitthvað að gera.
Vinnan felst I:
►Viðhaldi á grunnskólalóðum, íþrótta-
svæðum og öðrum opnum svæðum í eigu
Reykjavíkurborgar.
►Aðstoð við umhirðu garða eldri borg-
ara í Reykjavík.
►Gróðurvemd á svæðum utan borgar-
marka, s.s. Heiðmörk, Nesjavöllum og
Úlfljótsvatni.
►Árlega fara starfsmenn Vinnuskólans
í eins dags náttúruskoðunarferð.
ÞORHILDUR: „Það er svo rosalega
margt sem mig langar að kaupa.“
EINARs „Launin fara jafnóðum
nammi, vídeóspólur og svoleiðis."
Við náðum tali af
tveimur krökkum
sem eru í ungl-
ingavinnunni í
sumar, Einari Baldvinssyni,
14 ára, og Þórhildi Sigurð-
ardóttur, 13 ára.
Hvernig er að vinna í
unglingavinnunni?
Einar: Það er allt í lagi
llM-i''
;t*G
\ i 1
í p ,\G
i
að vinna við þetta en launin
eru bara svo léleg, þetta er
skítakaup. Ég fór í þessa
vinnu vegna þess að ég fékk
ekkert annað að gera. Ég
er enn að sækja um önnur
störf, meðal annars sem
pikkaló á hótelum, en það
gengur ekkert. Svo vinn ég
líka í búðinni hjá pabba.
Þórhildur: Þetta er nú
bara fyrsti dagurinn minn
og þetta er ekkert rosalega
frábært eða svoleiðis, en al-
veg ágætt. Það góða við
þessa vinnu er að það eru
svo margir að vinna með
manni sem maður þekkir.
Launin eru léleg en það er
samt þægilegt að það er
ekkert mál að fá þessa
vinnu. Þú ræður hvort þú
nennir að vinna eða ekki og
getur þá bara gengið að
þessu ef þú vilt. Ég hefði
svosem alveg viljað fá eitt-
hvað annað, en ég nennti
ekki að reyna það, maður
er svo lítill, maður fær ekk-
ert betra að gera.
Hvað gerið þið við launin?
Einar: Ég eyði þeim jafn-
óðum í nammi, vídeóspólur
og svoleiðis.
Þórhildur: Ég legg
kannski eitthvað af þeim inn
í banka en ég veit þó ekki
... það er svo rosalega margt
sem mig langar að kaupa
mér. Þetta venjulega dót
sem alla langar í, föt og skó
og svoleiðis.
Langar að verða leikari
Nafn: Æsa Bjarnadóttir.
Heima: Reykjavík. Aldur:
15 ára. Skóli: Æfinga- og
tilraunadeild Kennarahá-
skóla Islands. Sumarstarf:
Tónabær. Helstu áhuga-
mál: Leiklist, tónlist, kvik-
myndir, útivera, vinir mínir
og svo er ég mikill bókaorm-
ur Hvaða félagsmiðstöð
stundar þú? Tónabæ
Uppáhalds hljómsveit:
Doors
Uppáhalds kvikmynd: Do-
ors-myndin auðvitað, Alive
og My girl.
Besta bókin: Gauragangur
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Hver myndir þú vilja vera
ef þú værir ekki þú?
Ég myndi ekki vilja vera
einhver ákveðin persóna,
heldur bara tvítug stelpa,
búin með skólann og fijáls.
Hvernig er að vera ungl-
ingur í dag?
Það er svolítið erfitt.
Unglingaímyndin er svo
stöðluð. Þú kemur inn í búð
og það er haft auga með
þér. Þessi aldur er bófaaldur-
inn. Það ber minna á þessu
með stelpur en samt, manni
er ekki treyst. Það er þá
þannig að þegar þú hittir
fólk sem treystir þér þá er
það bara besta fólk í heimi.
Auðvitað ætti það að vera
sjálfsagt að unglingum sé
treyst eins og öðrum. En það
er samt rosalega gaman.
Hveiju myndir þú vilja
breyta í þjóðfélaginu?
Ég myndi vilja skipta um
ríkisstjórn, stækka borgina
og fá meiri stórborgarbrag
hér. Síðan myndi ég vilja
hafa áhrif á menntamál. Það
er búið að skera svo mikið
niður í skólamálum, t.d. í
vali fyrir 10. bekk.
Hvað er það skemmtileg-
asta sem þú gerir?
Að vera með vinum mín-
um. Ég er ofboðslega heppin
með vini.
Hvað er það leiðinlegasta
sem þú gerir?
Að þurfa að svara fyrir
það sem maður hefur
af sér. Þó það sé auðvitað
réttlátt.
Hvað ætlar þú að
verða þegar þú verð-
ur stór?
Mig langar að
verða leikari en
ég er ekki viss
um að ég komist
í gegn um það. Svo hef ég
líka mikinn áhuga fyrir líf-
fræði, mig langar svolítið í
örverufræði.
Hvað gengur þú með í
vösunum?
Lykla, hálsbijóstsykur,
minnismiða og nammibréf.
Viltu segja eitthvað að
lokum?
Já, þetta er rosalega gott
framtak hjá Morgunblaðinu
að búa til pláss fyrir ungl-
inga. Það er mjög sniðugt
og nauðsynlegt að gert sé
eitthvað fleira fyrir okkur.