Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 13 Hvar er samgönguráðherra höfuðborgarsvæðisins? eftir Gest Ólafsson Undanfarin ár hefur samgöngu- kostnaður hér á landi aukist mjög mikið og nú er svo komið að venju- leg fjölskylda ver allt að því fjórð- ungi tekna sinna í samgöngur. Þetta er mjög hár kostnaðarliður og sér- staklega á þetta við um höfuðborgar- svæðið, þar sem menn þurfa oft að ferðast fleiri kílómetra í og úr vinnu og geta ekki gengið eins og víða er hægt í litlum bæjum. Þegar vel árar og næg atvinna er og allir hafa nóga peninga handa á milli velta menn þessum hlutum ef til vill ekki mikið fyrir sér. Þegar harðnar í ári og at- vinnuleysi eykst og fólk þarf að spara er ekki nema von að menn fari að horfa á þennan kostnaðarlið og velta því því fyrir sér hvort hann sé í raun og veru óhjákvæmilegur. Þegar við bætast hugmyndir um einkavæðingu almenningsflutninga er ekki við öðru að búast en að allir þeir sem eiga engan annan ferðamáta vísan verði uggandi um sinn hag. Þau sam- göngukjör sem fólk nýtur, eða mögu- leikar manna til þess að komast leið- ar sinnar í vinnu, verslun, útivist, félagsstörf og hvers konar þjónustu eru nefnilega orðin mjög mikilvægur hluti af lífskjörum hvers einstaklings. Fyrir 50 árum bjuggu flestir íbúar höfuðborgarsvæðisins á rúmlega 300 hektara landsvæði, að mestu í Reykjavík, innan Hringbrautar og í Hafnarfírði. Nú nær þéttbýli á höfuð- borgarsvæðinu yfir um tuttugu sinn- um stærra landsvæði, en íbúarnir eru bara rösklega þrisvar sinnum fleiri. Ein afleiðing þessarar útþenslu hefur verið gífurleg aukning umferðar, enda hefur byggð, samgöngukerfi og þjónustukerfi á þessu svæði engan veginn verið byggð upp á samræmd- an hátt til þess að draga úr nauðsyn á umferð. Úndanfama áratugi hefur hvert sveitarfélag fyrir sig verið að reyna að bjargast eftir bestu getu í þessum efnum, þótt höfuðborgar- svæðið sé fyrir löngu orðið eitt við- skipta-, verslunar- og þjónustusvæði. A ágætu málþingi sem Borgar- skipulag Reykjavíkur hélt um miðjan maí sl. kom m.a. fram að umferð hér á höfuðborgarsvæðinu er mun meiri en í álíka stóram norrænum borgum. Þessi samgöngukostnaður á höfuðborgarsvæðinu er nú áætlaður 27 milljarðar á ári (þ.e. eingöngu rekstur þílaflotans - heimild FÍB). Þessi kostnaður hefur greinilega farið úr böndunum hjá okkur eins og svo margt annað - og það sem verra er - þar sem þetta svæði er óðum að verða að einni samfelldri heild er það ekki á færi nokkurs eins sveitarfélags að gera hér veralega bragarbót. Einstök sveitarfélög geta að vísu reynt að tryggja að atvinna verði fyrir hendi nálægt íbúðahverf- um og að fólk komist auðveldlega til atvinnu og þjónustu með strætis- I Uppsölum í Svíþjóð er 40% dýrara að veita sömu strætisvagnaþjón- ustu og í Lundi vegna þess að þar var tekið fullt tillit til almenningssam- gangna í skipulagi bæjarins. (Heimild: Trafik i nordisk tatort.) vögnum. Mesta ávinnings er þó að vænta með samræmdu skipulagi og uppbyggingu þessa svæðis í heild. Eins og komið hefur fram í umræð- um um Hvalfjarðargöng er lækkun samgöngukostnaðar hér á landi nú ein arðbærasta fjárfesting sem okkur stendur til boða. Ef hægt væri að minnka ofangreindan samgöngu- kostnað um þótt ekki væri nema 10% er þarna kominn árlegur sparnaður upp á hátt í þrjá milljarða á ári eða jafngildi um 40.000 tonna af þorski árlega, eins og þau leggja sig á inn- lendum markaði þessa dagana. í flestum vestrænum löndum lítur ríkisvaldið á það sem hluta af starfs- sviði sínu að tryggja íbúum þéttbýlis ekki síður en dreifbýlis ákveðin sam- göngukjör eða samgönguþjónustu, á „Ef hægt væri að minnka ofangreindan samgöngukostnað um þótt ekki væri nema 10% er þarna kominn árlegur sparnaður upp á hátt í þrjá milljarða á ári eða jafngildi um 40.000 tonna af þorski árlega, eins og þau leggja sig á innlendum markaði þessa dag- ana.“ sama hátt og fólki er tryggður að- gangur að heilsugæslu og menntun á hóflegu verði. Það er ekki nóg fyr- ir fólk að eiga kost á atvinnu eða þjónustu einhvers staðar víðs fjarri heimilum sínum ef það kemst ekki þangað í strætisvagni, eða ef mikill hluti af tekjum þess fer í samgöngu- kostnað. Auðveldar og ódýrar sam- göngur eru hluti af mannréttindum í nútíma þjóðfélagi. Undanfarna áratugi hefur hið ís- Athugasemdir við grein borgarsljóra eftir Sjöfn Ingólfsdóttur Borgarptjórinn í Reykjavík, Mark- ús Öm Antonsson, ritar grein í Morg- unblaðið sl. miðvikudag, þar sem hann talar um að viðbrögð sumra starfsmanna SVR einkennist af mis- skilningi um grundvallaratriði og aðrir séu einfaldlega á móti öllum breytingum og reki málið út frá hagsmunasjónarmiðum forystu Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar og þar ráði ferðinni óttinn við að missa félagsgjöld starfsmanna til annarra stéttarfélaga. Rétt er að minna á, að í stjórn St.Rv. sitja 11 lýðræðislega kjörnir fulltrúar frá jafnmörgum starfshóp- um/stofnunum borgarinnar. Þessir aðilar starfa samkvæmt lögum fé- lagsins þar sem m.a. kemur fram í fyrstu grein um tilgang félagsins: a) að fara með fyrirsvar þeirra starfs- manna, sem það hefur samningsum- boð fyrir og aðrar ákvarðanir af „Þrátt fyrir þetta erindi og önnur svipaðs efnis hefur ekkert formlegt samráð verið haft við forystu félagsins um fyrirhugaðar breyting- ar á rekstri SVR.“ hendi starfsmanna b) að gæta hags- muna félaga sinna launalega, félags- lega og faglega, t.d. um starfskjör, eftirlaun og önnur réttindi, sem og skyldur. Þá er ennfremur sjálfsagt að rifja upp, lesendum til glöggvunar, erindi það sem St.Rv. sendi Borgarráði sl. haust; Að undanförnu 'hafa birst fréttir í fjölmiðlum um hugsanlega einkavæðingu eða breytt rekstrarfyr- irkomulag á ýmsum stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar. Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar óskar hér með eftir viðræðum við borgaryfírvöld um þau áform, sem kunna að vera uppi. Æskilegt er að slíkar viðræður fari fram með- an málin eru á framstigi, m.a. af eftirgreindum ástæðum: Óheppilegt er að starfsmenn fái fréttir í fjölmiðl- um, sem oft á tíðum era harlá óljós- ar eða byggðar á getgátum, um breytingar á rekstrarformi, sem geta varðað réttindi og starfskjör starfs- manna. Slíkt skapar óöryggi og er ekki til þess fallið að greiða fyrir málefna- legri umræðu. Markmiðin með einka- væðingu eða annars konar form- breytingum á rekstri borgarstofnana hljóta að vera að bæta þjónustu, gera hana markvissari og reksturinn væntanlega ódýrari fyrir skattgreið- endur. Ef þessi markmið eiga að ná fram að ganga, er nauðsynlegt að allar hliðar mála séu rækilega gaumgæfð- ar, áður en ráðist er í breytingar. Starfsmenn borgarstofnana búa yfir þekkingu, sem hvorki er rétt né Gestur Ólafsson lenska samgönguráðuneyti látið sig samgöngumál höfuðborgarsvæðisins litlu varða, þótt þar búi meira en helmingur þjóðarinnar. Ennþá er ekki til nein samræmd pólitísk stefnumótun í samgöngumálum höf- uðborgarsvæðisins. Á meðan sveitar- stjórnarmenn á þessu svæði taka heldur ekki af skarið og móta slíka stefnu er ekki nema von að íbúar þessa svæðis velti því fyrir sér hvort ekki sé tími til kominn að ríkisvaldið grípi hér inn í þróun mála og tryggi íbúum þessa svæðis álíka samgöngu- kjör og íbúar aðliggjandi landa eiga við að búa. Því spyija nú æ fleiri íbúar höfuðborgarsvæðisins - hvar er samgönguráðherra þessa svæðis? Höfundur er arkitekt og skipulagsfræðingur. Sjöfn Ingólfsdóttir ráðlegt að ganga framhjá við endur- skipulagningu fyrirtækja borgarinn- ar. Þrátt fyrir þetta erindi og önnur svipaðs efnis hefur ekkert formlegt samráð verið haft við forystu félags- ins um fyrirhugaðar breytingar á rekstri SVR, né þær óhjákvæmilegu breytingar á kjöram starfsmanna, sem hljóta að fylgja í kjölfarið. Höfundur er fortnaður starfsmannafélags Reykja víkurborgar. NÝUA BÍLAHÖLLIN FUNAHÖRÐA 1 S:672277 Toyota Corolla 1600 GLI, árg. '93, hvítur, 5 d. Ek. 7 þ. km. V. 1.320.000,- stgr. Ath. skipti. Nissan Sunny 1600 4 d., sjálfsk., ek. 32 stgr. Ath. skipti. Hyundai Scoupe 1500 LSI, árg. ’92, hvítur, V. 840.000,- 2 d., ek. 18 þ. km. V. 950.000,- stgr. Ath. skipti. Toyota Carmy GLI, árg. ’87, 4 d., sjálfsk., blár, ek. 72 þ. km. V. 850.000 stgr. Ath. skipti. Suzuki 1100 GSXR, árg. '88, rauður/svart- ur, ek. 23 þ. km. V. 650.000.- Galli fylgir. Topp hjól. 1 S: Toyota 4runner, arg. 90, rauður, upphækk- aður, 33" dekk, sóllúga. V. 2.090.000.- Skipti - skuldabréf. Fiat Uno 45S, árg. '91, rauður, vsk-bíll, ek. 28 þ. km. V. 550.000.- MMC Pajero, árg. ’88, rauður, fallegur bíll, ek. 102 þ. km. V. 1.150.000,- Skipti - skulda- bréf. Range Rover Vouge, árg. '87, grænsans., ek. 108 þ. km. V. 1.790.000,- Skipti. YFIR ¥ OO BBLJXK A S Subaru 1800 ST Turbo, árg. '88, rauður, * álfelgur, fallegur bíll, ek. 78 þ. km. S V. 900.000,- _________________________________ NUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.