Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 KNATTSPYRNA / MUTUMAL UEFA óskar eftir upplýsingum um Marseille-málið Brasil Bolf með Evrópubikarinn, eftir að Marseille vann AC Milan. Verður það hlutverk Marseille að skila bikamum? KNATTSPYRNA Fjórir 1. deildar- leikmenn íbann Pórir leikmenn í 1. deildar- keppninni voru úrskurðaðir í leikbann á fundi Aganefndar KSÍ í gær. Bjarki Stefánsson, Val, fékk eins leiks bann vegna brottreksturs í leik gegn FH og þrír leikmenn fengu eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda; Lárus Orri Sigurðsson, Þór, Ólafur ámason, Víkingi og Tryggvi Guðmundsson, ÍBV. Alls voru tuttugu og einn leik- maður úrskurðaðir í eins ieiks bann. Eins og áður voru þó nokkrir leikmenn yngri fiokka á listanum, en leikmenn í meistara- flokki sem fengu bann, vom: Guðjón Antoníusson, Tindastóli, Jóhannes Jónsson, Þrótti R., An- ton Ólafsson, Reyni S., Bjöm Vilhelmsson, Víði, Nieoloc Mi- roslav, Fjölni, Sigurjón Dag- bjartsson, Haukum og Heiða Sig- urbergsdóttir, Stjömunni. FRJALSAR Þrettáná IMM-öldunga rettán keppendur frá Islandi taka þátt í Norðurlandamóti öldunga, sem fer fram í Huddinge í Svíþjóð 2.-4. júlí. Það eru Ámý Heiðarsdóttir, sem keppir í langstökki og þrístökki, Lilja Guðmundsdóttir, 800 og 1500 m hlaup, Sigurður T. Sigurðsson, stangarstökk, Sigurður P. Sigmundsson, 5000 og 10.000 m hlaup, Elías Sveinsson, kast- greinar, Kristján Gissurarson, stangar- stökk og 100 m hlaup, Trausti Svein- bjömsson, 400 og 400 m grindahlaup, Heigi Hólm 400 m hlaup, Bjöm Jóhanns- son, sleggjukast, Jón H. Magnússon, sleggjukast, Guðmundur Hallgrímsson, 100, 200 og 400 m hlaup, Þórður B. Sig- urðsson, sleggjukast og Jóhann Jónsson, langstökk og þrístökk. KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu, UEFA, hefur óskað eft- ir upplýsingum frá franska knattspyrnusambandinu um Marseille-málið, en félagið hef- ur verið ákært fyrir að hafa mútað leikmönnum Valencien- nes — til að tapa deildarleik gegn Marseille, sexdögum fyr- ir úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða í Miinchen. Marseille-málið hefur vakið mikla athygli. í gáer komu fram nýjar ásakanir á Marseille fyrir mútur. Gennady Kostylev, þjálfari CSKA Moskva, kom fram í sviðsljósið og sagði að menn frá Marseille hefðu haft samband við leikmenn sína fyrir Evrópuleiki gegn Marseille og boðið þeim pen- inga fyrir að tapa leikjunum — bæði í Marseille og Berlín, þar sem CSKA Moskva lék heimaleik sinn. Kostylev sagði í viðtali við rússn- eska blaðið Sport-Express að marg- ir leikmanna sinna hafi orðið veikir eftir leikhlé í Marseille. „Margir fóru út á völl með magaverk. Það gerðist greinilega eitthvað óeðlilegt í leikhléi — það hefur verið sett eitthvað saman við te-ið sem við fengum," sagði Kostylev. UEFA ætlar einnig að fá upplýs- ingar frá CSKA Moskva og sovéska knattspyrnusambandinu, en það er greinilegt að Marseille er komið í vond mál. Mútur í Póllandi Það er á fleiri stöðum sem óhreint mjöl er í pokahorninu en í Mar- seille. í Póllandi á Legia Varsjá á hættu að missa meistaratitil sinn — beðið er eftir seinni lyfjaprófi eins leikmanns liðsins, Roman Zub. Leg- ia ásamt þremur öðrum öðrum fé- lögum var sektað um 1,9 millj. ísl. kr. hvert á dögunum fyrir að hafa leikið sér með úrslit síðasta keppnis- daginn í pólsku 1. deildarkeppn- inni. Legia og LKS Lodz kepptust um meistaratitilin, en liðin voru jöfn að stigum, en Legia hafði þremur mörkum betra í markatölu. Félögin fóru því út á völl til að vinna með sem mestum mun. Legina vann Wisla Krakow, 6:0, og LKS Lodz vann Olimpia Poznan 7:1. Tölur þessar þóttu afar einkennilegar og þar sem ekki þótti full sannað um mútur — hver hefði borgað hverj- um, eða hveijir hefðu tekið við pen- ingum, var ákveðið að sekta öll fjög- ur félögin. Það er ekki nýtt að grunur um mútur séu í löndum A-Evrópu, en lengi hefur verið grunað að úrslitum hafi verið hagrætt og jafnvel að leikmenn hafa fengið að skora mörk að vild í keppninni um titilinn markakóngur Evrópu. Mútumál og svindl hafa einnig átt sér stað í V-Evrópu og frægast er getrauna- svindlið mikla á Ítalíu á árum áður. OPNA MOTIÐ Golfklúbbur Reykjavíkur gengst fyrir opnu golfmóti í Grafarholti fyrir alla kylfinga, 15 ára og eldri, dagana 3. og 4. júlí 1993. Leikin veröur punktakeppni - Stableford - meö 7/8 forgjöf, tveir og tveir leika saman betri bolta. Hámarksgefin forgjöf er 18. Verðlaun verða kynnt í golfskálanum föstudaginn 2. júlí kl. 18.00, kaffiveitingar fyrir keppendur. 25 efstu sætin gefa verðlaun. Fjölmargar utanlandsferöir auk ýmissa nytsamlegra og fallegra hluta. Þá eru aukaverölaun á öllum par 3 holum vallarins. Þátttökugjald er kr. 4.500.- á mann. Tveir skrá sig saman í lið. Skráning og pantanir á rástímum er í síma 682215. ÚTÍLÍF Glæsibæ. vrro 829P2 4 4 LA PRIMAVERA RISTORANTE ÚRVAL-ÚTSÝN FLUOLEIDIR Gon lAlh A/i liéuSlu ftljgi i Bi LACOSTE RccboK m\ Höföabakka 7, sfml 83366. HUS VERSLUNARINNAR HÓTEL ÖDK fe SI\ZlfTH& NORLAND SIEMENS EINKAUMBOO japis: AJORICA HÓTELVALHÖLL O/liJAHHRAUN IÚ • POötl íÓl^fll 220 l!Af'NARI;JÓR|)UH FRODI BÓKA f. BLAbMÍICAFA SÆVAR KARL * SYNIR TEPPABUÐIN iSlyai V I 1 ) I ■ V F. I l I I) A N UCllfldlíiÍKVlWll :<D(/WKíXU mf-m m # umboðlö Budweiser Samvinnuteróir - Landsýn AUSHlHSlfK II I? SIMAR JtOlt l 28899 VAK4 HELCAFELL SÍ^K ■ ENN er ekki ljóst hvar nokkrir af bestu knattspymumönnum Þýskalands munu leika næsta vet- ur. Lothar Matthaus er í einhvetju ströggli við forráða- Frá Jóni menn Bayern Halldóri Mtinchen, állt er í Garðarssyni í lausu lofti hjá Mar- Þýskalandi seille í kjölfar frétta um mútugreiðslur og þar með gæti Rudi Völler farið hvert sem er og AC-Milan er á höttunum eftir Stef- an Effenberg, en félag hans Fior- entina vill fá meiri pening fyrir hann en AC-Milan hefur boðið til þessa. ■ DORTMUND hefur í hyggju að styrkja lið sitt fyrir næsta keppn- istímabil í þýsku úrvalsdeildinni, og sækist eftir tveimur landsliðsmönn- um, hinum þýska Karl-Heinz Riedle og hinum enska David Platt. ■ MAURIZIO Gaudino sem keyptur var nýlega til Frankfurt frá Stuttgart, hefur staðið sig vel í leikj- unum tveimur sem hann hefur leikið með nýja liðinu, og virðist styrkja liðið mikið. ■ FRITZ Walter hefur í hyggju að skipta um félag, segir að brátt verði ekki pláss fyrir sig hjá Stuttg- art. Hann hefur fengið tilboð frá lið- um í neðri deildum en er ekki búinn að ákveða hvort og þá hvert hann fari. ■ THOMAS Berthold hefur verið orðaður við Köln að undanfömu, en barst nýlega tilboð frá Stuttgart sem hann er að íhuga, en haft hefur ver- ið eftir honum að hann hafi meiri áhuga á því að fara til Kölnar. ■ ANDREAS Köpke var valinn besti markmaðurinn í þýsku úrvals- deildinni síðasta tímabil af þýska tímaritinu Kicker. Hann var eini markmaðurinn sem var í heimsklassa að mati tímaritsins, en í öðru sæti varð Stefan Klos hjá Dortmund og Ulrich Stein hjá Franfurt var talinn þriðji besti. ■ FYRSTI leikur Stuttgart á næsta tímabili verður á útivelli gegn meistumnum í Werder Bremen, en liðin mættust einmitt í síðustu um- ferð deildarinnar í vor. ■ RUNE Bratseth er besti aftasti varnarmaðurinn í þýsku deildinni að mati Kicker og Michael Schulz hjá Dortmund er besti varnarmaðurinn. Bratseth er í heimsklassa að mati Kicker en Schulz aðeins í landsliðs- klassa. ■ ÍTALSKI landsliðsmaðurinn Gianfranco Zola, sem hefur leikið með Napolí, gekk um helgina til liðs við Parma. ■ MARSEILLE hefur keypti þijá nýja leikmenn. Varnarmanninn Will- iam Prunier og miðvallarspilarann Daniel Dutuel frá Auxerre og mið- vallarspilarann Fabrice Henry frá Sochaux. ■ LANDSLIÐ Ecuador, sem hef- ur komið skemmtilega á óvart í keppninni um Ameríkubikarinn, leik- ur undanúrslitaleik gegn Mexíkó í dag. Leikmenn liðsins hafa leikið mjög vel í fjórum sigurleikjum og skorað þrettán mörk. ■ ÞJALFARI liðsins er Júgóslav- inn Dusan Draskovic. Hann ákvað að „loka“ sína leikmenn frá um- heimnum og bannaði þeim að ræða við fréttamenn. Leikmenn Mexíkó eru ekki undir sama járnaganum — þeir taka það rólega og brugðu sér að versla á mánudaginn. ■ MARCIANO Vink, miðvallar- spilari Ajax, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Genúa. GOLF Opið mót hjá GR Golfklúbbi Reykjavlkur heldur opna Essó-mótið f Grafarholti á morgun, fimmtu- dag. Mótið er punktamót, Stableford 7/8 forgjöf. Ræst verður út frá kl. 9.00. Skrán- ing fer fram í golfverslun Sigurðar Péturs- sonar. Opið mót á Húsavík Um næstu helgi, 3. og 4. júlí, verður haldið hið árlega opna Húsavíkurmót á Katlavelli. Keppt verður í karla-, kvenna- og unglingaflokkum með og án forgjafar. 36 holur. Skráning frá hádegi fimmtudag til kl. 19 föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.