Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 Golden retríever sá besti Dráttarvél feðganna á Ytra-Hóli varð alelda á örskömmum tíma Vélin ónýt í upphafi sláttar Morgunblaðið/Rúnar Þór Alelda á örskömmum tíma HREIÐAR Hreiðarsson við vélina, en í baksýn sést heima að Tjarna- gerði. Vélin varð alelda á örskömmum tíma á meðan hann hljóp að bænum eftir vatni. Sýning á ljósmyndum SÝNING á ljósmyndum fréttaritara Morgunblaðsins hefur verið sett upp í Hótel Ólafsfirði. Verða myndirnar þar til sýnis fram eftir vikunni. Ljósmyndasýningin Lífið í land- inu með 28 verðlaunamyndum úr ljósmyndasamkeppni fréttarit- ara Morgunblaðsins hefur verið á ferð um landið. undanfarna mánuði. Á sýningunni eru nokkr- ar myndir Svavars B. Magnús- sonar ljósmyndara á Ólafsfirði. Mótssvæðið NÝTT mótssvæði Léttis, Hlíðarholtsvöllur, verður notað á íslands- mótinu í hestaíþróttum. Islandsmót í hesta- íþróttum er haldið á Hlíðarholtsvelli ÍSLANDSMÓTIÐ í hestaíþróttum verður haldið á nýju keppn- issvæði Léttis, Hlíðarholtsvelli, og stendur undirbúningur þess nú sem hæst. Aðstaða á vellinum er hin ákjósanlegasta, en Iþrótta- deild Léttis og Léttisfélagar hafa unnið hörðum höndum við völl- inn að undanförnu. íslandsmótið í hestaíþróttum hefst fimmtudaginn 22. júlí næst- komandi og stendur fram á sunnu- dag, 25. júlí. Keppni hefst kl. 8 alla keppnisdagana, hindrunar- stökk verður flutt á flötina fyrir neðan Samkomuhúsið á laugar- deginum og mun vafalaust vekja Norrænt menningarnet heitir sýning sem stendur yfir í Safnaðarheimili Akureyrarkirkjufram til 2. júlí næstkomandi. Sýningin er opin frá kl. 14-17 daglega, en þar má m.a. flnna upplýsingar um norræna sjóði. athygli þeirra sem leið eiga um, en sýningar hestamanna á sam- komuhússflötinni hafa ævinlega laðað að marga áhorfendur. Um kvöldið verður mikil grillveisla og stórdansleikur í KA-húsinu. Mót- iriu lýkur með gæðingaskeiði á sunnudeginum, en verðlaunaaf- hending verður kl. 16.30. Keppendur verða að skrá þátt- töku sína hjá íþróttadeild Léttis eða félögum sem skila inn skrán- ingu til mótshaldara, en frestur til að skrá þátttöku rennur út föstu- daginn 9. júlí kl. 18. (Fréttatiikynning.) HUNDASÝNING Hundaræktar- félags Islands var haldin í íþróttahöllinni á Akureyri fyrir skömmu. Fjölmargir fylgdust með sýningunni, sem tókst vel í alla staði. Alls voru sýndir 120 hundar af 23 tegundum auk þess sem keppt var í flokki sem nefn- ist „ungir sýnendur", en þar sýndu hunda ungmenni á aldrin- um 10 til 16 ára. Dómari á sýn- ingunni var Oivind Asp frá Nor- egi. Úrslit á sýningunni urðu þau að í flokki hvolpa 6-9 mánaða varð Spori, enskur setter, í fyrsta sæti, ræktandi er Marta Gylfadóttir og eigandi Hannes Blöndal. í öðru sæti varð Nökkvi, Iabrador retriev- er, ræktandi er Jón Bragason og eigandi Danelíus Sigurðsson. Þeir bestu Besti hundur sýningarinnar var valinn Mjærumhögda’s Amanda, golden retriever, ræktandi er Greta- Sofia Mjáerum og eigandi er Sús- anna Poulsen. í öðru sæti var Jökla- Jón Prímus, enskur springer spani- el, ræktandi er Rúnar Halldórsson og eigandi Guðbjörg Helgadóttir. M. Labbi-Aron, labrador retriever, varð í þriðja sæti, ræktandi er Stef- án Gunnarsson og eigandi Guð- steinn Eyjólfsson. Besti ungi sýnandinn var valin Ingibjörg Osk Þorvaldsdóttir með M. Þóru Millý, golden retriever. Voru að fara að hirða fyrsta heyið Auðunn Benediktsson á Kópaskeri „ÉG SÁ smá reyk leggja upp frá mælaborðinu, drap á vélinni og hljóp heim að bæ til að sækja vatn, en ég var ekki kominn langt þegar ég sá að vélin var alelda,“ sagði Hreiðar Hreiðarsson, en hann var í gær að snúa í flekk við Tjarnagerði í Eyjafjarðarsveit þegar sex ára gömul dráttarvél sem hann ók varð eldi að bráð. Vélin er ónýt og kemur það sér afar illa þar sem þeir feðgar Hreiðar og faðir hans Hreiðar Sigfússon á Ytra-Hóli voru að hefja heyskap. Menn frá Vinnueftirliti ríkisins skoðuðu vélina í gær- morgun. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. „Veiðir“ ferðamenn þegar rækjukvótinn er búinn Hreiðar Hreiðarsson var einn á túninu við Tjamagerði þegar at- burðurinn varð um kl. 14 í gær- dag, en fleira fólk bar að garði í sama mund. Hann var á nýlegri yfirbyggðri dráttarvél að snúa í flekk við bæinn Tjamagerði, en þar hefja þeir feðgar að jafnaði slátt. Hreiðar var um það bil að hætta þegar hann skyndilega sá reyk leggja upp frá mælaborði vélarinnar og þegar betur var að gáð sá hann smá eld krauma niðri í vélinni. Ekki í hættu Drap hann strax á dráttarvél- inni og hljóp heim að bæ, sem er skammt undan til að sækja vatn, en þegar hann leit við sá hann að vélin var alelda. Ekki liðu nema örfáar sekúndur frá því Hreiðar stökk út úr vélinni og j)ar til hún stóð í Ijósum logum, „Eg var ekki í neinni hættu held ég, en það var dálítil gola þegar þetta gerðist þannig að eldurinn magnaðist sjálfsagt hraðar fyrir vikið,“ sagði Hreiðar. „Það brann allt sem brunnið gat mjög fljótt," sagði Hreiðar en tvö slökkvitæki voru notuð til að slökkva eldinn og var heimafólk búið að því þegar slökkviliðið kom á staðinn. Bagalegt í upphafi heyskapar Dráttarvélin er ónýt og sagði Hreiðar það vissulega bagalegt í upphafi heyskapar að missa hana. „Þetta kemur sér illa, við vorum rétt að byrja og vorum að fara að hirða það fyrsta þegar þetta gerðist. Heyskapurinn fór óvenju seint af stað og því megum við varla við þessum töfum.“ Álitið er að kviknað hafi í drátt- arvélinni út frá rafmagni. Menn frá Vfiinueftirliti ríkisins skoðuðu vélina í gærmorgun, en Hreiðar sagði að sjónir þeirra beindust einkum að öryggi manna kringum vélarnar. Ævintýramaður AUÐUNN Benediktsson útgerðarmaður á Kópa- skeri ætlar að veiða ferðamenn, en hann er búinn með rækjukvótann sinn. Morgunblaðið/Margrét Þóra Laxinn skorinn BOÐIÐ er upp á reyktan lax á meðan siglt er um Eyjafjörðinn. verða kvöldsiglingar kl. 21. Hver ferð tekur um eða rétt rúmlega klukkustund og gefst fólki kostur á að renna fyrir fisk, en einnig er boðið upp á léttar veitingar, sem Auðunn og hans fólk tekur með sér að heiman. Ætlunin er að bjóða upp á grillaða bleikju og reyktan lax frá Silfurstjöm- unni í Öxarfirði í siglingunum. Báturinn tekur 10 til 14 manns og er bæði hægt að panta fyrir- fram hjá Ferðaskrifstofunni Nonna á Akureyri eða kaupa miða við landganginn áður en lagt er af stað. AUÐUNN Benediktsson útgerðarmaður á Kópaskeri hefur klár- að rækjukvótann á bát sínum, Þingey ÞH, og til að sitja ekki auðum höndum það sem eftir er kvótaársins hyggst hann nú „reyna að veiða ferðamenn," eins og hann orðaði það, en hann verður með bátinn við Torfunefsbryggju á Akureyri þar sem fólki gefst kostur á siglingum um Eyjafjörð. Enginn kvóti á ferðamenn Auðunn sagðist vera þekktur á heimaslóðum fyrir ævintýra- mennsku af ýmsu tagi og kannski mætti segja að þessi hugmynd hans gæti flokkast undir eitthvað slíkt, því vissulega væru margir að róa á þessi sömu mið. „Það er enginn kvóti á ferða- menn, að minnsta kosti ekki enn- þá,“ sagði Auðunn, en hann kynnti Eyjafjarðarsiglinguna blaðamönnum í vikunni. Farið er frá Torfunefsbryggju, rétt við miðbæ Akureyrar, alla daga og eru þrjár ferðir í boði, sú fyrsta kl. 10, þá kl. 12 á hádegi og loks

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.