Morgunblaðið - 24.06.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1993
7
*
I ævintýraferð
HAFSTEINN Jóhannsson og
sjö piltanna í áhöfn hans á
Eldingunni, sem lagði af stað
áleiðis til Islands á þriðjudag.
Langför-
ullsæfari
hingað
tillands
í NÆSTA mánuði er vænt-
anlegur til landsins siglandi á
skútu sinni Eldingu frá Nor-
egi, Hafsteinn „kafari“ Jó-
hannsson frá Akranesi, sem
fyrir tveimur árum sigldi
sömu skútu einsamall og án
viðkomu umhverfis jörðina á
átta mánuðum. Varð hann
fyrstur Norðurlandabúa til að
ljúka hnattsiglingu einsamall
án þess að taka nokkurs stað-
ar land og er það afrek sem
aðeins sárafáir í öllum heimin-
um höfðu unnið á undan hon-
um.
Skútuna smíðaði Hafsteinn
sjálfur og er hún engin smá-
smíði, rúmir 18 metrar á lengd
eða 64 fet. Eldingin leggur að í
Keflavík og verður væntanlega
til sýnis fyrir almenning þegar
þar að kemur. Hafsteinn hefur
um árabil verið búsettur í Hörða-
landsfylki syðra í Noregi þar sem
hann starfar í álverksmiðju hjá
Soral á Húsnesi í Haðangurs-
firði, systurfyrirtæki ÍSAL í
Straumsvík.
Með Hafsteini í áhöfn verða
átta norskir níundabekkingar úr
Grunnskólanum á Húsnesi sem
hafa unnið að undirbúningi far-
arinnar frá í vetur. Til að venja
þá við sjó skrapp Hafsteinn með
þá í skottúr yfir til Hjaltlands-
eyja í páskafríinu, fjórir úr hópn-
um höfðu að vísu siglt sömu leið
með honum yfir Norðursjó í fyrra
og urðu allir sjóveikir en eru þó
staðráðnir í að láta hvergi deigan
síga og komast með Hafsteini
til íslands alla leið. Þetta eru
frískir piltar og eina skilyrðið
sem Hafsteinn setur þeim er að
hvorki sé reykt um borð né
áfengi haft um hönd, skilyrði
sem hann segist alla tíð hafa'
sett hverjum þeim sem hafa ver-
ið til sjós með honum á Elding-
unni, hvort sem var á gömlu
Eldingu„„froskmanns-bátnum“
hér við land á síldarárunum eða
skútum sem Hafsteinn hefur átt
síðan og borið hafa sama nafn.
Ráðgert er að ferðin til íslands
og til baka til Noregs taki í heild
allt að fjórar til fímm vikur og
verður lagt upp frá bátshöfninni
á Húsnesi 21. júní yfir Norðursjó
til Skotlands og siglt um Moray-
fjörð á austurströndinni gegnum
hinn 100 km langa Kaledóníu-
skipaskurð til vesturstrandarinn-
ar við Loch Linnhe eða Firth of
Lorne, þar sem stefnan verður
sett beint á Reykjanesströndina
og er áætlað að koma hingað til
lands 6. júlí nk. Til baka til
Noregs verður siglt um Færeyjar
og Hjaltland eftir viku viðdvöl
hér á landi og er áætlað að koma
heim til Noregs aftur 1. ágúst.
Oánægja með skipulagningn Islandsmóts í torfæruakstri
Keppendur hafa stofnað
eigín hagsmunasamtök
KEPPENDÚR í íslandsmótinu í torfæru hafa
myndað sérstök hagsmunasamtök með það
að markmiði að efla íþróttina. Að sögn Þóris
Schiöth, sem stóð fyrir stofnfundi samtak-
anna, hefur slakt skipulag móta í torfæru
orðið til skaða fyrir íþróttina og með stofnun
samtakanna nú vilja keppendur sjálfir hafa
eitthvað um mótshaldið að segja. Skipulag
Islandsmótsins hefur verið í höndum Lands-
sambands íslenskra akstursíþróttafélaga
(LÍA) og að sögn Ólafs Guðmundssonar for-
manns LIA hefur keppendum margsinnis stað-
ið til boða að breyta torfærureglum. „Reglurn-
ar fyrir mótin eru í ágætu Iagi; en vissulega
má alltaf laga hlutina," sagði Ólafur.
A fyrrnefndum stofnfundi sínum samþykktu
keppendur íslandsmótsins yfirlýsingu þar sem
m.a. segir að vandi steðji að torfæruíþróttinni.
Áhorfendafjöldi sé að minnka, keppnir séu orðnar
litlausari, nokkrir keppendur séu hættir og aðrir
að hætta. „Yfirstjórn mála er í ólestri og keppnis-
haldarar komnir úr takt við tímann. Nauðsynlegt
er að sporna við þessu strax með aðgerðum þann-
ig að menn með skilning á eðli íþróttarinnar hafi
hönd í bagga við skipulag móta,“ segir m.a. í
yfirlýsingunni.
„Eg var mjög ánægður með þá samstöðu sem
myndaðist á fundinum og við settum upp fjög-
urra manna torfæruráð, sem skipað er mönnum
sem hafa keppt og unnið við törfærumót. Þeir
munu gæta þess að hagsmunir keppenda séu virt-
ir,“ sagði Þórir Schiöth um fundinn.
Deilt um dómgæsluna
Meðal þess sem keppendur hafa gagnrýnt er
dómgæslan á mótinu m.a. fyrir þær sakir að
dómarar beri sig saman á mótum. Ólafur Guð-
mundsson svarar því m.a. með því að dómarar
hafa borið sig saman í mótum þar sem erfitt sé
að hafa yfirsýn yfir brautir séu þær langar.
Um gagnrýnina almennt segir Ólafur að LÍA
hafa borist bréf frá keppendum þar sem margar
góðar tillögur komi fram. Hins vegar finnist hon-
um eðlilegra að keppendur reyni að taka á sínum
málum í gegnum þá klúbba sem hafi verið starf-
andi í stað þess að mynda nú sérstök hagsmuna-
samtök.
Morgunblaðið/G.R.
Agreiningur ökuþóra
FRÁ keppni I torfæruakstri, á myndinni er
Þórir Schiöth við bíl sinn en hann sigraði á
Islandsmótinu í torfæru á Egilsstöðum um
sl. helgi.
Sérstök
skráningarmerki
virðisaukabifreiða
Umskráning fyrir 1. júlí
Frestur til að umskrá virðis-
aukabifreiðar rennur út
30. júní 1993.
Hafi bifreið ekki verið umskráð
fyrir 1. júlí nk. er litið svo á að
hún sé ekki eingöngu notuð
vegna virðisaukaskattsskyldrar
starfsemi og ber því að endur-
greiða fenginn innskatt í
samræmi við það.
Virðisaukaskattsskrifstofa RSK
veitir frekari upplýsingar um
reglur varðandi virðisaukaskatt
í síma 631100, grænt númer er
996311.
Virðisaukaskattsskyldum aðilum
sem hafa innskattshæfar bif-
reiðartil umráða og hafa ekki
fengið sérstök skráningarmerki
er skylt að skipta um skráningar-
merki á bifreiðunum.
Við umskráningu skal fylla út
skráningareyðublaðið
(RSK 10.33) og senda til
Bifreiðaskoðunar íslands hf.
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI
HVÍTA HÚSlÐ / SÍA