Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 PALL OSKAR HJALMTYSSON • FÆDDUR 1970 Lenti í einelti Grafísk hugmynd um það hvernig ungl- ingur ég var er svona: Eg var skikkanlega þybbinn, burstaklipptur með kringlótt andlit. Eg mætti næstum því *alltaf í sömu fötunum í skólann; það voru brúnar flauelisbuxur, skyrta með kín- akraga og brúnn trefíll. Ég sat alltaf einn úti i horni í skólanum, ég sem sagt var og er einfari. Það var ekki fyrr en ég var kominn í níunda bekk að ég fór að sitja með einhverjum, þá eignað- ist ég líka fyrstu vin- konu mína. Það gerðist á frekar heppilegum tíma þegar ég var 15-16 ára og allt var svo æðislega viðkvæmt. En ef það er eitt- hvert eitt orð sem ég get notað um mig sem ungling þá er það „nörd“. Ég hafði áhuga á allt öðrum hlutum en hinir krakk- , amir, ég þoldi ekki einu sinni tónlistina sem þau hlustuðu á. Ég fílaði reyndar Eurythmics en ekki til dæmis Wham! og Duran Duran. Svo var auðvitað breikæðið, ég reyndi ekki einu sinni að breika. Einelti. Ég var alltaf með sama fólkinu í bekk og það var því alltaf sama fólkið sem gerði í því að klappa mig niður. Og það fékk það alveg, ég meina, það komst al- veg upp með það. Ég lenti í einelti, þótt ekki væri nema bara vegna þess að ég spilaði ekki fótbolta, ég höndlaði það ekki. Ég var frekar í brennó, teyjó eða sippó og var meira að segja mjög klár í því. ^Þessi ár mín frá því að ég var tólf til sext- *án ára vom lifandi helvíti og ég veit að þetta eru verstu ár ævi minnar. Þó eitt- hvað alvarlegt eigi eftir að henda mig í framtíðinni, slys eða sjúkdómar eða eitt- hvað svoleiðis, þá er ég miklu betur und- ir það búinn, en ég var fyrir unglingsárin. Ég á allavega eftir að taka áföllum áallt annan hátt. Umskiptin. Ég dútlaði mikið og dundaði og það hefur komið að góðum notum í því sem ég hef tekið mér fyrir hendur seinna meir. Þegar ég svo kláraði sam- ræmdu prófin, með miklum glans, fór ég í MH Þar kynnt- ist ég stelpu sem heytir Bryn- hildur Björnsdóttir og eftir það opnuðust bara flóðgáttir af hreinni hamingju. Og það var þá fyrst sem ég fattaði hvað ég hafði verið bældur og vitlaus. Ef framinn byijaði einhversstaðar þá var það í MH Ég tók þátt í öllu félagslífi skólans og fannst það ógeðslega gaman. Þar hlóð ég upp þessari orku sem ég hef í dag. Ferillinn. Ég ætlaði ekki að verða söngvari. Þeg- ar ég reyndi að syngja lög sem voru vin- sæl þá gekk það ekki hjá mér og ég sá fram á að ég yrði aldrei poppstjarna. Svo fór ég að syngja lög frá sjötta áratugnum og það kom flott út. Þá fattaði ég að ég var á réttri hillu. En það var Brynhildur vinkona mín sem skráði mig í söng- keppni framhaldsskól- anna, án þess að spyija mig hvort ég vildi vera með. Mér gekk ágætlega og þar kynntist ég líka Móeiði Júníusdóttur og við settum af stað jassgr- úppu og við urðum svo fræg að verða húshljómsveit á Hótel Valhöll. Við vorum svona eins og Fríða og dýrið, ég var Fríða. Svo kom Rocky Horror og eftir síðustu sýninguna á því hringdi einhver karl í mig og bauð mér vinnu. Þannig byijaði þetta að vinda upp á sig, fleiri tilboð, nokkur blaðaviðtöl og svo er maður bara orðinn frægur. Að lokum. Ég er mjög upptekinn af unglingsárum mínum og það sem ég er að gera í dag má að miklu leyti rekja til þess tíma. Börn og unglingar geta verið svo grimm, algjör skrímsli og mér finnst að þau þurfi að taka meira tillit hvert til annars, ekki stríða stráknum sem er með minnsta tipp- ið og svoleiðis. Það er sannfæring mín að allir sem eru „nörd“ á unglingsárum verða annaðhvort fræg andlit í þjóðfélaginu eða lögregluþjónar þegar þeir fullorðnast. STJÖRNUR 9G S O F IS KAR Baldvin: Mætti vera fjörugra skemmtanalíf á Akureyri FRAMUNDAN Hólmasel: Kvöldvaka í Indjánagili við Elliðaár 30. júní 1993. Hittumst i Hólmaseli kl. 20.00. Allir fara saman niður eftir annaðhvort á hjólum eða á tveimur jafnfijótum!! Þar hittum við unglinga frá félags- miðstöðinni Arseli og sláum upp hressilegri kvöldvöku með gítarspili og söng. Einnig geta þeir sem vilja komið með eitt- hvað á grillið. Tennistilkynning 14. júlí 1993 Við fáum tenniskennara í heimsókn sem leyfir ungling- unum að spreyta sig í tennis og kennir þeim nokkur undir- stöðuatriði. Vellimir verða settir upp á planinu við Selja- kirkju og hefst kynningin kl. 20.00. Spaðar og boltar verða á staðnum. Arsel: Opið hús á mánudags- og miðvikudagskvöldum kl. 20-23. Fellahellir: Opið hús á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 20-23. Tónabær: Opið hús á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 20-23. Þróttheimar Opið hús á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 20-23. Siglingaklúbburinn: Opið starf á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudög- um kl. 17-19, fimmtúdögum kl. 17-22 og laugardögum kl. 13-16. M.a. eru leigðir út ára- Skemmtanalíf á Akureyri Baldvin Zophoníasson, 15 ára. Það mættu vera fleiri skemmtistaðir fyrir unglinga, það er bara einn skemmtistaður og það er lítið hægt að gera hérna. Það vantar svona skemmtistað sem er opinn leng- ur fram á nótt svo maður þurfi ekki alltaf að vera að fijósa í bænum. Dynheimar bjóða bara upp á böll og svo er kannski einu sinni á ári einhver smá skemmtun og stundum nám- skeið á vetumar. Það þarf líka fleiri staði eins og Billann og Gilið þar sem fólk hittist og tal- ar saman, þar sem engin tónlist eða neitt slíkt truflar. Svona yfir heildina fínnst mér skemmt- analíf á Akureyri fyrir unglinga frekar dauft. STEYPA Vonast til að finna Excalibur Strákur með röntgenaugu finnur fjársjóði grafna í jörðu. Steypan kemur frá vikuritinu The Sun. Þar segir frá ótrúlegum röntgenaugum Marks Smith sem greina fjársjóði sem grafnir eru djúpt í jörðu. Hann hefur m.a. fundið 200 ára gamlan hníf, skeið frá 19. öld, 2.000 ára gamla smápeninga og útskorinn luktar- krók, en slíkir krókar voru notaðir á bresk- um skipum fyrir rúmum 100 árum. Mark er 22 ára gamall iðnskólanemi frá Colchester í Englandi og þessi einstaki hæfileiki hefur vakið með honum von um að finna sverð Arthúrs konungs, Excalibur. Mark segist hafa búið yfir yfirnáttúruleg- um gáfum frá barnsaldri, en röntgensjónin er tiltölulega nýtilkomin. Þegar hann var lítill lék hann sér við draugabörn, en honum til mikilla vonbrigða yfirgáfu þessir framl- iðnu leikfélagar hann þegar hann varð eldri. „Ég varð mjög leiður, en ég held að þau hafi gefið mér þennan hæfileika til að sjá grafna hluti í skilnaðargjöf." Safnarar og aðrir áhugasamir hafa boðið Mark þúsundir dollara fyrir sumt af því sem hann hefur fundið. Hingað til hefur hann þó verið ófáanlegur að selja nokkuð, því hann er hræddur um að missa hæfileikann ef hann fer að græða á honum. ■■B SAMVISKUSPURNINGIN Bustar þú tennurnar á hveijum degi? Sveinar Gunnarsson 14ára Nei, svona annan hvern dag, en það fer samt eftir því hvað ég er búinn að borða mikið nammi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.