Morgunblaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚU 1993
Hannes Hlífar vann öruggan sigur í Akropolisskákmótinu
„Sannar að nafnbótin
var ekki nein tilviljun“
HANNES Hlífar Stefánsson
stórmeistari vann öruggan sig-
ur á alþjóðlega Akropolisskák-
mótinu, sem haldið var á Korfu
og í Aþenu. Hann gerði jafn-
tefli við tvo síðustu andstæðinga
sína þá Margeir Péturson og
Grivas frá Grikklandi eftir að
hafa unnið sjö fyrstu skákimar.
Hann hlaut því alls átta vinn-
inga af niu mögulegum.
„Ég er mjög ánægður með
sigurinn á þessu móti. Með honum
tel ég mig hafa sannað að það er
ekki tilviljun að ég hlaut stórmeist-
aranafnbótina fyrr í sumar,“ sagði
Hannes í samtali við Morgunblaðið
en að sögn hans er þetta fyrsta
sterka skákmótið sem hann tekur
þátt í eftir að hann var útnefndur
stórmeistari í sumar. Hann sagði
mótið hafa verið mjög erfitt. Það
taldi hann ekki síst hafa komið til
VEÐUR
Sigurvegarínn
SIGUR Hannesar var sá fyrsti
síðan hann var útnefndur stór-
meistari í sumar.
vegna mikilla hita á mótsstað á
Grikklandi en hitinn komst reglu-
lega upp í fjörutíu gráður.
Hannes telur ekki líklegt að
þessi sigur einn og sér hækki hann
mikið á ELO-skákstigalistanum.
Til þess þurfi að koma til góður
árangur á mörgum mótum. Hann-
es segir að ekki sé ljóst að svo
stöddu hvar hann tefli næst og
kveðst vera á heimleið.
Margeir tapaði
Alþjóðlegi meistarinn Luther frá
Þýskalandi náði öðru sæti á mót-
inu með Vh vinningi og skaut níu
stórmeisturum aftur fyrir sig.
Fimm skákmenn urðu jafnir í 3.-7.
sæti með sjö vinninga. Margeir
Pétursson stórmeistari tapaði síð-
ustu skák sinni á mótinu gegn
Georgíev frá Búlgaríu og hlaut sex
vinninga.
I DAG kl. 12.00
7 /
10° 7 /
r.'./
V / f /
Helrmld: VeSurstofa Islands
(Byggl á veðurapá kl. 16.151 gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 23. JULI
YFIRLIT: Um 400 km suðvestur af landinu er 1003 mb lægð sem hreyf-
ist austur. Yfir Grænlandi er 1024 mb hæð.
SPÁ: Frameftir degi verður austlæg átt, víðast kaldi. Um landið austan-
vert verður súld eða rigning víðast hvar en skúrir f öðrum landshlutum.
Síðan fer vindur að snúast til norðausturs og þá léttir heldur tii um land-
ið vestanvert en norðaustanlands verður súld eða rigning. Veður fer lít-
ið eitt kólnandi norðanlands á morgun en annars breytist hiti lítið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG, SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðaustan-
átt, víða strekklngsvindur, rigning eða súld norðaustanlands en bjart
með köflum suövestanlands. Hiti 6-17 stig, hlýjast í innsveltum suðvest-
anlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt
r / r
r r
r r r
Rigning
tik
Léttskýjað
* r *
* r
r * r
Slydda
*
Hálfskýjað
* * ♦
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
Alskýjað
V 'v' V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐÁ VEGUM:
(Kl. 17.30 ígær)
Flestir hálendisvegir eru færir. Fært er orðið um Syðra-Fjaliabak og
Nyrðra-Fjallabak. Gæsavatnaleið og Sprengisandsleið úr Skagafirði og
Eyjafirði eru enn ófærar. Víða er unnið við vegagerð, og eru vegfarend-
ur af gefnu tilefni beðnir að virða þær merkingar sem þar eru.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631600 og
/grænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavik
hitl veður
11 skýjað
11 skúr
Bergen
Helsipk!
Kaupmannahöfn
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
12 skýjað
21 hálfskýjað
15 skýjað
11 heiðskírt
6 þokaígrennd
16 skúr
21 úrk.fgrennd
11 skýjað
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Lúxemborg
Madrfd
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
Parfs
Madelra
Róm
Vín
Washington
Winnípeg
31 heiöskfrt
18 léttskýjað
24 léttskýjað
17 skúr
20 alskýjað
25 léttskýjað
18 skýjað
18 skýjað
16 skúrásfð.klst.
22 skýjað
18 alskýjað
16 skýjað
28 heiðskírt
27 léttskfrt
25 skýjað
16 skúr
21 heiðskfrt
25 þokumóða
20 skýjað
23 léttskýjað
25 léttskýjað
21 skýjað
23 skýjað
18 akýjað
Kalmanshellir
reynist lengsti \
hellir landsins *
Mældist 4035 m í nýloknum bandarísk-
íslenskum kortlagningarleiðangri
KALMANSHELLIR í Hallmundarhrauni í Borgarfirði er
lengsti hraunhellir landsins, sem enn er fundinn, 4.035 metr-
ar að lengd. Eru þetta niðurstöður nákvæmra mælinga og
kortlagningar bandarísks-íslensks leiðangurs, sem unnið hef-
ur að mælingum hellisins undanfarnar tvær vikur. Með þessu
hefur Surtshelli-Stefánshelli verið vikið í annað sætið yfir
lengstu hella landsins, en hann er 3'/2 kílómetri að lengd.
Sigurður Sveinn Jónsson, for-
maður Hellarannsóknafélags ís-
lands, sagði þessar niðurstöður
vera mikil tíðindi í hellaheiminum.
Fáum sögum hefði farið af hellin-
um fram að þessu, og grófar áætl-
anir um lengd hans hafi verið á
bilinu 1-3 kílómetrar.
„Kalmanshellir er afar marg-
breytilegur — þar skiptast á víðir
geimar og þröngar rásir,“ sagði
Sigurður. „Hellirinn hefur um 50
op til yfirborðs, og lengstu heilu
hellisbútamir eru nokkur hundruð
metra langir. Sums staðar er hellir-
inn mikið hruninn og torfær, en
annars staðar era gangarnir heil-
legir og þægilegir yfirferðar, þann-
ig að hellirinn hefur upp á ýmis-
legt að bjóða.“
Að kortlagningunni stóðu
bandaríski hellaklúbburinn York
Grotto í Pennsylvaniu og Hella-
rannsóknafélag íslands. Að sögn
Sigurðar Sveins gekk vel að afla
fjárhagslegs stuðnings við ferðina,
— meðal annars hafí Eimskip flutt
Jóhann nálgast
efstu menn í Biel
Áskell Örn Kárason skrifar frá Biel.
MIKIÐ VAR um jafntefli í viður-
eignum efstu manna hér í Biel í
6. umferð, sem tefld var fimmtu-
dag. Þeir sem hafa forystu tefla
af varkárni og virðast gæta þess
umfram allt að tapa ekki skák og
bíða með að beita sér þar til lengra
er liðið á mótið.
Þegar aðeins biðskákir voru
ótefldar í 6. umferð, hafði engum
af þeim 5 mönnum sem efstir voru
fyrir umferðina, tekist að vinna skák,
en þó leit út fyrir að Rússinn Valeri
Salov myndi knýja fram sigur í skák
sinni gegn fyrrum landa sínum, Mik-
hail Gurevich, sem nú teflir undir
fána Belgíu. Þessi úrslit koma sér
vel fyrir Jóhann Hjartarson, sem nú
vann sína aðra skák í röð, í þetta
sinn gegn bosníska stórmeistaranum
Zdenko Kozul.
Jóhann stýrði hvítu mönnunum í
skákinni í gær.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
(2.605)
Zdenko Kozul (2.595)
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. D4 -
cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 - Rc6,
6. Bg5 - e6, 7. Dd2 - a6, 8. 0-0-0
- Bd7, 9. f4 - b5, 10. Bxf6 - gxf6,
II. f5 - Rxd4, 12. Dxd4 - Bh6+,
13. Kfl - Bf4, 14. fxe6 - fxe6, 15.
Re2 - Be5, 16. Dd2 - Db6, 17. Rf4
- a5, 18. g3 - 0-0, 19. Bh3 -
Hae8, 20. Rd3 - Bd4, 21. Hhel -
b4, 22. Rxb4 - Bf2, 23. Hfl - Bc5,
24. Rd5— exd5, 25. Dxd5+ — Kh8,
26. Bxd7 - Hb8, 27. b3 - Da7, 28.
Bc6 — a4, 29. Dd2 — axb3, 30. cxb3
- Bb4, 31. Dd4 - Bc5, 32. Dc3 -
Bb4, 33. Dd3 - Hbc8, 34. Bd5 -
Bc3, 35. Be6 - Hc7, 36. Hcl -
Ha8, 37. De2 - Da5, 38. Bd5 -
Hac8, 39. Dg4 - Da6, 40. Hfdl -
Hg7, 41. De6 - Ha7, 42. Hd2 -
Kg7, 43. e5! — dxe5, 44. Dg4+ —
Kh6, 45. Dh4+ - Kg7, 46. Dg4+ -
Kh6, 47. Be4 - Hf7, 48. Hxc3! og
svartur gafst upp.
Helstu úrslit
Helstu úrslit: Barejev — Anand,
Van der Sterren — Sírov, Portisch —
Kamsky, Khalifman — Júdasín,
Kortsnoj — Seirawan, allar jafntefli.
Kramnik vann Speelman og skákir
Salvs og Gurevich og Gelfands og
Rogers fóru í bið. Þegar biðskákimar
eru ótefldar eru þeir efstir og jafnir
með 4,5 virining: Barejev og Kramn-
ik (Rússl.), Anand (Indl.) og Van der
Sterren (Hollandi). Salov og
Gurevich hafa 4 vinninga og biðskák
en Jóhann er í hópi annarra skák-
manna með 4 vinninga.
HANNES G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandins, segist tejja að
bankarnir hafi ekki hækkað vext-
ina eins mikið og ýtrustu tiiefni
gætu gefið til. Því megi búast við
að vextirnir verði háir fram eftir
hausti.
„Vaxtahækkun er alltaf slæm og
kemur sér illa fyrir fyrirtæki sem eru
í erfíðri stöðu,“ segir Hannes.
„Málið snýst um það að hér á ís-
landi, í þessu eina landi í heiminum,
er vísitölubinding á sparifé fólks í
bönkum sem veldur því að hér hækka
vextir sem eru úr takti við allt annað
í efnahagslífinu. Þetta er úrelt og
þessu telur VSÍ að verði að breyta.
Við erum reyndar viss um að á því
sé að myndast víðtækur skilningur,"
segir Hannes.
Aðstoðarfram-
kvæmdastjóri VSÍ <
Verðtrygg-
ing innlána
orðin úrelt