Morgunblaðið - 30.06.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JUNI 1993
33
í heimsókn hjá listamanninum Pyotr Shapiro. F.v.: Unnur Kristins-
dóttir, Pyotr, Þóra Hallgrímsson og leikfimikennarinn Elísabet Guð-
mundsdóttir.
SAMHELDNI
Leikfimihópurinn
fór til Moskvu
að komast ekki allir í leikfimi-
hópinn Lellurnar og þær sem
hafa áhuga þurfa að fá meðmæli
einhverrar úr hópnum. Síðan er
málið tekið fyrir og þótt undarlegt
þyki er það viðkomandi til fram-
dráttar að geta sungið og spilað á
hljóðfæri. Einhver kann að velta
því fyrir sér af hveiju þessar kröfur
eru gerðar í leikfimihóp. Jú, skýr-
ingin er sú, að Lellurnar eru í leik-
fimi í Kramhúsinu og um hver jól
heldur hópurinn danssýningu. Þær
sauma sjálfar búningana og oftar
en ekki er mikið lagt í þá.
Kjarninn í hópnum hóf leikfimi
fyrir 12 árum undir leiðsögn Jane
Fonda — að vfsu ekki í eigin per-
sónu heldur eftir myndbandi henn-
ar. Þetta héldu þær út í eitt ár, en
síðan leituðu þær til Elísabetar
Guðmundsdóttur, sem þá kenndi
hjá Eddu Scheving en flutti sig yfir
í Kramhúsið, þar sem hún hefur
kennt hópnum í 10 ár.
Þrettán dagar í Rússlandi
Þetta er samheldinn hópur sem
fær ýmsar hugmyndir. Sú nýjasta
sem þær létu verða af var að
skreppa til Rússlands í byrjun júní,
þar sem þær dvöldust í þrettán
daga. Áður hafa þær farið til Bret-
lands og Þýskalands.
Sigríður Eyþórsdóttir lét bíða eftir sér. Þegar hún birtist loksins
var hún í þessum búningi með fimm sölumenn á eftir sér sem vildu
allir selja henni eins búninga. Það endaði með að festa kaup á þess-
um og greiddi 20 dollara fyrir húfu og frakka.
„Lellurnar“ saman komnar. F.v.:
Dóra Hafsteinsdóttir, Birna
Hreiðarsdóttir beygir sig niður,
Sigríður Eyþórsdóttir dansar,
Elísabet Guðmundsdóttir, rétt
sést í Þóru Hallgrímsson, Unnur
Kristinsdóttir, Ragna Ragnars,
sendiherrafrú i Moskvu, Sjöfn
Guðmundsdóttir, Arnhildur
Jónsdóttir, Heba Guðmundsdótt-
ir, Kristín Jóhannsdóttir og Sig-
ríður Harðardóttir.
„Þetta var alveg óskaplega
skemmtileg ferð,“ sagði Elísabet
við Morgunblaðið. „Við skoðuðum
söfn og kirkjur, sáum Bolshoj- og
Kirov-ballettinn og fórum í leikhús
svo að eitthvað sé nefnt. En við
sáum líka fátækt með tilheyrandi
betli, fólk standandi í röðum að
reyna að selja eigulega hluti og
aðrar ófagrar götulífsmyndir."
Nokkrar heimsóttu listamanninn
Pyotr Shapiro sem er að vinna að
afsteypu af Halldóri Laxness og
Thor Thors, en ein úr hópnum,
Þóra Hallgrímsson, er systurdóttir
Thors. Var hún fengin til að skoða
afsteypuna og meta hvernig til hefði
tekist.
Elísabet segir að verðið á ferð-
inni hafi komið á óvart. Þannig
greiddu þær innan við 40 þúsund
krónur fyrir flug til Moskvu í gegn-
um Kaupmannahöfn. Rússnesk
ferðaskrifstofa skipulagði ferðina
og greiddu þær um 30 þúsund fyr-
ir rútu á meðan á dvölinni stóð með
leiðsögumönnum, mat í hádegi og
á kvöldin, aðgöngugjald inn á söfn,
ferð til Pétursborgar með næturlest
ásamt gistingu á hóteli þar, mat í
tvo daga ásamt leiðsögumanni og
ferð í Kirov-ballettinn.
INNLAUS VAXTAMIÐA V r 3NARVERÐ rERÐTRYGGÐRA INA RÍKISSJÓÐS .. B. 1986 fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra með vaxtamiðum í 1. fl.B 1986. ur frá og með 10. júlí n.k. greitt sem hér segir:
SPARISKIRTE í 1.FL Hinn 10. júlí 1993 erfimmtándi spariskírteina ríkissjóðs Gegn framvísun vaxtamiða nr.15 verð
Vaxtamiði með 50.000,-kr. skírteini = kr. 4.812,30
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1993 til 10. júlí 1993 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986 til 3282 hinn 1. júlí 1993. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr.15 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 12. júlí 1993. Reykjavík, 30. júní 1993. SEÐLABANKI ÍSLANDS
aiuiiqilak.
. OF NORWAX^
V sm /ÍARTILl í JÚLÍ ÍOÍ
Sæng Hollofil 4 140x200 cm 6.40Ö 5.120
Sæng Hollofil 4 100x140 cm 2*606 2.880
Sæng Hollofil 4 80x100 cm 2*506 2.000
Sæng Hollofil 4 65x 80 cm U9ÖÚ 1.520
Koddi Hollofil 4 50x 70 cm 2SÚÓ 1.840
Koddi Fiberfill 40x 60 cm 1256 1.000
Koddi Fiberfill 35x 40 cm 2906 720
FALKINIM 1 SSutíddim
Síöumúla 22, Suöurlandsbr. 8, s. 814670 Skólavöröust. 21a,
sími 812244. Mjóddinni, sími 670100. sími 14050.
Sælureitur fjðlskyldunnar!
Heitu pottarnir frá Trefjum eru fyllilega sambærilegir við þá bestu erlendu,
bæði bvað varðar verð og gæði. Þeir eru mótaðir úr akrýli, níðsterku plast-
efni, það er hart sem gler og hita- og efnaþolið.
Þá er auðvelt að þrífa og hægt er að fá laust lok eða létta og trausta
öryggishlíf, sem dregin er yfir pottinn, þegar hann er ekki í notkun.
Pottana má hafa frístandandi eða grafa þá í jörð og ýmis auka-
búnaður er fáanlegur, svo sem loft- og vatnsnuddkerfi.
Akrýlpottarnir frá Trefjum fást í ótal litaafbrigðum og 5 stærðum,
sem rúma frá 4 - 12 manns. Það er auðvelt að láta drauminn rætast, því
verðið er frá aðeins 69.875 krónum!
Komið og skoðið pottana uppsetta í sýningarsal okkar, hringið eða
skrifið og fáið sendan litprentaðan bækling og verðlista.
Trefjar hf. Stapahrauni 7, Hafnarfirði, sími 5 10 27