Morgunblaðið - 23.07.1993, Side 36

Morgunblaðið - 23.07.1993, Side 36
Gæfan fylgi þér í umferðinni sióvá5Maimennar MORGVNBLADID, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK Slm 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1566 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Skák í Bratislava Braga bannað að tefla vegna rauðra hunda MÓTSHALDARAR á skákmóti barna og unglinga í Bratislava í Sióvakíu hafa bannað Braga Þorfinnssyni að halda áfram keppni þar sem þeir telja að hætta sé á að hann smiti aðra keppendur af rauðum hundum. Læknar á staðnum telja að hann sé haldinn þeim sjúkdómi. Bragi virðist þó vera við góða heilsu, er hitalaus og var aðeins með útbrot í sólarhring. Þrátt fyrir að unnið hafí verið stanslaust að því í 2 sólarhringa af hálfu íslend- inga að leita lausnar á málinu, telja mótshaldarar það ekki mögulegt . að hann haldi áfram taflmennsku. Lyktir málsins eru taldar slæmar fyrir íslenska liðið sé tillit' tekið til þess að Bragi hafði unnið allar þijár skákirnar sem hann tefldi. Úrslit skáka annarra íslenskra keppenda í gær voru eftirfarandi: Matthías Kjeld tapaði fyrir Peter Leko frá Ungverjalandi, Helgi Ass Grétarsson vann Svisslendinginn Kellerberger og Magnús Öm Úlf- arsson vann Ástraiíubúann Cortis. ♦ ♦ ♦ Áðstoð vegna lyfjakostnaðar 56 umsókn- ir borist Morgunblaðið/Guðmundur St. Valdimarsson Nýr þyrlupallur í Surtsey í SUMAR hafa starfsmenn Nátt- úruvemdarráðs og Landhelgis- gæslunnar unnið við að reisa und- irstöður fyrir nýjan þyrlupall í Surtsey. Þyrlan TF-GRÓ hefur flutt efni milli varðskips og eyjar. Að sögn Helga Hallvarðssonar hjá Landhelgisgæslunni mun nýi pall- urinn bæta lendingaraðstöðu á eyjunni til mikilla muna og fram- vegis geti allar íslenskar þyrlur lent þar. A Aframgott veður á Suðurlandi VEÐURHORFUR á landinu um helgina eru góðar sunnan- og vest- anlands, en lítil breyting verður á veðri norðanlands. Gert er ráð fyrir norðanátt um mest allt land og bjartviðri sunnan- og vestanlands. Þá er gert ráð fyrir rigningu norðanlands. Ekki er búist við að hiti fari yfir 10 stig fyrir norð- an. Á Suður- og Vesturlandi gæti hiti farið upp í 17 stig. í Reykjavík er búist við bjartara veðri en verið hefur tvo síðustu daga. ♦ ♦ ♦------------ Hús fyrir Hæstarétt 40 tillögur hafa borist FRESTUR til að skila inn tillögum í samkeppni um hönnun og bygg- ingu dómhúss fyrir Hæstarétt rann út á mánudag. Samkvæmt heimildum Morgunhlaðsins hafa borist um 40 tillögur í keppnina. Samkvæmt samkeppnisgögnum þurfa að líða fímm dagar frá þvi frestur rennur út þar til byrjað verð- ur að dæma þar sem tillögur póst- lagðar áður en frestur rann út gætu átt eftir að berast. „Við munum byija að dæma í næstu viku eftir að frest- urinn rennur út fyrir póstlagðar til- lögur. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar en um miðjan ágúst,“ segir Garðar Halldórsson, húsameistari ríkisins. TRYGGIN GASTOFNUN rikisins hefur fengið 56 umsóknir um sérstaka aðstoð vegna lyfja- og lækniskostnaðar. Flestar um- sóknirnar snúast um tiltölulega lágar fjárhæðir, að sögn Krist- jáns Guðjónssonar, deildarstjóra __ s/úkratryggingadeildar. I vor var almannatryggingalög- unum breytt þannig að Trygginga- stofnun gæti veitt tekjulágu fólki aðstoð við lyfjakaup og læknis- kostnað. Varð það meðal annars gert vegna fullyrðinga um að ein- staklingar hefðu farið illa út úr breytingum á þátttöku sjúklinga í þessum kostnaði. Opnuð var leið fyrir Tryggingastofnun til að hjálpa því fólki. Kristján sagði að umsóknarfrest- ur væri til 1. september og vildi hann ekki leggja neitt út af þeim umsóknum sem borist hefðu. Greinargerð Seðlabankans um nafnvaxtahækkanir í vikunni Ekkí er um raunvaxta- hækkun banka að ræða NIÐURSTAÐA Seðlabankans í greinargerð þeirri sem unnin var að beiðni Sighvats Björgvinssonar viðskiptaráðherra um vaxtahækkan- ir viðskiptabankanna og afhent var ráðherranum síðdegis i gær, er í þá veru að þær vaxtahækkanir sem ákveðnar voru á óverðtryggð- um útlánum feli ekki I sér hækkun raunváxta, jafnvel þvert á móti. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins telur Seðlabankinn ekki að vaxtaþróun sé komin úr böndum og að verðbólguskriða sé yfirvof- andi. Viðskiptaráðherra mun kynna greinargerð Seðlabankans á ríkisstjórnarfundi í dag. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, hefur sagt að eðlilegt hefði verið að leggja til grundvallar við vaxtaákvörðun verðbólguviðmiðun sem byggðist á verðbólgu síðastlið- inna þriggja mánaða og verðbólgu- spám næstu þriggja mánaða. Þá hefði niðurstaðan orðið sú að vext- ir hefðu ekki hækkað. Seðlabank- Umhverfislistaverk skapað í hinum óteljandi Vatnsdalshólum 1000 hælar reknir í hólana inn mun í greinargerð sinni vísa til þess að jafnvel þótt sú viðmiðun hefði verið lögð til grundvallar, þá hefðu vextir samt sem áður hækk- að, en um eitthvað minni lækkun raunvaxta hefði orðið að ræða. Telur bankinn að við slíka viðmið- un hefðu raunvextir íslandsbanka og Búnaðarbanka verið óbreyttir, en einhver raunvaxtalækkun hefði orðið hjá Landsbankanum. Seðla- bankinn telur með öðrum orðum að þrátt fyrir þær vaxtahækkanir sem ákveðnar hafa verið sé ekki um hækkun raunvaxta að ræða, þar sem þær séu lægri en verð- bólgustigið sem miðað er við. VATNSDALSHÓLAR hafa Iöngpim verið taldir til þriggja óteljandi náttúrufyrir- brigða á íslandi. Sú staðhæfing gætí hins vegar átt eftír að heyra sögunni tíl eftír þessa helgi því þá ætlar ung íslensk mynd- listarkona að skapa umhVerfislistaverk í Vatnsdalnum. Felst verkið í því að reka 1.000 hæla í hólana og kemur þá væntan- lega í ljós hversu margir þeir éru. Aðal- markmið myndlistarkonunnar Finnu Birnu Steinsson er hins vegar að mynda fram- kvæmdina og fullbúið verkið. Úr myndun- um ætlar hún síðan að setja saman bækling. . „Ég ætla að reka 70 cm hæl með appelsínu- gulri veifu í hvern hól og athuga hvort ég þarf þessa þúsund hæla eða hvort eitthvað gengur af og mig vantar meira. Ég ætla hins vegar ekki að bæta við heldur álykta um fjöld- ann út frá þeim hólum sem eftir eru. Svo verð ég líka að ákveða á staðnum hvað sé hóll og hvað ekki, t.d. ef einn vex út úr öðrum o.s.frv. Þetta er svona könnun og þá um leið hugmynda- og umhverfislist," sagði Finna Birna en aðspurð kvaðst hún búast við að fá einhveija til að hjálpa sér við verkið. „Ég býst við að það verði ansi seinlegt að gera þetta, að það taki svona 2-3 daga.“ Stendur í nokkra daga Hún sagði að umhverfíslistaverkið myndi aðeins standa í nokkra daga. „Ég ætla bara að mynda verkið og svo tek ég það niður. Myndimar nota ég síðan í bækling um fram- kvæmdina," sagði Finna Birna og kvaðst ein- ungis vona að gott veður yrði til verksins um helgina. Hún útskrifaðist úr skúlptúrdeild listaakademíunnar í Múnchen í Þýskalandi í fyrra. Vatnsdalshólar eru yst í Vatnsdal í Austur- Húnavatnssýslu, á rúmlega 4 ferkílómetra svæði. Talið er að þeir hafí myndast af hruni úr Vatnsdalsfjalli löngu fyrir íslandsbyggð. Hafa þeir verið taldir með þremur óteljandi náttúrufyrirbrigðum hér á landi ásamt vötnun- um á Amarvatnsheiði og eyjunum á Breiða- firði. Vaxtaþróun ekki úr böndunum í greinargerð sinni mun Seðla- bankinn taka fram að hann telji ekki að vaxtaþróun sé komin úr böndum og verðbólguskriða sé að ríða hér yfír. Þá mun Seðlabankinn benda á að eftirmarkaðsvextir á ríkis- tryggðum pappímm, sem banka- stjórar viðskiptabankanna hafi jafnan sagst miða vaxtaákvarðanir sínar við, væm farnir að lækka. Því hljóti þess nú að vera vænst að grunntölur viðskiptabankanna verði lækkaðar í samræmi við það.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.