Morgunblaðið - 10.08.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993
23
Albert II. nýkrýndur konungur Belgíu á tímum nýrrar stjórnskipunar í landinu
Þykir lífsglaður en fullfær
um að axla konungsskyldur
Konungur ræðir við keisara
ALBERT konungur ræðir við Akihito Japanskeisara, í erfidrykkju í konungshöllinni eftir jarðarför
Baldvins, bróður Alberts, síðastliðinn laugardag.
BÚIST er við að Albert II.,
nýkrýndur konungur Belg-
íu, leiði þegna sína af sama
stöðugleika og virðingu og
bróðir hans, Baldvin, sem
borinn var til grafar á laug-
ardag, gerði. Þykir Albert
hafa róast til muna frá því
fyrir nokkrum áratugum er
hann og kona hans Paola
voru vinsælt umfjöllunar-
efni slúðurblaða.
Baldvin konungi og konu hans
Fabiolu varð ekki barna auðið. Því
var það yngri bróðir konungs, Al-
bert, sem stóð næstur til ríkis-
erfða. Samt kom það nokkuð á
óvart þegar tilkynnt var að Albert
tæki við. Almennt var við því búist
að Albert, sem er 59 ára gamall,
myndi þoka fyrir elsta syni sínum,
Philippe. Albert hefur ekki verið
mikið í sviðsljósinu að undanförnu
og álitið hefur verið að menntun
og uppeldi sonar hans miðaðist við
að hann tæki við af Baldvin.
Góður kostur
Talið er að það hafi verið ósk
hins látna konungs að félli hann
frá tæki bróðirinn við fremur en
bróðursonurinn. Hirðin, ríkis-
stjórnin og stór hluti Belgíumanna
er á einu máli um Albert sé mun
betur til þess fallinn að axla þá
ábyrgð sem konungdómnum fylgir
heldur en sonur hans sem ekki
þykir nægilega þroskaður auk þess
sem hann er ekki álitinn nema í
meðallagi greindur. Belgískir fjöl-
miðlar nefndu einnig að Philippe
kynni að vilja kvænast aiþýðukonu
sem myndi útiloka hann frá kon-
ungdómi.
Ein veigamesta skýringin á því
að Albert tekur við af bróður sínum
er þó líklega hve stöðugleiki er
íbúum landsins mikilvægur nú þeg-
ar ný stjórnskipan landsins er að
festa sig í sessi þar sem Belgíu
er skipt í tvo hluta eftir málsvæð-
um auk þriðja hlutans, Brussel,
þar sem bæði flæmska og franska
eru talaðar. Þótt Albert hafi ekki
sömu pólitísku reynslu og bróðir
hans er hann betur heima í við-
skiptaheiminum. Hann hefur haft
ijölmörg verkefni með höndum
sem fulltrúi lands síns á því sviði
og er gjarnan nefndur sendiherra
belgísks efnahagslífs. Albert var
mörg ár í sjóhernum og hefur nafn-
bót aðmíráls.
Albert á eina systur, Josephine-
Charlotte, sem giftist árið 1953
Jean stórhertoga af Lúxemborg.
Æska þeirra bræðra var enginn
dans á rósum. Þeir misstu móður
sína í bílslysi árið 1935. í stríðinu
máttu þeir þola útlegð, framsal og
fangavist. En þótt Baldvin megn-
aði aldrei fyllilega að komast yfír
þetta erfiðleikatímabii og afsögn
föður síns Leópolds III. árið 1951
varðveitti Albert lífsgleði sína.
Hann hefur dálæti á hraðskreiðum
mótorhjólum, bifreiðum og íþrótt-
um yfirleitt. Lífsmáti hans var iðu-
lega umfjöllunarefni slúðurblaða á
sjötta og sjöunda áratugnum.
Hinn þröngi vegur
Árið 1959 kvæntist Albert Paolu
Ruffo di Calabria. Það er því ítölsk
kona sem nú verður drottning
Belgíu á eftir Fabiolu hinni
spönsku. Ef marka má belgísk
dagblöð þá er Paola enginn eftir-
bátur eiginmanns síns hvað lífs-
þrótt snertir. Víst er að þau hjónin
gengu aldrei rakleitt hinn þrönga
veg sem hirðsiðir mæla fyrir um.
Albert þykir hafa róast með árun-
um; vinir lýsa honum sem
skemmtilegum manni sem hafi
fjölmörg áhugamál og sé gæddur
heilbrigðri skynsemi. Upp á síð-
kastið hefur lítið borið á honum
opinberlega m.a. vegna heilsu-
brests.
Konungshjónin eiga þrjú börn.
Áður er nefndur Philippe, sem er
33 ára. Astrid er næstelst og þyk-
ir hún hvað bestum kostum búin
kóngafólksins belgíska. Hún er
gift austurrískum erkihertoga og
býr í Brussel. Yngstur er Laurent
sem er við nám í Bandaríkjunum.
Fabiola, ekkja Baldvins, mun
áfram hafa opinberu hlutverki að
gegna og Belgar munu því hafa tvær
drottningar ef svo má segja. Upphaf-
lega var því lýst yfir að þjóðarsorg
yrði landinu fram til 7. september
en þá hefði Baldvin orðið 63 ára.
Að beiðni ekkjunnar lauk þjóð-
arsorginni í gær er Albert tók við
og er það kannski táknrænt fyrir
þá trú manna að veldissproti kon-
ungdæmisins Belgíu sé í jafngóðum
höndum og fyrr.
Heimild: Frankfurter Allgew
meine Zeitung og Reuter.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut. J
Kopavogi, simi
B71800 ^
Suzuki Swift GL Sedan '90, hvítur, 5 g.,
ek. 43 þ. V. 700 þús.
Fjörug bílaviðskipti
Vantar árg. ’89-'93 á staðinn.
Ekkert innigjald.
Audi 80 1.8E ’89, svartur, 5 g., ek. aðeins
35 þ., álfelgur, sóllúga o.fl. V. 1350 þús.,
sk. á ód.
Daihatsu Sedan SG ’90, svartur, 5 g., ek.
45 þ. V. 710 þús.
Renault Clio 1.4 RT ’91, 5 dyra, grásans,
5 g., ek. 23 þ., rafrúður, fjarst. læsingar
o.fl. V. 730 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade CS ’90, hvítur, 4 g.,
ek. 69 þ. V. 490 þús. stgr.
MMC Lancer GLXi Hlaðbakur 4x4 ’91,
grásans, 5 g., ek. 49 þ., rafm. í öllu o.fl.
V. 1180 þús.
Toyota Corolla XL Hatsback ’92, 5 dyra,
sjálfsk., ek. 40 þ. V. 930 þús.
MMC Colt EXE ’92, svartur, 5 g., ek. 28
þ. Fallegur bíll. V. 850 þús.
Saab 90 '87, rauður, 5 g., ek. 117 þ.
Góður bíll. Nýskoðaður '94. V. 480 þús.
MMC L-300 Minibus 4x4 ’88, grásans,
5 g., ek. 120 þ. Gott ástand. V. 1090 þús.
Suzuki Sidekick JLX árg. '91, 4ra dyra.,
svartur, sjálfsk., ek. 52 þ., ABS bremsur,
rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. Sem nýr.
V. 1690 þús.
Toyota Corolla Lift Back ’88, 5 g., ek.
79 þ. Gott eintak. V. 620 þús., sk. á ód.
(eða 2 bílum).
MMC Lancer '89, sjálfsk., ek. 29 þ., Ijós-
blár. V. 750 þús.
Góðar fréttir fyrjr
væntanleaa
farsímaeiaendur
Motorola farsíminn seldist upp í júlí en nú er komin ný sending
af þessum vinsælu farsímum.
Nú getur þú eignast Motorola farsíma á frábæru verði og góðum
greiðslukjörum. Pantanir óskast sóttar.
MOTOROLA
— traustur tengiliður
PÓSTUR OG SfMI
Söludeild Ármúla 27 s.: 91-636680, söludeild Kringlunni s.: 91-636690, söludeild í Kirkjustræti s.: 91-636670 og á póst- og símstöðvum um land allt.