Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 31 Minning Inga Þórarinsson Jakob var tekinn frá okkur allt of fljótt. Við áttum svo margt eftir að gera, spjalla og upplifa saman. Hans verður sárt saknað en við sem þekktum hann geymum í hjörtum okkar minninguna um heilsteyptan og góðan mann. Jón Ingi Herbertsson. Við sumarsólhvörf, fyrr í þessum mánuði, þegar sólin fer hæst á himni, lést vinur minn Jakob Löve af völdum bifreiðaslyss. Fyrirvara- laust var sár harmur kveðinn að ættingjum og vinum við andláts- fregnina. Mig langar í þessum örfáum orð- um að minnast Jakobs og lýsa þakk- læti mínu fyrir hin góðu kynni okk- ar og samfylgd. Aðrir munu trúlega greina frá ætt hans og lífshlaupi. Eg átti því láni að fagna að kynn- ast Jakobi þegar Ómar sonur minn kvæntist Þóru dóttur hans. Við þau kynni og allar götur síðan skildist mér æ betur hve góðan mann hann hafði að geyma. Hann var ástríkur fjölskyldufaðir, heiðarlegur og rétt- sýnn. Góðrar ættar var hann, hafði marga góða eðliskosti, skarpa greind, réttlætiskennd og dreng- lund. Mér munu ávallt verða minnis- stæðir fundir okkar og samræður, því þótt hann væri fremur alvöru- gefinn var stutt í brosið og kímnina og skemmtilegu tilsvörin. Samskipti okkar voru hin ánægjulegustu og það var einkar gaman og gagnlegt að ræða við hann um hin óskyld- ustu mál. Hann gat verið gagnrýn- inn á ýmislegt sem miður fer í mannlífinu og bar fyrir brjósti þá sem halloka fóru í lífinu. Jakob hafði fastmótaðar skoðanir varð- andi þjóðfélagsöflin, stjómmálin, andlegar hreyfingar og þjóðlífið al- mennt. Hugur hans beindist að réttlátu þjóðfélagi þar sem sérhver maður ætti kost á að fá að njóta sín, sér og sínum til gæfu og geng- is. Jakob heitinn var persónuríkur, kom mjög vel fyrir og bar með sér virðuleik hins fágaða og hæverska manns. Ég held að Jakob hafi verið hamingjusamur maður, hann átti afburða góða konu og mannvænleg böm. Nú er þessi mæti maður genginn á fund Herra síns. Hans er sárt saknað og þessi fáu kveðjuorð frá okkur Helgu og Ómari eru til að þakka honum fyrir hina góðu sam- fylgd. Við biðjum Guð að blessa hann og vottum Margréti, bömum og ættingjum dýpstu samúð okkar. Már Jóhannsson. „Pabbi hans Kalla er dáinn!“ sagði Hrönn konan mín _við mig eftir vinnu á mánudegi. Ég hafði fengið fregnir af því að hann hefði lent í alvarlegu slysi en vonaðist til að allt færi vel. Við þessa sorglegu frétt varð mér fyrst hugsað til Margrétar, bamanna þeirra Jakobs og hve mikil áhrif þetta ætti eftir að hafa á líf þeirra. Það er erfítt að trúa að Jakob sé dáinn því að hann var sérstak- lega hress og vel á sig kominn. Hann hafði alltaf verið duglegur að taka mig og Kalla með sér í ýmsar ferðir og máttum við hafa okkur alla við að fylgja honum eftir í gönguferðum. Hann labbaði yfír- leitt hraðar en við og blés varla úr nös sem er meira en hægt var að segja um okkur „unglingana". Eg kynntist Kalla fyrir u.þ.b. tuttugu ámm þegar við vomm sjö eða átta ára og fór fljótlega að vera fastur gestur á Laufásvegin- um. Ekki leið á löngu þar til ég fékk að koma með Jakobi og Kalla í veiðiferðir og í þeim ferðum var Jakob alltaf hjálplegur. Hann tók það aldrei í mál að ég tæki þátt í kostnaði vegna veiðileyfa, ferða með Akraborginni o.s.frv., hann sá um allt með bros á vör og leysti öll vandamál .sem geta komið upp hjá litlum strák sem gleymir stund- um einhveiju heima. Þannig kom ég oft heim úr veiðiferð með Jakobi stoltur og rjóður í kinnum með fisk í soðið og strax farinn að hlakka til næstu ferðar. Elsku Margrét, Kalli, Þorvarður og Laufey, ég samhryggist ykkur og öðrum aðstandendum innilega. Hjalti. Fædd 7. september 1918 Dáin 7. júní 1993 Hún var fastagestur í galleríinu, kom svo að segja á hveija einustu sýningu, jafnt þótt rok væri og rigning, eins og svo oft var í vor. Hún gekk við staf og var alltaf með húfu á höfðinu eða klút bund- inn undir kverk. Af andliti hennar og einkum brosi stafaði birtu og fas hennar aljt bar vott um fágun og lítillæti. Ég vissi í fyrstu engin deili á þessari konu, en veitti því athygli að hún skoðaði sýningarnar af ein- lægum áhuga og þekkingu að því er mér virtist. Enda kom það á daginn síðar að hún hafði ekki ein- ungis sótt málverkasýningar og aðrar listsýningar í áratugi, heldur hafði hún einnig sjálf fengist við að mála. „Ef ég hengdi upp mynd- ir eftir sjálfa mig, tók ég þær fljótt niður aftur, af því að ég fann að þær voru ekki nógu vel gerðar,“ sagði hún við mig nýlega. Eg þyk- ist vita að þarna hafi komið fram lítillæti hennar, en jafnframt kröfu- hart listrænt mat. Hún gaf sér jafn- an góðan tíma til að skoða sýning- ar og lét gjaman viðurkenningar- orð_ falla, ef henni líkaði vel. Ég laðaðist fljótt að þessari konu og gladdist ævinlega við komu hennar. Við urðum fljótlega mál- kunnugar, en ræddum aldrei per- sónuleg mál utan eitt sinn í fyrra- sumar að hún sagðist fylgjast með mér og hugsa vel til mín í sam- bandi við tiltekið málefni sem ég átti aðild að og var málsvari fyrir ásamt fleirum á opinberum vett- vangi. Það var ekki fyrr en í síð- asta skipti sem hún kom, rétt fyrir nýliðna hvítasunnu, að tal okkar snerist meira um persónulega hluti. Hún sagði mér eitt og annað af sjálfri sér, stiklaði á einstaka atriði í lífi sínu með þjóðkunnum og virt- um vísindamanni og hvað það hefði breytt miklu fyrir sig þegar hann féll frá. Hún sagði mér frá þýðing- arstörfum sínum, hvað þau hefðu veitt sér mikla ánægju, en jafn- framt hvað það hefði verið gott að hætta þegar hún ákvað það sjálf, þótt verkefnin væru næg. Hún lét orð falla um það hvað vináttan skipti miklu máli og að gömul tengsl rofnuðu ekki. Það var auð- heyrt að samband hennar við börn hennar tvö var henni afar dýr- mætt. Ég sagði henni lítið eitt af mínum högum og sýndi henni myndir sem ég hef alltaf meðferðis af börnum mínum og barnabörnum. „Áttu ekki mynd af manninum þín- um?“ spurði hún. Jú, reyndar, nokkurra ára passamynd af honum gat ég sýnt henni. „Ja-há, þetta var garnan," sagði hún þá og brosti sínu bjarta brosi. Mér fannst að með því að veita þessa litlu innsýn inn í persónulegt líf hvor annarrar, breyttust kynni okkar í vináttu. Eg sagði henni að galleríinu yrði brátt lokað, a.m.k. í bili, og að ég væri að hætta að vinna þar. Við kvöddumst með góðum óskum hvor annarri til handa, en minntumst ekki á að við myndum sjást aftur. Mig grunaði þó ekki að þú vær- ir á förum og það snart mig undar- lega þegar ég heyrði tilkynningu um lát þitt, en ég held að þú hafir verið tilbúin, Inga. Ég kynntist þér aðeins innan veggja FIM-salarins í Garðastrætinu, en ég þakka fyrir þau kynni og bið Guð að blessa þig á leið þinni til hins eilífa ljóss og þína nánustu á þeirra vegferð. Þorbjörg Daníelsdóttir. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, LÁRA AGÚSTSDÓTTIR, lést 29. júní á elliheimilinu Grund. Fyrir hönd vandamanna, Ágúst Sverrisson. t Ástkær eiginkona mín, GUÐRÍÐUR HALLSTEINSDÓTTIR, Langholtsvegi 36, lést á heimili sínu þann 29. júnf. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Stefán Valdimarsson. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, EINAR EINARSSON fyrrv. djákni, til heimilis á Heiðarbrún 20, Hveragerði, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands fimmtudaginn 17. júní sl. Jaröarförin hefur fariö fram. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Súsanna Vilhjálmsdóttir, Gunnar Einarsson, Grétar Einarsson. + Hjartkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORKELL ÓLAFSSON, Stórholti 37, verður jarösunginn frá Fossvogskapellu á morgun, fimmtudaginn 1. júlí, kl. 13.30. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Sigríður Unnur Ottósdóttir, Svanhvft Gróa Ingólfsdóttir, Tryggvi Þór Aðalsteinsson, Eðvarð Ingólfsson, Svanhildur M. Ólafsdóttir, Jón Steinar Ingólfsson, Berglind H. Ólafsdóttir, Dóra Ingólfsdóttir, Svavar Ingvason, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR PÁLL BÖÐVARSSON tjónaeftirlitsmaður, Grýtubakka 6, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 1. júlf kl. 13.30. + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Stóra-Nýjabæ, ■ Krýsuvik, Langeyrarvegi 18, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 1. júlí kl. 13.30. Róbert Bjarnason, Kristján Róbertsson, Steinunn Eirfksdóttir, Bjarni Sævar Róbertsson, Nanna G. Ásmundsdóttir, Sveinbjörn H. Sveinbjörnsson, Sigurborg Róbertsdóttir, Magnús Guðbjartsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGUR ÞORSTEINSSON, Ránargötu 1a, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. júlí kl. 15.00. Guðlaug Sveinsdóttir, Aðalheiður Gunnlaugsdóttir, Guðbjartur Guðbjartsson, Guðrún Alexandersdóttir, Gísli Guðjónsson, Anna Ragna Alexandersdóttir, JimmyTan, Sveindfs Alexandersdóttir, Guðmundur Óskarsson og barnabörn. + Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður og bróður, GUNNARS MARINÓS HANSEN, Vesturbergi 78, Reykjavík. Unnur Sólveig Vilbergsdóttir, Vilborg Gunnarsdóttir og systkini. + Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúö og hlýhug við frófall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- fööur og afa, SIGURBJÖRNS BJARNASONAR, Hamarsstfg 26, Akureyri. Axelfna Stefánsdóttir, Viðar Sigurbjörnsson, Þorbjörg Sigurfinnsdóttir, Birgir Þór Sigurbjörnsson, Kristfn Haraldsdóttir, Margrét Sigurbjörnsdóttir, Hjörtur Gfslason, Steinunn Sigurbjörnsdóttir, Tómas Hansson, Stefán Geir Sigurbjörnsson og barnabörn. + Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduö okkur samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móöur okk- ar, tengdamóður, ömmu, systur og dóttur, VALBORGAR SIGURJÓNSDÓTTUR. Heimir Kristinsson, Sindri Már Heimisson, Matthildur Aradóttir, Sindri Rafn Sindrason, Sigrún Vilborg Heimisdóttir, Þórhallur Kristjánsson, Sigurlaug Elsa Heimisdóttir, Einar Sigurjónsson, Aðalbjörg Sigurjónsdóttir, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Elsa Höjgaard.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.