Morgunblaðið - 30.06.1993, Page 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVANnALMENNAR
MORG UNBLADIÐ, Ki
SlMI 691100, SÍMBi
JGLAN 1 103 REYKJAVÍK
691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 30. JUNI 1993
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Rækjuskipið Sunna landar á Nýfundnalandi
Með 176tonná
fjórtán dögoim
RÆKJUSKIPIÐ Sunna landaði 176 tonnum af rækju í hafnarbænum
Argentia á Nýfundnalandi í vikunni eftir 14 daga úthald á Flæmska
hattinum, svæði utan 200 mílna lögsögunnar við Nýfundnaland.
Sunna er í eigu Þormóðs ramma á Siglufirði og að sögn Róberts
Guðfinnssonar framkvæmdastjóra Þormóðs ramma var aflaverðmæt-
ið um 35 milljónir króna.
Af þessum afla Sunnu munu 110
tonn fara á markað í Japan og
Frakklandi en 60 tonn af iðnaðar-
rækju verða send til íslands og
unnin í verksmiðju Þormóðs ramma
á Siglufirði. Róbert segir að Sunna
fari aftur á veiðar á Flæmska hatt-
inum og muni landa öðru sinni í
Nýfundnalandi en muni síðan sigla
Mývatn
Andarvarp
betra en
síðustu ár
Björk, Mývatnssveit.
ANDARVARP hér við Mývatn
er nú betra en verið hefur síð-
ustu ár. Dæmi eru um að feng-
ist hafi næstum 1.000 egg í
göngu, en ekki er þó tekinn
nema hluti úr hveiju hreiðri.
Talið er að hrafninn hafi gerst
mjög ágengur í varplöndum
og sums staðar hirt flest egg,
enda sjást þar víða eggjakopp-
ar. í einni varpeyjunni voru
nýlega taldir 40 hrafnar og þó
var búið að skjóta fast að 200
hröfnum hér við vatnið undan-
farna mánuði.
Mikið rykmý er nú víða við
Mývatn. Þá er einnig hinn illræmdi
mývargur farinn að angra menn
og skepnur. Allvíða sjást kalblettir
í túnum.
Silungsveiði hefur verið frekar
treg að undanförnu í Mývatni. Þó
er silungurinn talinn þokkalega
feitur. Margir óttast að silungs-
stofninn í vatninu sé nú í algeru
lágmarki og verði því að grípa til
frekari friðunar.
Kristján
með afla úr þarnæstu veiðiferð til
íslands.
Fá ekki leyfi fyrir Arnarnesið
Að sögn Róberts hefur Þormóður
rammi áhuga á að senda annað
skip, Arnarnesið, á veiðar á
Flæmska hattinn, en þetta skip var
tekið úr rekstri á móti kaupum
Vinnslustöðvarinnar á Guðmundu
Torfadóttur. Hins vegar fær Þor-
móður rammi ekki að skrá Amar-
nesið undir íslenskum fána á þessar
veiðar og losna þannig við tolla inn
á EB-markaði. „Þetta strandar á
því reglugerðarákvæði að ef Arnar-
nesið fer úr landi nú má ekki flytja
það inn í landið aftur þar sem það
er eldra en 12 ára gamalt," segir
Róbert. „Við erum alveg sammála
því að úrelda eigi skip á móti hveiju
nýju skipi en hins vegar fínnst okk-
ur undarlegt að ekki megi nýta
gömlu skipin undir íslenskum fána
á erlendum miðum.“
Aðspurður um hvað Þormóður
rammi hyggst gera í þeirri stöðu
segir Róbert að til greina komi að
stofna dótturfyrirtæki á Kýpur og
skrá Amarnesið þar og gera það
þá hugsanlega út með erlendri
áhöfn.
Laxveiðm
að glæðast
LAXVEIÐIN suðvestanlands er
að glæðast síðustu daga eftir
mjög rólega byijun í vor. Að
sögn Jóns G. Borgþórssonar
framkvænulastjóra Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur hefur
veiðin í Norðurá tekið kipp síð-
ustu tvo daga og aflinn úr Ell-
iðaánum hefur einnig glæðst
verulega á sama tíma. I Laxá
i Kjós hafa veiðst 35 laxar á
siðustu tveimur dögum.
Samkvæmt upplýsingum úr
veiðihúsinu við Norðurá er greini-
lega góð ganga af laxi í ánni nú.
Á síðustu tveimur dögum hafa
veiðst yfir 30 laxar í ánni og er
heildarveiðin þá komin yfir 300
laxa. Mest er um 3-5 punda lax
í ánni nú.
I Laxá í Kjós er mjög góð veiði
enda veiddust þar 15 laxar á
þriðjudag og 20 komu á land fyrri-
partinn í gærdag. Ásgeir Heiðar
í veiðihúsinu við Kjós segir að góð
ganga sé í ánni nú og ugglaust
hægt að veiða meira ef mikið
vatn torveldaði ekki veiðamar í
augnablikinu. Með veiðinni í gær-
dag em yfír 100 laxar komnir á
land úr Laxá í Kjós.
66 á land úr Elliðaám
Jón G. Borgþórsson segir að
veiðin í Elliðaá'num, þar sem þessi
mynd var tekin í gærkveldi, hafí
loksins tekið kipp í gærdag eftir
mjög rólega byijun. Alls komu 10
laxar á land þar í gærdag og
heildarveiðin þá komin í 66 laxa.
Að sögn Jóns hefur 141 lax farið
hjá teljaranum í ánni.
Úthafskarfaaflinn stefnir í að tvöfaldast í ár miðað við í fyrra
Aflaverðmætið er ríf-
lega milljarður króna
„Góð búbót í aflasamdrættinum,11 segir forsljóri Granda hf.
Fleiri sumarstörf
Morgunblaðið/Sverrir
ÞÚSUNDIR skólafólks eru þegar komnir út á vinnumarkaðinn og enn er von á fleirum
þvf borgarráð hefur samþykkt að veita 22 milljónum króna til að ráða skólafólk í 110 störf í
8 vikur, aðallega á vegum gatnamálastjóra og garðyrkjustjóra. Jafnframt hefur verið
samþykkt að ráða skólafólk í 45 störf á vegum Hitaveitu Reykjavíkur og 15 störf á veg-
um Rafmagnsveitu Reykjavíkur í sama tíma.
GÓÐ aflabrögð hafa verið á úthafskarfan-
um undanfarnar vikur og stefnir nú í að
úthafskarfaaflinn í ár nemi tæplega 30
þúsund tonnum og verði meira en tvöfalt
meiri en hann varð í fyrra er hann nam
14 þúsund tonnum. Bryiyólfur Bjarnason
forstjóri Granda hf. segir að aflaverðmæt-
ið í ár geti þannig numið yfir einum millj-
arði króna. „Þetta er góð búbót í aflasam-
drættinum,“ segir Bryiyólfur.
Aðalveiðisvæðið á úthafskarfanum nú er um
600 mílur suður af Reykjanesi og eru sjö ís-
lenskir togarar á veiðum þar þótt langt sé að
fara eða um tveggja sólarhringa stím. Mikið
er af togurum á þessu svæði, m.a. hinir þýsku
togarar ÚA en þeir flaka karfann á Evrópu-
markað. Brynjólfur segir að afli íslensku togar-
ana fari að mestu á Japansmarkað en hlut-
deild Granda hf. í heildaraflanum stefnir í að
verða hátt í 4.000 tonn eða yfir 10%.
Verð á Japansmarkaði viðkvæmt
Hvað markaðsmálin varðar segir Brynjólfur
að Japansmarkaður sé viðkæmur nú vegna
mikils framboðs á karfa þangað frá öðrum
þjóðum. „Frá því í febrúar á þessu ári hefur
verð á unnum karfa á Japansmarkaði fallið
um 10% og í dag er salan þar fremur þung,“
segir Brynjólfur. „En við teljum það áhættunn-
ar virði að selja á þessum markaði."
Verðið á unnum úthafskarfa á Japansmark-
aði liggur nú á bilinu 40-50 krónur fyrir kg
og miðað við það verð er aflaverðmæti tæp-
lega 30.000 tonnum yfír einn milljarð króna.
Að sögn Brynjólfs er mikill floti skipa frá
mörgum löndum að veiðum á svæðinu 600
mílur suður af Reykjanesi og framboð af karfa
frá þeim í Japan geri markaðinn þungan í
vöfum.
Metafli togara Granda
Samkvæmt upplýsingum frá Sigurbirni
Svavarssyni útgerðarstjóra Granda hf. stefnir
í að metafli verði hjá togurum fyrirtækisins á
þessu fískveiðiári og að þessi mikli afli náist
m.a. með aukinni sókn á úthafskarfa og blá-
löngu. Reiknað er með að afli togaranna nemi
yfír 30.000 tonna og þar af nemi úthafskarfa-
og blálönguaflinn um 5.000 tonnum. Af þess-
um sökum er tímabundið gripið til þess ráðs
að koma upp næturvöktum við hluta vinnslunn-
ar.
Sjá nánar Úr verinu bls. B2.