Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 43 TENNIS / WIMBLEDONMOTIÐ Navratilova ogGrafá réttrileið STÚLKUR frá Tékkneska lýðveldinu héldu áfram að koma á óvart á Wimbledonmótinu í gær. Jana IMovotna, sem er f áttunda sæti á styrkleikalista mótsins, sigraði argentínsku stúlkuna Gabrielu Sabatini, sem er fjórða á styrkleikalistanum, með tveimur hrinum gegn engri í átta manna úrslitum í einliðaleik kvenna. Landa hennar Helena Zukova, sem sigraði Aröntxu Sanchez-Vicario i fjórðu umferð á mánudaginn, hafði lítið i spönsku stúlkuna Conc- hitu Martinez að segja, og tapaði 2:0. Steffi Graf og Martina Navrat- ilova tryggðu sér líka sæti í undanúrslitunum með auðveldum sigrum á andstæðingum sínum. Graf sigraði hina ungu Jennifer Capriati 7-6 og 6-1. Navratilova sigraði Natalíu Zverevu frá Hvíta- Rússlandi og átti ekki í erfiðleikum með það, sigraði 6-3 og 6-1. Navr- atilova mætir Novotnu í undanúr- slitunum og Graf hittir þar fyrir Martinez, og ef úrslit verða eftir bókinni ættu Graf og Navratilova að mætast í úrslitunum. Ekki nógu ákveðin í byrjun Graf byijaði ekki vel á móti Capr- iati og var með skýringar á reiðum höndum. „Ég var ekki nógu ákveð- in í byrjun og tapaði mörgum for- handarboltum,“ sagði hún. Capriati hefur aðeins einu sinni sigrað Graf í þau níu skipti sem þær hafa leik- ið saman, og það var sögulegur leikur; úrslitaleikurinn á Ólympíu- leikunum í Barcelona. Jana Novotna kom mörgum á óvart og ekki síst sjálfri sér þegar hún sigraði Gabrielu Sabatini í gær. Sabatini sagði eftir leikinn að hún hefði leikið vel, en Novotna hefði leikið mjög vel: „Uppgjafírnar hennar voru góðar og hún sló vart feilhögg." Navratilova sjálfsöryggið upp- málað Navratilova var sjálfsöryggið uppmálað bæði fyrir og eftir leikinn við Zverevu og blés á allar þær raddir sem segja að nú sé tími til kominn fyrir hana að láta yngri stúlkunum tennisvellina eftir. „Eg hef aldrei leikið betur á ferlinum," sagði hún á blaðamannafundi í gær. „Ég hef betri tækni, hreyfi mig meira en þær flestar - það er að vísu aðeins erfíðara að koma sér í gang.“ Navratilova hefur níu sinn- URSLIT Tennis Einliðaleikur kvenna á Wimbledon-mót- inu, 8-manna úrslit. 1- Steffi Graf (Þýskalandi) vann 7-Jennifer Capriati (Bandar.) 7-6 (7-3) 6-1. 8-Jana Novotna (Tékkn. lýðveldinu) vann 4- Gabriela Sabatini (Argentfnu) 6-4 6-3. 2- Martina Navratilova (Bandar.) vann Na- talia Zvereva (Hvíta-Rússlandi) 6-3 6-1. 6-Conchita Martinez (Spáni) vann 15- Helena Sukova (Tékkn. lýðveldinu) 6-1 6-4. Tvíliðaleikur karla, fjórðungsúrslit: Patrick Kuehnen (Þýskalandi)/Gary Muller (S-Afríku) unnu Royce Deppe (S-Afr- iku)/Mark Knowles (Hvita-Rússlandi) 6-2 6-4 7-6 (7-3). 1-Todd Woodbridge/Mark Woodforde (Ástr- aliu) unnu Jeremy Bates (Bretlandi)/Byron Black (Zimbabwe) 6-4 6-3 6-4. Tvíliða leikur kvenna, fjórðungsúrslit: 5- Mary Joe Femandez/Zina Garrison-Jack- son (Bandar.) unnu 4-Lori McNeil (Banda- r.)/Rennae Stubbs (Ástralíu) 7-5 7-6 (7-4) 6- Pam Shriver (Bandar.J/Elizabeth Smylie (Ástralíu) unnu 3-Arantxa Sanchez Vicario (Spáni)/Helena Sukova (Tékkn. lýðveldinu) 6-3 6-4. 1-Gigi Fernandez (BandarJ/Natalia Zvereva (H-Rússlandi) unnu 8-Jill Hether- ington (Kanada)/Kathy Rinaldi (Bandar.) 6-1 6-2. Knattspyrna NM-mót U-16 stúlkna Noregur - ísland...................8:0 um unnið sigur á Wimbledon og virðist vera í góðu formi til að bæta tíunda titlinum við. Hún sagði líka í gær: „Því nær sem ég er titl- inu þeim mun betur líður mér.“ Reuter Gleði og sorg Jana Novota frá Tékkneska lýðvelding fagnaði geysilega eftir að hún var búinn að leggja Argentínustúikuna Gabri- ellu Sabatini að velli á Wimbledonmótinu í gær, 6:4 og 6:3. Þar með var Novota búin að tryggja sér rétt í undanúrslit- um — þar sem hún keppir við Martina Navratilovu, sem er talin líkleg til að vinna sinn tíunda Wimbledontitil. KNATTSPYRNA Glæsimark Jóns Þóris Breiðablik sigraði ÍR 0:1 á heimavelli IR-inga í gærkvöldi í fýrsta leik 7. umferðar 2. deildar í knattspyrnu, í nokkuð daufum en jöfnum leik. Jón Þórir Jónsson skor- ■■■■■■ aði eina mark leiks- Stefán ins strax á 5. mín- Eiríksson útu, án efa eitt fal- skrífar legasta markið í deildakeppninni í sumar. Kristófer Sigurgeirsson gaf inn í teiginn frá vinstri, hægra megin í teignum lyfti Jón Þórir sér upp og tók boltann viðstöðulaust með bakfallsspyrnu í hornið nær. Fátt markvert gerðist FRJALSAR Tæplega tólf ára met slegið Kvennasveit Ármanns setti nýtt íslandsmet í 4x200 metra hlaupi á þriðjudagsmóti HSK sem haldið var á Varmárvelli í Mos- fellsbæ í gær. Sveitin hljóp á einni mínútu 43,72 sek., en gamla metið átti kvennasveit IR og var það tæp- lega tólf ára gamalt, sett í septem- ber 1981. Sveit Ármanns skipuðu þær Geir- laug Geirlaugsdóttir, Guðrún Arn- ardóttir, Sólveig Björnsdóttir og Svanhildur Kristjónsdóttir. í leiknum eftir það, liðin fengu sinn hvom skammtinn af dauðafærum sem þau ekki nýttu. Heldur lá á Blikum í síðari hálfleik, en þétt vörn þeirra bjargaði þeim alltaf. Kristófer Sigurgeirsson var langbestur Blika, en Úlfar Óttars- son stóð sig vel í vöminni og batt hana saman. Kristján Halldórsson stóð upp úr jöfnu liði ÍR. Amór gerði tvö Amór Guðjohnsen gerði sín fyrstu mörk fyrir Hácken í fjórtánda og síðasta leik liðsins fyr- ■■■■■■I ir sumarfrí i gær- Sverrir völdi. Hácken vann Guðmundsson þá góðan sigur á skrífar frá Malmö 4:2 á heima- Svíþjóð ve]jj efyr ag staðan hafði verið 1:2 í leikhléi. Á fyrstu mínútu síðari hálfleiks skallaði Amór í netið og langþráð fyrsta mark hans var staðreynd. Skömmu síðar bætti hann öðm marki við með góðu skoti úr víta- teig. Auk þess að gera tvö mörk átti Amór mjög góðan Ieik og var því ánægður eftir leikinn. Hann sagðist ekki hafa haft áhyggjur af markaleysinu, hann hefði leikið vel og því aðeins tíma- spursmál hvenær mörkin kæmu. Gunnar Gíslason var varamaður og kom inná í síðari hálfleik. Hlynur Stefánsson félagar í Örebro töpuðu 1:4 fyrir Halmstad og Degerfors, lið Einars Páls Tóm assonar, tapaði 2:4 heima fyrir Brage, neðsta liði deildarinnar. FOLK BRAGI Bergmann, milliríkja- dómari í knattspyrnu, hefur verið tilnefndur til að dæma leik Dan- merkur og Litháen í heimsmeist- arakeppninni í Kaupmannahöfn 25. ágúst. Línuverðir verða þeir Gísli Björgvinsson og Sæmundur Víglundsson, en varadómari Guð- mundur Stefán Maríasson. ■ HRAFNHILDUR GunnlaugS' dóttir skoraði þijú mörk fyrir KR gegn Stjörnunni, en ekki tvö eins og var sagt í blaðinu í gær. Kristr- ún Heimisdóttir skoraði ekki í leiknum. ■ SNÆVAR Hreinsson hefur gengið til liðs við Víking, en hann hefur leikið með Val og Völsungi. ■ MIÐAR á svörtu ganga kaup- um og sölum á Wimbledon. Þýsk- ur framkvæmdastjóri keypti 35 miða á aðalvöllinn fyrir 3,-94 millj. ísl. kr, en þegar hann mætti til leiks kom í ljós að miðarnir voru ógildir. Verð á einum miða er 3.492 kr., þannig að rétt verð fyrir miðana var rúmar 122 þús. kr. ■ MIKIÐ er um falsaða og ógildá miða í umferð. Fimm bandarískir tennisáhugamenn keyptu jafn- marga miða á 242 þús. kr., en þeir voru einnig ógildir. GOLF / EM Islenska landslið- ið aldrei verið sterkara w Islenska landsliðið í golfi mun hefja keppni á Evrópumóti landsliða í Marianské Lazne í Tékkneska lýðveldinu í dag. Fyrstu tvo dagana er spilaður höggleikur og ráða úrslit í hon- um niðurröðun þjóðanna í A, B eða C-riðii. Markmið íslenska liðsins er að lenda ekki neðar en í B-riðli, en hingað til hefur ís- lenska liðið leikið í C-riðli. íslenska landsliðið er yngsta sex manna landslið sem ísland hefur sent í Evrópukeppni. Með- alaldur leikmanna iiðsins er 22,3 ár. Úlfar Jónsson er elsti leik- maður liðsins, 25 ára. Liðið er einnig það forgjafarlægsta sem ísland hefur átt, en meðalforg- jöfín er undir núlli, eða +0,2. Forgjöf einstakra leikmenna: ÚlfarJónsson........ +3,0 Siguijón Axnarsson.. +1,0 Þorsteinn Hallgrímsson. 0,00 Þórður Ólafsson..... 0,00 Björgvin Sigurbergsson. -1,0 BjömKnútsson........ -2,0 Ikvöld 1. deild karla: KR-völlur: KR-Valur........kl. 20 2. deild karla: ísafjörður: BÍ - Þróttur R.kl. 20 Neskaupst.: Þróttur-UMFG....kl. 20 Sauðárkr.: Tindast. - Stjarnan..kl. 20 Ólafsfjörður: Leiftur - KA.kl. 20 S' Getraunadeildi m Miðvikudagur 30. júní - KR-vöilur kl. 20.00: Tæknivalsleikur KR - VALUR KR-ingar! Fjölmennum í nýju stúkuna og styðjum okkar menn. KR-klúbburinn hittist fyrir leik. Léttar veitingar. Skráning í knattspyrnuskóla KR alla virka daga í síma 27181. Tæknival llll FORMPRENT Hverlisgotu 78, simar 25960 - 25566 SKEIFAN 17 Piilbél/8294 12H REYKJAVÍK SlMI: 91 - 681665 FAX: 91-680664

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.