Morgunblaðið - 30.06.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
Vsk. er lagður á
alla útgáfu og
fjölmiðla 1. júlí
FÉLAG íslenskra bókaútgefenda hefur beint þeim tilmælum
til félaga sinna að hækka verð á bókum um 14% þann 1. júlí
þegar 14% virðisaukaskattur, sem útgefendum bóka, blaða og
tímarita svo og RÚV og Stöð 2 er gert að innheimta, leggst
á íslenskt bóka- og fjölmiðlaefni. Tímarit munu hækka mismun-
andi mikið og t.d. hefur Fróði hf. ákveðið að hækka öll tíma-
rit sín um 3% en Samútgáfan hækkar þau mismunandi mikið.
Afnotagjald hjá Ríkisútvarpinu
mun hækka úr 1.754 kr. í 2.000
kr. og sagði Hörður Vilhjálmsson,
fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, að
skatturinn myndi þyngja lausafjár-
stöðu stofnunarinnar. Hann sagði
að stofnunin þyrfti að skila skattin-
um reglulega og þegar afnota-
gjöldin innheimtust ekki leiðréttist
það ekki fyrr en síðar. Áskriftar-
gjald Stöðvar 2 mun hækka úr
2690 kr. í 3067 kr. að sögn Öldu
Hjartardóttur, þjónustustjóra
Stöðvar 2.
Tímarit hækka mismikið
Halldóra Viktorsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Fróða hf., sagði að
fyrirtækið myndi að mestu leyti
taka á sig skattinn sjálft. Hækkun-
in á tímaritunum yrði um 3% á
hvert þeirra. Hún sagði að tímarit
Fróða hf. væru í það mikilli sam-
keppni við erlend tímarit að mikil
hækkun á þeim myndi ekki borga
sig en Fróði gefur meðal annars
út tímaritin Fijálsa verslun, bama-
blaðið ABC, Mannlíf og Nýtt líf.
Halldóra sagði að ekki væri búið
að áætla hversu mikið tap yrði
vegna skattsins.
Samútgáfan ætlar að hækka
tímarit sín mismunandi mikið.
Tímaritin Bleikt og blátt og Samú-
el munu hækka um 8% en Vikan
mun hækka um 14%. Flest önnur
tímarit hjá Samútgáfunni hækka
ekki.
Vsk. á dagblöð
hækkar áskriftin úr 700 kr. í 798
kr. Lausblaðaverð Pressunnar
verður 260 kr. í stað 230 kr. Hrólf-
ur Örlygsson, dreifingarstjóri hjá
Tímanum sagði að endanleg
ákvörðun um verð hefði ekki verið
tekin hjá þeim.
Bókaverð hækkar einnig
Vilborg Harðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bókaútgefenda sagði að félagið
hefði beint þeim tilmælum til fé-
lagsmanna að hækka íslenskar
bækur, sem næmi skattinum. Hún
segir að málið sé flókið að því leyti
að bækur séu mikið til seldar í
umboðssölu og liggi því oft í
búðunum i marga mánuði. Reikn-
ingar fyrir bókunum séu yfirleitt
ekki gefnir út fyrr en salan er
gerð upp. Það verði því ákveðið
vandamál hvenær skattinum eigi
að skila.
Verksmiðjan flutt
GOSDRYKKJAVERKSMIÐJA Gosan hf. hefur verið seld í heilu lagi
til St. Pétursborgar í Rússlandi. Myndin sýnir þegar hluta af vatns-
hreinsibúnaði verksmiðjunnar var komið fyrir á bíl.
Heiðmörk
Fellaþarf
lerkilund
FELLA þarf stóran hluta
lerkilunds á hálfs hektara
svæði í Vífilsstaðahlíð þar
sem hann er illa farinn eftir
Douglasátu, sem að sögn
Vignis Sigurðssonar, um-
sjónarmanns Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur í Heið-
mörk, er sveppur sem étur
sig inn í trén og drepur þau.
Fyrst bar á þessu í fyrra og
var lundurinn þá grisjaður,
en plágan gerði síðan aftur
vart við sig 1 vor.
Vignir sagði að lerki ætti
mjög erfitt uppdráttar á suð-
vesturlandi, sem væri ekki
heppilegasta búsvæðið fyrir
þessa trjátegund.
„Ef svona plágur koma upp
er tegundin illa í stakk búin til
að veijast þeim. Þetta heijar
meira og verður frekar áber-
andi hjá okkur suðvestanlands
heldur en annars staðar á land-
inu, en þetta hefur ekki gert
vart við sig í þessum mæli á
öðrum svæðum hér um slóðir
að því er ég best veit til. Þessi
sveppur hefur komið upp ann-
ars staðar á landinu, og til
dæmis hefur aðeins borið á
honum austur á Héraði. Vaxt-
arsvæðin þar eru heppilegri og
því þrífast plöntumar þar bet-
ur, þannig að þær standa betur
af sér svona plágur," sagði
Vignir.
Gosdrykkjaverksmiðja seld
í heilu lagi til Rússlands
Hópur Islendinga fer með og verður í Rússlandi í allt að því eitt ár
PHARMACO hf. hefur selt bresku fjárfestingarfyrirtæki gos-
drykkjaverksmiðju Gosan hf. og mun verksmiðjan verða sett
upp í St. Pétursborg í Rússlandi. Björgólfur Guðmundsson,
forstjóri Gosan hf., segir að með þessari sölu sé bundinn endir
á þátttöku Pharmaco í íslenskum gosdrykkjamarkaði. Björgólf-
ur segir að hér sé ekki bara um að ræða sölu á framleiðslutækj-
um heldur einnig á hugviti og öllum skrifstofubúnaði. Atta
starfsmenn frá Gosan hf. fara til St. Pétursborgar og munu
sumir vera þar í allt að eitt ár. Söluverð verksmiðjunnar var
ekki gefið upp.
Mánaðaráskrift að Morgunblað-
inu verður óbreytt 1.200 kr. en að
auki verður innheimtur 14% vsk.
þ.e. 168 krónur þannig að áskrif-
andinn greiðir samtals 1368 kr.
Lausblaðaverð Morgunblaðsins
verður óbreytt 110 krónur en að
auki verður innheimtur 14% vsk.
þannig að kaupandi greiðir 125
krónur.
Vegna innheimtu virðisauka-
skattsins verður lausblaðaverð DV
130 kr. virka daga í stað 115 kr.
og 170 kr. um helgar í stað 150
kr. Mánaðaráskrift DV verður
samtals 1368 kr. í stað 1200 kr.
Alþýðublaðið hefur ákveðið að
hækka ekki útsöluverð blaðsins
næstu þijá mánuðina en þá verður
tekin ákvörðun um framhaldið.
Mánaðaráskrift að Pressunni
mun hækka úr 750 kr. í 855 kr.
en ef greitt er með greiðslukortum
Pharmaco var um áramótin skipt
í tvö sjálfstæð fyrirtæki, Pharmaco
annars vegar og Delta hins vegar.
Víkingbrugg á Akureyri er í eigu
Delta þannig að salan hefur ekki
áhrif á starfsemina fyrir norðan.
Fleira selt en verksmiðjan
„ Við erum að selja meira en verk-
smiðjuna því við seljum framleiðslu-
vélamar, skrifstofuna, tölvubúnað-
inn og hugvitið. Við seljum líka
uppsetningu og stjórnun og þjálfun
rússneskra starfsmanna. Það munu
verða frá okkur átta manns í St.
Pétursborg í allt að eitt ár,“ segir
Björgólfur.
Björgólfur segir að þegar verk-
smiðjan verði tilbúin í St. Péturs-
borg þá muni hún framleiða og
markaðssetja gosdrykki í Rússlandi
fyrir enska fyrirtækið Britvic en
Björgólfur segir að það sé leiðandi
á gosdrykkjamarkaðnum í Bret-
landi. Britvic framleiðir meðal ann-
ars Pepsi fyrir Bretlandsmarkað og
Tango, sem er vinsælasti ávaxta-
drykkurinn á þeim markaði að sögn
Björgólfs.
Rússarnir aðstoðaðir
Meðal þeirra átta sem fara til
Rússlands til að aðstoða við rekstur-
inn, þar til þarlendir geta tekið við
honum verða menn í stöður verk-
smiðjustjóra, framkvæmdastjóra og
markaðs- og sölustjóra.
„Við erum mjög ánægðir með
það verð, sem við fengum fyrir
verksmiðjuna og stjómunarsamn-
inginn," sagði Björgólfur en undir-
búningurinn að gerð þessa samn-
ings hefur staðið yfir síðustu sex
mánuði. Aðdragandinn að þessari
sölu er sala Gosan hf. á framleiðslu-
rétti sínum til Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar hf. að sögn
Björgólfs.
Iranusson.
Vestmannaeyjar
í dag
Atvinnuleysisbœtur____________
Reglur um atvinnuleysisbætur hafa
verið rýmkaðar og ná nú einnig til
þeirra sem standa utan stéttarfé-
-laga. 16
Afsögn Attalis
Tvígreiddur flugmiði til Tókýó mun
hafa fyllt mælinn. 20
Georgíumaöurinn_______________
Georgíumaðurinn svokallaði sem
heillaði íslendinga er nú kominn
heim. 32
Leiðari_______________________
Ryðjum nýsköpun braut. 22
' _ '/'."fy. -l'.J'ýly Q
Úr verínu
► Aflaverðmæti togara jókst
fyrsta þriðjung ársins - Stefnir í
metafla hjá togurum Granda -
Halios-verkefnið kynnt - Reglu-
gerð um leyfllegan fískafla
Myndasögur
► Drátthagi blýanturinn - Mynd-
ir ungra listamanna - Pennavinir
- Ljóð ungra höfunda - Brandarar
- Skemmtilegar þrautir - Náttúru-
dagbók
----» ♦ ♦..—
Istak eitt
undir kostn-
aðaráætlun
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
taka tilboði ístaks hf. vegna byrj-
unarframkvæmda dælu- og
hreinsistöðvar við Mýrargötu. Is-
tak bauð 24.911.025 kr. eða
78.68% af kostnaðaráætlun í verk-
ið. Tilboð annarra sem buðu voru
yfir kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun Innkaupastofn-
unar hljóðaði upp á 31.661.000 kr.
Hæsta tilboðið kom frá Loftorku og
var 33.977.500 kr eða 107,32% ef
miðað er við kostnaðaráætlun.
Næstur kom Völur með 32.917.500
kr. eða 103,97% miðað við kostnað-
aráætlun.
Varð undir
skurðgröfu
og beið bana
BANASLYS varð í Vestmannaeyj-
um á mánudagsmorgun er stór
skurðgrafa valt þannig að stjórn-
andi hennar varð undir henni.
Talið er að maðurinn hafi látist
samstundis.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum var slysið tilkynnt laust
fyrir klukkan hálf ellefu. Gröfumað-
urinn var að störfum á tækinu sunn-
an til í Eldfellinu við að dreifa mold
yfir vikursvæði. Svo virðist sem hann
hafi af einhveijum ástæðum misst
stjórn á gröfunni með fyrrgreindum
afleiðingum.
Maðurinn hét Jón Trausti Úran-
usson, fæddur 19. júní 1952. Hann
var ókvæntur og barnlaus.
l
1
■
t
'
e
8
I