Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JUNI 1993 19 Þjóðræknisfélag- ið heiðrar Maij- orie Arnason ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG íslend- inga veitti á föstudag Maijorie Árnason, ekkju Ted Árnason fyrr- verandi bæjarstjóra í Gimli í Kanada, heiðursviðurkenningar- skjal ásamt forsetapeningi, en hún hefur unnið að þjóðræknismálum um áratuga skeið. Marjorie Áma- son hefur meðal annars skipulagt og annast ferðir Vestur-Islend- inga hingað til lands undanfarin fimmtán ár, en að sögn Jóns Ás- geirssonar formanns Þjóðræknis- félagsins hefur verið ákveðið að halda þjóðræknisþing hér á landi á næsta ári. Þing eðlisfræðinga haldið á Laugarvatni ÞING eðlisfræðinga og eðlisefnafræðinga frá ýmsum háskólum í Evr- ópu stendur yfir að Laugarvatni dagana 30. júní-2. júlí. Þar koma saman sérfræðingar og nemendur í doktorsnámi, meistaraprófsnámi og háskólakennarar frá Kaupmannahafnarháskóla, Stokkhólmshá- skola, haskolanum i Bergen, hásk Háskóla Islands. Vísindamenn þessir eiga það sam- eiginlegt að leggja stund á rannsókn- ir á áhrifum árekstra ljóseinda og/eða efniseinda af ýmsu tagi. Þótt rann- sóknir þessar séu á sviði grunnrann- sókna og beinist öðru fremur að því að öðlast dýpri skilning á eiginleikum efnisins eða samverkan ljóss og efnis almennt, þá tengjast öll verkefnin beint eða óbeint tækniþróun eða ný- sköpun af ýmsu tagi eins og ætíð gildir um grunnrannsóknir í raunvís- indum, segir í fréttatilkynningu. Þinghald þetta er styrkt af NORFA („Nordiska forskarutbildningsaka- dernin") sem starfrækt hefir verið á vegum norræna ráðherraráðsins frá 1990 með það að markmiði að efla samvinnu meðal fræðimanna og vís- indamanna á Norðurlöndunum. í Utrecht í Hollandi sem og íslenskar rannsóknir kynntar Framlag Háskóla íslands til þessa norræna þings er kynning á rann- sóknum á sviði eðlisefnafræði undir stjórn Ágústs Kvarans prófessors við Raunvísindastofnun Háskólans, sem stundaðar hafa verið í samvinnu við háskólastofnanfr bæði í Bretlandi, Bandaríkjunum og Frakklandi um nokkurt skeið. Meðal annars verður greint frá nýlegum niðurstöðum og túlkun mælinga á sundrun efnis með háorkuleysigeislun sem nemendur í rannsóknatengdu framhaldsnámi hafa kannað hérlendis að undan- förnu. Umræddar rannsóknir hafa verið styrktar af Vísindasjóði og er- lendum aðilum. A Islenskt kvöld í Norræna húsinu Dagskrá fyrir norr- æna ferðamenn HEIMIR Pálsson cand.mag. heldur fyrirlestur fimmtudaginn 1. júlí á sænsku um íslenska menningu og nefnist hann „Islándsk kultur genom tiderna". Hann mun rekja sögu íslenskrar menningar í stórum dráttum. Að loknum fyrirlestrinum verður kvikmyndin „Utbrottet pá Hemön“ sýnd. Kaffihlé verður eftir fyrirlest- urinn og í kaffistofu er hægt að fá gómsætar veitingar m.a. ijóma- pönnukökur. Kaffistofan er opin til kl. 22 á fimmtudagskvöldum í sumar. Fimmtudagskvöldið 8. júlí flallar Kári Halldór (á sænsku) um efnið „Islándsk teater i dag“. Aðgangur er ókeypis að íslands- kvöldi og eru allir velkomnir. Norræna húsið hefur undanfarin þijú sumur staðið að fyrirlestrum um íslenskt samfélag fyrir norræna gesti hússins. Á sunnudaginn 4. júlí kl. 16 flytur Einar Karl Haraldsson yfir- lit á sænsku um gang þjóðmála á íslandi. Allir eru velkomnir og gefst fólki tækifæri á að koma með fyrir- spurnir á meðan á yfirlitinu stendur. Ljóð vikunnar að þessu sinni valdi danski rithöfundurinn Bjari Reuter sem fékk norrænu bamabókaverð- launin að þessu sinnirHann kemur og veitir þeim móttöku í Reykjavík í þessari viku. (Fréttatilkynning) Kristín B. Hilmarsdóttir fótaaðgerðafræðingur á stofu sinni. ■ FÓTAAÐGERÐASTOFA stofan er opin öllum. í Félagsmið- Krístínar er flutt frá Furugrund stöðinni er einnig boðið upp á hár- 3 í Félagsmiðstöð aldraðra, snyrtiþjónustu fyrir dömur og herra Fannborg 8, Kópavogi. Kristín og er sú starfsemi rekin af Heiðu veitir ellilífeyrisþegum afslátt, en Hrönn Hreiðarsdóttur. Nýr sendiherra Bret- lands á Islandi skipaður NÝSKIPAÐUR sendiherra Bretlands á íslandi, Michael Hone, kom til landsins 28. júní. Hann hefur verið starfandi landstjóri á St. Helena, eyju undir breskri stjórn í sunnanverðu Atlants- hafi, sl. þrjú ár, segir í frétt frá breska sendiráðinu. Ennfremur segir: „Michael Hone er víðfömll og reyndur starfsmaður bresku utanríkis- þjónustunnar og hefur unnið í Karabíska hafinu, Afríku,_ Mið- Austurlöndum, Evrópu og Ástral- íu. Og mörg þau svæði sem hann hefur ekki ferðast um í utanríkis- þjónustunni hefur hann heimsótt meðan hann sinnti sínu fyrra starfi í konunglega sjóhernum. Michael Hone er kvæntur Elizabeth Balmer, lækni, og eiga þau tvö börn, Barnaby níu ára og Rebecca sem er fjögurra ára. Fjölskyldan hlakkar mikið til að koma til íslands, skoða landið og kynnast fólkinu. Hone fjölskyldan er mikið útivistarfólk og eiga þau sér þá ósk að geta eytt eins mikl- um tíma og mögulegt er í göngu- ferðir hér. Einnig mála hjónin vatnslitamyndir og hafa mikinn áhuga á náttúrufræði og forn- leifafræði. Aðalmarkmið sitt sem sendi- herra bretadrottningar á íslandi telur Michael Hone vera að við- halda nánum og aldargömlum tengslum Bretlands og Islands, verkefni sem öll fjölskyldan mun hjálpast að við að leysa.“ (Fréttatilkynning) Michael Hone, .nýskipaður sendiherra Bretlands á íslandi. Agóði af barnabók gef- inn Krabbameinsfélag’inu KRABBAMEINSFÉLAGI íslands voru nýlega færðar að gjöf 150 þúsund krónur sem er ágóði af sölu barnabókarinnar Freyjusög- um sem kom út fyrir tæpum tveimur árum. Höfundur Freyju- sagna var Kristín Finnbogadóttir frá Hítardal sem lést fyrir rúmum tveimur árum en hún hefði orðið 65 ára þann 30. júní 1993. Kristín eða „Lalla“ eins og hún var ætíð köklluð, fæddist í Hítard- al í Mýrarsýslu árið 1928. Lang- yngst og eina systirin í hópi 10 bræðra. Kristín hlaut það uppeldi og þá menntun sem ungum stúlk- um í sveit stóð til boða á fyrri hluta aldarinnar. Um 1950 hélt hún til Englands til leiklistarnáms. Þar giftist hún og bjó allt til ævi- loka, fyrst í London og nágrenni og síðar í Norwich þar sem hún lést hinn 15. júní 1991, tæpra 63 ára að aldri. Áður en Kristín lést hafði hún gengið frá fimmtán frumsömdum söguköflum af kettinum Freyju, en kettir og önnur dýr voru jafnan í miklum metum á heimili hennar. Sögurnar eru af því tagi sem for- eldrar segja börnum sínum eftir að þau eru komin upp í rúm á kvöldin. Ragnheiður Steindórs- dóttir, leikkona, las sögurnar í útvarp fyrir fáeinum árum. Börn Kristínar og eiginmaður, sem öll búa í Englandi, höfðu for- göngu um að gefa bókina Freyju- sögur til að heiðra minningu henn- ar. Að hennar ósk er Krabba- mein.sfélaginu færður sá ágóði sem af sölunni hlýst. Kristín Finnbogadóttir frá Hít- ardal. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS í 1.FL.B.1985 Hinn 10. júlí 1993 er sautjándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í l.fl.B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 17 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 5.000,- kr. skírteini = kr» 538,30 " " 10.000,-kr. " = kr. 1.076,60 " " 100.000,-kr. " = kr.10.766,00 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1993 til 10. júlí 1993 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 3282 hinn 1. júlí 1993. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr.17 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 12. júlí 1993. Reykjavík, 30. júní 1993. SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.