Morgunblaðið - 31.08.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993
33
Tölvur
Sýning um upphaf
tölvualdar á Islandi
25 ára afmælissýning Skýrslutæknifélagsins
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
ÞRIÐIUDACSTILBOO
/ UPPHAFI tölvualdar er yfirskrift sýningar sem verður opnuð
föstudaginn 3. september í Geysishúsinu í Aðalstræti. Sýningin
er haldin í tilefni 25 ára afmælis Skýrslutæknifélags íslands og
verður í Geysishúsinu til sýnis tölvubúnaður og þróun hans á síð-
ustu 25 árum. Þeirri þróun verður lýst með gömlum munum og
nýjum og mun fylgja ýmis fróðleikur um notkun þeirra.
Þróun tölvutækni hefur verið mjög
hröð síðastliðin 25 ár. Afkastageta
töluvbúnaðar hefur margfaldast og
nú eru notkunarmöguleikar þessa
búnaðar nánast óþrjótandi. Á sýning-
unni verður borinn saman gamli og
nýi tíminn í tölvubúnaði eins og seg-
ir í fréttatilkynningu frá Skýrslu-
tæknifélaginu. Meðal sýningargripa
verða m.a. gataspjaldavél sem nú
heyrir sögunni til og Newton handt-
ölva frá Apple sem sögð er vera vís-
Utsöluverö^^si
bjons hja ATVR (1 kippa) 1 i
Innfluttur bjór:
Kostnaðarverð____
kr.
___158,30
60% verndargjald af cif-verði _ 92,40
21,25% ígildi vörugj. af cif-verði 48,13
45% álag_____________________134,48
Vínandaskattur...............316,37
Skilagjald .. 30,36
24,5% VSK--------------------191,11
Afrúning-----------------------1,15
... 970,00
... 185,00
______46,25
UTSOLUVERÐ_____
Innlendur bjór.
Kostnaöarverð—
Igildi vörugjalds_
45% álag.
Vínandaskattur
Skilagjald.....
24,5% VSK......
Afrúning.
ÚTSÖLUVERÐ
. 104,07
.316,37
30,36
.167,11
... -0,84
850,00
ir að tölvu framtíðarinnar. Þróun
vélbúnaðar síðasta aldarfjórðung er
einnig sýndur í máli og myndum.
Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkur-
borgar og Póstur og sími munu
kynna dæmi um þá þjónustu sem
þeir veita ásamt því að standa fyrir
sérstökum dagskráratriðum.
Á sýningunni verður sérstök dag-
skrá hvem dag sem á að sýna eða
lýsa notkun á ýmsum munum, jafnt
nýjum sem gömlum. Meðal dagskrár-
atriða sem verða auglýst sérstaklega
má nefna að Ottó A. Michelsen og
fleiri munu segja frá því hvemig
gömlu tölvurnar voru notaðar, gerð
kvikmyndarinnar Jurassic Park verð-
ur kynnt með aðstoð tölvu, sýnt verð-
ur hvernig tölvutæknin getur verið
hjálpartæki fyrir fatlaða, íslenskra
menntanetið verður kynnt, en það
byggir á nýjustu tækni í tölvusam-
skiptum, notkun tölvu við gerð tón-
listar verður kynnt og loks verður
hugbúnaðargerð kynnt sem ný út-
flutningsgrein.
Eins og segir í fréttatilkynning-
unni er hér aðeins um að ræða hluta
af því sem verður í boði á sýning-
unni. Dagskráratriðin munu hefjast
kl. 16.30 á virkum dögum og kl.
14.30 um helgar.
Skýrslutæknifélag íslands býður
alla velkomna á sýninguna í upphafi
tölvualdar í Geysishúsinu við Aðal-
stræti. Sýningin er opin virka daga
frá kl. 9.00-18.00 og um helgar frá
kl. 11.00-18.00. Síðasti sýningardag-
ur verður 19. september.
1.995,-
Stærðir: 25-37
Litur: Svartur
Ath.: Loðfóðraðir
og með endur-
skini í hæl
1 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR 1
Domus Medica, Kringlunni,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 689212
Afeng
Ríkið fær
um80% af
bjórverði
RIKIÐ fær samanlagt í sinn hlut
um 80% af verði þess bjórs, sem
seldur er í verslunum ÁTVR. Hlut-
ur ríkisins í verði innflutts bjórs
er rúmlega 83% en um 78% í verði
innlendrar framleiðslu. Þessi hlut-
föll eru fengin með því að leggja
saman ígildi vörugjalds, álagn-
ingu ÁTVR, vínandaskatt og virð-
isaukaskatt. Þá bætist við þetta
sérstakt verndargjald, sem lagt
er á erlendan bjór og skilagjald
af umbúðum, sem kaupendur geta
reyndar fengið endurgreitt.
Kippa af algengum erlendum bjór
í 33 cl. umbúðum kostar í verslunum
ÁTVR 970 kr. Það verð er fengið
með þeim hætti, að kostnaðarverð
er kr. 158,30, við það bætist 60%.
verndargjald af innflutningsverði,
31,25% ígildi vörugjalds, 45% álag
sem rennur til ÁTVR, vínandaskatt-
ur upp á 316,37 kr., skilagjald upp
á 30,36 kr. og 24,5% virðisaukaskatt-
ur. Þetta gerir samanlagt 971,15 kr.
en frá þeirri upphæð eru til hagræð-
is dregnar frá 1,15 kr. til að fá út-
söluverðið.
Ef miðað er við algengan innlend-
an bjór í sams konar umbúðum er
kostnaðarverðið á kippu 185 krónur,
sem við bætist 25% ígildi vörugjalds,
45% álag ÁTVR, vínandaskattur,
skilagjald og virðisaukaskattur.
Samanlagt er verðið þá 849,16 kr.,
sem við er bætt 84 aurum.
Nýjung í bílaviðskiptum
SUZUKIVITARA
með 4ra ára lánakjörum
SUZUKI VITARA
fæst nú á betri kjörum en nokkru sinni fyrr. Útborgun 25% af kaupverði og
eftirstöðvar lánaðar með mánaðarlegum greiðslum í 48 mánuði.
SUZUKI VITARA
fæst 3ja eða 5 dyra með vali um beinskiptingu eða sjálfskiptingu.
Verð frá kr. 1.985.000 (3ja dyra jLXir beinskiptur)