Morgunblaðið - 31.08.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993
23
Eldri borgarar rækta garðinn sinn í Skólagörðunum Laugardal
„Heilsubót fyrir LT
líkama og sál“
„ÞETTA ER engin smá rófa,“ sagði Jón Sigurðsson þegar hann
skoðaði hluta uppskeru sinnar í garðreit E-4 í Skólagörðum Reykja-
víkur i Laugardal. Jón er einn fjölmargra eldri borgara, sem á
síðustu þremur árum hafa fengið úthlutað reit í skólagörðunum
víða um borgina og sinnt þar görðum sínum við hlið 8-12 ára barna.
Hann segir veruna í görðunum mikilvæga tilbreytingu í daglegu
lífi eldra fólks. Það geti komið þegar því henti, dundað sér í garð-
inum og notið félagsskapar jafnt barna sem jafnaldra sinna.
„Ég hef lengi haft garð, þar sem
ég hef ræktað mitt eigið græn-
meti,“ segir Siglfirðingurinn Jón
Sigurðsson. „Þegar ég kom suður
árið 1969 fékk úthlutað garði á
Korpúlfsstöðum en fljótlega flutti
mig yfir í Skammadal. Sá staður
fannst mér aftur á móti svo langt
í burtu að ég ákvað að reyna að
koma því í kring að aldraðir fengju
garðreiti í skólagörðunum." Hann
segist hafa kynnt hugmyndina
Samtökum aldraðra, sem síðan
hafi skrifað borgaryfirvöldum og
óskað eftir plássum í görðunum.
„Fyrir um þremur árum komumst
við að í görðunum í Laugardalnum
og hér hef ég verið síðustu þijú
sumur.
Lífsmynstri breytt
Að sögn Jóns hafa í sumar milli
20 og 30 eldri borgarar verið með
reit í görðunum í Laugardal. „Flest
af þessu fólki nýtur þess að koma
í garðana og dútla góða stund í
góðum félagsskap. Þetta er ákaf-
lega góð heilsubót bæði fyrir lík-
ama og sál og er sannarlega þörf
breyting á lífsmynstrinu," segir
hann.
„Hér getur fólk drepið tímann,
hist og spjallað. Ég tel það einnig
skipta höfuðmáii að fólkið ræður
sér sjálft. Við komum þegar við
viljum og kannski bara til þess að
taka upp eina rófu í matinn." segir
Jón og brosir við. Loks er það mik-
ill kostur að kostnaður við að halda
utan um garðinn er lítill sem eng-
inn. Við greiðum í upphafi sumars
aðeins 600 krónur en fyrir það
fáum við reitinn, grænmetið og síð-
ast en ekki síst alveg yndislega
aðstoð starfsmannanna og leiðbein-
endanna í garðinum.
Börnin harðdugleg
Að mati Jóns er samveran með
börnum indæl og lærdómsrík.
Morgunblaðið/Kristinn
Rófa og radísur.
JÓN Sigurðsson er í hópi fjöl-
margra eldri borgara, sem hafa
fengið garðreit í skólagörðun-
um í Reykjavík. Hann segir
mikilvægt fyrir eldra fólk að
geta haft eitthvað fyrir stafni
en það snúi heim endurnært
eftir heimsókn í garðinn sinn.
„Börnin eru harðdugleg og mörg
þeirra koma hingað hvernig sem
viðrar. Það er ennfremur einstakt
að fylgjast með eftirvæntingu
þeirra þegar líður að uppskerutím-
anum,“ sagði Jón Sigurðsson.
Gunnar Á. Gunnarsson verkefnisstjóri
Lífræns samfélags í Mýrdal
Áhersla ágæöi
og ímynd Islands
SETT hefur verið á stofn þróunarverkefni framleiðenda í landbúnaði
og þjónustu í Mýrdal og nefnist það Lífrænt samfélag. Gunnar Á.
Gunnarsson, verkefnisstjóri Lífræns samfélags, segir að helsta mark-
miðið með verkefninu sé að kanna möguleika á vistrænni atvinnuþró-
un í Mýrdal m.a. í landbúnaði. Hann segir að eins og staðan í landbún-
aði sé í dag, séu Islendingar ekki samkeppnishæfir við erlendar land-
búnaðarvörur.
Gunnar segir að með fullri aðild
að evrópsku efnahagssvæði komi
samkeppnisaðstaða íslensks land-
búnaðar til með að versna til muna
og hann ekki lengur njóta þeirrar
verndar, sem hann hafi notið ára-
tugum saman. „Við sjáum ekki
hvernig við eigum að geta keppt
við erlendan landbúnað. Því hlýtur
þetta að vera spujnig um að leggja
áherslu á gæðin ojg sérstöðu og
jafnframt ímynd Islands," segir
hann.
Hann segir að lífrænn landbún-
aður geti gefið vonir um að unnt
hægt sé að byggja hér upp arðbær-
an landbúnað, sem geti hugsanlega
keppt við erlenda framleiðslu.
Gunnar segir að aðstandendur
verkefnisins, sem eru framleiðendur
í landbúnaði og þjónustu, þar á
meðal Mýrdalshreppur, vilji að ekki
verði aðeins tekið á landbúnaðar-
málum heldur einnig ferðaþjónustu
og öðrum þáttum, sem snúa að
Mýrdalshreppi. „Við viljum athuga
hvernig stunda megi opinbera- og
einkareikna þjónustu á þann hátt
sem best samræmist því umhverfi,
sem við lifum í. Landbúnaður er
hins vegar þungamiðja verkefnisins
vegna þess að hann er undistaða
atvinnulífs í Mýrdal,“ segir Gunnar.
Almennur fundur boðaður
í tengslum við verkefnið verður
almennur fundur haldinn í Leikskál-
um í Vík í Mýrdal 2. september
næstkomandi og þar munu þeir
Bernward Geier, framkvæmdastjóri
IFOAM, sem eru alþjóðleg samtök
500 lífrænna landbúnaðarhreyf-
inga, og Harvé La Prairie, stjórnar-
maður samtakanna og bóndi í
Frakklandi, halda erindi um hug-
myndir og framkvæmdir lífræns
landbúnaðar og um stöðu hans í
heiminum í dag.
Prentsmiðja Fransiskussystranna í Stykkishólmi
Nýir eigeridur taka við rekstrinum
Stykkishólmi.
HLUTAFÉLAG var stofnað 23.
ágúst sl. um rekstur prentsmiðju
sem systurnar á spítalanum hafa
rekið í Stykkishólmi í fjöldamörg
ár. Prentsmiðjan hefur verið í
eigu kaþólsku kirkjunnar á Is-
landi en Fransiskussystur hafa
séð um reksturinn og lagt til
húsnæði og starfskrafta.
Prentsmiðjan hefur haft miklu
hlutverki að gegna í Stykkishólmi
þar sem Hólmarar og aðrir hafa
fengið fyrirtaks þjónustu. Nú í byij-
un árs tók kaþólska kirkjan þá
ákvörðun að leggja niður prent-
smiðjuna. Það hefði verið sjónar-
sviptir ef rekstrinum hefði verið
hætt. Því voru hafnar viðræður við
kaþólsku kirkjuna og náðust samn-
ingar um kaupin á prentsmiðjunni.
Nýstofnað hlutafélag kaupir allar
eigur prentsmiðjunnar og tekur við
rekstri hennar. Systurnar leggja til
aðstöðu og vinna áfram við prent-
verkið. Þijú störf verða í prent-
smiðjunni eins og áður en reiknað
er með að umsvif hennar munu
Morgunblaðið/Árni Helgason
Starfsmennirnir
STARFSMENN prentsmiðjunnar: Mark Deriveau, systir Petra og syst-
ir Lucile.
aukast þar sem nú verður farið að
afla verkefna.
I stjórn nýju prentsmiðjunnar eru
Pétur Kristinsson, Róbert Jörgens-
en og Hanna María Siggeirsdóttir.
- Árni.
Námskeið
Sjálf sþekking - Sjálf söryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónuiegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem aujta sjálfsöryggi
É0K|Íjk Leiðbeinendur
Wk sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Innritun oo nánari uppiýsingar nii—
V/SA@ í síium Sáliræðistöðvarinnar:
■■■■ 62 30 75 00 2 11 16 kl. 11-12. EUflOCARD
Skólaostur
R U M L E G A
15%
LÆKKUN!
VERÐ NU:
599 kr.
kílóið.
VERÐ ÁÐUR: ^TOSTRt. kílóið.
110 kr.
ÞU SPARAR:
á hvert kíló.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SH