Morgunblaðið - 23.07.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1993
Þjóðhátíð í Eyjum
Uppselt í
aJlar ferðir
Flugleiða
ÞJÓÐHÁTÍÐIN í Vestmannaeyj-
um verður að vanda haldin um
verslunarmannahelgfina og búist
er við metaðsókn í ár. Hjá Her-
jólfi hf. og Flugleiðum hafa fyrir-
spurnir um ferðir til Eyja á þjóð-
hátíð sjaldan verið meiri en nú.
Flugleiðir hafa fjölgað ferðum til
Eyja vegna þjóðhátíðarinnar og er
nú þegar uppselt í allar ferðir þang-
að og margir eru á biðlistum. Gert
er ráð fyrir að um 1.200 manns fari
til Vestmannaeyja með Flugleiðum.
Sala á pakkaferðum með Heijólfi
til Eyja hófst á miðvikudag og hefur
gengið betur en undanfarin ár.
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri Heijólfs, segir að tvær ferðir
verði famar til Vestmannáeyja dag-
ana fyrir þjóðhátíð.
Morgunblaðið/Þorkell
Yfir .eitt þúsund manns á „Bílarokki“
RÚMLEGA eitt þúsund manns komu saman á „Bíla- við Reykjavíkurborg en þeir voru haldnir til að minna
rokk“, tónleika sem haldnir voru á Lækjartorgi í á umferðarmálin með sérstaka áherslu á ungt fólk.
gærkvöldi. Umferðarráð, bifreiðatryggingafélögin Að sögn lögreglunnar fóru tónleikamir í alla staði
og Fararheill stóðu fyrir tónleikunum í samstarfí vel fram.
Hinrik og
Goði efstir
í fjórgangi
HINRIK Bragason og Goði frá
Voðmúlastöðum tróna efstir eftir
forkeppni í fjórgangi fullorðinna
á íslandsmótinu sem hófst í gær
á Hlíðarvelli á Akureyri. Hlutu
þeir 58,39 stig. Næstur er Eyjólf-
ur ísólfsson á Skrúði frá Lækja-
móti með 58,14.
Sigurbjöm Bárðarson, sem keppir
á Oddi frá Blönduósi, er þriðji með
57,13 stig, Baldvin Ari Guðlaugsson
er fjórði á Nökkva frá Þverá með
56,88 stig og Einar Öder Magnússon
fimmti á stóðhestinum Stíganda frá
Hvolsvelli með 55,87 stig. Munar
aðeins rétt rúmum tveimur stigum
á þeim fyrsta og fimmta þannig að
búast má við harðri keppni þegar
þessir fimm mætast í úrslitum á
sunnudag. í dag keppa unglingar
og böm í fjórgangi, einnig verður
keppt í fímmgangi fullorðinna, ung-
menna og unglinga.
Heimilistölva
hækkar 8,1%
TÖLVUR eru meðal þess, sem
hækkað hefur vegna gengisfelling-
arinnar. Sem dæmi um heimil-
istölvu má nefna að Apple Macint-
osh Color Classic kostaði t.d. áður
98.400 krónur en kostar nú
106.400 krónur. Þetta er um 8,1%
hækkun.
Kaupmenn og bankamenn deila um kostnað við nýju debetkortin
Miklar breytingar á gjöld-
um vegna tékka og korta
MEÐ tilkomu debetkorta á haustmánuðum
verða verulegar breytingar á þeim gjöldum
sem bankar og kortafyrirtæki taka fyrir
greiðslumiðlun, þannig að notendur tékka
greiða meira fyrir notkun þeirra en áður og
sérstök korta- og færslugjöld verða tekin af
debetkortanotkun. Með þessu er gert ráð fyrir
að tekjur bankanna muni aukast um milljarð
og í viðtali við Morgunblaðið sagðist hátt sett-
ur bankamaður gera ráð fyrir að í hans banka
ætti vaxtamunur að geta lækkað um 1%.
Miklar deilur eru nú á milli stórs hóps kaup-
manna og banka og kreditkortafyrirtækja, en
kaupmenn fullyrða að hagræðing vegna debetkort-
anna komi fyrst og fremst til með að skila sér
hjá bönkunum. Því sé ekki rétt að verslunin greiði
af þeim þjónustugjöld en kaupmenn segja að ekki
kæmi á óvart þótt vöruverð hækkaði um lh%.
„Hugmyndum í þessa veru er hafnað af Sam-
starfshópnum enda dæmið hliðstætt því að verslun
þyrfti að greiða ákveðið gjald fyrir hveija ávísun
sem hún tæki á móti,“ segir í frétt frá hópnum.
Tékkar helmingi dýrari en debetkort
Að sögn Helga H. Steingrimssonar starfsmanns
Rás-nefndar sem fjallað hefur um og undirbúið
komu debetkortanna hefur þess misskilnings gætt
hjá kaupmönnum að þeir taki á sig allan kostnað
vegna debetkortanna. „Reyndin er sú að korthöf-
um verður gert að greiða stærsta hlutann." Hann
segir að gjaldskrár bankanna hafí ekki verið
ákveðnar en ákveðið hafí verið að korthafar greiði
kortagjöld og færslugjöld þar að auki, þannig að
korthafar greiði fyrir hvert skipti sem þeir nota
kortin. Áformað er að einnig verði færslugjald
fyrir tékka eftir að debetkortin komast í gagnið.
Sparnaður viðskiptavina
Helgi tók saman fyrir Morgunblaðið hversu
mikill kostnaður korthafa gæti orðið vegna notk-
unar tékka og debetkorta. Hann sagði að ef gefín
væri sú forsenda að viðskiptamaður gæfi út eina
ávísun hvem virkan dag gæti mánaðarlegur kostn-
aður viðskiptamanns numið um 775 krónum.
Kostnaður við debetkortanotkunina yrði lægri.
Ef gefín væri sú forsenda að viðskiptamaður noti
debetkort sitt einu sinni á hveijum virkum degi
þá gæti mánaðarlegur kostnaður numið 360 kr.
Sjá miðopnu: „Eru korthafar bara tekju-
lind banka eða hagnast þeir líka?“
Amarhraun í Grindavík
Eldur í dráttarvél
ELDUR kviknaði í dráttarvél sem stóð í Amarhrauni í
Grindavík í gærdag og skemmdi hana mikið.
Risaþyrla
ÖNNUR Chinook-þyrlan við komuna til landsins í fyrrinótt.
Stóru þyrlumar em
komnar tíl landsins
TVÆR stórar þyrlur frá þjóðvarðliði Pennsylvaníuríkis komu til
Keflavíkurflugvallar í fyrrinótt. Þær verða notaðar við landvarnaræf-
íngu varnarliðsins sem hefst í næstu viku og í önnur sérstök verkefni.
Talið er að eldsupptök séu út frá
rafmagni en dráttarvélin varð al-
elda á svipstundu og brann stýris-
hús hennar þannig að grindin ein
stóð eftir. Nærstaddur maður brá
þó fljótt til og sprautaði á eldinn
með garðslöngu og var lítill eldur
eftir þegar slökkvilið Grindavíkur
kom að.
Allt stýrishús vélarinnar, sem var
notuð til að knýja loftpressu, er
ónýtt og öll stjómtæki ónýt utan
startara þannig að hægt verður að
nota vélina til að knýja loftpressuna
áfram.
Þyrlumar, sem era af gerðinni
CH-47D Chinook, voru fluttar til
landsins með C5 Galaxy flutninga-
flugvél Bandaríkjahers. Nokkra
daga tekur að setja á þær drif og
spaða sem þurfti að taka af til þess
að koma þeim í flugvélina.
Þyriumar verða notaðar til að
flytja mannskap og búnað milli
staða við landvamaræfínguna. Þær
verða einnig notaðar til að flytja
þyrlupall i Surtsey og heyrúllur frá
Mývatni inn fyrir Dimmuborgir þar
sem heyinu verður dreift til að hefta
sandfok. Samskonar þyriur komu
hingað vegna heræfínga fyrir
tveimur áram og vora þá meðal
annars notaðar við hreinsun við
gamla ratsjárstöð á Straumnesfjalli.
Nábúakrytur
Uppúr
sauð á
brúnni
NÁBÚAKRYTUR á Fells-
strönd í Dalasýslu voru til-
kynntar til lögreglu eftir atvik
sl. sunnudag þegar upp úr
sauð milli tveggja bænda sem
stirt hefur verið á milli um
skeið. Kom til harkalegs rifr-
ildis og jafnvel einhverra
stimpinga þegar þeir þurftu
að fara yfír sömu brúna.
Annar bóndinn hafði stöðvað
bfl sinn á brúnni yfír Kjallaks-
staðaá þegar hinn kom aðvífandi
á dráttarvél. Bóndanum á drátt-
arvélinni lá meira á að komast
yfír en hinum að fara af brúnni
og ók hann vélinni nálægt bíln-
um. Bændumir fóru að munn-
höggvast og ýttu aðeins hvor
við öðrum. Að lokum kom bónd-
inn bfl sínum í gang og ók út
af brúnni og komst nágranninn
þá leiðar sinnar.
Báðir tilkynntu atburðinn til
lögreglunnar í Búðardal og eftir
helgina hafa báðir rakið raunir
sínar fyrir sýslumanni. Engin
formleg kæra hefur þó verið
sett fram og er þúist við að reynt
verði að sætta mennina, að sögn
Sigvalda Guðmundssonar lög-
reglumanns í Búðardal.
FÓ
Kortlagningarleiðangur leiðir í Ijós
að Kalmanshellir er lengsti hellir á
íslandi, um 4 km 4-5
Annir á Dalvík__________________
Sæplast á Dalvík frestar sumarlok-
un vegna mikilla verkefna 14
Sex stiga forskot_______________
íþróttabandalag Akraness hefur
sex stiga forskot í íslandsmótinu í
knattspymu eftir sigur á Val 34-35
Leiöari_________________________
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða 18
Daglegt líf
► í Kántríbæ - heimilisskama-
gerð - í ríki Inkanna - ný kyn-
slóð bílvéla - fjölmiðlakonur
óánægðar - Flatey - um skalla
- sumarskóli á Klaustri -