Morgunblaðið - 31.08.1993, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993
35
Frá vinstri: Ásta Björnsdóttir, Tryggvi Pétursson, Rakel Pálsdóttir, -
Alma Guðjónsdóttir, Pálína Björnsdóttir, Beryl Morina og Sigriður
Ármann.
Luku baUettkennaraprófi
Aldrei of gamall
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Ekkjuklúbburinn („The Cemet-
ery Club“). Sýnd í Sagabíó. Leik-
stjóri: Bill Duke. Aðalhlutverk:
Ellen Burstyn, Olympia Dukakis,
Diane Ladd, Danny Aiello.
I rómantísku gamanmyndinni
Ekkjuklúbburinn eða „The Cemet-
ery Club“ er fjallað um það vanda-
mál sem þijár rosknar konur standa
frammi fyrir þegar þær þurfa að
fóta sig í tilverunni eftir lát eigin-
manna sinna. Allar eru þær í kring-
um sextugsaldurinn og í fullu fjöri
en tómið sem eiginmennirnir hafa
skilið eftir reynist erfitt að fylla.
Myndin tekur á málum á gaman-
saman hátt en með alvarlegum
undirtóni undir leikstjórn Bill Dukes
og höfðar efniviðurinn örugglega
ekki nema til ákveðins hóps kvik-
myndahúsagesta. Þijár valinkunnar
sæmdarleikkonur hafa verið fengn-
ar í aðalhlutverkin, þær Ellen
Burstyn, Olympia Dukakis og Diane
Ladd og til að bæta við rómantík-
inni hefur Danny Aiello verið feng-
inn til að heilla Burstyn upp úr
skónum og er sá geðþekki leikari
þar réttur maður á réttum stað.
Myndin er byggð á samnefndu
leikriti en Duke hefur tekist vel að
„opna“ það og færa í þekkilegan
kvikmyndabúning. Myndin er ríku-
lega fyllt af tilfinningahlöðnum
andartökum jafnvel svo manni þylct
ir nóg um enda á hver þessara
þriggja kvenna um sig um sárt að
binda. En til að vega upp á móti
armæðunni er slegið á léttari
strengi bæði á milli þeirra innbyrð-
is og í lýsingu á vinkonu þeirra einni
sem virðist gifta sig a.m.k. einu
sinni á dag. y
Burstyn á langan og gifturíkan
feril að baki í kvikmyndunum og
sýnir hér að hún hefur engu gleymt
og stendur upp úr sem kona sem
er tilbúin að byija nýtt líf þótt það
kosti hana átök. Dukakis er sú trú-
fasta, þunglynda og húmorlausa í
hópnum en Ladd aftur sú fjöruga.
En þótt allar réttu meiningarnar
séu til staðar og efniviðurinn for-
vitnilegur virkar myndin heldur lítil-
fjörleg en minnir sífellt á sjónvarps-
þætti um þijár eldri konur sem búa
saman. Kannski eru persónurnar
full staðlaðar til að koma á óvart.
ÞRÍR kennaranemar frá Ballett-
skóla Sigríðar Ármann luku ný-
lega fyrri hluta kennaraprófs frá
„The National Association of
Teachers of Dancing" í klassísk-
um balett. Prófdómari var Mrs.
Beryl Morina frá London.
Þessir nemendur eru Alma Guð-
jónsdóttir, Rakel Pálsdóttir og Pál-
ína Björnsdóttir. Auk kennaranem-
anna þriggja tók einn nemandi skól-
ans, Tryggvi Pétursson, nemenda-
próf frá sama félagi. Kennaranem-
arnir þrír hafa stundað nám í klass-
ískum ballett hjá Balletskóla Sigríð-
ar Ármann sl. 10-15 ár og sl. 3
ár sérstaklega sem kennaranemar.
Er þetta í fyrsta skipti sem félagið
prófar kennaranema í klassískum
ballet hérlendis.
Kennari þeirra er Ásta Björns-
dóttir en hún er útskrifuð frá sama
félagi.
HARÐVKJARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHALSI 4 R. SfMI 671010
fEVestfrost
Frystikistur staðgr.verð
HF 201 72 x 65 x 85 36.921,-
HF271 92 x 65 x 85 41.013,-
HF 396 126 x 65 x 85 47.616,-
HF506 156 x 65 x 85 55.707,-
SB 300 126 x 65 x 85 52.173,-
Frystiskápar
FS 205 125 cm 55.335,-
FS275 155 cm 62.124,-
FS345 185 cm 73.656,-
Kæliskápar
KS 250 125 cm 49.104,-
KS315 155 cm 52.638,-
KS 385 185 cm 63.333,-
Kæli- og frystiskápar
KF 285 155 cm 70.215,-
kælir 199 Itr frystir 80 Itr 2 pressur
KF350 185 cm 84.816,-
kælir 200 ltr frystir 156 itr 2 pressur
KF 355 185 cm 82.956,-
kælir 271 itr frystir 100 ltr 2 pressur
[i |
Faxafeni 12. Sími 38 000 I
Höfóar til
„fólks í öllum
starfsgreinum!
Núer
þrefaldur
Lviimiiigur
Spilaðu með fyrir kl.
16 á miðvikudag
Síðast vai' haiui
132.730.000 kr.