Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 Norrænu barnabókaverðlaunin Bjame Reuter verðlaunaður eftir Sigrún Klöru Hannesdóttur Norrænu barnabókaverðlaunin, Den Nordiske Bornebogspris, verða afhent síðar í dag af forseta Is- lands, Vigdísi Finnbogadóttur, á ráð- stefnu Norræna skólasafnvarðafé- lagsins. Verðlaunahafinn að þessu sinnni er danski rithöfundurinn Bjarne Reuter en eins og menn muna fékk Guðrún Helgadóttir verð- launin á síðastliðnu ári. Bjarne Reuter er vel þekktur bæði í heimalandi sínu og víðar. Hann er fæddur 1950 og er kennari að mennt en hefur nú um nokkurt skeið helgað sig algerlega ritstörf- um. Bjarne hefur skrifað jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og einnig hefur hann spreytt sig á ýmis konar ritformi. Eftir hann liggja auk skáldsagna leikrit, kvik- myndahandrit, útvarps- og sjón- 'varpsþættir og sönglagatextar. Fyrsta bók hans, Kidnapping (1975), er skopstæling á leynilög- reglusögu og fjallar um léttgeggjaða fjölskyldu. Það sem einkennir rit- störf Bjarne Reuter eru óvenjuleg tök á viðfangsefnunum. í sumum verkum hans kemur fram einhvers konar þjóðfélagsleg ádeila en efnis- meðferð er slík að eftir stendur lífs- gleði og hlátur þótt allir fínni þá alvöru sem undir býr. Sagt er að dómnefnd hafí haft til hliðsjónar við val á verðlaunahöfundi bækur hans um Buster. Sögurnar um Buster Orego (1983) Mortensen Veröld Busters (1982) og Kysstu stjörnurnar (1983) eru íslenskum lesendum að góðu kunnar og voru þýddar snilldarlega af Ólafi Hauki Símonarsyni. Má geta þess hér að fyrir þýðingu sína á Veröld Busters fékk Olafur Haukur verðlaun Fræðs- luráðs Reykjavíkur árið 1983 fyrir bestu þýðingu á barnabók. Sögurnar um Buster eru óvenju- legar sögur um strák sem allar form- úlur segja að eigi við félagsleg vandamál að stríða. Faðir hans er atvinnulaus töframaður sem drekkur út matarpeningana og lemur börnin sín. Ingeborg systir hans er hölt og annar fóturinn styttri en hinn og börnunum er strítt óspart. Umgjörð- in er dæmigjörð fyrir vandamála- sögu en í höndum Reuters verður sagan að ljúfsárri skemmtisögu þar sem lesandinn skilur og finnur til samkenndar fremur en fordæming- ar. Sagan er öll sögð frá sjónarhóli Busters sem er staðráðinn í að verða töframaður eins og hann á ætt til. Hann notar töfrabrögð sín í tíma og ótíma. Stundum bera þau tilætl- aðan árangur en stundum hafa þau þveröfug áhrif þegar þau eru ekki framkvæmd á réttum stað eins og t.d. fyrir framan skólastjórann. Sagan af Buster er spennandi en um leið vekjandi og í átökunum er ekki um það að ræða að sigra eða vera sigraður, heldur að halda áfram að reyna að gleðjast yfir því sem bjart er-í tilverunni. Svolítið dæmi er hér tekið sem sýnir stíl Bjarne Reuters og snilldarþýðingu ðlafs. Stóri-Lars, sextán ára rumur á skellinöðru, hefur strítt Ingeborg og til að hefna sín á honum hefur Bust- er sett sykur í bensíntankinn á hjól- inu. Þetta kallar að sjálfsögðu á grimmilega refsingu. Þegar fundum þeirra ber saman veit lesandinn að þarna verður neytt aflsmunar og í þeirri viðureign mun Buster eiga litla von. En Buster á sér leynivopn und- ir töframannsskikkjunni — gervi- handlegg! Úr vonlausri stöðu er Buster allt í einu með pálmann í höndunum og lesandinn getur ekki annað en hleg- ið. Sögur Bjarne Reuter eru mjög myndríkar og því eðlilegt að þær hafi verið kvikmyndaðar. Kidnapp- ing og saga hans Tre engle og fem lover (1977) voru báðar kvikmynd- aðar. Sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar af sögunum um Buster og Lítið hús í Hafnarfirði Til sölu 54 fm múrhúðað timburhús við Austurgötu. 2 herb., eldhús, bað og geymsla. Trjágarður og gróðurhús. Verð 3,8 millj. Árni Gunnlaugsson, hrl., Austurgötu 10, sími 50764. 911 91 970 Þ' vald,marSS0N framkvæmdastjori ím \ I JU't I 0 I v KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Frábært verð - frábært útsýni Á 6. hæð í lyftuhúsi við Álftahóla. Stór og góð 4ra herb. íb. 110,1 fm nettó. Sólsvalir. Góöur bilskúr 29,3 fm. Ágæt sameign. Verð aðeins kr. 7,7 millj. Endaíbúð við Safamýri - bílskúr 4ra herb. sólrík íbúð á 1. hæð vel umgengin. Tvennar svalir. Nýlega mikið endurbætt sameign. Vinsæll staður. Einkasala. Sérhæð við Bústaðaveg Endurnýjuð 3ja herb. íbúð 81,8fm. Sérinng. Sérhiti. 40ára húsnæðis- lán kr. 3,5 millj. Einkasala. Glæsileg þjónustuíbúð við Dalbraut 2ja herb. Sólsvalir. Geymsla í íbúðinni. Geymslu- og fönd- urherb. í kj. 40 ára húsnlán kr. 3,2 millj. Verð aðeins kr. 6,5 millj. Mikið endurbætt 4ra herb. íb. á 4. hæð skammt frá Dalbraut. Sólsvalir. Risherb. fylgir með snyrtingu. Sameign mikið endurbætt. Laus fljótl. Frábært útsýni - hagkvæm skipti í suðurenda við Háaleitisbraut 5 herb. íb. á 4. hæð. Mikið endurn. Bílskúr. Sameign nýendurbætt. Skipti möguleg á minni eign. í Vesturborginni - hagkvæm skipti Traustur kaupandi óskar eftir góðri 3ja herb. íb. í Vesturborginni. Skipti mögul. á 5 herb. ágætri ib. skammt frá Háskólanum. • • • Fjöldi góðra eigna í makaskiptum. Teikn. á skrifstofu. Opið á laugardaginn ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Bjarne Reuter Billy August heffur stjórnað kvik- myndinni Trú, von og kærleikur svo eitthvað sé nefnt. Bjarne Reuter er því vel að verðlaununum kominn fyrir að hafa glatt og vakið til um- hugsunar. Norrænu barna- bókaverðlaunin Norrænu barnabókaverðlaunin hafa verið veitt frá 1985 og eru að því leyti ólík öðrum norrænum verð- launum að það er norrænt félag sem veitir þau en ekki einhver opinber aðili á borð við Norðurlandaráð eða Norrænu ráðherranefndina. Norræna skólasafnvarðafélagið, Nordisk skolebibliotekarforening, samanstendur af félögum skóla- safnakennara sem starfa í hverju landi og er Félag skólasafnskennara sá íslenski aðili sem á aðild að þess- um norrænu samtökum. Til skýringa má nefna að skólasafnskennarar eru kennarar sem starfa í skólasöfnum. Stjórnir þessara aðildarfélaga mega tilnefna tvö verk frá hverju landi og síðan er það þriggja manna nefnd sem velur úr þeim verkum. Verð- launin má veita fyrir eitt bókmennta- verk eða fyrir framlag tl barnabók- mennta almennt. Ekki er að efa að það er mikil- vægt fyrir norræna rithöfunda að athygli sé vakin á verkum þeirra með þessum hætti og nokkur gæða- stimpill lagður á verk þeirra. Á þenn- an hátt er val til þýðinga úr einu tungumáli á annað auðveldað, en að mínu mati eiga barnabókarithöf- undar að eiga sín opinberu verðlaun eins og aðrir rithöfundar með til- heyrandi fjárveitingum og styrkjum til greiðslu á þýðingum af samnorr- ænum fjárveitingum. Kraftur og hrynjandi Ballett Olafur Olafsson Afró-Brasil-dansarar. Danshöfundur og stjórnandi: Mauricio Marques. Dansarar: Höfundur og þátttak- endur í danssmiðju. Tónlist leikin á ásláttarhljóð- færi. Kramhúsið, Hafdís Árnadóttir. Júní 1993 Það er nokkuð langt um liðið slðan Kramhúsið hóf starfsemi sína. Kramhúsið er dans- og leik- smiðja, sem með reglulegu milli- bili opnar dyr sínar og leyfir fólki að líta á það, sem verið _er að fást við hveiju sinni. Hafdís Árnadóttir hefur stýrt starfseminni, sem oft liggur á mörkum dans- og leiklist- ar. Alltaf hefur þó hreyfing og beiting líkamans í tjáningu verið viðfangsefnið. Danssmiðjur, eins og Kramhúsið, eru nauðsynlegur þáttur í menningarlífi borgarinnar og tækifæri til að reyna sig í sköp- un og tjáningu. Mauricio Marques frá Brasilíu var gestur Kramhússins nú í vor. Hann setti upp sýninguna RaQa og dansaði ásamt nokkrum nem- enda sinna. Mauricio Marwues hefur starfað sem kennari í Brasil- íu og Bandaríkjunum. Auk þess hefur hann dansað víða, meðal annars með Impulse Dance Comp- any Adrian Hawkins í Boston. Hann hefur líka starfað sem dans- hönnuður fyrir karnivöl í Brasilíu og Bandaríkjunum. Sýningin RaQa einkennist af brasilískri hrynjandi með sterku afrísku ívafi. RaQa þýðir afl, eða orka, sem er réttnefni á sýning- una. Margir segja, að danslistin eigi uppruna sinn að rekja til til- beiðslu og trúariðkana. Fyrsti hlutinn var einmitt byggður á goð- sögnum. Þetta voru átta bænir, eða áköll, hvert með sínar hreyf- ingar og tákn. Dansinn var ein- hæfur og táknrænn fyrir stríðs- og veiðigoð, goð fegurðar o.s.frv. Einföld og seiðmögnuð tilbeiðsla er líka jafnan heilladrýgst. Næst á efnisskránni var Capoeira, sem rekja má allt til 16. aldar og er danstjáningarform, sem sprottið er úr baradagalist þræla, þó hæp- ið sér að tala um bardagalist. Capoeira-bardagarnir voru háðir þannig, að þrælarnir héldu hnífum á milli tánna og síðan var sparkað og barist uppá líf og dauða. Hníf- amir eru nú horfnir en eftir stend- ur þetta dans- og tjáningarform, sem reynir á fimi, úthald og hraða. Þetta er sterkt atriði og vel gert. Á sýningunni sem undirritaður sá (sem ekki var frumsýning), kom næst atriði, sem var algjör mistök. Það var einskonar samba, sem maður getur búist við að sjá hrófl- að upp í tímahraki af þremur vin- konum fyrir skemmtikvöld í fram- haldsskóla. Enda var atriðið samið NYJAR BÆKUR Blóðskömm á íslandi Höfundur er bókmenntafræðing- ur og hefur skrifað gagnrýni fyrir Morgunblaðið. Blóðskömm á íslandi 1270- 1870, doktorsritgerð Más Jónsson- ar sagnfræðings er komin út. Þar er rakin þróun á skilgreiningu blóðskammar á Vesturlöndum frá því snemma á miðöldum til okkar daga. Annað meginviðfangsefni bók- arinnar eru viðurlög við blóð- skömm. Allir dómar um blóð- skömm sem þekktir eru á íslandi, um eitt hundrað talsins, eru gaum- gæfðir, en um 50 einstaklingar voru teknir af lífi fyrir blóðskömm á íslandi á 17. og 18. öld, karlar höggnir á háls og konum drekkt. Már Jónsson blóðskammarmál Snemma á 18. öld var farið að milda dauðadóma í ævilanga refsivist og síðar í enn skemmri vist, en dauðarefs- ing var fyrst afnumin með lögum árið 1870. í lokakafla bókarinnar er reynt að meta frá sjónarhóli FASTEIGN CR FRAMTID FASTEIGNA SVERRIR KRISTJANSSON LOGGIL TUR FASTEIGNASALI SUDJRLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 687072 SÍMl 68 77 68 „PENTHOUSE“ VIÐ GAMLA BÆINN Til sölu mjög glæsileg 68 fm 2ja herb. íbúð á 10. hæð í mjög fallegu lyftuhúsi. Stórar svalir. íbúðin er í sérklassa með stórkostlegu útsýni. Bílastæði. íbúðin er laus. VOGAR - VATNSLEYSUSTRÖND Til sölu mjög gott 136 fm einbýli á einni hæð ásamt 48 fm bílskúr. í húsinu eru m.a. 4-5 svefnherbergi, stofa og fleira. Falleg og góð eign. Skipti æskileg á minni íbúð á stór-Reykjavíkursvæðinu. í SKEIFUNNI Til sölu í smíðum ca 1065 fm hús sem skiptist í kjallara sem er ca 250 fm með góðri innkeyrslu og stórum inn- keyrsludyrum, ca 365 fm verslunar- og skrifstofuhæð, 2. hæð er ca 347 fm og rishæð ca 112 fm. Húsið stendur mjög vel og hefur sem slíkt mikið auglýsingagildi. Ferðafé- lag Islands byggir húsið og á sambyggt hús. í þvf húsi verður hægt að fá aðgang að tveimur fundarsölum. Eign- in hentar því mjög vel undir ýmiss konar félagsstarfsemi svo og verslun eða skrifstofur. Hægt er að selja húsið í hlutum. Einkasala. Teikningar og nánari upplýsingar gefa Sverrir eða Pálmi. almennings og jafnvel sakborn- inga. Niðurstaðan er sú að í vitund fólks hafi hugmyndir um bann við blóðskömm ekki verið jafn víðtæk- ar og yfirvöld, guðfræðingar og lögfræðingar vildu vera láta. 1 framhaldi af því er spurt hvort ástæða sé til að banna nokkurn skapaðan hlut í þessum efnum séu báðir aðilar fullveðja og þvingun ekki fyrir hendi. Háskólaútgáfan gefur bókina út. Doktorsvörn hefst í Odda laugardaginn 3. júlí kl. 14. . ___.™....1P f HAFHAfcFIROI 4.-90. #ÚNÍ 1999 1 kvöld kl. 20.30. Tónleikar í Kaplakrika. Nigel Kennedy, fíðluleikari og hljómsveit hans. Klúbbur Listahátiðar í Hafn- arborg. Tríó Björns Thoroddsen ásamt ýmsum söngvurum. VZterkur og k_/ hagkvæmur auglýsingamiðill! í i $ i H

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.