Morgunblaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 39
Umferðin
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
39
■*-- >
Aulaskapur - Olöghlýðni
Frá Sveini Ólafssyni:
Aftanáakstur er margfalt al-
gengari á íslandi en í nágranna-
löndunum, þrisvar sinnum er sagt.
Þetta kostar margan heilsuna, sem
er ekki bara slæmt, heldur ótækt.
Það hefir líka kostað margan lífíð,
sem er alvarlegra, auk gífurlegs
fjárhagstjóns á ökutækjum, en slíkt
kemur fram hinum háu tryggingar-
iðgjöldum hér. Hvað veldur?
Mörg dæmi eru um að t.d. í hálku
lenda margir bílar í árekstrarkös, í
strollu. í fréttum í vetur voru a.m.k.
sjö bílar í slíkri árekstrarkös í Árt-
únsbrekkunni svo dæmi sé nefnt.
Af hveiju? Jú! Skoðum t.d. hvernig
ökumenn á íslandi bera sig að. Á
ökuljósum safnast bílar saman í
kippur. Svo kemur grænt ljós. Allir
reyna að taka af stað eins hratt og
mögulegt er: ekki óeðlilegt, því
auðvitað verður umferðin að ganga
greitt. Hinsvegar virðast allir vera
á þeirri skoðun að til að komast
nógu fljótt leiðar sinnar þurfi að
aka helst alveg ofan í skottinu á
næsta bíl og bílalestir eru almennt
í strollu milli ljósa, t.d. á Reykjanes-
braut á leið í eða úr Hafnarfirði.
Menn gefa sér ekki tóm til að
mynda eðlilegt og öruggt bil milli
bíla, a.m.k. 10-15 bíllengdir. Ef
eitthvað ber útaf hjá t.d. fremsta
bíl, þá er ekkert ráðrúm til neins.
Dæmið úr hálkunni er þarna slá-
andi. Þar fer næsti bíll aftan á þann
sem stoppaði og enginn ræður við
neitt.
Oft hefur undirritaður reynt að
gefa næsta bíl á eftir viðvörun á
stíga nokkrum sinnum létt og stutt
á bremsupedalann svo bremsuljósið
að aftan blikki. Sjá má í aftursjár-
speglinum að bílstjórinn fyrir aftan
verður þess var. En fæstir virðast
samt skilja svona aðvörun eða
lengja bilið. Þeir bara hrökkva við
og svo er bilið áfram jafn stutt: 3-5
bíllengdir, eins og þeir haldi, að
þetta sé „della“ eða fyrirtekt í þeim
á undan. Svona háttarlag í akstri
verður ekki flokkað undir neitt ann-
að en aulaskap og skilningsleysi á
öryggi í umferðinni. Þetta er ekki
aðeins öryggi fyrir þá sem á undan
eru líka fyrir hina, sem aka rétt
ofan í öðrum. Og þeir sem þetta
iðka eru meginþorri ökumanna á
íslandi því miður.
Þá er ólöghlýðnin. Almennt verð-
ur að reyna að aka eins hratt og
leyfilegt er. Þetta dugar samt ekki
til, því þótt haldið sé 10 km. yfir
hámarkshraða, þ.e. 70 eða 90 km.,
úti á vegum þá er enginn friður,
engin jöfn keyrsla, þar sem lögleg-
um hraða er haldið og bilið haft
öryggt milli bíla. Nei! Menn bara
aka fram úr og hika ekki að bijóta
reglurnar um hámarkshraða, troða
sér aftur inn í röðina og ef gott bil
er komið fylla og stytta bilið á ný.
Tillitssemi er engin, einungis asi
og kapp, menn bægslast fram fyrir
oft til að vera nokkrum bíllengdum
á undan. Og oft þegar keyrt er
framúr er svo bleyta eða pollar í
hjólförum og þá guggugu vatninu
eða krapslabbi gusað yfir næsta bíl
og sá ökumaður nánast blindaður.
Þetta er illskilj anlegt hátterni og
verður vart flokkað undir annað en
ómenningu. Það versta er að af
þessu tvennu: of litlu bili milli bíla
og skefjalausum framúrakstri á of
miklum hraða, hafa hlotist mörg,
sorgleg slys, sem hafa kostað bæði
varanlegt heilsutjón og oft manns-
líf fyrir utan allt fjárhagstjónið, eins
og áður er nefnt.
Það er m.a, af þessu, að dýrara
er að aka bíl á íslandi en nauðsyn-
legt er, færu menn varlegar. Ið-
gjöldin, sem allir verða að greiða,
byggjast á því hver tjónin eru. Það
kostar þannig beina fjármuni, ef
menn gæta ekki öryggis í umferð-
inni.
Ökumenn! Er ekki mál að nota
aðgát og dómgreind og sýna for-
sjálni í umferðinni? Það er öllum til
góðs, sparar öllum peninga og varn-
ar ástæðulausu heilsutjóni og jafn-
vel fjörtjóni. Höfum bilið milli bíla
nægilegt, það tryggir öryggið! Ver-
um ekki alltaf að sperra okkur
framúr og orsaka of stutt bil milli
bíla það flýtir sjaldnast fyrir, skap-
ar einungis hættu.
Reynum að vera öðrum til fyrir-
myndar og sýna aðgæslu og við-
hafa tillitssemi í umferðinni. I stað
þess að fólk sé á nálum, skilar slíkt
sér í þægilegri og ánægjulegri akst-
ursaðstæðum.
SVEINN ÓLAFSSON,
Furugrund 70, Kópavogi.
Pennavinir
Sautján ára þýskur piltur með
áhuga á ferðalögum o.fl.:
Martin Fries,
Wilh. Leuschner Str. 23,
5800 Hagen 1,
Germany.
Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka
með áhuga á íþróttum, ferðalögum,
sundi, bókalestri:
Lilian Gifty Walker,
P.O. Box 1292,
Cape Coast,
Ghana.
Þýsk 24 ára stúlka með margvís-
leg áhugamál:
Birgit Traub,
Froschbergstrasse 22,
W-7122 Besigheim,
Germany.
Frá Gambíu skrifar 23 ára kenn-
ari sem vill skrifast á við íslenskar
stúlkur á svipuðum aldri:
Babucar Jobe,
Kunta Kinte Middle School,
Brikama,
Western Division,
Gambia.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist, kvikmyndum,
íþróttum o.fl. vill skrifast á við
12-19 ára stráka eða stelpur:
Tomoko Kagami,
12-20 Kansozukacho,
Neyagawa City,
Osaka 572,
Japan.
Tuttugu og fimm ára Ghana-
stúlka með áhuga á körfuknattleik,
tennis, borðtennis, dans, safnar
póstkortum:
Nana Korsah,
P.O. Box 1292,
Oguaa City,
Ghana.
Frá Ástralíu skrifar 23 ára karl-
maður sem dvaldist á íslandi í fyrra.
Skrifar bréf sitt á tiltölulega góðri
íslensku og vill skrifast á við íslend-
inga annað hvort á ensku eða ís-
lensku. Hefur áhuga á tónlist,
körfuknattleik, ferðalögum, sögu,
tungumálum o.fl.:
Steven Bagshaw,
206 Park St.,
Fitzroy North, 3068,
Australia.
VELVAKANDI
ÖRORKUMAT OG
TRYGGINGAR
Er maðkur í mysunni?
í DV HINN 29. apríl sl. er grein
eftir Sæmund Guðvinsson
blaðamann um skattsvik tengd-
um örorkumati trygginga-
lækna. Þar kemur fram að
læknarnir og tryggingafélögin
eiga sameiginlegan hlut að
máli í tugmilljóna skattsvika-
málum.
Þótt læknarnir taki opinber
laun við störf sín, furðar grein-
arhöfundurinn sig á því, að
tryggingafélögin skuli að auki
greiða leynilega fyrir örorku-
matið.
Það vekur umhugsun um
heiðarleika og hæfni matsgerð-
armannanna og spurningu um
hvað tryggingafélögin eru að
greiða fyrir í laumi.
Þarf ekki að endurskoða ör-
orkumat þessara valinkunnu
manna? Hvemig er þessum
matsaðgerðum háttað í dag.
Einar Vilhjálmsson,
Smáraflöt 10,
Garðabæ.
FYRIRSPURN TIL
ÞJÓÐMINJAVARÐ-
AR
MATTHÍAS Þórðarson, fv.
þjóðminjavörður, upplýsir í
skýrslu sinni um Þjóðminja-
safnið að um áramótin 1913-14
hafi verið um 4.000 myntir og
minnispeningar í Þjóðminja-
safni.
Fimmtíu árum síðar upplýsir
Kristján Eldjárn, fv. Þjóðminja-
vörður, í bók sinni, 100 ár í
Þjóðminjasafni, að myntir og
minnispeningar væru um 5.000
í Þjóðminjasafni.
Hversu margar myntir og
minnispeningar eru í dag, árið
1993, í Þjóðminjasafni. Og
hvernig skiptast þessar myntir
eftir löndum.
Virðingarfyllst,
Sigiirjón Sigurðsson.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Ullarsjal tapaðist
RÚSTRAUTT stórt ullarsjal
tapaðist í Leifsstöð þann 3. júní
sl. Skilvís finnandi vinsamlega
hafi samband í síma 691324
eða 683836.
Filofax tapaðist
SVART filofax tapaðist í
Lækjargötu sl. föstudagskvöld.
í möppunni voru ekki önnur
verðmæti en ökuskírteini og
ómissandi heimilisföng.
Finnandi vinsamlega hafi sam-
band í síma 2Í052.
Týnt hjól
BLÁTT Icefox-fjallahjól
(drengja) með svörtu stýri
hvarf frá Bergstaðastræti 50a
sl. föstudag. Hafi einhver orðið
hjólsins var er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 20318.
Hjól í óskilum
LITIÐ rautt barnahjól var skilið
eftir í garði við Skólavörðustíg
sl. fimmtudag. Upplýsingar í
síma 11595.
GÆLUDÝR
Kettlingar í heimilisleit
TVÆR átta vikna læður vantar
gott heimili. Önnur er svört,
hin svört og hvít. Þær eru
kassavanar og skemmtilegar
og hafa fengið gott uppeldi hjá
mömmu sinni. Upplýsingar í
síma 39121.
Kettlingar í heimilisleit
FALLEGIR kassavanir kettl-
ingar óska eftir góðu heimili.
Upplýsingar í síma 654105 eft-
ir kl. 17.
Kettlingur í heimilisleit
LÆÐA, 10 vikna, fæst gefins
á gott heimili. Kassavön. Upp-
lýsingar í síma 28747.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er glöddu mig
á 90 ára afmœli mínu, þann 19. júni sl., með
heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Bestu kveðjur.
Kristinn Jónsson,
Ártúni 6,
Hellu.
r
Þegar
halda á
skemmtilega
veislu
fomaHai i.|
málið!
Auk 200-800 m2risatjaldanna
bjóöum við nú upp á stórskemmtileg
36, 54 og 162 m2samkomutjöld, sem leigjendur reisa
auðveldlega sjálfir.
TJALDALEIGA Upplýsingar og pantanir
KOLAPORTSINS ísíma 625030.
20-60 %AFSLATTUR
Raftækjaverslun Heklu býður til 3ja daga
rýmingarsölu frá 30. júní til 2. júlí.
LEC
KÆLI-
SKÁPUR
85 CM.
Verð áður kr. 34.015
VERf> NÚ KR. 25.511
CE
ÞVOTTAVÉL
F. 8.5 KC ÞVOTT
Verð áöur
kr. 117.140
VERf> NÚ KR. 76.141
HOTPOINT
ÞVOTTAVÉL
500-1000 SN.
Verð áður
kr. 60.780
VERÐ NÚ KR. 44.687
HOTPOINT
UPPÞVOTTA-
VÉL (5LIM LINC)
Verð áður kr. 59.700
VERf> NÚ KR. 41.832
DJ Ú PSTEI Kl NC ARPOTTU R
Verðáðurkr. 10.315
VERf> NÚ KR. 7.221
KENWOOD
ÁVAXTA-
PRESSA
Verð áður
kr. 9.812
VERf> NÚ KR. 6.861
KENWOOD
BLANDARI
Verð áður
kr. 5.244
VERÐ NÚ KR. 3.670
KENWOOD
HRAÐSUÐU-
KETILL
Verð áöur
kr. 4.605
VERÐ NÚ KR. 3.223
KENWOOD
MATVINNSLUVÉL
Verðáðurkr. 16.485
VERf> NÚ KR. 11.539
SWATCH SÍMI
Verð áður kr. 5.490
VERf> NÚ KR. 2.143
Einnig eru í boði úrval annara rafmagnstækja á
lágmarksverði s.s ofnar, helluborð, ísskápar,
rafmagnshnífar og frönsku iamparnir frá LeDauphin
Norm TÆKiFjmm
má vm&um
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500/695550