Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 29
MÖRGUNBLAÐIÐ VJÐSMPTIÆiIVINNUIÍF 'ÞRIÐJUDÁGUR 10, ÁGÚST 1993 29 Heildverslun Einar Farestveit með KitchenAid EINAR Farestveit & Co. hf. hefur tekið að sér umboðið fyrir Kitch- enAid á íslandi. KitchenAid heimilistækin hafa verið seld hér á landi undanfarin 35 ár. Frá upphafi sáu Samband íslenskra samvinnufé- laga og Dráttarvélar hf. um innflutning á KitchenAid vélunum, en síðustu árin Mikligarður. í fréttatilkynningu frá Einar Farestveit segir að þegar ljóst hafi verið hvert stefndi með rekstur Miklagarðs hafi KitchenAid farið að leita að nýjum umboðsmönnum til að taka að sér sölu og þjónustu á tækjunum hér á landi. UMBOÐ — Einar Farestveit & Co. hefur tekið að sér umboð- ið fyrir bandaríska fyrirtækið KitchenAid. Tölvusamskipti * Ahugi banka á pappírslausum við- skiptum minni en vonast var til - segir framkvæmdastjóri Verslunarráðsins VILHJÁLMUR Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands og formaður EDI-félagsins, hefur sent stjórn Reiknistofu bankanna bréf, þar sem hann veltir upp þeirri spurningu hvort ákvörðun Reiknistofunn- ar um að nota samskiptaforritið X.COM 6.2 sem staðal í samskiptum við bankana samræmist alþjóðlegri þróun í átt til pappírslausra við- skipta. Hann segir jafnframt, að áhugi bankanna á framgangi þess máls hafi verið minni en vonir stóðu til. EDI-félagið á íslandi var stofnað árið 1989 og er það samstarfsvett- vangur þeirra aðila, sem hag hafa af framgangi pappírslausra við- skipta. í bréfínu til stjórnar Reikni- stofu bankanna segir Vilhjálmur Egilsson, að mikið hafi verið reynt að fá bankana til samstarfs á þessu sviði. Hins vegar hafi áhugi þeirra verið minni en vonast hafi verið til, þrátt fyrir að þeir eigi aðild að EDI- félaginu. Vilhjálmur segir, að í ljósi þessa hafi verið athyglisvert að heyra af kaupum Reiknistofu bankanna á samskiptaforriti, sem hún hafi ákveðið að vera skuli staðall .í sam- skiptum hennar og bankanna. Segir Vilhjálmur að þetta veki spurningar um það, hvort sú stefna, sem þarna sé tekin, samræmist hinu alþjóðlega viðurkennda umhverfi pappírslausra viðskipta, sem megináhersla sé lögð á af hálfu bæði opinberra aðila og flestra annarra í íslensku viðskipta-' lífi. Spyr hann, hver verði lagaleg staða þeirra færslna, sem fara muni fram í þessum samskiptum, til dæm- is gagnvart bókhaldslögum. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSNÆÐISBRÉF 1. FLOKKUR 1993 Einar Farestveit & Co. mun í fyrstu leggja höfuðáherslu á inn- flutning og sölu á hrærivélum og fylgihlutum þeirra. Fyrirtækið hef- ur samið við Einar Stefánsson, raf- vélvirkja í Hlégarði 14 Kópavogi, um viðhaldsþjónustu á KitchenAid uppþvottavélum og öðrum stærri tækjum frá KitchenAid. Fyrsta sendingin frá KitchenAid Erlent hrærivélum er væntanieg til lands- ins nú í byijun ágústmánaðar og verður vélunum þá dreift til útsölu- staða. Flest kaupfélaga í landinu munu selja KitchenAid áfram líkt og hingað til. Með vélunum mun nú fylgja stór leiðbeiningabók á ís- lensku með uppskriftum sem Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennari hefur staðfært. BP snýr tapi í hagnað 6. Uppboð -10. ágúst 1993 Sjötta uppboð húsnæðisbréfa fer fram 10. ágúst n.k. Frestur til þátttöku rennur út kl. 14:00 þann dag og þurfa bindandi tilboð í bréfin að hafa borist Húsnæðis- stofnun ríkisins. Húsnæðisbréf eru gefin út í tveimur einingum, 1 m.kr. og 10 m.kr. að nafnverði. Húsnæðis- bréf eru verðtryggð með lánskjaravísitölu til 20 ára með 39 jöfnum greiðslum vaxta og afborgana. Upplýsingarit ásamt tilboðsgögnum liggja frammi hjá Húsnæðis- stofnun ríkisins, Suðurlandsbraut 24, Reykjavfk og nánari upplýsingar um útboðið veitir verðbréfadeild stofnunarinnar. TEKJUR bresk-hollenska olíurisans Royal Dutch/Shell lækkuðu nokkuð á öðruin fjórðungi þessa árs en BP, British Petroleum, kom hluthöfum sínum gleðilega á óvart með því að snúa tapi í hagnað. Talsmenn beggja félaganna segja, að staðan á olíuefnamarkaði sé mjög þröng og verði áfram en þeir búast við, að olíuverð hækki nokkuð fram til áramóta vegna aukinnar eftirspurnar. Á öðrum ársfjórðungi voru nettó- tekjur Shell 864 milljónir dollara, sex prósentum minni en á sama tíma fyrir ári. Er það aðallega rakið til gengistaps og mikils kostnaðar við endurskipulagningu efnadeildarinn- 774 í fyrra, og hagnaður BP var 392 millj. dollara á móti 1,22 milljarða dollara tapi fyrir ári. Hlutir í Shell lækkuðu um níu pens hver en hækk- uðu um fjögur í BP. HANDSAL H F LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKl ■ AÐiLI AÐ VERÐBRÉFAMNGI ISLANDS ENGIATEIGI 9 • 105 REYKIAVÍK • SÍMl 686111 • FAX 687611 ar. A þessum ársfjórðungi í fyrra tapaði BP hvorki meira né minna en 975 milljónum dollara en núna var hagnaður upp á 273 milljónir doll- ara. Þessar tölur segja þó ekki allt um afkomuna því að þegar tekið hefur verið tillit tii annarra iiða kem- ur í ljós, að hagnaður Shell var 928 millj. dollara á öðrum ársfjórðungi, Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Ðömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. eyðir Útsölustaðir: Shell- og Esso -stöðvar og helstu byggingavöru- verslanir. Dreifing: Hringás hf., sími 677878-fax 677022 feillinn é íslandi og bíll órsins miðað við efnahagshorfvr ILffldb Sofar verð ffvá 558.000 kr. BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13,« REYKJAVÍK SÍMI: 68 12 00 • BEINN SIMI: 3 12 36

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.