Morgunblaðið - 31.08.1993, Side 54

Morgunblaðið - 31.08.1993, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993 íslendingar hafa aðgang að upplýsingakerfinu INFOTERRA Þátttaka getur skapað mikla möguleika ÍSLENDINGAR gætu haft mikið gagn af upplýsingakerfinu IN- FOTERRA sem miðlar upplýsingum varðandi umhverfisóhöpp og umhverfismál. Upplýsingaþjónusta Háskóla íslands hefur annast milligöngu við INFOTERRA og fyrirspurnir hafa verið gerðar frá Islandi og fyrirspurnir borist hingað. Innan skamms munu íslenskir aðilar og stofnanir með þekkingu og tækni sem tengist umhverfismál- um fá tækifæri til að skrá sig inn í upplýsingakerfi INFOTERRA. INFOTERRA kynnt FRÁ blaðamannafundi Utanríkisráðuneytisins þar sem INFOTERRA var kynnt. F.v. Jón Erlendsson forstöðumaður Upplýsingaþjónustu Háskólans, Mik Magnússon, upplýsingafulltrúi INFOTERRA, Magnús Jóhannesson ráðuneytissljóri Umhverfismálaráðuneytis, Þórir Ibsen deildarstjóri og Sigurður Á Þráinsson upplýsingafulltrúi. INFOTERRA er alþjóðlegt upp- lýsingakerfi sem veitir aðgang að upplýsingum um stofnanir og fyrir- ^æki sem hafa tækni og tæki til að takast á við umhverfisóhöpp. Umhverfisráðuneyti íslands tengist INFOTERRA gegn um Umhverfisvemdastofnun Samein- uðuþjóðana, UNEP. Á blaðamanna- -fundi sem Umhverfisráðuneytið efndi til kom fram að samskipti íslands við INFOTERRA hafa þeg- ar skilað árangri. Með þátttökunni tengjast íslendingar í alþjóðastarfi varðandi umhverfismál, mögulegt er að komast í samband við aðila og stofnanir sem hafa þekkingu á hvernig bregðast skuli við umhverf- isóhöppum og eins gefa fyrirspum- ir erlendis frá íslenskum aðilum kost á að kynna þekkingu sína og tækni. Um þessar mundir er mikl- um fjármunum varið til umhverfis- mála víða um heim og skapar þessi þjónusta því mikla möguleika fyrir aðila og stofnanir sem hafa yfir þekkingu og tækni að ráða varð- andi umhverfismál. 24 þús. fyrirspurnir INFOTERRA var stofnað árið 1975 í framhaldi af ráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna um umhverfi mannsins sem haldin var í Stokk- hólum árið 1972. 155 þjóðlönd taka nú þátt í starfsemi INFOTERRA, starfseminni er stjórnað frá 11 svæðisstöðvum en höfuðstöðvarnar eru í Nairobi í Kenýa. Á hvetju ári berast meira en 24 þúsund fyrir- spurnir til stofnunarinnar um um- hverfismál. í gagnabanka INFOTERRA eru skráðir yfir 6.000 aðilar sem veitt geta upplýsingar á svið umhverfis- mála. Mikill hluti þeirra eru hvers- kyns rannsónkarstofnanir. Hlut- verk INFOTERRA er fyrst og fremst að benda á aðila og stofanir er starfa á því sviði sem spurst er fyrir um og veitt geta upplýsingam- ar. Uppi eru hugmyndir um að efla til muna á komandi árum upplýs- ingamiðlun um tæki og tækni til umhverfisverndar sem boðin er á almennum markaði. Odýr og vænleg leið Mik Magnússon, sem er upplýs- ingafulltrúi INFOTERRA, sagði á blaðamannafundinum að skráning í gagnabankann væri ódýr og væn- leg leið til að markaðssetja á al- þjóðagrundvelli þekkingu og tækni, sem liti að umhverfismálum. Jón Erlendsson hjá Upplýsinga- þjónustu Háskólans sagði að hver fyrirspurn til INFOTERRA kostaði frá 5 til 15 þúsund krónur en upp- lýsingar sem leitað væri eftir væru að sjálfsögðu misjanfnlega kostnað- arsamar. Sagði hann að upplýs- ingar úr skýrslum sem þegar hefðu verið gerðar gætu verið mjög ódýr- ar en sérfræðiþjónusta væri að öllu jöfnu dýr. Hann lagði áherslu á að yfirleitt væri miklu ódýrara að leit _ Ólafsvík. ÓVENJU annasamt var hjá lög- reglunni í Ólafsvík um helgina. Nokkuð bar á skemmdarverk- um og auk þess var brotist inn í sundlaug staðarins. Nokkur ungmenni höfðu fengið sér sundsprett í sundlaug Ólafs- víkur auk þess að synda höfðu þau með sér þrjú þúsund krónur í pen- ingum. Ungmennin skyldu eftir sig nærfatnað í lauginni þannig að það þurfti að tæma sundlaugina daginn eftir og þrífa eftir þessa sundgarpa. Umgengnin var væg- ast sagt slæm er sundlaugarvörður mætti á staðinn eftir þetta nætur- upplýsingar varðandi vandamál en reyna að þróa aðferðir heimafyrir til að finna lausn. Jón sagði að inn- an skamms gæfist íslenskum aðil- um kostur á að skrá sig og skapað- ist þar gott tækifæri fyrir þá sem hefðu þekkingu eða tækni sem nýst gæti erlendis í sambandi við um- hverfismál. ævintýri ungmennanna. Að sögn lögreglunnar er málið upplýst. Á laugardagskvöldið voru unnar nokkrar skemmdir á þremur bíl- um. Einn þeirra er rúta Pláhnet- unnar en hljómsveitin lék fyrir dansi um kvöldið en rannsókn þessara skemmdaverka er ekki lokið. Nokkrir ungir menn reyndu að sanna karlmennsku sína með því að beija hver á öðrum. Engir alvarlegir áverkar hlutust af þess- um mannalátum ungu mannanna. Óvenju fjölmennt var á dansleikn- um enda lokaball sumarsins. - Alfons. ----♦ ♦ ♦--- Merkjasala Hjálpræðis- hersins HINIR árlegu merkjasöludagar Hjálpræðishersins á íslandi verða að þessu sinni frá mið- vikudeginum 1. til föstudagsins 3. september. Merkjasala Hjálpræðishersins er þýðingarmikil . fjáröflunarleið fyrir starf hans hér á landi. Tekjur af merkjasölunni eru einkum not- aðar til að fjármagna barna- og unglingastarfíð sem nú er að hefj- ast að afloknu sumarfríi. Merkið, sem er hringlaga límm- iði með áprentuðu blómi, verður selt á götum Reykjavíkur og Akur- eyrar, og einnig verður víða selt í húsum. Verðið er hið sama og undanfarin ár, 100 kr. Kringlukráin Lifandi tónlist SÖNGKONAN Margrét Eir heldur tónleika í Kringlu- kránni í kvöld, þriðjudaginn 31. ágúst, en hún er nýkom- in að utan. Henni til aðstoð- ar verður Ari Einarsson. Margrét Eir og Ari hafa áður komið fram á Kringlu- kránni en tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 22 stundvíslega. Morgunblaðið/Ámi Heigason Eldri borgarar til Vestfjarða AFTANSKIN heitir félagsskapur eldri borgara í Stykkishólmi og hefur hann starfað í nokkur ár og hefur boðið upp á fjölbreytt félagsstarf. Nýverið fóru Aftanskinsfélagar í árlega skemmtiferð. Nú var farið með Baldri yfir Breiðafjörðinn og heimsóttir sunnanverðir Vestifírðir. Þetta var tveggja daga ferð. Þátttakendur í ferðinni voru 34 félagar. Formað- ur Aftanskins er Kristín Bjömsdóttir og var hún fararstjóri í þessari ferð. - Árni. II JONS PETURS 09 KORU BOLHOLTI6 REYKJAVIK s. 91-36645 og 685045 fax 91-683545 Samkvæmisdansar': standard og suðun-amerískir Gömludansarnir - Tjútt Barnadansar (yngst 4 ára) Byrjendur - Framhald - Hóptímar - Einkatímar Allir aldurshópar velkomnir: Barnahópar - Unglingahópar - Fullorðinshópar (einstaklingar, pör og hjón) Kennsla á landsbyggðinni auglýst síðar Seljum hina frábæru Supadance dansskó Fiölskylduafsláttur Systkknaafsláttur SPOR I RETTA ATT! INNMTUN í SÍMUM: 36645 og 685045 ALLADACA 1.-8. sept. kl. 12-19 KENNSLA HEFST 10. sept. 1993 Skírteini afhent í Bolholti 6: fimmtudaginn 9. sept. kl. 14-21 Æfingasalur opinn sjö daga vikunnar Faglærðir danskennarar - betri kennsla FÍD Félag islenskra Danskennara - DÍ Dansráð íslands RAÐGREIÐSLUR Órói í Ólafsvík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.