Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 7 Viðbrögð útgerðarmanna og sjómanna við aðgerðum ríkissljórnarinnar Gengisbreyting tímabær og frek- ari aðgerða þörf - segja tveir útgerðarmenn TVEIR útgerðarmenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær töldu gengisbreytingar löngu tímabærar og ennfremur að frekari aðgerða væri þörf. Þá segja útgerðarmenn að tilkynnt- ur niðurskurður aflaheimilda þurfi ekki að koma á óvart. Frekari aðgerða þörf „Þessi niðurskurður aflaheim- ilda hefur vofað yfir í langan tíma og í sjálfu sér kemur hann ekki á óvart,“ sagði Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa. „Ég hef.sagt það í heilt ár að aflasamdráttur hlyti að kalla á aðgerðir en ég lít svo á að þær séu ráðstafanir fyrir liðna tíð því að undanförnu hafa orðið miklar verðlækkanir á okkar vör- um. Ég tel því að frekari aðgerða sé þörf.“ Gunnar vildi taka það skýrt fram að ekki kæmi annað til greina en að úthlutað verði að fullu úr Hagræðingarsjóði til að jafna áhrifin yfir landið. „Það er ljóst að einstakir landshlutar fara lang- verst út úr niðurskurðinum og má þar nefna Norðurland eystra sem dæmi.“ Aðgerðir réttlætanlegar Sveinn Ingólfsson, útgerðar- stjóri Skagstrendings hf.," taldi ákvörðun sjávarútvegsráðherra um niðurskurð aflaheimilda löngu Hörð viðbrögð sjómaima og smábátaeigenda Ríkisstjórnin gengnr of langt í niðurskurði Aflaheimildir á næsta fiskveiðiári skerðast verulega frá því sem þær eru í ár samkvæmt ákvöðrun ríkisstj órnarinnar tímabæran. „Ég sagði það í fyrra þegar skýrsla Hafrannsóknar- stofnunar birtist að eftir henni ætti að fara nákvæmlega og ég er enn þeirrar skoðunar. Okkur hefði verið nær að draga saman afla í fyrra.“ Aðspurður kvaðst hann ekki vera viss hvort nógu langt væri gengið í samdrætti afla. „Ég held að við séum að taka svo mikla áhættu að ítrasta mark verði að taka á fiskifræðingum Ha- frannsóknarstofnunar og sérstak- lega á meðan við höfum ekki nein- ar aðrar upplýsingar áreiðanlegri. Ástandið er það slæmt að ekki er öruggt að við náum upp í þann kvóta sem okkur verður úthlutað á næsta fiskveiðiári.“ Sveinn sagðist styðja gengisfell- ingu ríkisstjórnarinnar en vill kalla aðgerðir ríkisstjórnarinnar gengis- leiðréttingu. „Þessi leiðrétting hefði átt að koma fyrr og er löngu tímabær." Hann ítrekaði jafn- framt þær skoðanir sínar að ríkis- stjórnin og Alþingi eigi að ganga á undan í sparnaði. „Það eru ekki bara fyrirtækin sem þurfa að end- urskoða og spara heldur þarf að ná meiri sparnaði í allri stjórn þjóð- arinnar,“ sagði Sveinn að lokum. Tekjumöguleikar rýrðir verulega Þorlaugur Pálsson hjá útgerðar- félaginu Hrönn hf. á Ísafírði sagði að niðurskurður á heildarafla án nokkurra leiðréttinga þýddi um 500 tonna niðurskurð hjá þeim. „Það sjá það allir að ef aðalfiskteg- undin er skert um og yfir fjórðung þá hefur það gífurleg áhrif á tekju- möguleika fyrirtækisins,“ sagði Þorlaugur. Hann sagði aðge'rðir ríkisstjórnarinnar vega nokkuð upp á móti niðurskurðinum en í tilfelli skuldugustu fyrirtækjanna kæmi gengisfellingin sér mjög illa. í máli Þorlaugs kom fram að aflaheimildir þessa fiskveiðiárs væru hvergi nærri fullnýttar og taldi hann líklegt að allur geymslu- réttur fyrirtækisins yrði nýttur eða um 400 tonn. Heimtum ekki það sem ekki er til „Þessi niðurskurður á þorskafla þarf ekkert að koma á óvart,“ sagði Jóhann K. Sigurðsson, út- gerðarstjóri hjá Síldarvinnslunni á Neskaupstað. „Það þýðir ekkert að heimta það sem ekki er til og veiði undanfarið staðfestir að ekki er mikið um fisk í sjónum. Það er mín skoðun að fara verði var- lega enda sýnir reynslan að þorsk- stofninn er ekki burðugur. Ég deili því ekki á þessar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar,“ sagði Jóhann að endingu. SMÁBÁTAEIGENDUR halda því fram að ríkisstjórnin hafi gengið of langt í niðurskurði með aðgerðum sínum um helg- ina og telja að sér vegið. Það er mat Arthurs Bogasonar, formanns Landssambands smábátaeigenda, að aðgerðirnar bitni harðast á sjómönnum og eigendum smærri skipa og báta. Sævar Magnússon, sjómaður á Ólafsvík, lýsti því yfir í samtali við Morgunblaðið að ráðamönnum gangi það eitt til að útrýma skipum sem séu minni en 100 tonn. Bitnar hart á smábátaeigendum „Ég er mjög sleginn yfir þessum aðgerðum,“ segir Arthur Bogason, formaður Landssamtaka smábáta- eigenda. „Það er því miður augljóst að þær bitna langharðast á smá- bátaeigendum og þar heggur enn í sama knérunn þar sem smábátaeig- endur hafa þegar þolað miklar skerðingar. Ég harma það að ekki hafi farið fram gagnrýnin umræða um þau plögg Hafrannsóknastofn- unar, sem eru lögð til grundvallar þessum skerðingum." Aðspurður kvaðst hann óttast að aðgerðir ríkisstjórnarinnar leiði til þess að sjómenn og smábátaeigend- ur fyllist vonleysi en það hafí verið nóg fyrir. „Það er tvennt ólíkt þeg- ar skorinn er niður kvóti hjá ein- staklingum eða þegar það gerist hjá stórum öflugum útgerðarfélög- um. Einstaklingar hafa miklu minna svigrúm til aðgerða til að sporna við samdrætti í rekstri. Það er þó sem glæta í myrkrinu að ríkisstjórnin hyggst nota Hag- ræðingarsjóð til jöfnunar og að hún viðurkenni að alvarlegt misrétti hafi viðgengist í aflamarkskerfinu. Að mínu mati hefði ekki verið nein goðgá að leyfa sama heildar- afla og í fyrra. Það dylst engum að það er minna af fiski í sjónum nú en áður og að við verðum að fara varlega en með síðustu aðgerð- um tel ég að ríkisstjórnin hafi geng- ið allt of langt. Það þarf að rækta mannlíf, ekki bara þorsklíf,“ sagði Arthur Bogason að lokum. Ástandið er mjög alvarlegt Sævar Magnússon sjómaður á Ólafsvík segir ástandið vera mjög alvarlegt meðal sjómanna og út- gerðarmanna smærri skipa og báta. „Við á Jóni Guðmundssyni ÍS, sem er 11 tonna bátur, höfum tapað megninu af kvóta okkar eða um 80% kvótans á aðeins þremur árum. Það hefur ekki komið nægilega skýrt fram í fjölmiðlum hversu al- varleg tekjuskerðing okkar er í raun og veru. Fólk sem er í svipuðum sporum og ég berst í bökkum og á erfitt með að standa í skilum. Það reynir aftur á móti að bjarga sér meðal annars með því að leigja kvóta. Ég efast ennfremur um að hinir háu herrar eins og Þorsteinn Pálsson þyldu 80% tekjuskerðingu." Skipum undir 100 tonnum útrýmt „Þetta ástand er satt að segja orðið of skuggalegt. Það er hrein- lega verið að útrýma öllum skipum sem eru 100 tonn og smærri að stærð. Það er hluti af þeirri stefnu að reyna koma öllum veiðum á fáar hendur. Sem dæmi um óréttlætið er misskipting við úthlutanir úr Hagræðingarsjóði. Þar er stórum útgerðarfélögum, sem vart ráða við kvóta, úthlutað fleiri hundruð tonn- um á sama tíma og við fáum aðeins úthlutað 8 þorskígildistonnum.“ Aðspurður um afleiðingar síðustu aðgerða, sagði Sævar: „Þetta kost- ar stríð, sjómenn munu hundsa ákvarðanir ráðamanna. Þeir fara ekkert að svipta allan flotann veiði- leyfum sínum. Ég fyrir mitt leyti get ekki virt svona ákvarðanir og þá styðst ég við þá skoðun mína að í sjónum sé miklu meiri fiskur en hinir lærðu fískifræðingar vilja vera láta,“ sagði Sævar að lokum. Sunny Van Sendibfll ársins 1993 á ótrúlega hagstæðu verði Ingvar Helgason hf. Sævarhöfði 2, 112 Reykjavík P.O. Box 8036, Sími 674000 Enn og aftur hlýtur Nissan viðurkenningu. I þetta sinn var Sunny Van kosinn „sendibíll ársins 1993“. Sunny Van er lipur og einstaklega rúmgóður, sendibíll með vökva og veltistýri og 1600 rúmsentimetra vél Farmrými 2,68 m3 Burðargeta 520 kg Hurðarop aftan br: l,20m h: 1,12 m.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.