Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 Minning Jakob Löve stórkaupmaður Fæddur 9. febrúar 1927 Dáinn 21. júní 1993 Við sviplegt fráfall vinar míns Jakobs Löve er mér efst í huga samúð með þeim sem eiga á bak að sjá kærum eiginmanni og ástrík- um föður. Þeirra er missirinn mest- ur og einnig hafa þeir mest að þakka. Huggun þeirra sé að hafa í ríkum mæli notið umhyggju hans og kærleika. Ég átti því láni að fagna að koma oft á heimili Margrétar og Jakobs og barna þeirra og njóta þar hlýju og alúðar þeirra allra. Jakob var góður heim að sækja og vildi gest- um sínum vel gjöra í öllum hlutum. En þó kynntist ég honum fyrst að ráði er ég fékk að fylgja honum í veiðiferðum út um land. Hann var mikill unnandi náttúrunnar, sjóð- fróður um jurtir og jarðfræði, dýr á landi, í sjó og í lofti, í fjöru og í lyngmó og óþreytandi að fræða aðra um þessi hugðarefni sín. Eins og allir góðir veiðimenn var hann náttúrufræðingur, sem leit á veiðar sem óaðskiljanlegan hluta af sam- bandi mannsins við náttúruna. Snemma vetrar fórum við saman vestur á Mýrar, gistum hjá kunn- ingjum í Hraunhreppnum og feng- um leyfi til þess að ganga til ijúpna. Saman þrömmuðum við í föl fyrstu snjóa upp í Svarfhólsmúla og inn á Gijótárdal. Grjótáin var að safna í klakabrynju við Nautastreng og hamramir voru svartir og birki- kjarrið grátt með einstaka blettum af grænu laufi sem lét ekki enn undan fyrir útsynningshaglinu. Þótt Jakob væri kappsamur við veiðar gaf hann umhverfínu gaum og naut hinnar tæru fegurðar þar sem mætast hraun og gljúfrafossar, gnæfandi fjöll og fram undan hall- aði mýrunum mjúklega til sjávar. Ferðimar í Hraunhreppinn urðu fleiri, og Hítarvatn heillaði Jakob eins og flesta sem þangað koma. Mér er minnisstætt eitt sinn er við á síðkvöldi í byijun ágúst gengum innan frá Tjaldbrekku niður með vatni. Öðmm megin Vatnshlíðar- fjöllin með regluleg basaltslögin hvert ofan á öðra, hinum megin ólgandi hröngl móbergsfjallanna með hvössum tindum og gapandi giljum. Og á lognkyrra vatninu Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð Mlegir salir og mjög góð þjónusta. llpplýsingar ísúna22322 FLUGLEIÐIR UÓTEL LOFTLEIBIR sjnti himbrimaparið í tígulegri ró. A slíkum stundum er öllum orðum ofaukið. En Jakob kom ekki aðeins við á efri bæjunum í Hraunhreppnum. Hjörseyjarferðirnar voru honum ekki síður hugstæðar en dvölin uppi vW fjöllin. í þessum ferðum naut hann sín ákaflega vel. Þar kom til áhugi hans á náttúrafræði, athafnaþrá hans og kapp. Hann var frábær ferðafélagi, jafnlyndur, úrræðagóð- ur, íjölfróður og léttur í máli. Jakob Löve var hamingjumaður. Ekki svo að skilja að líf hans hafí alla tíð verið dans á rósum. Síður en svo. Hann slapp ekki fremur en aðrir við áföll í lífínu. Ungur varð hann að treysta á sjálfan sig og alla tíð var hann sjálfstæður í hugs- un og athöfnum. En hamingja hans var fjölskyldan sem hann unni svo mjög. Heimilið glæsilegt við Lauf- ásveginn var umgjörð um þá ham- ingju sem hann naut meðal ástvina sinna. Hjá þeim var hugurinn hveija stund, og þeim vildi hann veita allt það er best hann megnaði. Jakob var fríður maður, snar í hreyfíngum, ákveðinn í skoðunum en jafnframt íhugull og athugull. Ekki var honum tíðrætt um einka- mál sin og kvartanir og víl vora honum ijarri. Tryggur var hann vinum sínum, hjálpsamur og ráð- hollur. Hann bar merki þess að hafa orðið að treysta á sjálfan sig { flestum hlutum. Jakob Löve var hrifinn burt mitt í önn dagsins. Of fljótt fór hann þá för sem ekki verður aftur úr snúið. Það var gott að eiga samleið með honum, dýrmætt að eiga hann að vini. Þökk fyrir samfylgdina. Haraldur Ólafsson. Umferðarslys. Árekstur tveggja bíla, annar ökumanna alvarlega slasaður og eftir fáeinar stundir er hann látinn. Fréttir af þessu tagi hafa verið óvenjutíðar að undan- fömu, en það er ekki fyrr en svo nærri er höggvið, að maður skynjar tii fulls hvað það er að missa fyrir- varalaust af sjónarsviðinu góðan vin um langan aldur og mág, Jakob Löve stórkaupmann. Jakob fæddist á ísafírði sonur Carls Löve (1876-1952) skipstjóra þar og síðari konu hans Þóra G. Jónsdóttur (1888-1972). Hann var næsfyngstur sjö alsystkina, en þau era Áskell, f. 1916, jurtaerfðafræð- ingur og fyrram prófessor í Kanada og Bandaríkjunum, og býr nú við hrakandi heilsu í Bandaríkjunum; Guðmundur, f. 1919, d. 1978, fram- kvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins; Þráinn, f. 1920, jarðvegsfræðingur, fyrram konrektor Kennaraháskól- ans; Jón, f. 1922, læknir og fyrram prófessor I Bandaríkjunum; Leó, f. 1921, d. 1939; Jakob og Sigríður, f. 1929, bókasafnsfræðingur og bókavörður við Fósturskóla Islands. Hálfsystkini Jakobs vora Davíð, f. 1903, d. 1974, sjómaður í Banda- ríkjunum; Áslaug, f. 1905, d. 1984; Soffía, f. 1907, búsett á ísafírði; Þorsteinn, f. 1910, múrarameistari í Reykjavík; Áskell, f. 1914, dó á fyrsta ári; og Svanlaug, f. 1919, d. \1987. Afkomendur þessara systkina allra era afarfjölmennir. Árið 1933 fluttust þau Carl og Þóra til Reykjavíkur. Þar bjó þessi stóra fjölskylda við þröngan kost í lítilli íbúð á Bergþórugötunni, þegar leiðir okkar lágu saman í barna- skóla. Ungur byijaði Jakob að vinna fyrir sér með blaðasölu og fór það ekki framhjá a.m.k. sumum hinum betur stæðu börnum, sem fengu aura hjá pabba og mömmu til kaupa á nauðþurftum til skólans, að Jakob aflaði sjálfur þess íjár, sem hann þurfti á að halda. Áskell, stóri bróð- ir Jakobs, tók hann gjaman með sér, þegar hann á menntaskólaáram sinum fór um nágrenni Reykjavíkur í leit að villtum jurtum. Þetta vakti áhuga Jakobs á útilífí og íslenskri náttúra, sem entist honum æ síðan og böm hans fengu að njóta í ríkum mæli í ferðum með föður sínum um landið þegar fram liðu stundir. Jakob stundaði nám í Samvinnu- skólanum og fór að því loknu til framhaldsnáms í Gautaborg þar sem hann lagði fyrir sig viðskipta- fræði. Eftir heimkomuna starfaði hann fyrst við Heildverslun Ás- björns Ólafssonar í Reykjavík, en síðar um skeið við tollendurskoðun. Ævistarf hans var þó við eigið inn- flutningsfyrirtæki, sem hann starf- rækti til dauðadags. Jakob var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Helga Guðbrandsdóttir, dóttir Guðbrands Magnússonar for- stjóra Áfengisverslunarinnar og konu hans Matthildar Kjartansdótt- ur. Þau eignuðust tvær dætur, Matthildi og Þóra. Matthildur, f. 30. apríl 1949, fluttist til Noregs og giftist Norðmanni, Rolf Billing- ton. Synir þeirra era André Hall- vard, f. 16. jan. 1968, og Snorre Jakob, f. 19. febr. 1973. Þau Matt- hildur skildu. Þóra, f. 9. apríl 1953, giftist Ómari Mássyni, húsasmið, og eiga þau þijár dætur, Sigrúnu Helgu, f. 2. ág. 1972, sem á tvo syni, Má Jóhann Arnarsson, f. 7. jan. 1990, og Einar Ágúst Erlends- son, f. 10. nóv. 1992, sambýlismað- ur hennar er Erlendur Einarsson; Inger Töra, f. 16. júli 1977, og Þórhildi, f. 25. okt. 1978. Þær Matthildur og Þóra hafa báðar fetað í fótspor föður síns og fengist við verslun og innflutning. Síðari kona Jakobs er Margrét Jónsdóttir, f. 19. júní 1937, MA í félagsfræði, kennari við Kvenna- skólann í Reykjavík og stundakenn- ari við Háskóla íslands, dóttir séra Jóns Þorvarðssonar fyrram prests í Vík í Mýrdal og síðar í Háteigs- söfnuði í Reykjavík og konu hans Laufeyjar Eiríksdóttur, sem nú er nýlátin. Böm Jakobs og Margrétar era Laufey Elísabet, f. 11. jan. 1965, stjórnmálafræðingur, gift Jóni Inga Herbertssyni, stjórnmála- fræðingi og starfsmanni Sameinuðu þjóðanna í New York, Karl Jakob, f. 20. júní 1966, rafmagnsverk- fræðinemi, og Þorvarður Jón, f. 25. júní 1974, menntaskólanemi. Öll þessi böm eru hin mannvæn- legustu. Nú söknum við vinar í stað, en sárastur er söknuður Margrétar og bamanna, sem svo snögglega hafa verið svipt ástríkum eiginmanni og föður. Við hjónin biðjum þeim Guðs blessunar í þeirri vissu, að minning- in um vammlausan dreng verði harminum yfírsterkari, þegar fram líða stundir. Jón Steingrímsson. Fregnin um skyndilegan dauða Jakobs Löve í bílslysi kom eins og þrama úr heiðskíra lofti. Hann var við góða heilsu og hefði að öllu eðlilegu átt mörg góð ár eftir. Þetta era erfiðir tímar fyrir Margréti syst- ur okkar og börn að sjá á bak eigin- manni og föður svo fyrirvaralaust. Aðeins era liðnir tæpir þrír mánuð- ir frá láti móður okkar systkina, Laufeyjar Eiríksdóttur. Aðdragandi að dauða hennar var talsverð þol- raun fyrir Margréti, sem alla tíð lagði sig fram til að gera henni líf- ið sem bærilegast, en mjög var kært með þeim mæðgum. Kynni okkar Jakobs hófust er hann kvæntist Margréti systur okk- ar Sigurgeirs fyrir tæpum þrjátíu áram. Var strax ljóst að þar fór mannkostamaður, greindur, vel að sér og hógvær. Aldrei féll nokkur skuggi á samskipti hans og fjöl- skyldna okkar bræðra. Hjónaband þeirra Margrétar var farsælt og hann rækti fjölskyldu sína með mestu prýði og samskiptin við böm- in voru náin og hlý. Þá sýndi hann foreldram okkar nærgætni og virð- ingu en faðir okkar Jón Þorvarðsson lifír tæplega 87 ára gamall. Eins og áður segir var Jakob fróður um margt og glöggur. Hann var í eðli sínu glaðsinna og gaman- samur. Náttúra landsins var honum kær og var gaman að vera ferðafé- lagi hans um byggðir og óbyggðir landsins. Störf sín að viðskiptum og verslun ræddi hann fremur lítið en hann hefur áreiðanlega verið heill í samskiptum við viðskipta- menn sína. Nú hefur líf hans skyndilega endað. Hans er sárt saknað af eigin- konu, bömum, systkinum, frænd- fólki, tengdafólki og vinum en minningin um hann mun lifa meðal okkar. Ólafur Jónsson. Við sunnanverðan Laufásveginn gefur að líta einhveija fallegustu götumynd í Reykjavík. Stór og sterkleg tré hafa þar vaxið upp af rótum sínum í fallegum görðum virðulegra húsa og það er líkt og íbúarnir hafí bundist sam- tökum um að gera umhverfíð að samfelldum skrúðgarði. Jafnt á vetri sem sumri er fallegt við Laufásveginn. Það er fallegt að sjá sterkar tijágreinarnar svigna undan jafnföllnum vetrarsnjó og mynda ævintýragöng skammdegis- ins. Það er líka heillandi þegar græn laufþekja sumarsins lætur vegfar- andann eitt andartak gleyma því að hann sé staddur við nyrstu mörk laufskóga. Friður og ró, gróðursæld og fu- glasöngur, virðuleiki og fegurð - allt þetta við sunnanverðan Laufás- veginn. Og Jakob. Jakob, yngsta föðurbróður minn og fjölskyldu hans var einnig að finna við þessa fallegu götu. Nátt- úrabamið og náttúruunnandann Jakob sem var svo ungur í hugsun og hreyfíngum að hann hefði eins getað verið bróðir og föðurbróðir. Þarna hafði hann sjálfur fest ræt- ur, þama hafði hann ræktað garð- inn sinn og þarna hafði hann búið fjölskyldunni öragga framtíð, börn- unum sínum bernskuheimili, ógleymanlegar bemskuslóðir. Allt með persónulegum blæ þeirra hjón- anna. Smekkvísi án pijáls eða íburðar og umfram allt með rólegu og virðulegu yfirbragði. Úr fallegu umhverfí heimaslóða reikar hugurinn um liðinn tíma. Fyrstu minningamar era um útivist og náttúraskoðun. Enginn var fundvísari á hreiður og enginn þol- inmóðari að útskýra. Bamgóður eins og svo algengt er í fjölskyld- unni, yfirvegaður og hlýr. Svo vænt þótti mér um þennan föðurbróður minn, að stundum öfundaði ég Hildu af að eiga hann að pabba. Þó átti ég sjálfur besta pabba í heimi og stundum vildi hún víst líka skipta. Áuk þeirra tengsla sem íslenskar fjölskyldur bindast og eiga ugglaust rætur að rekja til tíma stórijöl- t Elskuleg móðir mín og frænka, GUNNÞÓRA GÍSLADÓTTIR, Kleppsvegi 132, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 29. júní. Jarðarför auglýst síðar. Hafliði Þór Olsen, Hulda Sigurðardóttir. skyldnanna áttum við Jakob sam- starf fyrir fáum áram. Þar sannaði hann mér á nýjum vettvangi hvaða mannkostum hann var búinn. Lip- urð, yfiryegun og bjartsýni var stíllinn. Áreiðanleiki og orðheldni. En þótt hann gerði viðskipti að lífs- starfi sínu, missti hann aldrei sjónar á því semimestu skipti: Lífínu sjálfu. Ef til vill var það þess vegna sem aldrei varð úr honum það sem kall- að er viðskiptajöfur, auðlegð sá hann miklu meiri sjálfum sér nær. Fyrir honum var ekkert svo bratt að hann teldi ókleift. Oft komu mér þá í huga orð skáldsins - sem reyndar orti svo fallega um Laufásveginn -, að eig- inlega væri ekkert bratt, aðeins mismunandi flatt. Jakob var hamingjusamur í einkalífinu. Fjölskyldan í fyrirrúmi og börnin fengu þá fyrirmynd sem best varð á kosið. Yngri sonurinn er svo ungur enn að hann á eftir heilt ár til þess að ljúka stúdents- prófínu sem aðeins verður fyrsti áfanginn að þeirri framtíð sem fað- ir hans hafði óskað honum. Hin börnin hvert á sínum stað, öll búin að marka stefnuna. Ættboginn tek- inn að stækka og margfaldast. All- ir sóttu eitthvað til hans, hann var sem skjólið sterka, þessi fíngerði og ljúfí maður. En óvænt og skyndilega, á nýju sumri, daginn sem sólar nýtur lengst allra daga á árinu, taka for- lögin óvægið í taumana. Sterkasti stofninn úr fjölskyldulundinum að Laufásvegi 73 er fallinn. Eftir stöndum við öll og söknum, grátum, leitum huggunar í minn- ingunni og köllum hann fram í hugum okkar. Og mér fínnst hann segja glað- lega en þó alvöragefínn í senn: „Hva! Þetta er nú einu sinni það sem fylgir lífínu. Eða haldið þið að mér hefði fallið að verða gamal- menni?“ Síðan hefði hann stappað í okkur stálinu, bent okkur á að ekki tjóaði að fást um orðinn hlut, heldur ætt- um við að snúa okkur að framtíð- inni. Það verðum við líka að gera. Elsku Margrét, krakkarnir og öll fjölskyldan. Við skulum halda áfram að rækta garðinn okkar, við skulum gera það af kostgæfni, við skulum fara að því góða fordæmi sem við höfum. Því lífið heldur áfram, nýr gróður brosir við okkur á Laufásveginum sem annars stað- ar og við eigum alltaf það sem aldr- ei verður frá okkur tekið í góðum minningum um mætan og raungóð- an mann. Leó E. Löve. Ég mun alltaf minnast með þakk- læti hversu hlýjar viðtökur ég fékk hjá Jakobi og Margréti þegar ég fór að venja komur mínar á heimili þeirra hjóna fyrir rúmum fimm árum. Mér var tekið með opnum örmum og fannst mér ég fljótt hluti þessarar líflegu og nánu fjölskyldu. Hlýja og velvilji Jakobs í minn garð var mér, tilvonandi tengdasyninum, mikilvæg. Jakob var einstaklega jákvæður maður og ljúfur í um- gengni, brosið og glampinn í augun- um vora aldrei langt undan. Hann leit ávallt á björtu hliðar lífsins og var ekki að þyrla upp moldviðri út af smámálum. Seint mun ég gleyma þeim stund- um sem við áttum saman við mat- borðið á Laufásveginum. Undan- tekningarlaust vora það gleðistund- ir þar sem umræðurnar snerast gjarnan um atburði líðandi stundar eða sögur og minningar frá liðnum áram. Það var setið lengi og oft var mikið hlegið. Jakobs verður sárt saknað við það borð. Ekki gleymi ég heldur hversu hjálplegur hann var okkur Lauf- eyju. Alltaf var hann boðinn og búinn að aðstoða og rétta hjálpar- hönd. Það þótti honum sjálfsagt, sama hvernig stóð á. Það var sann- arlega gott, og mikið öryggi í því fólgið að eiga Jakob að. Eg veit að Laufey mun líka minnast þeirra góðu stunda sem þau feðginin áttu saman í gönguferðum sínum um hlíðar Esju. Áhugann á útiveru áttu þau sameiginlegan og kom Laufey alltaf endurnærð úr þeim ferðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.