Morgunblaðið - 23.07.1993, Síða 5

Morgunblaðið - 23.07.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1993 5 Morgunblaðið/Guðmundur Löve Myrkraverk Vel útbúnir hellamenn vinna að mælingum í heillegri hluta Kal- manshellis. Ginnungagap Leiðangursstjórinn, Jay Reich, og formaður Hellarannsóknafé- lags Islands, Sigurður Sveinn Jónsson, virða fyrir sér eitt af 50 niðurföllum Kalmanshellis. gám með útbúnaði bandarísku hellamannanna auk þess sem bandarískir aðilar hafi styrkt ferð- ina. Leiðangursstjóri ferðarinnar, bandaríski hellakönnuðurinn Jay Reich, hefur áður komið við sögu íslenskra hellamála, því fyrir tutt- ugu árum gerði hann nákvæmt kort af Surtshelli-Stefánshelli. „Kalmanshellir er um 2'/2 kíló- metri endanna á milli, svo það sem vantar á 4 kílómetra lengdina skýr- ist af því hversu margslunginn og flókinn hann er á köfium,“ sagði Reich. „Mælingin var gerð út frá 366 mælistöðvum, snið teiknuð og hver hellisbútur kortlagður ná- kvæmlega eftir því sem verkinu miðaði. Að verkinu vann 12 manna hópur, og kortlagningin tók tæpar tvær vikur. Verkinu er hins vegar alls ekki lokið, því þegar ég kem aftur til Bandaríkjanna mun ég bæta öllum teikningum sem gerðar voru á vettvangi inn á sjálft aðal- kortið, og síðan mun það verða fullteiknað í tölvu.“ Illa gengið um íslenska hella Að sögn Reichs er áberandi hversu illa hefur verið gengið um Surtshelli og Stefánshelli frá því hann var hér síðast, árið 1973. „Það er átakanlegt að sjá hvernig hefur verið farið með hellana. Mesta eyðileggingin á hellum landsins hefur átt sér stað á síðast- liðnum 50 árum, en hellarnir hafa verið til í þúsundir ára, og verða aldrei bættir, Æskilegast væri að almenningur gæti fengið að njóta þeirrar fegurðar sem hellarnir hafa uppá að bjóða, en því miður hefur eina lausnin oftast verið sú að loka þeim — sérstaklega erlendis. Reyndar má minna á að hér á ís- landi varðar það við lög að skemma dropsteinsmyndanir og annað skraut í hellunum.“ Deild Unglingá- heimilis í Skagafirði Verkleg þjálfun og útivist UNGLINGAHÉIMILI ríkisins hefur opnað svokallaða lokaða deild fyrir 13-15 ára unglinga að Stóru Gröf í Skagafirði. Bryn- dís Guðmundsdóttir, nýráðinn deildarstjóri, tekur fram ekki sé um neins konar fangelsi að ræða en ætlunin sé engu að síður að veita meira aðhald og eftirlit en á öðrum deildum. Vistmenn verða fyrst um sinn 3 og starfs- menn 12. Bryndís sagði að deildin hefði verið formlega opnuð en enn vant- aði unglingana því þeir hefðu farið í langa fjallaferð með starfsmönn- um heimilisins og kæmu beint úr henni að Stóru-Gröf. Hún sagði að útivist og fjallaferðir af þessu tagi yrði stór þáttur í meðferð ungling- anna en einnig yrði lögð áhersla á ýmis konar verklega þjálfun og myndu starfsmenn deildarinnar veita hana. Þeir eru menntaðir í ýmsum greinum, t.d. búfræði, bif- vélavirkjun, vélsmíði og leiklist, en á bænum verða nokkrir hestar. Kennari hefur verið ráðinn til deild- arinnar og verður skóli starfræktur á bænum yfir veturinn. Tilraunaverkefni Aðspurð sagði Bryndís að deildin væru sú eina af þessu tagi á land- inu og um eins árs tilraunaverkefni væri að ræða. Hvað unglingana varðaði sagði hún að þeir hefðu ólíkan bakgrunn en ættu það þó sameiginlegt að ekki hafi náðst samstarf við þá áður. Gert er ráð fyrir að unglingarnir dvelji á heimil- inu eins lengi og þurfa þyki, þ.e. allt til þeir hafi náð 16 ára aldri. Chevrolet Corsica Luxury 93' Á kr. 1.869.000.* 6 götuna með ryðvörn og skréningu. Aukalega í Luxury: • Alfelgur. • VindskeiS. • MótaSar aurhlífar. • BreiS dekk með hvítum stöfum. Alger nýjung í lónamálum á íslandi. Við lánum 3/4 af andvirSi bílsins í 36 mánuði. Standi illa á h|áþ ér á tímabilinu er hægt að hliSra greiðslum allt aÖ sex sinnum og færa þær aftast. Þú greiðir þá bara vexti. Þannig getur lánið orSið til 40 mánaða. Staðalbúnaður í Corsica er hreint ótrúlegur: ABS bremsur, sjálfskipting, útvarp/segulband, öryggisloftpúSi í stýri, samlæstar hurSir, rafdrifnar rúSur og m.fl. Til að auÖvelda þér bílakaupin enn frekar, tökum við vel með farna notaÖa bíla uppí. Bílheimar hf. FOSSHÁLSI 1. SÍMI 63 4000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.