Morgunblaðið - 31.08.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 31.08.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993 43 Jóhanna Ágústs- dóttir — Minning Fædd 26. ágúst 1907 Dáin 23. ágúst 1993 Við systkinin viljum hér með ör- fáum línum kveðja elskulega ömmu okkar. Amma, Jóhanna Ágústsdóttir, var borin og barnfædd í Vest- mannaeyjum, löngum kennd við Kiðaberg. Hún hefði orðið 86 ára 26. ágúst daginn sem hún var kistu- lögð. í Eyjum bjó hún lengstan hluta ævi sinnar, en síðustu árin bjuggu afi og amma í Garðabæ. Fyrstu minningar um hana ömmu tengjast óhjákvæmilega Vestmannaeyjum og afa að sjálf- sögðu, hvort kallar á hitt í minning- unni. Hjá þeim áttum við barna- börnin þess kost að dvelja langdvöl- ( um í fríum, í því ævintýralandi sem Vestmannaeyjar voru í augum lítilla barna frá höfuðborgarsvæðinu. Þær I minningar tengjast líka skrítnum farartækjum eins og DC-3-flugvél- um og óttasleginni ömmu í móttök- ( unni á flugvellinum. Minningar tengdar gamla Heijólfi og nætur- siglingu frá Reykjavík til Eyja í umsjón Sigga O.K. yfirvélstjóra um borð, kunningja afa og ömmu. Þá blasti ævintýraheimurinn við þegar stigið var á land í Eyjum að morgni og áhyggjufull amma á hafnar- bakkanum og henni við hlið afí sallarólegur að vanda. Þegar þessi minningarbrot eru rifjuð upp verður okkur ljóst að amma hafði einstakt lag á okkur barnabörnunum. Það var ekki síst vegna þess að hún umgekkst okkur eins og jafningja. Hún talaði okkar mál, enda var iðulega einstaklega i stutt í grínið hjá henni. Þeir voru t.a.m. ekki ófáir brándararnir sem hún kenndi okkur krökkunum eða I þá gáturnar, vísurnar og tilsvörin sem enn lifa í tungutaki fjölskyld- unnar. Ég minnist einnig hve viljug i hún var að segja okkur sögur fyrir " háttinn. Það var að sjálfsögðu blað- laust. Hún kunni ótal sögur, t.a.m. söguna af Grámanni í Garðshorni. Þá sögu gátum við fengið ömmu til að segja kvöld eftir kvöld. Alltaf var sagan jafn líflega borin á borð fyrir lítil kríli sem, eins og öll böm, bjuggu jafn harðan til myndir í huganum af því sem fram fór í sögunni. Margar af þeim myndum sitja enn greyptar í huga okkar, svo oft og svo leikrænt og líflega var sagan framsett. Á efri árum rifjaði hún oft upp atvik fyrir okkur sem höfðu átt sér stað í þessum heimsóknum okkar. , Atvik sem við jafnvel höfðum N gleymt. Þær minningar hennar voru augljóslega tengdar söknuði til ár- anna í Vestmannaeyjum. Þegar afi veiktist mátti endur- upplifa þá umhyggju og hlýju sem við barnabörnin nutum á árum áður ( í faðmi ömmu. Afi hafði fengið heilablóðfall og lamast að hluta til og var því mikið til ósjálfbjarga fyrstu mánuðina á eftir, og náði sér í raun aldrei fullkomlega aftur. Þá var aðdáunarvert að fylgjast með henni daglega lesa fyrir hann helstu fréttir dagblaðanna, hjálpa honum að matast og yfirleitt að verða sjálf- bjarga. Hún annaðist hann af alúð og eljusemi allt þar til að hann lést fyrir fjórum árum. Söknuður ömmu við fráfall afa var eðlilega mikill. Þar fóru tveir einstaklingar sem voru einstaklega samrýndir og háðir hvor öðrum, hvor á sinn hátt, þrátt fyrir ólíkan (j persónuleika. Oftlega talaði hún um það hve sárt hún saknaði hans. Það var hjartnæmur og einstaklega fal- ,j legur söknuður. Síðustu 25 árin bjuggu afi og amma í Garðabænum í um fimm i mínútna göngufæri frá æskuheimili okkar systkinanna. Þá urðu heim- sóknimar enn tíðari. Oftlega röltum við yfir í Arnarnesið þar sem að sjálfsögðu eins og alltaf voru reidd- ar fram rausnarlegar veitingar. Eftir erfitt veikindastríð sem var- að hefur sumarið, fór heilsu hennar hrakandi. Oft á síðastliðnum vikum stóð hún við dauðans dyr en náði sér ávallt á strik á ný. Jafnvel þá var oft ótrúlegt að fylgjast með því hve stutt var í grínið og glettnina hjá þeirri gömlu. Við kveðjum ömmu með söknuði. Baldur Ó. Svarsson, Nína Björk Svavarsdóttir, Bryndís Björk Svavarsdóttir. Nú er tengdamóðir mín, hún Jó- hanna látin, og langar mig að minn- ast hennar nokkrum orðum. Hún var dóttir hjónanna Ágústs Benediktssonar (1875-1962) frá Marteinstungu, Holtahreppi, Rang- árvöllum, og Guðrúnar Hafliðadótt- ur (1878-1937) frá Fjósum, Mýr- dalshreppi, V.-Skaftafellssýslu, en þau bjuggu allan sinn búskap í Vestmannaeyjum, byggðu húsið Kiðjaberg við Hásteinsveg, en þar fæddist Jóhanna hinn 26. ágúst árið 1907. Heimilið var dæmigert eins og þá gerðist í Eyjum, heimilis- faðirinn sjómaður fyrstu árin, tók þá upp störf í landi tengd útvegi, en gerðist síðar útgerðarmaður. Daglegt líf í uppvextinum var því tengt sjósókn, fiskveiðum og út- gerð. Við þessar aðstæður ólst Jóhanna upp, varð snemma að taka til hend- inni við dagleg störf ásamt systkin- um sínum, þeim Sigríði, sem lést árið 1961, Guðrúnu Ágústu (Lóu), búsettri í Vestmannaeyjum, og einkabróðurnum Jóhanni Óskari Alexis, búsettum í Kópavogi. Jó- hanna varð snemma ákaflega starf- söm og harðdugleg innan heimilis sem utan, enda lífsbaráttan oft hörð á þessum árum. Glaðværð og léttleiki einkenndi systkinin frá Kiðjabergi, sem urðu vinsæl meðal jafnaldra og sam- ferðamanna. Söngvin voru þau mjög, enda öll gædd ágætri söng- rödd og áttu óvenju ríkulega söng- gleði. 011 sungu þau systkin á þeim gamla Vestmannakór og tóku þátt í ýmiss konar uppákomum í bæjar- lífínu, sjálfum sér og öðrum til upp- lyftingar og skemmtunar. Rúmlega tvítug kynntist Jóhanna ungum manni, sem flust hafði til Eyja frá Siglufirði, felldu þau hugi saman, en árið 1931 gengu þau í hjónaband. Þar steig Jóhanna áreið- anlega sitt stóra gæfuspor í lífinu, Fæddur 6. mars 1919 Dáinn 4. ágúst 1993 í örfáum orðum langar mig til að kveðja indælan mann, Marinó Þorbjörnsson, sem lést 4. þessa mánaðar. Ég var kynnt fyrir hjón- unum Marinó og Unu í fyrsta skipti í janúar 1991. A þeim tíma var ég búin að þekkja Marinó Albert Jóns- son, sonarson og nafna hans, í rúm- an mánuð. Hann hafði mikið talað um afa sinn og ömmu og haft mörg orð um það hversu rosalega góð þau væru bæði. Marinó hlakkaði mikið til að kynna mig fyrir þeim og ég hlakkaði svo sannarlega mik- ið til að hitta þau vegna allra góðu lýsinganna. Ég varð alls ekki fyrir vonbrigð- um því að þau tóku á móti mér með opnum hug og Marinó bauð mér meira að segja að kalla sig afa eftir fyrstu heimsóknina. Ég dáðist að því hvað maðurinn var jákvæður og skemmtilegur. Það kom mér líka skemmtilega á óvart að hann var ekkert fíþminn við að sýna tilfinn- ingar sínar, því þegar við vorum því að hjónaband þeirra varð afar farsælt, urðu mjög samstillt, styrktu hvort annað og má segja að hvorugs væri getið, nema hitt væri nefnt, og bera þessi orð áreið- anlega glögg merki þess. Fannst mér hjónaband þeirra bera glögg merki léttleika og glaðværðar hús- móðurinnar, yfírvegunar og ná- kvæmni húsbóndans. Starfaði Bald- ur starfsævi alla við Útvegsbanka íslands hf., vann í fyrstu öll almenn störf, en var með árunum falin meiri ábyrgð, uns hann tók við stöðu bankastjóra. Hann varð af- skaplega vinsæll og vel látinn jafnt af starfsfólki sem viðskiptamönn- um, vann bankanum vel og varð farsæll í starfí. Fyrstu árin stóð heimili Jóhönnu og Baldurs á Borg, og voru þau gjarnan kennd við það hús. Síðar keyptu þau Ásaveg 5, en er Baldur varð bankastjóri þeirra Eyjamanna, fluttust þau í nýbyggingu Útvegs- bankans við Kirkjuveg. Þau eignuð- ust þrjú börn, Harald, sem er fædd- ur 1932, útibússtjóri íslandsbanka í Kópavogi, kvæntur Gyðu Guð- mundsdóttur; Birnu sem er fædd 1933, húsmóðir í Garðabæ, gift undirrituðum; og Lilju Hönnu, sem er fædd 1944, gift Atla Aðalsteins- syni, búsett í Vestmannaeyjum. Aður hafði Jóhanna eignast Guð- rúnu Ágústu, sem býr í Eyjum. Hún var gift Hjálmari Eiðssyni, sem lést á sl. ári. Gekk Baldur henni í föður- stað og ól hana upp sem eigin dótt- ur. Jóhanna eignaðist sjö barnaböm, og barnabörnin voru orðin 12, er hún féll frá. Jóhönnu kynntist ég 1956, er ég tók að venja komur mínar til Eyja. Minnist ég glöggt hve vel og elsku- lega mér var tekið, enda umgerðin ákjósanleg, sjálf Þjóðhátíðin í Heij- ólfsdal. Stóð Jóhanna í stafni hús- að fara þá tók hann létt utan um mig og sagði: „Blessuð, vina mín, og láttu sjá þig sem oftast.“ Svo bætti hann við með glettni í augun- um: „Og þú þarft ekkert endilega að hafa hann Marinó með!“ Með þessum orðum var hann að segja manni að maður væri alltaf velkom- inn og það lýsti honum vel. Öðru hvoru litum við Marinó Al- bert irin á Lækjargötunni og þá var alltaf eitthvert góðgæti sem þau buðu uppá. í apríl 1991 fengum við Marinó að gista á efri hæðinni á Lækjargötunni á meðan á próflestri stóð í páskafríinu. Þetta var góður tími og okkur leið vel hjá þeim. Þegar ég var þarna tók ég eftir því hvað Una og Marinó voru samrýnd og virtust vera góðir félagar. Ég hafði orð á því við Marinó Albert að ég óskaði þess að við gætum orðið eins og þau á okkar eldri árum. Með þessum orðum kveð ég Marinó Þorbjörnsson og ég votta Unu og öllum sem þekktu Marinó mína dýpstu samúð. Ingibjörg Kristín. tjalds ijölskyldunnar, útdeildi hefð- bundnum þjóðhátíðarveitingum af mikilli rausn, milli þess sem hún leiddi almennan söng, en lék sjálf undir af fingrum fram á gítarinn sinn. Slíkar trakteringar í þessari sérstöku umgerð voru dreng úr Reykjavík óvæntar og auðvitað framandi, en minningin lifir svo sannarlega. Síðar átti ég því láni að fagna að dveljast oftsinnis á heimili Jóhönnu og Baldurs í Eyjum óg sé ég hana fyrst og fremst fyrir mér sem rausnarlegu Eyjakonuna, sem tók mér svo vel. Vegna starfs Baldurs var heil- mikill erill á heimili þeirra. Bæði voru þau ákaflega gestrisin, rausn- arleg og mannblendin og því mikill gestagangur á heimili þeirra, bæði af heima- og aðkomumönnum. Jó- hanna fann alltaf tíma til alls, með- fæddur dugnaður og eljusemi nýtt- ist henni fullkomlega. Hún lét sér annt um uppeldi barnanna, og lagði sig mjög fram um að kenna þeim hina bestu siði, gerði miklar kröfur til barna sinna en hlífði sjálfri sér síst. Er barnabörn og síðar barna- barnabörn litu dagsins ljós, fylgdist hún glöggt með þeim, og ekki fór framhjá neinum hve mjög hún bar velferð þeirra fyrir brjósti. Eins og ég sé Jóhönnu fyrir mér, var hún fyrst og fremst. hús- móðir, í bestu merkingu þess orðs. Hún hélt fullkominni reglu í sínum húsum, allt hreint og snyrtilegt, hver híutur á sínum stað. Sérstak- lega lagði hún sig fram við matseld alla, var snilldarkokkur, ef svo má segja, gerði hinn besta mat með sínu eigin, sérstaka bragði og skil- aði þeirri kunnáttu óspart til barna sinna. í dag eru þau mörg heimilin, sem fá að njóta hins sérstaka bragðs hennar Jóhönnu. Þrátt fyrir eril og önn dagsins, var ætíð stutt í glaðværðina hjá henni tengdamóður minni. Við minnumst hressilegs gleðihláturs, sem fyllti heimilið og eins er hún kastaði frá sér verkinu, sem hún var að vinna, greip gítarinn og söng af hjartans lyst, til að létta sér lund og lífga upp á tilveruna. Jóhanna var ör í skapi, ákaflega fljót að gleðjast og eins að daprast ef svo bar undir, en aldrei leið á löngu þar til hún tók gleði sína aftur. Hún var margrar gæfu aðnjótandi í lífinu og fékk að njóta margs, sem ekki var öllum gefíð á þeim tímum. Þau Baldur ferðuðust heilmikið erlendis, löngu áður en slíkar ferðir urðu almennar. Hún átti alltaf fallegt heimili, átti heiðursmann að lífs- förunaut og börn, sem stóðu undir væntingum uppeldisins. Hún kynnt- ist ijölda manns vegna starfs eigin- mannsins, var hvarvetna aufúsu- gestur og naut sín einkar vel í fjöl- menni á góðum stundum, þar sem meðfædd lífsgleði Jóhönnu og létt skap hreif aðra með. Hún var heilsugóð lengst af, alyeg fram yfir áttrætt. Árið 1968 verða þáttaskil í lífi Jóhönnu, er þau fluttust í Garðabæ, eftir 37 ára starf Baldurs við bank- ann í Eyjum, en hann tók nú við stjórn útibús bankans í Kópavogi, við stofnun þess. Nú voru þau orð- in nágrannar okkar og samskiptin urðu auðvitað nánari og tíðari. Ekki varð séð að vistaskiptin breyttu miklu. Þau samlöguðust nýja umhverfinu á ótrúlega skömm- um tíma, eignuðust nú ennþá fleiri vini og kunningja. Ský dró fyrir sólu árið 1974, er Baldur varð fyrir alvarlegum hjartaáföllum, sem urðu þess valdandi að hann varð að láta af ævistarfí sínu, eftir 43 ár í Út- vegsbankanum. Við þessar erfiðu aðstæður kom meðfæddur dugnað- ur og ákveðni Jóhönnu enn betur í ljós. Umhyggja og stuðningur henn- ar ásamt samheldninni varð til þess að Baldur náði viðunandi heilsu á ný. Við, sem hjá stóðum, lærðum mikið af því hve ótrúlegum árangri má ná með einstökum dugnaði við erfiðar aðstæður. Seinustu árin bjuggu Jóhanna og Baldur að Boðahlein 20, Garðabæ, í eigin húsi, en í skjóli D.A.S. Baldur andaðist í árslok 1988, og varð fráfall hans Jóhönnu mikið áfall. En hún vildi búa áfram í eigin húsi og náði sér allvel, þótt hár aldur hafi háð henni allra sein- ast. Viljum við færa sérstakar þakk- ir til starfsfólks D.A.S. fyrir fram- úrskarandi þjónustu, sem þessi stórmerku samtök veita skjólstæð- ingum sínum, en Jóhanna bar mik- inn hlýhug til þeirra. Seinustu mánuðina dvaldist Jó- hanna á St. Jósepsspítala, Hafnar- fírði, naut alúðar og elskulegheita lækna og hjúkrunarfólks. Fyrir þetta vilja aðstandendur þakka af sérstökum hlýhug. Að leiðarlokum vil ég kveðja Jó- hönnu Ágústsdóttur hinstu kveðju. Hennar er sárt saknað, en ég er þakklátur fýrir það, sem ég náði að læra af henni, þakklátur fyrir endurminningarnar, sem eru mér afar kærar og veit að hún kvaddi sátt við alla. Blessuð sé minning Jóhönnu Ágústsdóttur. Megi hið eilífa ljós lýsa henni á nýjum vegum. Svavar Davíðssor Kælir/ frystir Ltr. h. b. d. stgr.verð 140 85 50 60 25.900,- 225 123 55 55 36.900,- 230 139 55 60 38.400,- 321 163 60 60 51.900,- 370 180 60 60 71.900,- Frystiskápar: 120 85 50 60 33.300,- 210 122 55 60 36.400,- 290 150 60 60 51.900,- [•] KJÖLUR hf. Ármúla 30 Símar 678890 - 678891 Marinó Þorbjöms- son — Minning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.