Morgunblaðið - 31.08.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. AGUST 1993
47
DANMÖRK
Alltaf alvarlegur... bara
hinir sem hlæja
Danski grínistinn og tónlistar-
maðurinn Victor Borge hefur
verið heima í sumar, meðal annars
til að halda upp á 150 ára afmæli
Tívolís. Og nú á næstunni mun hann
stjórna fimm sýningum á óperu Moz-
arts, Töfraflautunni, í Konunglega
leikhúsinu. í tilefni þess efndi leik-
húsið til blaðamannafundar með öld-
ungnum, sem lék við hvern sinn fing-
ur af tilhlökkun yfir verkinu. Borge
er 85 ára og hefur búið í Bandaríkj-
unum í um hálfa öld, en talar enn
ómengaða dönsku, þó einstöku sinn-
um vanti hann orð. Og hann hefur
víða komið við, líka á íslandi, þar
sem hann hefur skemmt.
Þegar hann var spurður hvort
ekki yrði erfitt fyrir hann að vera
alvarlegur og stjórna hljómsveitinni
rak hann upp undrunarsvip og sagð-
ist alltaf vera alvarlegur. Það væru
bara hinir sem frnndu hjá sér hvöt
til að hlægja. Fyrir honum væru öll
verkefni alvarleg, en auðvitað gæti
hann ekki stýrt hveiju fólk byggist
við. Hann stjórnaði bara tempóinu i
sýningunni. Og óperustjórnun feng-
ist hann við til að skemmta sjálfum
sér, ekki öðrum.
„Ég er leikhúsmaður,“ sagði
Borge. „Pabbi spilaði í hljómsveitinni
í Konunglega leikhúsinu í 35 ár.
Þegar hann kom aftur heim, þekkti
mamma hann ekki ... Ég hef það í
blóðinu að vera á sviði. í óperunni
renna öll listform saman, tónlistin,
leikur, myndlist, byggingarlist og að
fá leyfi til að eiga við þetta allt sam-
an er það stórkostlegasta sem hægt
er að ímynda sér. Nú, hljómsveitin
tók mér vel ... og ég henni ... Ég
hlakka til, annars hlakka ég alltaf
til. Ég geri það sem ég kann best
og ér við góða heilsu, svo ég er hepp-
inn.“ Og hann gleymir ekki að geta
þess að eftir að hafa séð mörg óperu-
og leikhús um allan heim þá hiki
hann ekki við að segja að það Kon-
unglega sé fallegasta leikhús í heimi.
Borge laumar stöðugt út úr sér
skondnum athugasemdum og snýr
svolítið út úr fyrir blaðamönnum, en
allt á elskulegan hátt og aldrei beint
á kostnað neins. Samt virðist hann
ekki beint spilandi kátur. Hann segir
Viktor Borge í léttri sveiflu hér á landi árið 1988.
líka að hann sé ýmist mjög hátt uppi
eða langt niðri, þunglyndi þekkir hann
af eigin raun, en vill ekki ræða það
nánar. Og hann er glaður yfír að
vera hér heima í Kaupmannahöfn,
þó „heima" sé líka í Bandaríkjunum,
þar sem börn og bamabörn hans
búa. „Heima er hér,“ segir hann og
bendir á höfuðið. „Það er ekki bara
einhver staður. En það byijaði hér
og Kaupmannahöfn er eins og akker-
ið, en akkerisfestin er löng.“
Verðandi hljómsveitarstjóri hefur
ákveðnar skoðanir á hljómsveitar-
stjórum. „Hljómsveitarstjórar fara
oft í taugarnar á mér, því þeir láta
eins og allt snúist um þá. Stjórna
eins og Joeir séu aðalatriðið, ekki tón-
listin. Eg er ekki að tala um getu
þeirra, heldur afstöðu og hún getur
gert það að verkum að það er óþol-
andi að horfa á þá stjórna." Nafn
eins og Karajan læðist út úr honum.
Tónsproti Borges kemur úr virðu-
legri átt, því hann var í eigu Friðriks
níunda, föður Margrétar drottningar,
en hann var annálaður tónlistarmaður
og stjómaði stöku sinnum hljómsveit-
um. „Já, sprotann fékk ég að gjöf frá
Ingiríði drottningu, þegar ég varð
heiðursmeðlimur hljómsveitarinnar
við Konunglega leikhúsið. Já, hann
var í eigu Friðriks níunda. Hann var
mikill tónlistarunnandi, ég kallaði
Car/ier
Sa nkor óc Cartier
'eö/ia u/
hann alltaf Friðrik sinfóníunda ..."
bætir Borge við og í þetta skiptið
brosir hann hlýlega og horfir glettnis-
lega í kringum sig. Nú verður sprot-
anum sumsé veifað yfir Töfraflaut-
unni...
FAGOR
FAGOR FE-54
Magn af þvotti 5 kg.
Þvottakerfi 17
Sér hitastillir *-90 C
Ryðfrí tromla 42 Itr.
Þvær mjög vel •
Sparneytnin •
Hraðþvottakerfi •
Áfangaþeytivinda •
Sjálfvirkt vatnsmagn •
Hæg vatnskæling •
Hljóðlát •
(. r R I) F E - 5 4 • S1ADGRF.ITT K R .
39900
K R . 4 2 0 0 0 - M F. Ð A V B O R G l) N IJ M
AW^d°
RONNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68
BORGARKRINGLUNNI, SIMI 6 7 7 2 3 0
Viltu auka þekkingu þína:
Öldungadeild Verzlunarskóla íslands býður hagnýtt nám í
fjölmörgum greinum, fýrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri.
Innritun á haustönn fer fram dagana
26.-31. ágúst og 1.-2. sept. kl. 8.30-18.00.
í boði verða eftirfarandi áfangar:
Bókfærsla Ritvinnsla
Danska Stjórnun
Efnafræði Stærðfræði
Enska Tölvubókhald
Farseðlaútgáfa Tölvufræði
Ferðaþjónusta Tölvunotkun
Franska Verslunarréttur
Islenska Vélritun
Mannkynssaga Þýska
MiIIiríkj a viðskip ti
Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman
og láta mynda eftirtalin prófstig:
• Próf af bókhaldsbraut
• Próf af ferðamálabraut
• Próf af skrifistofubraut
• Verslunarpróf
• Stúdentspróf
Umsóknareyðublöð, námslýsingar og allar nánari upplýsingar
fást á skrifstofú skóians, Ofanleiti 1.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS