Morgunblaðið - 30.06.1993, Side 3

Morgunblaðið - 30.06.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 3 Olli banaslysi undir áhrifum kannabis Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi Bílar á gömlu gengi vinsælir NOKKUR bílaumboð seldu í gær bíla á „gamla genginu", þ.e. verð þeirra hafði ekki verið hækkað eftir gengislækkun. Þar á meðal voru Ingvar Helgason og Bílaum- boðið og að sögn forsvarsmanna umboðanna var mikil eftirspurn eftir bilum áður en verð þeirra hækkaði. Að sögn Friðriks Sturlaugssonar sölustjóra hjá Bílaumboðinu hækkar verð á þeirra vinsælasta bíl, Renault 19, eftir verðbreytingu um 8% eða um 103 þúsund krónur vegna gengis- lækkunarinnar. „Það hefur verið það vel tekið í verðstöðvun okkar að við erum að hugsa um að framlengja hana út vikuna. Verðstöðvunin skilar sér beint í aukinni sölu.“ ESAB = HEÐlNN = TRAUSTAR VÖRUR OG ÞJÓNUSTA VIÐ ÍSLENSKAN FISKIÐNAÐ OG SJÁVARÚTVEG DANFOSS HÁÞRÝSTIVÖKVAKERFI Drifbúnaöurfyrir spil o.fl. • Radial stimpildælur • Vökvamótorar. ESAB ALLT TIL RAFSUÐU Vélar • Vír • Fylgihlutir. MONO OG FLYGT DÆLUR Fiskidælur • Slógdælur. INTERROLL / JOKI FÆRIBAN DAMÓTORAR. MONO flýgt INTERROLL joKi I þjónustudeild okkar veita sölumenn fúslega faglegar upplýsingar - hafið samband MAÐUR sem varð valdur að banaslysi er hann ók bifreið gegn rauðu tjósi á Sæbraut í Reykjavík 11. mai 1992 var í gær dæmdur í Héraðs- dómi Reykjaness í 60 daga skilorðsbundið varðhald. Auk þess var hann sviptur ökuréttindum í tvö ár og dæmdur til greiðslu sakar- kostnaðar. Maðurinn viðurkenndi að hafa neytt kannabisefna skömmu áður en slysið varð. Maðurinn var ákærður fyrir að aka bifreið undir slíkum áhrifum kannabisefna að hann hefði verið ófær um að stjórna henni örugg- lega. Sannað þótti að hann hefði ekið bifreiðinni á allt að 80 km hraða á klukkustund inn á gatna- mót við Holtaveg þrátt fyrir að rauð ljós loguðu á götuvitum fyrir akst- urstefnu hans. Þar rakst hann á kennslubifreið með þeim afleiðing- um að ökuneminn, ung stúlka, lést af áverkum sem hún hlaut við slys- ið. Sannanir skorti Maðurinn neitaði því að hafa ekið undir slíkum áhrifum kannab- isefna að hann hefði verið ófær um að stjórna bifreiðinni. Fram kemur í dómnum að sést hafði til ferða ákærða og fieiri manna í hrauni skammt frá Hrafnistu í Hafnar- firði. Þar hafí þeir sótt eitthvað í gjótu og skömmu síðar sást að reyk lagði út um opinn glugga á bifreið ákærða. Lögregla fann síðar hass- pípu í gjótu á þessum stað og hafði sýnilega verið nýbúið að reykja úr henni. Ákærði játti því í yfirheyrsl- um að hafa reykt leifar af hassi skömmu fyrir slysið en kvaðst ekki hafa verið undir áhrifum af efninu áhrifa þegar hann gaf skýrslu hjá lögreglu þann dag. í dóminum segir að fullnægjandi sönnunargögn skorti um það hvort ákærði hafi verið undir slíkúm áhrifum kannabisefna að hann hafi ekki verið fær um að stjórna bifreið- inni örugglega. Ákærði var dæmdur til 60 daga varðhalds en fullnustu refsingar er frestað og hún fellur niður að liðn- um tveimur árum haldi ákærði al- mennt skilorð. Þá var hann dæmdur til greiðslu 70 þúsund kr. sektar, sviptur ökuréttindum í tvö ár og dæmdur til að greiða sakarkostnað og málsvarnarlaun. Dóminn kvað upp Sigurður Hallur Stefánsson héraðsdómari. Morgunblaðið/PPJ Sauðfjárflutningar á Breiðafirði Flateyingar fluttu fyrir skömmu sauðfé sitt úr eynni á fastalandið til sumargöngu þar. Að venju eru notaðir mótorbátar við flutningana. Féð var sett um borð í tvo báta í Vesturbúðavör í Flatey og siglt með það til Þorskafjarðar. Þetta þykir ætíð viðburður á Breiðaíjarðareyjum. Allt að 80% fiska í þorsk- afla smábáta eru of smáir þegar slysið varð. Blóðsýni var tek- ið úr hinum ákærða daginn eftir slysið og í skýrslu rannsóknastofu Háskóla íslands segir að öruggt sé að sá sem sýnið var tekið úr hafi neytt kannabis. Ákærði viðurkenndi jafnframt að hafa fundið til vímu- Kjarvalsverk á hálfa milljón OLÍUMÁLVERK á striga eftir Jóhannes Kjarval var í síðustu viku selt á uppboði hjá Sotheby’s í Lundúnum fyrir 5 þúsund pund eða um 500 þúsund islenskar krón- ur. Verkið er meðalstórt, heitir Sumar og sýnir mosa og hraun að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur, fulltrúa Sotheby’s á íslandi. Nafn kaupanda myndarinnar var ekki gefið upp. „Vissulega eru þetta ánægjuleg tíðindi. Samt er best að fólk geri sér ekki of miklar vonir, þótt það sé mikill áfangi að selja íslenskt mál- verk í gegnum stórt alþjóðlegt upp- boðsfyrirtæki. íslensk myndlist er að mestu ókunn á hinum alþjóðlega listaverkamarkaði og þar af leiðandi er varla hægt að búast við því að útlendingar standi í biðröðum erlend- is til að kaupa íslenska myndlist,“ sagði Sigríður. ALGENGT er að hátt hlutfall fiska í þorskafla smábáta, allt að 80%, sé undir 55 sentimetra viðmiðunarmörkum, sam- kvæmt nýrri athugun eftirlitsmanna Fiskistofu. Beitt er skyndilokunum á veiðisvæðum, þar sem meira en 25% þorskaf- lans eru undir þessum viðmiðunarmörkum. Þessar niðurstöð- ur koma á óvart að sögn Guðna Þorsteinssonar fiskifræð- ings, þar sem hefð er fyrir því að lítið sé um smáfisk í afla smábátanna og þeir hafa ekki verið háðir skyndilokunum. Athugun Fiskistofu var fram- kvæmd á síðastliðnum þremur vik- um, í mörgum sjávarplássum um allt land. Að sögn Guðna er hlut- fall fiska undir viðmiðunarmörk- um mjög mismunandi, bæði eftir bátum og stöðum. Þannig er fiskur Þingeyringa til dæmis stærri en trillusjómanna á nálægum stöðum. „Það hefur frá fornu fari verið talið að handfærabátarnir gætu sleppt undirmálsfiski lifandi í sjó- inn og við höfum ekki verið að angra þá með skyndilokunum, enda er kannski erfitt að vera að senda þá langt út á haf,“ sagði Guðni. Hann sagði að ástæðan fyrir því hvað niðurstöðurnar væru mismunandi eftir bátum væri sennilega að hluta til sú að vanir sjómenn kynnu að forðast bletti með smáum fiski. í reglugerð segði að trillusjómönnum bæri að sleppa öllum þorskfiskum undir 50 sentimetrum, ef hann væri þesslegur að geta lifað, en henni hefði ekki verið framfylgt. Verðmunur hefur minnkað „Verðmunur á stórum fiski og smáum hefur minnkað. Það hefur leitt til þess að menn passa sig ekki á smáfiskinum og landa hon- um, eins smáum og hægt er að fá eitthvert verð fyrir,“ sagði Guðni. „Þetta er kannski gott að því leyti að ekki er verið að henda fiski dauðum í sjóinn, heldur fer allt á vigtina og er nýtt. Hins veg- ar er ekkert sem hvetur menn til að fara frekar í stórfiskinn." Guðni sagði að nú væri rætt um að draga úr veiðum krókabáta á næsta fiskveiðiári og þeir fengju ekki að veiða ótakmarkað á út- haldstímanum. „Þá minnkar vandamálið sjálfsagt eitthvað," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.