Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993
Gunnar og Jónas
í Logalandi
Borgarfirði.
„LISTIN hefur með galdri sínum blandað ólíku fegnrðardísum
saman í eina.“ Þessi setning er í óperunni Tosca eftir Puccini og
það var eins og Gunnar Guðbjörnsson, tenórsöngvari og Jónas
Ingimundarson, píanóleikari, hefðu verið með galdra í Logalandi
1. september sl.
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
Jónas Ingimundarson og Gunnar Guðbjörnsson á tónleikunum í Loga-
landi.
Það er ekki á hverjum degi sem
slíkir listamenn heimsækja okkur
hér út á land og eru tónleikar sem
fluttir er af slíkum snillingum vel
sóttir og létu áheyrendur mikinn
fögnuð í ljós í lok tónleikanna.
Voru þeir félagar klappaðir upp
aftur og aftur.
Efnisskráin var fjölbreytt og
vönduð. Það voru ljóð eftir Emil
Thoroddsen, Johann Strauss,
Verdi, Bizet, Puccini og fl. Gunnar
sagði a_ð sama efnisskráin yrði
flutt í íslensku óperunni sunnu-
dagskvöldið 5. september kl. 20.30
og kallaði Gunnar þetta bland í
poka.
Annars verður Gunnar Guð-
björnsson í Wiesbaden fram að
jólum en kemur svo hingað til að
syngja með íslensku Óperunni
verkið Eugen Onegin eftir
Tsjajkovskíj.
- Bernhard.
Birgðatalning
á kindakjöti
BIRGÐATALNING á kindakjöti
er gerð nú um mánaðamótin sam-
kvæmt ákvörðun landbúnaðar-
ráðuneytisins. Talningin er liður
í uppgjöri á búvörusamnings ríkis-
ins og bænda og var slík talning
einnig gerð síðastliðið haust.
í fréttatilkynningu landbúnaðar-
ráðuneytisins er vakin athygli á þess-
ari birgðatalningu. Fram kemur að
hún er gerð að tillögu framkvæmda-
nefndar um búvörusamninga í sam-
ráði við Landsbanka og Búnaðar-
banka. „Þessi talning er liður í venju-
bundnu uppgjöri á búvörusamningi
ríkisins og bænda og var gerð á sama
tíma haustið 1992. Jafnframt hafa
slíkar talningar farið fram oft áður
á tíma eldri búvörusamnings. Taln-
ing á birgðum kindakjöts fer fram
hjá hverjum sláturleyfishafa í umsjón
starfsmanna bankanna.“
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, MunaÖarhóli 25.
• Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjöröur: TorgiÖ hf., Aðalgötu 32.
• Akureyri: Ljósgjafinn, Ráðhústorgi 7a.
• Húsavík: Öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
c co
13 7T
°l
0*0*
3 <Q
0:8
3 O*
3 Q
oS
Q Q'
QÍ
=50
Q^
3
Q.
SltlCS auglýsingar
Breski miðillinn
Glyn Edwards verður staddur
hér á landi í naestu viku.
Uppl. í síma 686826.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Dick Mohrman.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræöumaður Dick Mohrman.
Kona hans Ruth Mohrman mun
gefa okkur vitnisburð sinn.
Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
Athugið breyttan samkomu-
tíma.
Hvítasunnukirkjan
- Vegurinn
Hafnargötu 84, Keflavík.
Samkoma kl. 11.00 árdegis.
Jesús Kristur er svarið.
Allir velkomnir.
VEGURINN
•^3 * Kristið samfétag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamvera kl. 11.00,
barnablessun, barnakirkja o.fl.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.00. Björn Ingi Stefánsson
prédikar. Athugið breyttan sam-
komutíma. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Dagskrá vikunnar:
Mánudagur kl. 20.00-Grunn-
fræðsla.
Miðvikudag kl. 20.30-Sam-
koma í Óskakaffi, Selfossi.
Föstudag kl. 20.30-Unglinga-
samkoma (13-15 ára).
Laugardag kl. 21.00 -Samkoma
fyrir ungt fólk (16 ára og eldri).
„Drottinn blessar þá er óttast
hann, yngri sem eldri."
SÍtmhjálp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Mikill söngur. Samhjálparkórinn
tekur lagið. Vitnisburðir. Barna-
gæsla. Ræðumaður Óli Ágústs-
son.-Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Skíðadeild
Ármanns
Vetrarstarfið er að hefjast.
Þrekæfingar i öllum aldursflokk-
um hefjast I Ármannsheimilinu,
Sigtúni, mánudaginn 6. sept. nk.
Skráning í Ármannsheimilinu
mánudaga kl. 5-7. Nýir félagar
velkomnir. Verið með frá byrjun.
Allar frekari upplýsingar á sím-
svara deildarinnar, sími 620005.
Notiö símsvarann.
Stjórnin.
KFUM/KFUK, SÍK
Háaleitisbraut 58
Almenn samkoma í kvöld á Háa-
leitisbraut 58 kl. 20.30. Ræðu-
maður verður Skúli Svavarsson.
Einsöngur: Halla Gunnarsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferðir
sunnudaginn 5. sept.
Kl. 8.00. Dagsferð í Bása.
Kl. 10.30. Niður með Þjórsá.
Dagsferð sunnud. 12. sept.
Kl. 10.30. Þingvallaganga 3.
áfangi. Vilborgarkelda - Þing-
vellir.
Lengri ferðir um næstu
helgi: Básar við Þórsmörk
Nú er yndislegur tími að fara í
hönd I Þórsmörk og Goðalandi.
Gönguferðir með fararstjóra og
gist I velútbúnum skála. Farar-
stjóri Hákon J. Hákonarson.
Fimmvörðuháls - Básar
Fullbókað er í þessa ferð, miðar
óskast sóttir eigi síöar en
fimmtudaginn 9. sept. Farar-
stjóri Margrét Björnsdóttir.
Ath. Haustlita- og grillveisluferð
í Bása verður helgina 17.-19.
sept. Pantið tímanlega.
Ath. frá 1. sept. er skrifstofan
opin frá kl. 12.00-17.00.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
Dagsferðir sunnudag-
inn 5. september:
Kl. 9.00 Stóra Björnsfell (1050
m), móbergsfjall sunnan undir
Þórisjökli. Ekið Kaldadalsveg og
frá Brunnum liggur leiðin um
„línuveginn". Verð kr. 2.100,-
Kl. 13.00 Eldvörp-Bláa lónið.
Eldvörpin eru gígaröð norðvest-
ur af Grindavík. Þar eru stórir
gígar og verulegur jarðhiti í ein-
um gígnum og umhverfis hann.
Gufuuppstreymi er þarna og
hefur verið mældur þar um 80
gráðu hiti. Á leiðinni frá Eldvörp-
unum verður gengið fram á rúst-
ir í hrauninu, ekki er vitað um
uppruna þeirra en óneitanlega
vekja þær forvitni vegfarenda.
Bláa lónið er viö stöðvarbygg-
ingar hitaveitu Suðurnesja norð-
an Þorbjarnarfells. Verð kr.
1.100,-.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Opið hús!
Þriðjudaginn 7. sept. kl. 20.30
verður opið hús að Mörkinni 6
(risinu). Spjallað verður um
vinnuferðir í sept. o.fl.
Allir sem hafa áhuga á sjálfboöa-
vinnu fyrir félagið ættu ekki að
láta sig vanta. Næg verkefni
framundan í óbyggðum.
Heitt á könnuni - óformlegar
umræður!
Ferðafélag íslands.
Almenn samkoma í Breiðholts-
kirkju í kvöld kl. 20.30.
Eirný Ásgeirsdóttir predikar.
Mikill söngur og lofgjörð.
Allir velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjusfræti 2
Fjölskyldusamkoma kl. 11.
Umsjón: Starfsmenn sunnu-
dagaskólans.
Útisamkoma á Lækjartorgi kl.
16 ef veður leyfir.
Hjálpræðissamkoma kl. 20.
lautenant Sven Fosse stjórnar
og talar.
Verið velkomin.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Samkoma (dag kl. 11.00. Vetrar-
starf sunnudagaskólans hefst í
dag á sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sjónvarpsútsending á Omega
kl. 14.30.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
I vetur starfa á vegum félagsins
miðlarnir Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir, Ingibjörg Þengils-
dóttir og Kristfn Þorsteinsdótt-
ir. Bryndís Ásgeirsdóttir verður
meðTarot-lestra og Ragnheiður
Ólafsdóttir með áruteikningar
og lestra. Erling Kristinsson
huglæknir og miðill starfar einn-
ig hjá félaginu í vetur. Miðlarnir
June og Geoff Hughes starfa á
vegur félagsins frá 13. septem-
ber. Ofannefnd starfsemi félags-
ins fer fram á skrifstofutíma.
Huglæknar sem starfa á kvöldin
verða auglýstir síðar. Bókanir
eru hafnar í símum félagsins
18130 og 618130, önnur starf-
semi félagsins i vetur verður
auglýst síðar. Stjómin