Morgunblaðið - 30.06.1993, Page 15

Morgunblaðið - 30.06.1993, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 15 Öldran og öldrunarþjónusta eftir Björn Þórleifsson Með batnandi heilbrigðisþjónustu, minnkandi fátækt og aukinni fræðslu fór öldruðum að fjölga í byijun þess- arar aldar. Við það fóru augu fræði- manna að beinast að öldrun sem rannsóknarefni og öldrunarfræðin varð til sem fræðigrein. Alþjóðlegt heiti hennar er „gerontologi", fengið að láni úr grísku. (Geron = öldung- ur, logi = fræði.) Fram að þeim tíma er talið að litlar breytingar hafí orið á áliti almennings á öldruninni, allt frá þeim tíma að Rómveijinn Publius Terentius Afer (f. 195 F.Kr.) skrif- aði í leikriti sínu „Phormio", að ellin væri sjúkdómur í sjálfu sér (Senectus ipsa est morbus) Ludvig Holberg (f. 1684) skrifaði í einni bóka sinna, að ellin væri höfn alls hins illa. (Senect- us omnium malorum portus est). Fram á okkar daga þekkjum við þá skoðun að ellin sé ein allsheijar eymd og sjúkdómar, þannig að segja má að eymdarsjónarmiðið hafí verið ríkj- andi gagnvart ellinni í a.m.k. 2000 ár. í dag getum við sagt sem svo, að fullyrðingar þeirra Terentiusar Afer og Holbergs hafi verið fordómar, þar sem þeim hafi verið varpað fram án þekkingar á raunveruleikanum. En auðvitað hafa þeir miðað við þá þekk- ingu sem aðgengileg var á þeirra dögum. Óldrunarfræðin er vissulega ung fræðigrein. Sem dæmi má nefna að við norræna háskóla er aðeins eitt prófessorsembætti í öldrunarfræð- um, en slíkt embætti var stofnað í Lundi í Svíþjóð á sl. hausti. Annars staðar á Norðurlöndum er kennsla á háskólastigi í öldrunarfræðum lítil og óskipuleg. í Svíþjóð og Noregi eru til öldrunarfræðastofnanir, sem sinna rannsóknum. Norska stofnunin gefur út tímaritið „Aldring og eldre“ (Öldrun og aldraðir). I Danmörku er til öldrunarfræðafélag sem gefur út tímaritið „Gerontologi og samfund" (Öldrunarfræðin og samfélagið). Fjölþætt fræðigrein Eitt af því sem e.t.v. gerir öldrun- arfræðina óaðgengilega til bæði kennslu og náms, er hve mörgum þáttum hún er ofín úr. í danska séð hvaða 10 til viðbótar hinum 11 gætu búið í þjónustuíbúð og ennþá síður ef um leið verður störf- um fækkað í umönnunarþjónustu. En þetta fellur að hugmyndinni um að fá getumeiri einstaklinga á staðinn. Að lokum þetta Öllu starfsfólki Sólheima var sagt upp um sl. mánaðamót. í dag, 27. júní, hafa aðeins örfáir verið endurráðnir nú síðustu daga. Þó hafa ýmsir þeirra aðeins 6 vikna uppsagnarfrest og þar af eru nokkrir komnir í sumarfrí. Þessar uppsagnir valda mikilli óvissu, bæði hjá starfsmönnum og heimil- ismönnum. Engar raunhæfar ástæður hafa verið gefnar fyrir þessari aðgerð. Það hefur kallað fram sterk viðbrögð hjá starfs- fólki. Þá rifjast upp ýmsir aðrir neikvæðir þættir í fyrri samskipt- um stjómar og starfsfólks og þá einkum ákvarðanir og tilskipanir sem snerta meðferðarstarf beint og óbeint, ákvarðanir teknar án undangenginnar umræðu hvað þá í samráði við starfsfólk. Þó að for- maður framkvæmdastjórnar hafi verið í stjórn heimilisins sl. 15 ár finnst fólki á vettvangi gæta skiln- ingsskorts á innra starfi og að það síðan bitni á skjólstæðingunum, heimilismönnunum sjálfum. Von- andi verður hægt að opna augu þeirra sem ráða ferðinni svo að þeir finni aftur hugsjón frumheij- ans og beini kröftum sínum að því að aðstoða þá sem mest eru þurf- andi fyrir aðstoð. Höfundur er fyrrverandi forstöðumaður á Sólheimum. 4 I t AR ALDRAÐRA í EVRÓPU 1993 „Með þessari grein er m.a. verið að reyna að benda á: — að öldruðum muni fjölga töluvert á komandi árum og ára- tugrim, — að sú fjölgun muni kalla á aukna þjónustu, — að aukin þjónusta krefjist fleiri starfsmanna — að starfsfólk þurfi meiri fræðslu um viðfangs- efni sín.“ öldrunarfræðafélaginu hefur stjómin svokallað fagráð sér til aðstoðar. í því ráði eru fulltrúar 33 fræðigreina og starfsstétta sem tengjast öldrun og öldrunarþjónustu. Heilbrigðis- stéttir eru áberandi í ráðinu, en ásamt félagsfræði og sálfræði hefur læknisfræðin átti dijúgan þátt í þró- un öldrunarfræðinnar. Með tilliti til þess að aukin tíðni sjúkdóma fylgir hækkandi aldri (þótt ellin sé ekki sjúkdómur í sjálfu sér) er einnig eðli- legt að heilbrigðisstéttirnar komi sterkar inn í greinina. En stöðugt fleiri fræðigreinar eru að tengjast öldrunarfræðinni. Guðfræðingar Loftnet og rafhlöður fyrir þráðlausa sima velta fyrir sér hvaða áhrif aldur hafí á trúarlíf fólks. Sagnfræðingar hafa skoðað sérstaklega hvemig staða aldraðra hafi verið gegnum söguna. T.d. hafa menn velt fyrir sér hvernig vistarbandið á íslandi hafí virkað fyrir þá sem ekki áttu jarðir sjálfir og vegna öldrunar gátu ekki sinnt vinnumennsku. Hvernig hefur „þjóð í hlekkjum hugarfarsins“ sinnt þörf- um sinna öldruðu einstaklinga? Þá hafa tölfræðingar og hagfræðingar þeir sem spá í mannfjöldaþróun velt fyrir sér hvemig fjölgunarsprenging- in, sem minnst var á hér í upphafi, muni hafa áhrif á þjóðarhag. Mun samtímis fækka einstaklingum sem em í atvinnu og halda þar með uppi framfærslu hinna sem ekki starfa? Mun börnum og unglingum fækka á sama tíma, þannig að fjöldi þeirra sem framfæra þarf verði í svipuðu hlutfalli og verið hefur? Þannig mætti lengi telja hvemig hinir ýmsu fræðimenn koma inn á svið sem tengjast öldrunarfræði. En þótt fræðigreinin sé fjölþætt og e.t.v. óaðgengileg þess vegna, þá er hún til og með hennar aðstoð er hægt að koma í veg fyrir að fólk hafi skoð- un þeirra Holbergs og Terentiusar á ellinni. Þekkingin kæfir fordómana Sem betur fer hefur mikil framþró- un orðið í öldrunarþjónustunni á síð- ustu ámm, þótt e.t.v. skorti nokkuð á að allir séu samstiga í uppbygging- unni. Með vaxandi fjölda þeirra sem starfa með öldruðum eða fyrir þá eykst svo þörfín fyrir fræðslu á sviði öldmnarfræði. Örlítið er byijað að koma til móts við þá þörf. Endur- menntunarstofnun Háskóla Islands hefur haldið tvö námskeið í grein- inni. Öðm lauk í apríl sl. en hið fyrra var haldið á vommánuðum sl. ár. Ármúlaskóli er farinn að bjóða sjúkr- aliðum sérstaka fræðslu í umönnun aldraðra. Háskólinn á Akureyri hefur stofnað prófessorsembætti í öldmn- arhjúkmn. Allt þetta sýnir að áhug- inn er að aukast. Enn skortir þó á samvinnu og samráð við aðgerðirnar. Samræmd könnun á þekkingu starfsfólks í öldmnarþjónustu á öldr- un og öldmðum var gerð í 3 norræn- um bæjum í janúar og febrúar sl. Bæirnir vom Akureyri, Namsos í Noregi og Östersund í Svíþjóð. Lagð- ar vom 25 spumingar fyrir starfs- fólk á þrenns konar vinnustöðum, hjúkmnardeildum, heimaþjónustu og á dvalarheimilum (þjónustuhúsnæði). Fjöldi þeirra sem svömðu var 69 í Namsos, 75 í Östersund og 90 á Akureyri. Langt mál þyrfti til að gera grein fyrir öllum niðurstöðum þessarar könnunar, en eftirfarandi skal tínt til: Starfsfólkið á Akureyri svaraði að meðaltali 13,6 spurningum rétt af 25. í Östersund var árangurinn örlít- ið betri, 13,9, en í Namsos var meðal- talið 15,1 svar rétt. Við nánari athug- un kom í ljós að fræðsla í öldmnar- fræðum hafði verið mest í Namsos, þótt engan veginn væri hún talin nægileg þar. Starfsreynsla virtist skila sér í meiri vitneskju um öldmn, en aðal- lega þó um þau atriði sem fjalla um afturför og hrömun. Þeir sem höfðu starfað lengst með öldmðum og þeir sem störfuðu á hjúkmnardeildum höfðu neikvæðasta sýn á öldrun. Þá hafði starfsfólkið í öllum löndum til- hneigingu til að álíta aldraða miklu fleiri og sjúkari en þeir em í raun og vem. Sagnir um einmanaleika, hræðslu og fleira lifír góðu lífi meðal starfsmannanna og vart verður við ýmsa lífseiga fordóma. Sameiginleg niðurstaða þeirra sem stóðu að könnuninni var sú, að þörf fyrir fræðslu væri bersýnileg í þess- um þremur sveitarfélögum. Ekki er ástæða til að ætla að ástandið sé mikið betra á öðmm stöðum. Kennslu í öldrunarfræðum þarf að koma í Björn Þórleifsson auknum mæli inn í menntun þeirra stétta sem sinna öldmnarþjónustu. Sú spuming hefur einnig vaknað, hvort nokkuð veiti af að fræða fram- haldsskólanemendur, ogjafnvel efstu bekki grannskóla eitthvað um efri árin og hvað þeim fylgir. Þurfa ekki allir að vita sitt af hverju um alla hluta æviskeiðsins? Lokaorð Með þessari grein er m.a. verið að reyna að benda á: — að öldruðum muni ijölga töluvert á komandi áram og áratugum, — að sú fjölgun muni kalla á aukna þjónustu, — að aukin þjónusta krefjist fleiri starfsmanna — að starfsfólk þurfi meiri fræðslu um viðfangsefni sín. Þess sjást víða merki að menn séu að búa sig undir að takast á við þessi verkefni og geri sér grein fyrir mikilvægi þeirra. En vert er að minna á, að það getur verið gott að vera samstíga, svo ekki sé stefnt í ólíkar áttir. Samræmi þarf að vera í þjón- ustu alls staðar á landinu og síðast en ekki síst þarf almenn og aukin fræðsla um öldrunarfræði að vera með samræmdum hætti. Höfundur er deildarstjóri Oldrunardeildar Akureyrarbæjar. Hverfisgötu 18, gegnt Þjóðleikhúsinu, 101 Reykjavík, sími: 28636. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1977-2.fl. 10.09.93-10.09.94 kr. 979.936,70 1978-2.fl. 10.09.93-10.09.94 kr. 626.044,80 1979-2.fl. 15.09.93-15.09.94 kr. 408.114,90 INNLAUSNARVERÐ *) FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL Á KR. 10.000,00 1985-1 .fl.A 10.07.93-10.01.94 kr. 57.983,30 1985-1 .fl.B 10.07.93-10.01.94 kr. 32.624.30**) 1986-1 .fl.A 3 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 39.967,10 1986-1.fl.A 4 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 44.365,70 1986-1.fl.A 6 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 45.922,20 1986-1 .fl.B 10.07.93-10.01.94 kr. 24.061,60**) 1986-2.fl.A 4 ár 01.07.93-01.01.94 kr. 37.218,00 1986-2.fl.A 6 ár 01.07.93-01.01.94 kr. 38.446,80 1987-1 .fl.A 2 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 31.578,90 1987-1 .fl.A 4 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 31.578,90 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. **)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júní 1993. SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.