Morgunblaðið - 30.06.1993, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
ATYIMHW.^;-lG:[ý'5/^ lCr.AP.
WBm HHHr HHB HHB ^HHB BHB ^HHB ^HBHB^^ ~ .» # M f -**^ » » rn m.
Kennarar
Kennara vantar að Barnaskólanum á Eyrar-
bakka. Um er að ræða almenna kennslu,
einkum yngri barna.
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
98-31141 eða 98-31117.
Kennarar
Kennara vantar að Grunnskólanum í Búðar-
dal frá 1. september ’93 til 15. mars ’94.
Ýmsar kennslugreinar.
Umsóknarfrestur til 5. júlí.
Skólastjóri.
Götugrillið
Óskum eftir að ráða reyklausan, elskulegan,
skemmtilegan, duglegan og ferskan starfs-
kraft til framtíðarstarfa við almenn störf á
Götugrillinu, unglegum, sólríkum og indælum
stað í Borgarkringlunni.
Ýtarlegar upplýsingar um fyrri störf og nám,
helst meðmæli og mynd, sendist Ruth Bergs-
dóttur, pósthólf 3056, 123 Reykjavík.
Sjúkrahús Akraness
Skrifstofumaður
Sjúkrahús Akraness auglýsir stöðu
skrifstofumanns lausa til umsóknar.
í starfi skrifstofumanns felast m.a. merkingar
og færslur bókhalds, útskrift reikninga og
önnur almenn skrifstofustörf. Æskilegt er að
umsækjandi hafi stúdentspróf eða hliðstæða
menntun, þekkingu á bókhaldi og reynslu í
notkun tölva.
Vinnutími er frá kl. 8.00 til 16.00.
Best væri að umsækjandi gæti hafið störf
sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skrif-
stofustjóri í síma 93-12311.
Umsóknir sendist til skrifstofustjóra Sjúkra-
húss Akraness fyrir 8. júlí.
Samstarfsaðili
Nýstofnað hlutafélag apótekara, Sveipur hf.,
leitar eftir samstarfsaðila til þess að annast
dreifingu á vörum til hluthafa.
Þeir, sem áhuga hafa á samstarfi, sendi fyrir-
spurnir til stjórnarformanns, Werners Ras-
mussonar, pósthólf 3130, 123 Reykjavík, fyr-
ir 8. júlí nk., og verður þá haft samband við
viðkomandi.
Sveipur hf.
Sérkennari
Sérkennara vantar í heila stöðu í Bústaða-
skóla næsta skólaár.
Upplýsingar veitir skólastjóri í símum
33000/33628.
Svæðisskrifstofa máiefna
fatlaðra Reykjanesi
Hefur þú metnað ístarfi?
í starfsemi Svæðisskrifstofu er lögð áhersla
á vönduð og framsækin vinnubrögð í þjón-
ustu við fatlaða. Vel er búið að starfsfólki
hvað varðar faglegan stuðning og möguleika
til símenntunar. Einnig er í allri starfsemi
lögð áhersla á skilvirkt skipulag starfshátta
og gæðasókn í vinnubrögðum, t.d. með starf-
semi gæðastarfshópa.
Nýtt sambýli
Nú í haust tekur til starfa nýtt sambýli í
Hafnarfirði á vegum Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra á Reykjanesi.
Á sambýlinu, sem staðsett er við Steinahlíð
í Hafnarfirði, munu búa 5 mikið fatlaðir ein-
staklingar.
Forstöðumaður
og annað starfsfólk óskast
Svæðisskrifstofan leitar eftir starfsfólki á
* þetta nýja sambýli. Óskað er eftir að ráða
til starfa þroskaþjálfa eða aðra með fag-
menntun í uppeldis- og félagsgreinum og
reynslu af starfi með fötluðum.
Umsóknarfrestur er til 24. júlí 1993.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást á Svæðisskrifstofu Reykjanessvæðis,
Digranesvegi 5 í Kópavogi, sími 641822.
WtÆKWÞAUGL YSINGAR
Jörðin Nýlendi í
Hofshreppi, Skagafirði
er til sölu. Veiðiréttindi.
Tilboð óskast í jörðina, munnlegt eða skrif-
legt, til Hjartar Jónssonar, Káragerði, Eyrar-
bakka, fyrir 10. júlí.
Heimilisiðnaðarkonur!
Seljum ísameiningu og spörum
útgjöld
Óskum eftir að komast í kynni við 8-10
konur, sem vinna að heimilisiðnaði, með
sameiginlega verslun í huga.
Þær, sem hafa áhuga, hringi í síma 681270
milli kl. 12 og 16.
frá Seðiabanka íslands um sölu- og skila-
skyldu erlends gjaldeyris og skráningar-
skyldu reikninga hjá erlendum innláns-
stofnunum.
Seðlabanki íslands vekur athygli viðkomandi
aðila á 16. gr. reglugerðar nr. 471/1992 um
gjaldeyrismál, 1. og 2. málsgr. sem hljóða
svo:
Sölu- og skilaskylda erlends gjaldeyris.
„Um sölu- og skilaskyldu erlends gjaldeyris,
sem innlendir aðilar eiga eða eignast fyrir
seldar vörur, þjónustu eða á annan hátt, gilda
eftirfarandi reglur:
1. Henni telst fullnægt með sölu til innlends
aðila, sem heimild hefur til milligöngu um
gjaldeyrisviðskipti skv. 8. gr. laga nr.
87/1992, um gjaldeyrismál, innan eðlilegs
frests frá því hann komst í umráð eiganda
eða umboðsmanns hans.
2. Henni telst fullnægt með innleggi á reikn-
ing í erlendri mynt í innlendri innlánsstofn-
un, sbr. 13. gr.
3. Henni telst fullnægt með innleggi á reikn-
ing í erlendri innlánsstofnun, sbr. 12. gr.
4. Henni telst fullnægt er hinum erlenda
gjaldeyri er varið til að greiða kostnað
erlendis.
Ráðstöfun erlends gjaldeyris skv. 1. mgr. er
upplýsingaskyld til Seðlabankans samkvæmt
nánari reglum sem hann setur, sbr. 21. gr.“
Með auglýsingu, dags. 23. des. 1992, setti
Seðlabankinn nánari reglur um upplýsinga-
gjöf um framangreint efni, sbr. 6. lið auglýs-
ingarinnar.
Upplýsingar skulu gefnar á eyðublöðum sem
Seðlabankinn leggur til, en tilkynningarskyld-
an hvílir á hlutaðeigandi innlendum aðilum.
Þeir innlendir aðilar, sem málefni þetta varð-
ar, eru eindregið hvattirtil að vitja eyðublaða
hjá Seðlabanka íslands, gjaldeyriseftirliti,
eða óska eftir að fá þau send.
Upplýsingaskylda gildirfrá upphafi þessa árs
og er ætlast til að gerð sé skýrsla fyrir hvern
almanaksmánuð og hafi borist Seðlabankan-
um fyrir 15. dag hvers mánaðar, vegna
næstliðins mánaðar.
Reikningar í erlendum innlánsstofnunum.
Seðlabankinn vekur sérstaka athygli á
ákvæðum 12. gr. reglugerðar nr. 471/1992,
sem varðar skráningarskyldur reikninga í
erlendum innlánsstofnunum, sbr. 4. lið aug-
lýsingar Seðlabankans frá 23. des. 1992.
Bönkum og sparisjóðum og öðrum þeim,
sem heimild hefur til milligöngu um gjaldeyr-
isviðskipti, er óheimilt að millifæra eða greiða
inn á reikninga innlendra aðila hjá erlendum
innlánsstofnunum, nema fram hafi verið lögð
kvittun frá Seðlabanka íslands um, að við-
komandi reikningur hafi verið tilkynntur.
Stöðluð eyðublöð liggja frammi hjá Seðla-
bankanum, gjaldeyriseftirliti. Tilkynningar-
skyldan hvílir á hlutaðeigandi reikningseig-
anda. Reykjavík, 22. júní 1993.
Seðlabanki Islands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12
ára krakka. Biblíulestur kl. 20.30.
Ræðumaður Mike Fitzgerald.
Efni: Ertu viðbúinn endurkomu
Krists?
Allir hjartanlega velkomnir.
arferðir og frítt er fyrir börn yngri
en 7 ára. Það borgar sig að ger-
ast félagi í Ferðafélaginu fyrir
þessa helgi.
I ferðinni verða skipulagðar
bæði lengri göngur og léttari fjöl-
skyldugöngur. Góð fararstjórn.
Útigrill á staðnum.
Pantið og takið farmiða fyrir
fimmtudagskvöld 1. júlf.
Ferðaféiag fslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Miðvikudaginn 30. júní
kl. 20 verður gengið frá Nesja-
vallavegi að Lyklafelli. Brottför
frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin, og Mörkinni 6.
Verð kr. 800.
KFUM/KFUK/KSS/SÍK
Háaleitisbraut 58-60
„Saman í sumar"
- sameiginlegar samkomur ’93.
Samkoma verður í kvöld kl.
20.30 á Háaleitisbraut 58-60.
Yfirskrift samkomunnar er
„Saman á veginum". Upphafs-
orð hefur Karen Kristjana Ernst-
dóttir. Ræðumaður: Gunnar Jó-
hannes Gunnarsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Þórsmerkurferð
2.-4. júlí.
Félagstilboð þessa heigi.
Um er að ræða helgarferð þessa
helgi með gistingu í skála á kr.
4.950 fyrir félaga en kr. 6.600
fyrir aðra. Fyrir félagsmenn
Ferðafélagsins gildir afsláttur í
ferðir einnig fyrir maka og börn.
Athugið að börn og unglingar
7-15 ára greiða hálft gjald í helg-
Heigarferð til Þórsmerkur
2.-4. júlf - félagstilboð á verðil
Þ.e. helgarferð með gistingu í
skála á kr. 4.950 fyrir félaga, en
kr. 6.600 fyrir aðra - gisting í
tjaldi kr. 4.300 fyrir félaga og kr.
5.700 fyrir aðra. Fyrir fólags-
menn Ferðafélagsins gildir af-
sláttur í ferðir einnig fyrir maka
og börn. Ath. að börn og ungl-
ingar 7-15 ára greiða hálft gjald
í helgarferðir og frítt fyrir börn
yngri en 7 ára. Það borgar sig
að gerast félagi í Ferðafélaginu
fyrir þessa helgi. Skipulagðar
léttar fjölskyldugöngur og einnig
lengri göngur. Góð fararstjórn.
Útigrill - góð aðstaða í sæluhús-
inu - njótið kyrröar og hvíldar
frá amstri hversdagsins í helgar-
ferð með F.l. í Þórsmörk. Hring-
ið og pantið farmiöa en þá þarf
aö sækja á skrifst. fyrir kl. 17
fimmtudag 1. júlí.
2.-4. júlí: Hörðudalur - Hítar-
dalur. Gengið frá Hörðudal um
gamla þjóðleið til Hítardals.
Gist i tjöldum.
2.-4. júlf: Jöklanámskeið Isalp
(í Kerlingarfjöllum).
Laugardag 3. júlí: Hagavatn
(dagsferð).
Ferðafélag íslands.