Morgunblaðið - 05.09.1993, Side 37

Morgunblaðið - 05.09.1993, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 37 ATVINNUAUGÍ YSINGAR Barnfóstra á Islandi Ástralska stúlku, sem starfar í Englandi, langar að vinna sem „au pair“ eða barn- fóstra hjá íslenskri fjölskyldu. Getur byrjað í janúar eða febrúar 1994 og verið á Islandi í allt að fimm mánuði. Áhugasamir hafi samband við: Tracey Hoff- man, Hartrigg House, Buckden, North York- shire BD23 5JA, Englandi. Byggingavöruverslun Starfsmaður óskast í byggingavöruverslun. Starfið felst í sölumennsku úr verslun og afgreiðslu. Farið verður með umsóknir sem trúnaðar- mál. Tilboð óskast send til auglýsingadeildar Mbl. merkt: „Reyklaus vinnustaður-3875“. Markaðsmaður Verslanakjarni í Reykjavík óskar eftir starfs- manni til að sinna markaðsmálum. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl., merkt: „Hug- myndaríkur - 10549“, fyrir 10. sept. nk. Sölufólk Yfirverkstjóri Frystihús á Austurlandi óskar eftir að ráða í starf yfirverkstjóra/framleiðslustjóra. Starf- ið er laus frá og með 1. október nk. Starfsem- in er hefðbundin bolfisk- og síldarfrysting. Starfsmenn eru um 70. Umsóknir óskast sendar til Morgunblaðsins merktar: „MB - 1313“ fyrir 13. september nk. Járniðnaðarmaður Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit óskar að ráða járniðnaðarmann til starfa sem fyrst. Húsnæði á staðnum. Upplýsingar veitir Ólafur Sverrisson í síma 96-44190 milli kl. 8 og 16 og í síma 96-44124 á kvöldin. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI Hjúkrunarfræðingur óskast á 30 rúma legudeild. FSÍ er nýr og glæsilegur vinnustaður og vel búinn tækjum og búnaði. Starfsaðstaða er til fyrirmyndar. Þarferfram öll almenn lækn- ismeðferð og hjúkrun á sviði hand-, lyfja- og slysalækninga, fæðingahjálpar, öldrunar- lækninga og endurhæfingar. Fjölbreytni í starfi er mikil og starfsandi mjög góður á deildinni. Gott samstarf er við heilsugæslu- stöð sem rekin er í starfstengslum við sjúkra- húsið. Því ekki að athuga málið og kanna aðstæður! Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri f síma 94-4500 á dagvinnutíma og í síma 94-4228 á kvöidin. Traust og drífandi sölufólk óskast á eftirtöld- um stöðum: Selfossi, Keflavík/Njarðvíkum, Stór-Reykja- víkursvæðinu og Akranesi/Borgarnesi. Svör merkt: SG - 5949“ sendist auglýsinga- deild Mbl. fyrir 13. sept. Hjúkrunarfræðingar Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga á allar vaktir. Fullt starf eða hlutastarf. Sveigjanleg- ur vinnutími. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 26222. Tvær stöður aðstoðarframkvæmdastjóra Óslóar-Parísar nefndanna Umhverfisráðuneytið vekur athygli á því að lausar eru til umsóknar tvær stöður aðstoð- arframkvæmdastjóra Óslóar-Parísar nefnd- anna á skrifstofu nefndanna í London. Önnur staðan verður veitt frá 1. janúar 1994 en hin frá 1. september 1994. Nefndirnar fara með framkvæmd Óslóar-Parísarsamninganna um verndun Norðaustur-Atlantshafsins gegn mengun. Umsækjendur skulu hafa hlotið háskóla- menntun í sjávarlíffræði eða efnafræði og a.m.k. fimm ára starfsreynslu. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er hægt að fá í alþjóðadeild umhverfisráðu- neytisins. Umhverfisráðuneytið. Aðalbókari Tölvuvinnsla íslenskt markfang hf., útflytjandi á sjávaraf- urðum, óskar eftir að ráða nú þegar í starf aðalbókara, sem á að hafa yfirumsjón með bókhaldi og færslu bókhalds. Auk þess felst í starfinu að vera þátttakandi í endurskoðun á tölvukerfi fyrirtækisins og aðlaga það auknum umsvifum. Leitað er að dugmiklum einstaklingi með góða skipulagshæfileika, fagþekkingu og starfsreynslu. Nánari upplýsingar veitir Björn Bragason, fjármálastjóri fyrirtækisins, í síma 91- 680700. Skriflegar umsóknir sendist í síðasta lagi 15. september 1993 til undirritaðs. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál. ICEL4ND MflTERS ÍSLENSKT MARKFANG H.F. ICELAND WATERS LTD. HÖFÐABAKKA 9, PÓSTHÓLF 12080, 132 REYKJAVÍK. w Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með upp- eldismenntun óskast til starfa á eftirtalda leikskóla: Bakkaborg v/Blöndubakka, s. 71240. Drafnarborg v/Drafnarstíg, s. 23727. Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230. Gullborg v/Rekagranda, s. 622455. Suðurborg v/Suðurhóla, s. 73023. Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólana: Gullborg v/Rekagranda, s. 622455. Ægisborg v/Ægissíðu, s. 14810. Einnig vantar deildarfóstru í 50% starf e.h. á leikskólann Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik- skólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Okkar vinsæli veitingastaður/matsalur leitar að faglærðum yfirþjóni Starfið felst í: ★ Rekstri á veitingastað, matsal og veislu- sal. ★ Umsjón með starfsþjálfun, starfstilhögun og lærlingum. ★ Umsjón með sölu í deildinni. Við leggjum áherslu á vinnusemi, heiðar- leika, samstarfsvilja, þjónustulund og frum- kvæði. Meðmæli óskast frá fyrri vinnuveit- endum. Við höfum yfir góðu og starfsömu fólki að ráða. Góður aðbúðnaður og laun samkvæmt samkomulagi. Ráðningartími eftir samkomulagi. Útvegum húsnæði. Upplýsingar veitir Edmund H. Utne, sími 90-47-054-61100, símbréf 90-47-054- 61520. Skriflegar umsóknir berist fyrir 20. september '93. tiotel Ullensvang 5774 Lofthus - Hardanger- Noregi. Hotel Ullensvang er eitt af stærstu fjarðahótelum Noregs. Þar er aðstaða til ráðstefnuhalds. Innanhússtennis, squash, keilusalur og baðaðstaöa. Nýr veitingastaður 1990 og '92, nýtt eldhús 1991, nýr móttökusalur 1992. 140 herbergi, 280-380 rúm. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. Norræna listamiðstöðin í Helsingfors leitar að: framkvæmdastjóra Starfssviðið felst m.a. í: Að vera ritari stjórnar „Nordisk Konst- og Konstindustrikommitté" (NKKK) sem í eru tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna. Sem yfirmaður sér framkvæmdastjórinn um daglega starfsemi í miðstöðinni og ber ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og end- urmati, svo og umsjón fjármála hvað varðar: - Útstillingastarfsemi, - Uppiýsingastarfsemi, - Listatímaritið SIKSI - Útstillingafundi og ráðstefnur, - Gestavinnustofur, Umsækjandi þarf að hafa góða innsýn í nor- ræna list og listalíf. Umsækjandi þarf að hafa vald á einu norður- landamálanna; sænsku, dönsku eða norsku, svo og ensku. Gerð er krafa um stjórnunarhæfileika og reynslu af starfsmannahaldi. Framkvæmdastjóranum til aðstoðar eru 10 starfsmenn í heilsdags- eða hlutastörfum ásamt starfsmönnum í tímabundnum sér- verkefnum. Starfið er svoköllað norræn staða sem skip- að er í til fjögurra ára í senn með hugsanleg- um möguleika á framlengingu. Laun eftir samkomulagi. Fyrir embættismann sem ekki er Finni, er að auki greiddur aðlögunar- og dvalarstyrkur, sem er skattlagður í Finn- landi, svo og flutningsstyrkur. Fallegur bústaður, þar sem móttökuherbergi eru að hluta til búin húsgögnum, stendur til boða, í uppgerðu 18. aldar menningarhúsi í Sveaborg. Umsóknir sendist forsvarsmanni stjórnarinn- ar Jorunn Veiteberg, í síma í Osló 90-47-22- 457221 eða til núverandi forstjóra, Staffan Carlén, í síma í Helsingfors 90-358-0- 668143. Staðan er laus frá 11. maí 1994 eða eftir samkomulagi. Umsóknin þarf að berast miðstöðinni í síð- asta lagi 18. 10. 1993 NORDISKT KONSTCENTRUM, SVEABORG, SF-00190 HELSINGFORS.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.