Morgunblaðið - 05.09.1993, Síða 30

Morgunblaðið - 05.09.1993, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 Guðrún Bima Finns- dóttir — Minning Fædd 7. febrúar 1951 Dáin 29. ágúst 1993 „Systir sæl.“ Svona ávörpuðum við hvor aðra alla tíð. Ég var lánsöm að eiga hana að systur öll þessi ár. Veröldin væri betri staður ef fleiri væru eins og hún. Það má með sanni segja að frá bemsku og allt til þess að við kvödd- umst hinsta sinni hafi aldrei brugð- ið skugga á samverustundir okkar. Með okkur var að vísu nokkur ald- ursmunur og því er ekki að leyna að systir mín nýtti sér hann stund- um, lét mig skjótast hitt og þetta fyrir sig og gera ýmislegt sem hún og vinkonurnar þorðu ekki sjálfar að eiga beint á samviskunni. Ég hlýddi möglunarlaust því að í þá daga voru orð stóru systur lög. En oftast voru tengsl okkar allt 'önnur á æskuáranum. Gunna mátti dragnast með mig, litlu systur, hvert sem farið var, í bíó eða út á leik- völl. Þá hélt hún i hönd mína og ég fann styrk frá henni. En árin iiðu og aldursmunur skipti ekki lengur neinu máli. Við urðum einlægir vinir, við unnum saman, skemmtum okkur saman og fórum saman til útlanda. _^,Svo hófst nýr tími í lífí okkar beggja. Við giftum okkur, eignuð- umst heimili og börn. En þrátt fyrir skyldur við aðra ástvini, skyldur sem kölluðu á mikið annríki og heimtuðu af okkur mikinn tíma, héldust ávallt traust vináttubönd á milli okkar. Áfallið dundi yfir fyrir þremur árum. Daginn sem mér varð ljóst að ég gengi með mitt annað barn, barst mér sú fregn að systir mín væri með krabbamein. Ég hef aldrei upplifað jafnmiklar andstæður á einum og sama deginum. Ég var ’V.Jffí'óð um eðli hins voveiflega sjúk- dóms. Mér fannst ég hlusta á dauða- dóm, þegar hún saðgi mér frá niður- stöðum læknisrannsóknarinnar, en hún var hugrökk og bjartsýn og benti mér á hversu margir hefðu farið með sigur af hólmi í barátt- unni við krabbameinssjúkdóma. Nú hallar sumri. Við eigum ekki eftir að upplifa saman önnur sum- ur. Gunna barðist af krafti og seiglu, en mátti að lokum biða lægri hlut. Haustlitimir era að byija að skreyta lauf tijánna. Gunnu þótti náttúran fallegust, þegar hún skartaði haust- litum, og meðan fyrstu blöðin föln- uðu á sumargróðri landsins, kvaddi Elómastofa Friöfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar, Skreytingar við ðll tilefni. Gjafavörur. m hún þennan heim í faðmi íjölskyld- unnar. Ég hélt oft í hönd hennar síðustu dagana sem hún lifði. Örlögin hög- uðu því svo til að við höfðum skipt um hlutverk frá því sem var þegar við vorum litlar telpur. Nú var það ég sem tók hönd hennar í mína: „Vertu sæl, systir sæl.“ Minning hennar lifir. Valdís Ella Finnsdóttir. Hvað er hægt að segja þegar 42 ára kona kveður lífið eftir harða baráttu við krabbamein? Kona, móð- ir þriggja drengja sem þarfnast hennar. Já, hvað er hægt að segja? Ekkert, ekki eitt einasta orð því að orðin verða eins og innantómt hjóm, magnlaus og án áhrifa. Skáldið sagði: Svo er því farið: Sá er eftir lifír deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifír í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfír. (H.P. 36 ljóð) Guðrún Birna Finnsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1951 og mun lifa í minningu minni. Við þekktumst frá bernsku því að mæður okkar vora systur og nánar vinkonur. Móðir hennar, Hanna Ármann, er uppáhalds frænka mín og faðir hennar, Finnur Björnsson, er mér afar kær. Hjá þeim ólst Gunna upp ásamt Valdísi systur sinni í mikiu ástríki. Gunna frænka mín var glæsileg kona, hávaxin og svipsterk með bjart yfirbragð. Rithönd hennar er eftirminnileg fyrir hvað einstaklega formfögur hún var. Afburða náms- maður var hún og lauk stúdents- prófi með ágætis árangri frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Viðkvæm var hún og tilfinningarík svo að það næstum háði henni. Hún giftist Grétari J. Guðmunds- syni verkfræðingi, og eignuðust þau þijá syni: Elvar Finn þrettán ára, Heiðar Kristján tíu ára og Hannar Sindra þriggja ára. Gunna og Grét- ar voru svo lánsöm að geta stofnað heimili sitt á Sogaveginum í húsinu sem Gunna var alin upp í. Þar bjó hún fjölskyldunni fallegt heimili með myndarskap. Matargerð og bakstur lék í höndum hennar og naut fjöl- skyldan góðs af. Drengimir voru augasteinar hennar og lífsfylling. Hún naut þess að fylgja þeim fyrstu sporin út í líf- ið. Éftir að hún veiktist talaði hún um hversu mjög hún saknaði þess að geta ekki hlúð að þeim með þeim hætti sem hún óskaði og gefíð þeim vegarnesti til fullorðinsára. Hún vissi þó og talaði um að börnin væra í góðum höndum Grétars, sem hefur verið henni stoð og stytta í andstreymi veikindanna. Finnur var Gunnu einstakur fað- ir. Ómetanleg er sú aðhlynning sem hann veitti henni _ undir lokin og reyndar alla tíð. Á hann virðingu mína ómælda. Ég þakka fyrir að hafa átt Gunnu að frænku og eiga minningar um hana um leið og ég sakna hennar. Mikið skarð er fyrir skildi þegar hún er fallin frá og margir í sárum. Grétari og drengjunum óska ég blessunar og bið að þeir megi fínna frið í hjarta. Hanna mín, Finnur og Valdís; þið eigið samúð mína alla. Arndís Steinþórsdóttir. Þegar ung kona í blóma lífsins deyr frá eiginmanni og þremur ung- um börnum spyijum við hver sé til- gangurinn. Svar fæst ekki við þeirri torráðnu gátu. Eftir sitja ástvinir sem hafa þá einu huggun sem góð- ur Guð gefur. Guðrún Birna var fædd í Reykja- vík 7. febrúar 1951, eldri dóttir for- eldra sinna þeirra Hönnu Ármann og Finns Bjömssonar flugvirkja. Yngri systkinin er Valdís Ella, tölv- unarfræðingur, gift Jónasi Ólafssyni viðskiptafræðingi og eiga þau tvo syni. Foreldrar Hönnu voru hjónin Arn- dís Jónsdóttir og Valdimar Ármann, kaupmaður á Hellissandi, en foreldr- ar Finns hjónin Guðrún Gunnlaugs- dóttir og Björn Sigmundsson deild- arstjóri hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri. Guðrún Birna hlaut nöfn föð- urömmu og afa síns. Hún var svo lánsöm að fá að njóta ástúðar og einstakrar umhyggju þeirra þegar hún var bam að aldri og dvaldist hjá þeim á Akureyri um lengri og skemmri tíma. Það var mikill hamingjudagur í lífí Guðrúnar er hún giftist eftirlif- andi eiginmanni sínum, Grétari J. Guðmundssyni verkfræðingi. Hjónaband þeirra var mjög farsælt og eignuðust þau þijá drengi, þá Elfar Finn, þrettán ára, Heiðar Kristján, tíu ára, og Hannar Sindra, þriggja ára. Grétar hefír reynst hinn góði, trausti og fórnfúsi eiginmaður alla tíð og ekki síst í langvarandi veik- indum Guðrúnar. Þar naut hann einnig stuðnings og styrks sam- LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 hentrar fjölskyldu í baráttu við hinn illvíga sjúkdóm. Guðrún var greind kona og góð- um gáfum gædd. Vegna veikinda á unglingsárum varð hún að hætta skólanámi en síðar tók hún upp þráðinn og lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Hamrahlíð. Hún hafði nýhafíð nám við Háskóla ís- lands er hún veiktist af þeim alvar- lega sjúkdómi sem lagði hana að velli. Hún var gædd listrænum hæfí- leikum sem hún nýtti til ýmiss kon- ar handavinnu og föndurs, svo sem til að mála á postulín. Einnig hafði hún sérlega fagra rithönd. Ég minnist frænku minnar, þegar hún var lítil ljóshærð hnáta full af gáska og gleði og svo hrifnæmrar ungrar glæsilegrar stúlku sem lífíð brosti við. Þær minningar munu lifa. Á unglingsáranum voru þær syst- ur Guðrún og Valdís við sumarstörf á eyjunni Jersey í Ermarsundi. Þær hrifust mjög af þessari fögru eyju og fyrir áeggjan þeirra eyddum við hjónin sumarleyfinu á þessum yndis- lega stað. Við minnumst margra ánægjustunda, sem við áttum með þeim og hjálpsemi þeirra og greið- vikni. Fjölskylda Guðrúnar reyndi eftir megni að auðvelda henni veikinda- stríðið með því að gleðja hana á ýmsan hátt. Meðal annars fór hún með móður sinni og systur í ferða- lag til útlanda rúmum mánuði áður en hún lést. Naut hún ferðarinnar og voru þetta dýrmætar stundir fyrir þær allar. Það haustar að og tré og rannar taka á sig margbrotna litadýrð, sem gleður augað. Guðrúnu Bimu þótti haustlitirnir fallegir og glöddu þeir fegurðarskyn hennar. Nú þegar hún kveður þetta jarð- líf og beður hennar hylst haustlitun- um bið ég henni Guðs blessunar um alla eilífð. Ég og fjölskylda mín vottum eig- inmanni, sonum, foreldrum, systur og tengdaforeldram Guðrúnar okk- ar dýpstu samúð. __ ^ Katrín M. Ármann. í lífínu eignumst við marga kunn- ingja, en örfáa vini. Gunna var vin- ur minn. Hún hét fullu nafni Guðrún Birna Finnsdóttir, dóttir hjónanna Hönnu Ármann og Finns Bjömsson- ar og ólst upp á Sogavegi 76 ásamt Valdísi yngri systur sinni. Á fullorð- insárunum fluttist hún aftur í þetta sama hús og bjó þar þangað til hún lézt. Við hittumst fyrst upp úr 1960 10-11 ára gamlar, hún úr Smá- íbúðahverfinu og ég úr Bústaða- hverfinu. Á unglingsáranum unnum við saman sumarið 1966 í frystihús- inu Sjófangi við að garnadraga humar. Einn daginn hljóp hrekkur í Gunnu og tróð hún upp í mig hráum humri. Ég bókstaflega tryllt- ist. Á þessum árum var ég mikill merkjasafnari. Daginn eftir bað hún ■ mig auðmjúklega afsökunar og gaf mér tvö merki. Eftir þetta slettist ekkert upp á vinskapinn. Stuttu síð- ( ar stofnuðu nokkrar stelpur úr hverfinu saumaklúbb. Þar var mikið hlegið og borðað, við kölluðum klúbbinn Matgogga. Á því herrans ári 1968 fórum við alloft saman í Valgerður Gísla- dóttir - Minning Fædd 25. október 1954 Dáin 25. ágúst 1993 Við viljum með fáeinum orðum minnast Völu vinkonu okkar. Hún lést eftir stutt veikindi þar sem almættið tók völdin. Einhvern veginn er svo fjarlægt þegar nákomnir vinir eða ættingjar heyja harða baráttu við dauðann, að hann muni sigra. Alltaf var sú hugsun efst að hún hlyti að hafa þetta af, hún svona kát og kraft- mikil. En stundum verða gleði og ham- ingja að lúta í lægra haldi. Við kynntumst Völu fyrir sjö árum. Þær voru ófáar ferðirnar sem þau komu til okkar Vala, Gylfi og Gísli Geir, og þá jafnt þegar hross voru annars vegar eða hvers konar samverustundir. Hún hafði mikla persónutöfra og var alltaf í brennidepli á góðum stundum með vinum og kunningj- um. Þegar við systurnar vorum að hefja búskap, hver á sínum staðn- um, laumaði hún alltaf einhveiju notadijúgu að okkur, allt frá gömlu eldhúspottunum hennar til hús- gagna sem þau hjón voru hætt að nota og var eins og hún hefði okk- ur alltaf í huga þegar hún var að leggja nytsama hluti til hliðar og lét okkur frekar njóta þeirra. Auðvitað eigum við öll eftir að sakna hennar, hlátursins og hlýj- unnar sem frá henni streymdi, en hún lifir í minningunni og þannig geymum við hana með okkur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Megi góður Guð styrkja ykkur, Gylfi og Gísli Geir, í sorginni. Guð blessi minningu Valgerðar Gísladóttur. Inga, Anna, Ásta, Kol- brún, Jón og Dana Ýr. Þótt hásumar sé liðið og við skynjum andblæ haustsins, átti enginn von á því, að vinkona okk- ar, Valgerður Gísladóttir, yrði köll- uð burt með sumrinu. Fráfall þess- arar ungu konu, sem lést í blóma lífsins eftir stutt veikindi, skilur eftir sig stórt skarð í vinahóp okk- ar, skarð sem verður vandfyllt. Það er liðið á annan áratug síð- an leiðir Valgerðar og Gylfa og okkar hjóna lágu saman, og hafa samskipti okkar að miklu tengst hestum og hestamennsku, en í henni hafa þau og sonur þeirra, Gísli Geir, verið mjög ötul og sam- heldin. Valgerður hefur starfað mikið að félagsmálum hestamanna hin Stílabcekur frá Kassagerbinni StUabœkur frá Kassagerbinni • Stílabcekur frá Kassagerbinni • Stílabcekur frá Kassagerbinni * Stílabækur frá Kassagerbinni Stílabœkur frá Kassagerbinni • StUabœkur frá Kassagerbir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.