Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
5
Annar skipstjóra björgimarbátsins Hannesar Þ. Hafstein í Sandgerði
„Hefur tvímælalaust
sannað ffildi sitt“
Kcflavík. ^
„BÁTURINN hefur tvímælalaust sannað g-ildi sitt og tilgang á
þeim stutta tíma sem hann hefur verið hér. Síðustu daga hefur
verið mikill erill og við erum búnir að fara 1 5 útköll á nokkrum
dögum,“ sagði Kristinn Guðmundsson annar skipstjóranna á Hann-
esi Þ. Hafstein, björgunarbáti Slysavarnafélags íslands sem stað-
settur er í Sandgerði. Síðasta útkallið var aðfaranótt sunnudags
og þá fór Hannes Þ. Hafstein til móts við togarann Jón Vídalín
ÁR sem þurfti að koma slösuðum skipverja í land. Lagt var af
stað um klukkan tvö og mættust skipin þrem tímum síðar um
40 sjómílur suðaustur af Sandgerði. Vel gekk að koma skipverjan-
um, sem var slasaður á fæti, frá borði og var komið með hann
til Sandgerðis um klukkan átta um morguninn.
Lagt af stað í björgunarleiðangur
HLUTI af áhöfninni við sama tækifæri, en að þessu sinni voru fleiri
í áhöfn en venjulega þar sem tveir félagar í Sigurvon sem eru sér-
þjálfaðir í skyndihjálp fóru með í þessa ferð.
Björgunarskipið Hannes Þ. Haf-
stein sem Slysavarnafélag íslands
keypti frá Þýskalandi í vor er
mannað af félögum í björgunar-
sveitinni Sigurvon í Sandgerði og
eru þeir allir sjálfboðaliðar, að
vélstjóranum Ragnari _ Kristjáns-
syni undanskildum. Áhöfnin er
■skipt á tvær vaktir, 5 til 7 manns
á hvorri, og eru skipstjórarnir
tveir, Kristinn og Aðalsteinn
Guðnason. Þeir skiptast á að
standa bakvaktina ásamt áhöfnum
sínum. Kristinn starfar hjá Fisk-
markaðinum hf. í Sandgerði og
Aðalsteinn er starfsmaður hjá
Sandgerðishöfn og hefur náðst
samkomulag við vinnuveitendur
þeirra um að þeir fái sig lausa úr
vinnu þegar neyðartilfelli koma
upp. Það sama á við um aðra
áhafnarmeðlimi sem stunda hin
margvíslegustu störf í Sandgerði,
á Keflavíkurflugvelli og víðar á
Suðurnesjum. Þeir björgunarsveit-
armenn eru með eigið boðkerfi og
eru fljótir að bregðast við þegar
kallið kemur.
I kringum þjóðhátíðardaginn
kom mikil hrina og þá fór Kristinn
og áhöfn hans í fjögur útköll á
liðlega einum sólarhring. Þá sigldu
þeir 70 sjómílur út af Reykjanesi
með kafara til að skera úr skrúf-
unni á togaranum Stefni ÍS sem
hafði fengið trollið í skrúfuna og
tók sú ferð 15 tíma. Kristinn sagði
að Hannes Þ. Hafstein væri af-
\
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Skipstjórinn
KRISTINN Guðmundsson annar af tveim skipstjórunum á björg-
unarskipinu Hannesi Þ. Hafstein að leggja af stað í leiðangurinn
þegar hann ásamt félögum sínum sóttu slasaðan skipverja af togar-
anum Jóni Vídalín ÁR 40 sjómílur suðaustur af Sandgerði.
bragðsgott skip og þeir hefðu ekki
lent í neinum erfiðleikum eða
vandamálum með skipið. Kristinn
sagði að við venjulegar aðstæður
væri ganghraði bátsins um 12-14
sjómílur en í neyðartilfellum þegar
aðalvélin væri keyrð yrði gang-
hraðinn 18-20 mílur. Sigurvon á
björgunarbátinn Sæbjörgu sem
keyptur var frá Skotlandi og með
tilkomu Hannesar Þ. Hafstein var
hann lánaður björgunarsveitinni á
Patreksfirði, en mikið er af smá-
bátum út af Vestfjörðum á þessum
árstíma. Björgunarsveitin Sigur-
von í Sandgerði er elsta starfandi
björgunarsveitin á landinu, var
stofnuð 23. júní 1928 og á því 65
ára afmæli um þessar mundir.
Formaður er Sigtryggur Pálsson
og eru félagar um 25.
- BB
•«
UR;
Listin er fyrir alla!
.1 Pvttáuu - GuöenJ, ™*r «.js-
Stórdæsilegri
Ustahátíð
lýkur í kvöld
Alþjóðlegu listahátíðinni í Hafnarfirði lýkur í kvöld.
Tugþúsundir hátíðargesta hafa notið í Hafnarfirði
fjölbreyttra listviðburða mörg hundruð listamanna,
íslenskra sem erlendra.
Ánægjulegur og viðburðarríkur mánuður er nú á enda.
Stjóm Listahátíðarinnar vill nota tækifærið og þakka
hátíðargestum og listamönnunum sjálfum fyrir
þátttökuna.
Bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði er einnig þakkaður
mikilvægur skilningur á gildi listarinnar í daglegu
lífi okkar allra.
P
V ALÞIÓÐLEC
^ LISTAHÁTIP
I hafnarfirpi
4.-30. JUNI
■ ■■
LISTIN ERFYRIRALLA!